11.03.1960
Efri deild: 40. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1448 í B-deild Alþingistíðinda. (352)

41. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Jón Þorsteinsson:

Herra forseti. Með frv. því til laga um framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu o.fl., sem hér liggur fyrir, er verið að endurbæta lögin um framleiðsluráð frá 1947. Hér er sannarlega um þýðingarmiklar endurbætur að ræða. En undirstaðan að því, að þessar endurbætur fást nú fram, er brottför neytendafulltrúanna úr sex manna n. á s.l. haust og brbl. þau, sem minnihlutaríkisstjórn Alþfl. setti á svipuðum tíma. Í raun réttri eiga bændur þakkir skilið fyrir þá víðsýni og þann skilning, sem þeir hafa sýnt á sanngjörnum kröfum neytendanna, sem komu fram í því, að samkomulag náðist um þessi mál í desembermánuði s.l. milli framleiðenda og neytenda, og þessar þakkir eiga bændur því fremur skilið, þar sem búið var að þyrla upp pólitísku moldviðri um þetta mál.

Þó að þetta frv., sem hér liggur fyrir, sé byggt á samkomulagi milli framleiðenda og neytenda, þá eru það vitanlega fyrst og fremst höfuðatriðin, sem samið var um. Ég hef ekki litið svo á og ekki heldur aðrir meðlimir landbn., að þarna mætti ekki hrófla neinu. En þessi höfuðatriði, sem endurbæturnar eru fyrst og fremst fólgnar í, eru, að nú er ekki lengur heimilt að leggja gjald ofan á söluverð landbúnaðarvara á innlendum markaði vegna halla, sem verður á sölu þeirra á erlendum markaði, eins og gert var haustið 1958, en það var í raun og veru upphafið að þeim deilum, sem spruttu á s.l. ári. Nú er tekið fyrir það. Og í öðru lagi hafa nú neytendurnir fengið fullan íhlutunarrétt og jafnrétti við bændur um ákvörðun á dreifingar- og vinnslukostnaðinum, en um það voru þeir réttlausir áður.

Þó að ég sé í heild fylgjandi þessu frv. og telji vissulega ástæðu til þess að fagna því, tel ég samt, að á því séu nokkrir annmarkar, sem eðlilegt sé að sniðnir séu af í meðförum þingsins, og hef ég því leyft mér að bera fram brtt. við frv. þetta. Þær brtt. eru á þskj. 153, og vil ég leyfa mér að gera lítils háttar grein fyrir þeim.

Fyrsta brtt. er við 2. gr. frv., að í stað Sjómannafélags Reykjavíkur komi Sjómannasamband Íslands. Þessa breytingu tel ég eðlilega. Þegar lögin voru sett 1947, var Sjómannasamband Íslands ekki til. Það er mjög ungt, sennilega tveggja ára gamalt. Uppistaðan í þessu sjómannasambandi er nú Sjómannafélag Reykjavíkur. Í því eru svo að auki nokkur sjómannafélög og sjómannadeildir úti um landið, og ég tel það á allan hátt eðlilegra, að það sé landssamband, sem skipar þarna neytendafulltrúann, því að hinir aðilarnir, sem skipa neytendafulltrúa, eru líka landssambönd. Ég tel því, að með tilkomu Sjómannasambandsins sé eðlilegt, að það fái þarna rétt til að skipa fulltrúa í stað Sjómannafélags Reykjavíkur.

Næsta brtt. er við 6. gr. frv., en við þá grein og um þetta sama atriði hefur reyndar landbn. líka gert brtt., og er ég að vísu sammála þeirri brtt. n., svo langt sem hún nær. Hún nær bara of skammt, þ.e.a.s. það er verið að afnema kaupgreiðsluvísitöluhækkun, sem er auðvitað sjálfsagt og eðlilegt, þegar kaupgreiðsluvísitala er nú naumast lengur til í sjálfu sér og þegar verkalýðsfélögin hafa ekki lengur heimild til að hækka kaup meðlima sinna eftir vísitölu. En munurinn á minni till. og till. hv. landbn. er fólginn í tvennu, og það er fyrst og fremst í sambandi við hinar ársfjórðungslegu breytingar. Að vísu má skjóta því hér inn í, að það væri e.t.v. eðlilegt, að þessir möguleikar til breytinga á búvöruverði ársfjórðungslega væru felldir niður, eftir að efnahagslögin voru samþykkt, því að þetta hefur vitanlega verið grundvallað á því, að verkamenn hafa fengið undanfarið ársfjórðungslegar breytingar eða hækkanir á kaupi sínu vegna vísitölubreytinga. En út í það skal nú ekki farið, það er ekki gerð till. um, að þessi heimild til ársfjórðungslegrar hækkunar verði felld niður. En munurinn á minni till. varðandi 6. gr. og till. landbn. er tvenns konar. Hann er sá í fyrsta lagi, að landbn. heldur hér því ákvæði frv., að breytingin sé miðuð við breytingu eða hækkun, sem hefur orðið á kaupi í almennri verkamannavinnu í Reykjavik. Nú er það svo, að þegar verðlagsgrundvöllur er fundinn á haustin, aðalgrundvöllurinn, er ekki miðað við verkamannakaup í Reykjavík. Það segir í 1.gr., eins og öllum er kunnugt, að söluverð landbúnaðarvara á innlendum markaði eigi að miðast við, að heildartekjur þeirra, sem landbúnað stunda, verði í sem nánustu samræmi við tekjur annarra vinnandi stétta. Það er ekki talað um verkamenn, heldur aðrar vinnandi stéttir, og það er náttúrlega um fjöldamarga aðra aðila að ræða en verkamenn. Mér finnst það því ósamræmi, að á haustin, þegar aðalgrundvöllurinn er fundinn, sé miðað við aðrar vinnandi stéttir, þ.e.a.s. launaúrtak, sem hagstofan lætur gera, en þegar breytingar eiga sér stað ársfjórðungslega, sé eingöngu miðað við verkamannakaup í Reykjavík, enda finnst mér nú, eftir að vísitöluuppbótin er fallin niður, að þá sé nú út af fyrir sig mjög ólíklegt, að verkamannakaup í Reykjavík breytist ársfjórðungslega. Þess vegna tel ég, að það sé á allan hátt eðlilegra, að það sé sama regla, sem gildir bæði á haustin og á öðrum árstíma um það, hvernig breytingar á kaupi hafi áhrif á verð landbúnaðarvara. Þess vegna hef ég lagt til í minni till., að þessi hækkun eða breyting ársfjórðungslega verði miðuð við laun annarra vinnandi stétta að því leyti, sem þau hafa breytzt á siðasta ársfjórðungi, en ekki eingöngu við kaup verkamanna í Reykjavík. Þá er það líka að öðru leyti, sem skilur á milli minnar till. og till, landbn., og það er, að í till. landbn. segir, að heimilt sé að breyta afurðaverði til framleiðenda vegna hækkunar á kaupi. Þetta finnst mér of þröngt, þarna ætti vitanlega að standa: vegna breytinga á kaupi. Þ.e.a.s., bændur eiga samkvæmt þessu rétt til að fá hækkun, ef kaup hækkar, en það á ekki að lækka búvöruna, ef kaupið skyldi lækka. Þó að menn hafi yfirleitt ekki veitt því athygli, er þarna ekki um jafnrétti að ræða. Það er ósköp eðlilegt, að þetta sé gagnkvæmt, og ég vil líka vísa til þess, að í 3. mgr. 6. gr. frv. er talað um breyt. á söluverði landbúnaðarvara til samræmis við breytingu, sem orðið hefur á vinnslu- og dreifingarkostnaði, og þar er bara talað um breytingu, en ekki talað um hækkun. Það er þess vegna sanngjarnast, að verðið á landbúnaðarvörunum ekki eingöngu hækki, ef kaup hækkar, heldur líka lækki, ef kaup lækkar. — Í þessu tvennu er fólginn munurinn á minni till. og till. hv. landbn.

Þá kem ég að brtt., sem ég hef gert við 9. gr. frv. Í 9. gr., 2. mgr., segir, að tryggja skuli greiðslu á þeim halla, sem bændur kunna að verða fyrir af útflutningi landbúnaðarvara, en þó skuli greiðslan vegna þessarar tryggingar ekki vera hærri en sem svarar 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar viðkomandi verðlagsár, miðað við það verð, sem framleiðendur fá greitt fyrir afurðir sínar. Til þess að skýra þetta nokkuð með dæmi, þá er áætlað, að heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar til framleiðenda sé yfir árið um 730 millj. kr., og þá þýðir þetta það, að bótagreiðslan vegna halla á útflutningi má nema samkvæmt þessu allt að 73 millj. kr. yfir árið. Þetta þýðir í raun og veru það, að þótt útflutningur landbúnaðarvara ykist stórkostlega frá því, sem nú er, fengju bændur hallann að fullu bættan upp.

Það væri í raun og veru að mínum dómi hreinlegra að hafa engin mörk en að vera að setja mörk, sem eru raunverulega ekki nema blekking, vegna þess að það eru engar horfur á, að þeim verði nokkru sinni náð.

Þegar bændur eru studdir til þess að framleiða nóg fyrir innanlandsmarkað og það er verið að ábyrgjast þeim við þá framleiðslu sömu kjör og öðrum vinnandi stéttum, finnst manni, að það væri eðlilegt, ef þeir gerast útflytjendur, að þá sætu þeir við sama borð og aðrir útflytjendur. Hins vegar viðurkenni ég, að það er sanngjarnt, ef menn krefjast þess og vilja stuðla að því, að bændur framleiði alltaf nóg fyrir innanlandsmarkað, þá er ekki hægt fyrir fram að framleiða nákvæmlega það, sem innanlandsmarkaðurinn þarf. Það má segja, að það sé eðlilegt, að þarna geti í góðu árferði orðið nokkur umframframleiðsla, sem verði að flytja út og bændur eigi þá að fá sama verð fyrir og á innanlandsmarkaði. En þá teldi ég alveg nægjanlegt, að útflutningur, sem fer ekki fram úr 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar, miðað við innanlandsverðið, sem bændur eiga að fá, verði bættur. Ég vil halda mér við dæmið um 730 milljónirnar til samanburðar. Ef bændur flytja út vöru, sem eftir innanlandsverði ætti að fást 73 millj. kr. fyrir, en það fæst ekki svo mikið, þá skal sá munur einn bættur, og að því miðar mín tillaga, sem sagt miðar að því að setja þarna hófleg mörk, en ekki mörk einhvers staðar út í loftið, sem eru óraunhæf og væri alveg eins gott að fella niður.

Þá hef ég líka leyft mér að gera aðra brtt. í sambandi við 9. gr., skjóta þar inn nýrri málsgr., sem segir, að ef bændur hagnist á útflutningi landbúnaðarvara, skuli sá hagnaður koma til frádráttar í verðlagsgrundvellinum á næsta verðlagsári. Að vísu má segja, að það sé ef til vill ekki mikill möguleiki á því, að þeir hagnist á útflutningnum, en það gæti þó alltaf komið fyrir, og mér finnst sjálfsagt, að bændur verði þá að skila því aftur, þannig að neytendurnir hafi þá hag af því, að bændur gætu selt, eins og mjög væri æskilegt, vöru sína í útlöndum fyrir það verð, að þeir fengju þar meira borgað fyrir hana en á innanlandsmarkaðinum. Úr því að verið er að tryggja þeim verðlagsgrundvallarverð fyrir alla framleiðslu, eiga þeir einnig að standa skil á hagnaðinum.

Ég skal, til að skýra þetta frekar, taka fram, að þegar landbúnaðarvörur eru fluttar út, getur náttúrlega orðið halli, miðað við innanlandsverðið, á sumum afurðategundum og á öðrum tegundum hagnaður, og kæmi þá sá hagnaður fyrst og fremst í staðinn fyrir bótagreiðsluna og létti þannig á ríkissjóði. Það, sem ég á fyrst og fremst við með brtt. minni, er, að ef heildarútflutningurinn yfir verðlagsárið gefur hærra verð en fæst á innlendum markaði, þá verði sá hagur, sem bændur hafa þar af, látinn koma til frádráttar í verðlagsgrundvellinum á næsta verðlagsári.

Ég vona svo að lokum, að hv. dm. séu mér sammála um það, að hér sé eingöngu um eðlilegar og sanngjarnar leiðréttingar á lögunum að ræða.