11.03.1960
Efri deild: 40. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1458 í B-deild Alþingistíðinda. (357)

41. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Ásgeir Bjarnason:

Mér finnst koma fram harla einkennilegt sjónarmið hjá hæstv. ráðh., þar sem hann heldur því fram, að sérstakt frv. um sama efni breyti ekki jafnmiklu og sú till., sem fram kemur um breyt. á því frv., sem hér liggur fyrir, því að að sjálfsögðu mundi sérstakt frv. alveg breyta jafnmiklu um framkvæmd, ef til kæmi í þessum efnum, eins og sú till., sem hér liggur fyrir, því að það skiptir engu máli, hvort þetta ákvæði um gerðardóminn og skipun hans er í sjálfum framleiðsluráðslögunum eða einhverjum öðrum lögum, sem ber að fylgja hjá þeirri ríkisstj., sem á annað borð framfylgir og ætlar sér að framfylgja þeim lögum, sem Alþingi samþykkir. Þetta er harla einkennilegt sjónarmið, og það sýnir, í hvern vanda og óefni hæstv. ráðh. er kominn í sínum málflutningi.

Ég er þeirrar skoðunar, að ákvæði slíkt sem þetta tryggi í senn þrennt. Það tryggir það í fyrsta lagi, að ef bændur vilja ekki semja, sem er alveg eins hugsanlegt eins og að neytendur vilji ekki semja, það tryggir í öðru lagi það, að ef neytendur vilja ekki semja, þá komi maður í þeirra stað í n. Í þriðja lagi, sem er kannske langþýðingarmesta atriðið varðandi þetta allt saman og hefur ekki komið enn þá inn í þessar umræður, er það, að hlutaðeigandi ríkisstj., hver sem hún er, losnar við mikinn vanda, því að ég álit, að það hafi alls ekki verið svo vandalítil ákvörðun, sem hæstv. ríkisstj. tók, þegar hún lét gefa út brbl. á s.l. hausti, og þann vanda hefði hún að sjálfsögðu sloppið algerlega við, ef slíkt ákvæði sem þetta hefði verið í lögunum. Ég get ekki heldur fallizt á þau rök hæstv. ráðherra, að það sé ekki möguleiki á samkomulagi í framtíðinni um verðlagsmálin, jafnt þó að ákvæði um yfirdóm verði komið inn í lögin nú. Ég tel þvert á móti, ef á annað borð samningsaðilar hafa einhvern ótta af yfirdómnum, að þá verði þeir fúsari til samkomulags og teygi sig lengra til móts við hver annan en ella væri, og er því mjög þýðingarmikið, að svona ákvæði komist inn í þessa löggjöf.

Ég ætla ekki að fara að rifja hér upp gömul ummæli. En hver einasti maður, sem las dagblöðin á s.l. hausti og hins vegar hlustaði á mál manna fyrir þær kosningar, sem fram fóru þá, vissi það ósköp vel, að Sjálfstfl. á öðru leitinu samþykkti brbl. Hann sagði við ríkisstj. Emils Jónssonar: Sittu áfram þrátt fyrir það, sem þú hefur gert. — En á hinu leitinu reyndi hann að telja fólkinu trú um, að hann hefði viljað hafa allt annan hátt á, að hann hefði viljað greiða niður þessi 3.18%, sem þá var deilt um. En flokkurinn hefur alla tíð verið tvísaga í þessu máli. Staðreyndin er sú, að æðsta ráð flokksins samþ. lögin þrátt fyrir það, að fyrir hafi fundizt kannske einstaka sjálfstæðismenn, sem því voru ekki fylgjandi. En þeir, sem ráða aðalmálefnum Sjálfstfl. í landinu, það voru þeir, sem innst inní í hjarta sínu voru þessum málum fylgjandi.