22.03.1960
Efri deild: 46. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1419 í B-deild Alþingistíðinda. (324)

88. mál, söluskattur

Frsm. l. minni hl. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Ég taldi við athugun þær breyt., sem gerðar höfðu verið á frv. í hv. Nd., frekar til bóta. En þótt þær hafi verið gerðar, þá er langt frá því, að breyt. sé ekki þörf í fleiri efnum, og enn fremur er það svo, að málið í heild er þess efnis, að ég hlýt að leggja til, eins og þegar það var til umræðu hér í hið fyrra sinn, að frv. verði fellt. En því fleira sem hægt er að breyta til bóta, því skárra verður málið, og ég vil leyfa mér þar af leiðandi að leggja hér fram þrjár till, til breyt. Skriflegar hljóta þær að vera, af því að tíminn er svo naumur, og ég ætla að leyfa mér að lýsa þessum till. í örstuttu máli.

Fyrst er það brtt. við 6. gr. Hún er í þremur stafliðum. Annar tölul. í frv. er um það, að nýmjólk ein matvæla sé undanþegin söluskattinum. Það er að mínu áliti ákaflega fráleitt að ganga svo langt í skattlagningu sem þarna er gert, að skattleggja þá framleiðslu, sem þjóðin hefur með höndum sér til matar. Og fyrst og fremst tel ég þá, að undanþiggja ætti með nýmjólkinni kjöt og fisk, sem eru höfuðmatvæli þjóðarinnar af eigin framleiðslu. Þessi skattur verður eins og maðkur í þessum vörum, og ég hygg, að það gangi mjög illa að innheimta skattinn t.d. af fiskinum, eins og sölu hans er háttað viða frá framleiðanda til neytanda. Það er hægt að innheimta þennan skatt vitanlega þar, sem fullkomnar sölustöðvar eru. En víða um land er það svo, að þær eru fjaran og bryggjan. Þangað fer fólkið til að fá sér soðningu hjá fiskimönnunum, þegar þeir koma að landi. Og við getum getið því nærri, þegar um svona óeðlilegan skatt er að ræða, hvort hann verður heimtur í þeim viðskiptum, og út af fyrir sig er það ákaflega athugavert að leggja á þjóðina skatta, sem vitað er fyrir fram, að ekki verður hlýtt að greiða. Ég legg þess vegna til í a-lið, að 6. gr. breytist þannig, að á eftir orðinu „nýmjólk“ í 2. tölul. komi: kjöt og fiskur.

Enn fremur er b-liður, að á eftir 12. tölul. komi nýr tölul., sem hljóði þannig: „Dráttarvélar (traktorar) og heyvinnuvélar.“ Samkv. gr., eins og hún er nú, er undanskilið fasteignir, skip og flugvélar, og þetta út af fyrir sig er mjög hliðstætt því, að dráttarvélar og heyvinnuvélar væru undanþegnar. Þær eru hliðstæðar fyrir bóndann bátnum fyrir sjómanninn. Enn fremur eru undanskilin í þessari gr. samkv. 4. lið fiskinet, fiskilínur, önglar og öngultaumar. Það styður það enn fremur, að dráttarvélarnar og heyvinnuvélarnar séu undanskildar, vegna þess að það má segja, að þær séu hliðstæðar netjum fiskimannsins og fiskilinunum, þetta eru veiðarfæri bóndans.

Til samræmís við það, að dráttarvélar og heyvinnuvélar yrðu undanþegnar skattinum, tel ég mjög eðlilegt, að síðasta málsgr. í 6. gr. breytist á þá leið, að það verði ekki aðeins heimilt að endurgreiða söluskatt af því, sem þar er til tekið, sem er efni í vinnuvélar og tæki í skip og báta, heldur sé það beinlínis skylt. Þess vegna hljóðar till. á þá leið: „Síðari mgr. greinarinnar orðist svo: Endurgreiða skal söluskatt af efni, vinnu, vélum og tækjum í skip og báta, sem smíðaðir eru innanlands. Má miða endurgreiðsluna við tiltekna fjárhæð á rúmlest.“ Þetta, sem er samkv. frv. heimilt, tel ég eðlilegt að verði skylt, miðað við aðra þá breyt., sem ég hef nú lýst.

Þá er það 2. till. Hún er við 17. gr., en 17. gr. er um 7% skattinn, og brtt. er um það, að undanþegnar verði dráttarvélar (traktorar) og heyvinnuvélar svo og vélar í skip og báta, sem smíðaðir eru innanlands, því að þetta er til samræmis við það, sem stendur að öðru leyti í gr. En af því að bráðabirgðaákvæðið, sem fjallar um viðbótarskattinn, 8.8% við 7.7% skattinn, er á þá leið, að það sama gildi um grundvöll hans, 8.8% skattsins, sem er í viðbót, og 7.7% skattinn, þá tel ég, að þessi brtt. nái einnig til hans og að hún feli í sér undanþágu að því er hann snertir.

Þá hefur töluvert verið um það rætt hér á Alþingi, — var um það rætt hér í þessari hv. deild, — að það væri nokkuð langt gengið í 25. gr. að veita hæstv. ráðh. úrskurðarvald í skattamálum eins og þar er gert. Það er að vísu á það bent af hæstv. ráðh., að slíkt fyrirfyndist í öðrum lögum. En þegar þetta færist eins mikið í aukana og gert er ráð fyrir með álagningu skatta nú, — færist í aukana skatturinn og um leið valdið, — þá er full ástæða til þess að fara að athuga þetta betur og stinga fótum fyrir síg, áður en slíkt vald, sem er í því efni einræðisvald, er gefið. Ég vil þess vegna leggja til, að aftan við gr. bætist ný mgr., sem veiti nokkurt aðhald. Í landi kunningsskaparins, eins og land okkar er, þá er ákaflega freistandi og reynir mikið á staðfestu ráðherrans, þegar vinir og kunningjar biðja um úrskurði. Ég vil ekki segja það, að t.d. núv. hæstv. ráðh. muni vera sérstaklega veikur fyrir í þeim efnum. En ég vil segja það, að almennt muni það vera svo með menn, sem eru í ráðherrastöðu og hafa slíkt vald á hendi, að það yrði örðugt að fara með það, og vitað mál er, að þeir muni liggja undir ánauð í þessum efnum. Því álit ég, að það væri gott að setja þarna eitthvert hömlunarákvæði, eitthvað það, sem geri að verkum, að bæði ráðh. og skattþegninn, sem biður um úrskurðinn, hafi aðhald af almenningsálitinu, og þess vegna legg ég til, að aftan við gr. bætist ný mgr., svo hljóðandi: „Allir úrskurðir, sem fjmrh. kveður upp samkvæmt ákvæðum þessarar gr., skulu birtir opinberlega.“ Með því ætti að vera nokkur trygging fyrir því, að ekki yrði gengið langt í því að ívilna mönnum í þessum efnum, því að með því þyrfti að ganga í berhögg við almenningsálitið, ef slíkt ákvæði sem þetta væri í lögum. Ég tek fram, að ég miða ekki þessa till. neitt sérstaklega við einstaka ráðh., heldur almennt við þá, sem þurfa með slíkt vald eins og þarna á að gefa að fara.

Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa þessi orð fleiri, enda vil ég ekki verða til þess að lengja þessar umræður úr hófi, en leyfi mér að afhenda hæstv. forseta þessar skrifl. brtt. mínar.