11.03.1960
Efri deild: 40. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1454 í B-deild Alþingistíðinda. (355)
41. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Það var út af brtt. hv. 9. landsk., sem ég vildi segja fyrst nokkur orð.
Það er sérstaklega ein brtt. á hans þskj., sem ég vildi ræða, og það eru þessar 10% uppbætur, sem til greina getur komið að ríkið þurfi að inna af hendi, ef bændur fá ekki fyrir útfluttar landbúnaðarafurðir eins og þeim ber samkvæmt verðlagsgrundvelli fyrir hlutaðeigandi ár. Hv. þm. leggur til, að ríkinu verði heimilað að greiða þessar uppbætur. En á hinn bóginn leggur hann einnig til og reiknar með því, að það geti fyrir komið, að bændur hagnist um of á þessum hlutum, ef útflutningsframleiðsla landbúnaðarafurða verður í það miklu hærra verði en bændunum ber samkvæmt verðlagsgrundvellinum, og þá kemur hv. þm. með till. um það, að bændurnir skili aftur, eins og þegar talað er um, að þjófur eigi að skila þýfi sínu. Ég hygg, að það muni tæplega til þess koma, að bændur þurfi að skila neinu aftur í þessu tilfelli, því að þegar verðlagsmál landbúnaðarins eru athuguð til grunna, sjáum við, hversu mikla möguleika ríkið hefur, sem í þessu tilfelli á að inna af hendi það, sem á vantar, að náist verðlagsgrundvallarverð, — það hefur svo marga þræði af þessu verðlagi í hendi sér, að það getur hæglega kippt að sér hendinni með niðurgreiðslur, sem það á að inna af hendi til landbúnaðarins á sama tíma, því að það er nú svo komið, að ríkið greiðir niður meira af landbúnaðarverðinu en sem nemur milliliðakostnaðinum. Ég hygg, að hver sú ríkisstj., sem situr að völdum, færi að hugsa sig um, ef hún frétti það, að bændur fengju miklu meira fyrir útflutninginn en þeim ber, að þá léti hún endurskoða þann hluta verðlagsins, sem að ríkinu sjálfu snýr, og þar af leiðandi kemur það varla til, að bændur fái nokkurn tíma meira en þeim ber samkv. verðlagsgrundvellinum. Og það ber að líta á hitt, að það hefur aldrei komið fyrir enn þá, að bændur hafi borið úr býtum það, sem þeim ber samkv. verðlagsgrundvellinum, og ég held, að það komi tæplega til heldur á næstunni, að bændur fái það verðlagsgrundvallarverð, sem þeim ber, og þar af leiðandi fái þeir ekki það kaup, sem þeim ber, þegar miðað er við aðrar vinnandi stéttir í þjóðfélaginu. Þar hefur vantað svo mikið, að það er tæplega hægt að gera ráð fyrir því, svo að maður fari nú ekki að ræða um þá nýjustu hluti í þessum málum, þær gífurlegu álögur, sem verið er að leggja á þjóðina og ekki sízt bændurna í landinu, og það er þeim mun ríkari ástæða til að ætla, að bændurnir fái alls ekki það, sem þeim ber fyrir útflutninginn, heldur en að það fari á hinn gagnstæða veg. Ég er þessari till. eins og öðrum till., sem hv. 9. landsk. þm. ber fram, algerlega ósamþykkur.
Hæstv. landbrh. minntist á það, að hann teldi að sjálfsögðu hyggilegt að taka slíkt ákvæði inn í framleiðsluráðslögin eins og ég og hv. 5. þm. Austf. (PÞ) höfum lagt hér til, þótt ráðh. að vísu nefndi það, að hann teldi bezt við eiga, að slíkir menn, sem skipaðir yrðu eftir tilnefningu hæstaréttar, væru úr sex manna nefndinni. Ég er honum sammála um það. Ég hef ekki á móti því, að þeir séu úr sex manna nefndinni, það er mjög hyggilegt, en ég tel, að till. sé þannig orðuð, að það sé ekki nokkur hlutur í henni, sem bannar það. Og ég hygg, að það liggi í augum uppi og það verði hverjum og einum næst, sem á að skipa fulltrúa í þessa nefnd, að taka þá menn, sem kunnugleika hafa á þessum málum, og þar af leiðandi mundu þeir, sem hafa starfað í sex manna nefndinni, verða fyrstir til kvaddir, þegar um slíka dómnefnd væri að ræða, ef þeir gefa kost á sér.
Þá talaði hæstv. ráðh. um það, að ef slík till. sem þessi væri samþykkt nú, væri það algert brot á öllu samkomulagi, sem hefði náðst í haust. Ég verð nú að játa það, að ég er ekki kunnugur því samkomulagi og veit ekki, hversu mörg mál og margar hliðar á þessu máli hafa komið þar til greina og hversu stíft þeir aðilar, sem að því samkomulagi stóðu, kunna að halda sér bókstaflega við það, sem þeir sjálfir settu inn í frv., og annað ekki, því að að sjálfsögðu vita allir, að þótt þetta ákvæði verði samþykkt nú, breytir það engu um það samkomulag, sem náðist á s.l. hausti. Það vita allir, því að sá verðlagsgrundvöllur, sem nú er fundinn fyrir verðlagsárið 1959 og 1960, stendur óhaggaður þar til á næsta hausti, og við honum verður engu hróflað, þó að þetta ákvæði komi inn í lögin. Þetta ákvæði nær eingöngu til þess, að slíkt ástand skapist ekki í þessum verðlags- og samningamálum eins og hefur verið nú um hálfs árs skeið, og það mun því aldrei koma til framkvæmda, fyrr en farið væri að ræða um verðlagsgrundvöllinn fyrir árið 1960 og 1961, og maður verður að vona, að til slíks þurfi ekki að koma. En það, sem skeð hefur, getur alltaf komið fyrir aftur, svo að ég fæ ekki séð, að það breyti miklu um þá samninga, sem nú gilda. En hins vegar get ég fallizt á það fyrir hæstv. ráðh. að taka till. aftur til 3. umr., ef landbn. eða formaður hennar hyggst beita sér fyrir því að kynna sér þessi málefni eitthvað frekar. Það er vel hægt að gera það. En ég get hvorki fallizt á það, að þetta ákvæði breyti neinu um þá samninga, sem staðið hafa yfir nú, og í öðru lagi það, að hvað sem öllum samningum líður, hvar sem er á landinu, þá þurfi Alþingi sem slíkt að beygja sig og afsala sér slíku valdi fyrir samninga. Og ég held, að það hafi verið hæstv. landbrh. og ýmsir úr hans flokki, sem deildu mjög mikið á vinstri stjórnina forðum fyrir það að vera að binda sig við stéttarsamtök og það, sem þau legðu til, en Alþingi hefur sitt vald og það ætti það að nota. Og ég vil minna hann á það nú, að ég held, að það væri hyggilegra fyrir hann að fylgja þeirri reglu, þegar honum finnst réttlátt mál vera á ferð inni, eins og hann viðurkenndi áðan að hér væri um að ræða.
Hv. 10. landsk. þm. (BGuðm) minntist á það og lagði mjög út af því, að það væru fengnar svo miklar réttarbætur, að mér skilst bæði fyrir framleiðendur og neytendur, samkv. þeim brtt., sem hér liggja fyrir á framleiðsluráðslögunumm, að ekki væri ástæða til að breyta þeim frekar og það væri ekki hyggilegt, að mér skildist á honum, að taka inn ákvæði, þannig að það yrði fullskipaður gerðardómurinn, vegna þess að hann teldi aldrei æskilegt, að hann starfaði, og mér skildist á honum, að hann mundi aldrei hafa starfað. En það er ekki rétt, því að gerðardómur í verðlagsmálum hefur starfað nokkrum sinnum á þessum 13 árum, síðan framleiðsluráðslögin öðluðust gildi. Og að sjálfsögðu — (Gripið fram í: Ekki skipaður af ráðherra.) Nei, það sagði ég ekki. En því ákvæði, sem á að taka við, þegar samkomulag næst ekki, sem er gerðardómurinn, finnst mér að við verðum að ganga þannig frá, að það ákvæði bregðist ekki, eins og það gerði á s.l. hausti. Þetta hafa eiginlega allir viðurkennt, sem um þetta mál hafa rætt, og mér finnst, að okkur beri þess vegna að samþ. þá brtt., sem hér liggur fyrir. Að sjálfsögðu var ekki hægt að búast við því, að gerðardómur skipaður af landbrh. starfaði, þegar ákvæði í lögum var ekki fyrir hendi um þau mál. En hitt var alveg eins hugsanlegt á s.l. hausti, þegar hæstv. ríkisstj. og stuðningsflokkur hennar, Sjálfstfl., samþykkti að gefa út brbl., þá gat maður hugsað sér það, að þeim hefði alveg eins dottið í hug að gefa út brbl., sem kæmu því í kring„ að gerðardómurinn yrði fullskipaður undir öllum kringumstæðum, og að hann hefði verið þá þegar látinn fjalla um verðlagsmálin. Það er alveg eins hugsanlegt. Ég skal nú ekkert segja um, hvort það hefur komið til tals hjá þessum flokkum, sem þá fóru með völdin, en það var alveg eins hugsanlegt. En mér finnst þetta ákvæði vera svo þýðingarmikið, að við getum tæplega hlaupið svo frá málinu að athuga það ekki nánar. En ég vil ítreka það, að ég fellst að sjálfsögðu á till. hæstv. ráðh. að taka till. aftur til 3. umr., ef formaður landbn. hyggst athuga þessi mál frekar fyrir 3. umr. En til atkvgr. óska ég eftir að till. komi allavega.