16.02.1960
Neðri deild: 32. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1440 í B-deild Alþingistíðinda. (338)
41. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Eðvarð Sigurðsson:
Herra forseti. Ég ætla nú ekkert að ræða þetta mál sjálft, þó að það gæfi ýmis tilefni til þess og kannske ekki sízt eftir samþykkt þessarar hv. d. á efnahagsmálaráðstöfunum ríkisstj., en ég tel, að stefna þeirra gangi í þveröfuga átt við það, sem einmitt hér hefur gerzt.
En það er annað, sem ég vildi vekja athygli á, og það er, að þessi brbl., sem gefin voru út í des., eru gefin út sem viðaukalög við önnur lög, sem voru mjög sama efnis, þ.e.a.s. lögin um framleiðsluráð landbúnaðarins, sölu landbúnaðarvara o.fl. Það má segja kannske, að þetta hafi að ýmsu leyti verið eðlilegt, vegna þess að hér var um samningamál milli þessara stétta að ræða, og að sú samninganefnd, sem leiddi það mál til lykta, færi ekki að skipta sér af því, á hvern veg lögin yrðu gerð. En ég tel, að það væri Alþingi til lítils sóma að ganga frá lögunum eins og lagt er til í áliti n. Ég teldi, að það væru miklu betri vinnubrögð og sjálfsögð, að þessi brbl. verði felld inn í lögin um framleiðsluráðið. Þetta er að mörgu leyti nákvæmlega hið sama og er nú í II. kafla framleiðsluráðslaganna, og hafa þær breyt. einar þar á orðið, sem þessar höfuðstéttir hafa komið sér saman um, að vera skuli. Fer því illa á því að láta framleiðsluráðslögin standa eins og þau eru með II. kaflanum þar óbreyttum, og gefa síðan út viðaukalög, sem eru orði til orðs að mestu leyti hið sama, aðeins með þeim breytingum, sem á urðu í samningunum í desember. Ég teldi, að það væru miklu betri vinnubrögð og Alþingi eigi raunar ekki að láta lögin frá sér fara án þess að fella þau saman.
Ég vildi þess vegna mjög mælast til þess, að hv. landbn. tæki málið aftur fyrir og reyndi að samræma þessi brbl. inn í ramma framleiðsluráðslaganna, en ekki, að þetta verði viðaukalög.