18.02.1960
Neðri deild: 33. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1441 í B-deild Alþingistíðinda. (342)
41. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Frsm. (Jónas Pétursson):
Herra forseti. Það kom fram við 2. umr. málsins hér í d. ábending um, að betur færi á að fella þessar breytingar inn í sjálft meginmál laganna um framleiðsluráð. Ég gat þess þá, að þetta hefði komið ofur lítið til umræðu í landbn., en þó ekki virzt ástæða til þess. En rétt er að viðurkenna það, að miklu betur fer á þessu, og þess vegna tók n. þetta til athugunar að nýju. Sú brtt., sem hér liggur fyrir, er aðeins um það að fella það frv., sem lá fyrir, eða brbl. frá 15. des. inn í heildarlögin um framleiðsluráð. Þetta er engin efnisbreyting, en auk þess ákveðið í niðurlagi brtt., að lögin skuli gefin út í heild, eftir að þau hafa öðlazt samþykkt. — Þessa vildi ég aðeins láta getið.