11.05.1960
Sameinað þing: 48. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 479 í D-deild Alþingistíðinda. (3232)
913. mál, vextir af íbúðarlánum sparisjóða
Fyrirspyrjandi (Daníel Ágústínusson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. félmrh. fyrir svör hans. Mér þykir miður, að þarna er ekki von um neinar úrbætur, vegna þess að ég tel, að þetta mál sé miklu alvarlegra en hæstv. ríkisstj. hefur gert ráð fyrir. Það kann að vísu að vera rétt, sem hæstv. ráðherra sagði, að sparísjóðslán til fasteigna séu nokkuð mismunandi, ýmist með lausum vöxtum eða föstum. En yfirleitt mun reglan vera sú, að sparisjóðsíbúðarlán eru með lausum vöxtum, og það kemur til af þeirri einföldu ástæðu, að fé sparisjóðanna er yfirleitt bundið þeim vöxtum, sem sparifjárinnstæðueigendur á hverjum tíma geta krafizt.
Hæstv. ráðherra sagði að lokum, að þessir háu vextir ættu að standa stuttan tíma. Ég vildi nú leyfa mér að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað er það, sem hann meinar, þegar hann talar um stuttan tíma, og hvað er það, sem hæstv. ríkisstj. meinar, þegar hún talar um, að fólk verði að sætta sig við þessar efnahagsráðstafanir í bili? Hvað táknar stuttur tími hjá hæstv. ríkisstj., og hvað táknar „í bili“, þegar talað er almennt um efnahagsráðstafanirnar og árangur og afleiðingar þeirra?