23.02.1960
Efri deild: 28. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1442 í B-deild Alþingistíðinda. (345)
41. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Enda þótt þetta mál, sem hér er til umræðu, sé öllum hv. alþm. kunnugt, þykir mér rétt að fara um það nokkrum orðum við þessa 1. umr. hér í hv. d.
Það er kunnugt, að brbl. fyrrv. ríkisstj. voru mikið rædd á s.l. hausti og ollu ágreiningi á milli ýmissa aðila. En þetta frv., sem hér er til umræðu nú, er afleiðing af þeim lögum og er byggt á samkomulagi, sem náðist í desembermánuði s.l., en hin fyrri brbl. runnu út, eins og kunnugt er, hinn 15. des.
Það tók nokkurn tíma að fá aðila til að sættast í þessu máll, en vegna góðs vilja af beggja hálfu tókst það, að vænta má til mikilla hagsbóta fyrir báða aðila, bæði framleiðendur og neytendur. Meginbreyting í þessu frv. frá gildandi lögum er sú, að upp í þetta frv. er tekið ákvæði, sem heimilar neytendum að vera með í að ákveða dreifingarkostnað á landbúnaðarvörum. Ég tel, að það sé hagsmunamál beggja, jafnt framleiðenda sem neytenda, að dreifingarkostnaðurinn geti hverju sinni verið sem minnstur. Og það þarf ekki um það að ræða, að það er einnig hagsmunamál beggja og undirstaða undir áframhaldandi samstarfi, að báðir aðilar eigi þess kost að kynna sér til hlítar þann grunn, sem byggt er á hverju sinni. Ég er þeirrar skoðunar, að það sé hollt, að neytendafulltrúar, sem stundum telja, að bændur fái of mikið í sinn vasa, kynni sér það til hlítar, hvað bóndinn raunverulega fær og hvað hinn nauðsynlegi dreifingarkostnaður er, sem er gífurlega mikill. Við það, að aðilar kynni sér þetta til hlítar, mun skapast betri skilningur og betri aðstaða til þess að semja um þessi mál, bæði í nútíð og framtíð.
Önnur breyt. í þessum lögum er sú, að í stað þess, að heimilt var að hækka verð innanlands til þess að bæta með halla á útfluttum vörum, er nú horfið frá því, en tekin upp útflutningstrygging á þeim landbúnaðarvörum, sem út eru fluttar. Það má segja, að það ákvæði í lögunum að hækka vöruverð innanlands til þess að bæta upp halla á útflutningi hafi verið að mestu óframkvæmanlegt, auk þess sem það var mjög óvinsælt, og það fullnægði alls ekki því, sem bændur í rauninni áttu rétt á, en það var að fá svipaðar tekjur og aðrar vinnandi stéttir, vegna þess að þeir þurftu oft að bera halla af útflutningi landbúnaðarvara. Og sérstaklega var þetta tilfinnanlegt á árinu 1958, því að þá vantaði bændur 23 aura á hvern innveginn mjólkurlítra það ár, vegna þess að það var tap á útfluttum mjólkurafurðum, sem ekki var unnt að ná upp þrátt fyrir þá heimild í 1ögum að geta hækkað verð innanlands til þess að bera uppi hallann.
Það, sem hefur vantað í framleiðsluráðslögin, til þess að unnt væri að fullnægja því ákvæði, að bændur bæru ekki verri hlut frá borði en aðrar vinnandi stéttir, voru þrír punktar. Það var í fyrsta lagi það, að lengst af hefur ekki verið heimilt að taka tillit til kauphækkana nema einu sinni á ári, þ.e. í septembermánuði, þegar vörurnar eru verðlagðar. Þótt kaup hækkaði í október og fyrri hluta árs, gátu bændur ekki fengið það bætt fyrr en eftir ár. Afleiðingin af þessu var sú, að bændur báru skarðan hlut frá borði og neytendur margir hverjir héldu, að þegar landbúnaðarvara hækkaði ár eftir ár, væru það bændur, sem væru að ryðja brautina til nýrra krafna. En þessu hefur verið breytt þannig, að ef kaup hækkar, má taka tillit til þess ársfjórðungslega í verðlaginu. Annar veigamikill punktur, sem vantaði í framleiðsluráðslögin, var það, að ef rekstrarvörur landbúnaðarins hækkuðu, var ekki unnt að taka tillit til þess nema einu sinni á árl. Þótt rekstrarvara hækkaði, þegar nýbúið var að verðleggja vöruna, t.d. í október, varð bóndinn að bíða eftir verðhækkun í heilt ár. Þetta varð til þess, að á þessum verðhækkunartímum hafa bændur borið skarðan hlut frá borði og lögunum alls ekki verið fullnægt að því leyti, að þeir hafi svipaðar tekjur og annað vinnandi fólk. Og svo er þriðji punkturinn, sem var ekki veigaminnstur og ég minntist lítillega á áðan, en það var það, að þegar landbúnaðarvörur voru fluttar út fyrir lægra verð en þær voru í grundvellinum, báru bændur oft þann halla, og það varð til þess, að tekjur þeirra urðu mun lægri en ætlazt var til með sex manna nefndar samkomulaginu.
Þessir þrír punktar verða teknir í lög með þessu frv., og má þess vegna ætla, að þetta frv. tryggi það betur en nokkru sinni áður, að bændur fái svipaðar tekjur og annað vinnandi fólk, m.ö.o., að 1. gr. þessa frv. og 4. gr. laganna verði fullnægt, sem ekki hefur verið áður. 'Ég veit það, að fulltrúar neytenda í sex manna n. hafa alltaf ætlazt til þess, að bændur fengju það verð til sín, sem ætlazt er til og reiknað er með að þeim beri samkv. samkomulaginu. Það hefur alls ekki verið að vilja neytendafulltrúanna, að bændur fengju ekki það, sem þeim ber að fá lögum samkvæmt. Þetta frv. tryggir betur en nokkru sinni fyrr, að ákvæðum l. verði fullnægt að þessu leyti, og ég vil segja það, að það samkomulag, sem hér hefur náðst á milli neytenda og framleiðenda, spáir góðu um það, að áframhald megi verða á því, það er öllum fyrir beztu.
Nú hefur sex manna n. samkv. þessu samkomulagi setið á rökstólum undanfarið, og ég hygg, að hún hafi að þessu sinni náð samkomulagi, enda þótt það hafi ekki enn verið staðfest, en ég hygg, að svo hafi verið. Þetta frv. gerir að vísu ráð fyrir þeim möguleika, að samkomulag náist ekki og að þá verði skipaður yfirdómur með hagstofustjóra fyrir oddamann og einum fulltrúa frá framleiðendum og öðrum frá neytendum. En ég hygg, að til þess þurfi ekki að grípa að þessu sinni að skipa yfirdóminn, og ég veit það, að þeir aðilar, sem stóðu að samkomulaginu í desember og unnu að því af miklum áhuga og góðvild, hafa einnig nú í sex manna n, unnið með sama hugarfari að því að ná samkomulagi um endanlegt verðlag, sem gildir frá 1. sept. s.l.
Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta mál að sinni, en legg til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.