30.11.1959
Efri deild: 5. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í B-deild Alþingistíðinda. (38)

16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960

Forseti ( SÓÓ ):

Ég vil vísa til fyrri ummæla minna um þetta mál, og um, hver sú knýjandi nauðsyn sé að halda þessum fundi áfram, get ég sagt það, að það er ósk ríkisstj., að þessi fundur verði haldinn í kvöld, dagskrá hefur þegar verið ákveðin, og frá því er ekki hægt að víkja. Hvort sá fundur verður langur, er undir hv. þm. komið, hvað þeir þurfa mikið að ræða um. (Gripið fram í: Eru þetta hótanir?) Nei, alls ekki.