11.03.1960
Efri deild: 40. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1457 í B-deild Alþingistíðinda. (356)
41. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Hv. 1. þm. Vesturl. (ÁB) var að tala hér um brtt., sem hann ásamt öðrum hv. þm. hefur flutt, og hann vill nú taka hana aftur til 3. umr., ef athugað verður á milli umr., hvort samkomulagsgrundvöllur er fyrir því, að þessi till. verði sett inn í lögin, samkomulag á milli þeirra, sem standa að brbl. Það, sem ég lagði áherzlu á áðan, var, að það væri kannað, því að ég tel, að ef till. eins og þessi væri í lögunum, geti hún alls ekki verið til annars en bóta. Hún getur ekki skaðað, hún spillir ekki l. á neinn hátt, en hún væri a.m.k. frá sjónarmiði sumra nokkurs konar öryggi fyrir því, að ekki gæti endurtekið sig það, sem gerðist á s.l. sumri, þegar ekki var hægt að skipa yfirdóminn. En ég vil þó vekja athygli á því, að hér stendur dálítið öðruvísi á nú en áður, vegna þess að þessi brbl., eru gerð með samkomulagi allra aðila, undirskrifað samkomulag um það að verðleggja landbúnaðarvörurnar eins og ákveðið er með þessum l., ekki aðeins núna, heldur á meðan þessi lög eru í gildi. Það gæti þess vegna verið, að einhverjir af þeim, sem að samkomulaginu standa, segðu sem svo: Þetta er óþarfa tortryggni í okkar garð. Það er verið að gera því skóna, að við ætlum að svíkja gerða samninga. — Og þess vegna segi ég: Þessa till. á ekki að samþykkja, nema það fáist samkomulag við þá, sem standa að brbl. En líti menn hins vegar svo á, að það sé nauðsynlegt að fá þetta ákvæði inn í l., á að flytja sérstakt frv. um það, ef samkomulag næst ekki.
Ég talaði um, að till. væri betri, ef það væri beinlínis ákveðið, að skipa skyldi menn úr hópi sexmannanefndarmanna. Það er ekki ákveðið með þessari till. En það er ekki heldur bannað, það er rétt, eins og hv. 1. þm. Vesturl. sagði áðan. En það er ekki kveðið svo á, að það skuli vera menn úr sex manna nefndinni. Ég tel, að það væri til stórbóta, að það væri. Þá væri öruggt, að í þetta væru valdir þeir menn, sem beztan kunnugleika hafa á þessum málum.
Ég tel ekki ástæðu til þess að segja meira um þetta. Ég ætla t.d. ekkert að fara að eyða orðum að því, þótt hv. 1. þm. Vesturl. gerði tilraun til þess að vekja hér upp draug áðan og fara með ósannindi, þegar hann sagði það á svo smekklegan hátt, að Sjálfstfl. hefði samþykkt það að gefa út brbl. í haust. Ég tel þetta ekki svaravert.