23.02.1960
Efri deild: 28. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1444 í B-deild Alþingistíðinda. (347)

41. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Viðvíkjandi þessum fyrirspurnum, þá held ég, að ég geti sagt það, að það sé orðið samkomulag. Það er að vísu ekki opinbert, og ég hygg, að það sé eftir að halda einn fund, en mér hefur skilizt, að það væri samkomulag, og eftir daginn í dag geri ég ráð fyrir, að það verði heyrinkunnugt.

Um það, ef um hækkun verður að ræða, hvort útsöluverðið verður þá látið hækka eða niðurgreiðslan aukin, því get ég ekki svarað í dag, vegna þess að það er ríkisstj. öll, sem fjallar um það, en það hefur ekki komið fyrir ríkisstj. að svo komnu, vegna þess að verðið eða niðurstaðan hefur ekki verið tilkynnt. Ég gæti vel trúað því, að ríkisstj. fengi vitneskju um þetta seinni partinn í dag eða á morgun, og þá mun hún að sjálfsögðu halda fund um málið og taka ákvörðun um það, hvort niðurgreiðsla verður aukin, ef um verðhækkun er að ræða, eða hvort útsöluverðið hækkar. Þetta er sennilega aðeins einum degi of fljótt spurt til þess, að það sé hægt að gefa fullnægjandi svar.