16.03.1960
Sameinað þing: 25. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1576 í B-deild Alþingistíðinda. (385)
42. mál, fjárlög 1960
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég kvaddi mér ekki hljóðs fyrst og fremst til þess að fara að ræða almennt um fjárlagaafgreiðsluna, vegna þess að fulltrúar Framsfl. í fjvn. hafa gefið út rækilegt nál., sem skýrir alveg afstöðu flokksins til afgreiðslunnar, og enn fremur hefur hv. 3. þm. Vesturl. (HS), frsm., gert mjög rækilega grein fyrir þessari afstöðu. En ég mun þó fara um þetta aðeins örfáum orðum, áður en ég kem að því að mæla fyrir brtt., sem ég flyt hér ásamt nokkrum öðrum þm. af Austurlandi. Það verða aðeins örfá orð almennt um málið.
Það vekur auðvitað alveg sérstaka athygli, að ríkisstj. og sá meiri hluti, sem hana styður, sýnir enga viðleitni til sparnaðar í rekstri ríkisins, í einu eða neinu tilliti. Þetta er merkilegt vegna þess, að þeir, sem hér að standa, hafa á undanförnum árum talað mjög digurbarkalega um, að það væri auðvelt að koma fram stórfelldum sparnaði í rekstri ríkisins og þar ætti sér stað útþensla í rekstrinum að ófyrirsynju, sem vel væri hægt að komast hjá, og mætti tilgreina eftir þeim nýleg ummæli, mjög ákveðin, í þessa átt og raunar loforð um það, að þeir mundu sýna í verki verulegan sparnað í ríkisrekstrinum sjálfir, ef þeir réðu þessum málum. En nú beita þeir sér fyrir stórfelldari hækkun á fjárlögunum en nokkru sinni hefur áður átt sér stað á einu ári, en sýna enga viðleitni til þess að standa við eitt eða neitt af því, sem þeir hafa sagt um sparnaðarmálin á undanförnum árum. Þess í stað koma þeir fram hér, hæstv. fjmrh. fremstur í flokki og svo aðrir minni spámenn í sama anda, með alls konar bollaleggingar um það, sem eigi að koma seinna fram í sparnaðarátt, almennt orðaðar bollaleggingar, og í þeim er raunar lítið hægt að festa utan þó það, að komið hefur fram hrein yfirlýsing frá hendi hæstv. fjmrh. um, að það eigi að setja eina silkihúfu ofan á allt saman, sem sé nýja ríkisstofnun, sem eigi að vera til eftirlits með öllum hinum, eins konar ríkisráðsmaður. Það er það eina, sem er alveg fast í þessum yfirlýsingum. Raunar er líka nokkuð áþreifanlegt, að hæstv. ráðh. og hans lið beitir sér fyrir álagningu skatta, eins og t.d. söluskatts á viðskipti innanlands, sem hlýtur að hafa í för með sér stórkostlega aukningu á starfsliði ríkissjóðs, ef innheimta þessa skatts á að verða nokkuð annað en málamyndakák. Einnig hlýtur þessum aðförum að verða samfara stórkostleg útþensla í ríkisstarfrækslukerfinu.
Ef litið er í grg. fjárlagafrv., sem er það fyrsta, sem þessi hæstv. ráðh. stendur fyrir, en önnur fjárlögin, sem þessi valdasamsteypa afgreiðir, þá telst mér svo til, að þar sé boðuð stórfelld fjölgun starfsmanna í grg. berum orðum, fyrir utan það, sem kann að leynast í lausaráðningum bak við óákveðið orðalag, og það sé berum orðum lýst yfir starfsmannafjölgun, sem nemur 82 manns. Að vísu er margt af því liði kennarar og þvílíkt starfsfólk, sem fjölgar árlega með aukinni nemendafjölgun í skólum, en þar er líka um mörg ný störf að ræða eða um margar mannaráðningar, þar sem raunverulega er um útþenslu á sjálfu starfskerfi ríkisins að ræða, m.a. heila stóra stjórnarráðsdeild með mörgum starfsmönnum.
Maður gæti því sagt, að sparnaðarmálin færu vel af stað eða hitt þó heldur, og í nokkru samræmi við annað hjá hæstv. fjmrh. og þeim, sem að þessum málum standa. En ástæðan til þess, að ég er að vekja sérstaklega athygli á þessu, er þó fyrst og fremst sú, hvernig þessir menn hafa leyft sér að tala um þessi mál undanfarið, með hvílíku yfirlæti og blekkingum þeir hafa flutt mál sitt í þessu sambandi og hversu berir þeir eru nú að tvískinnungi og vondri málfærslu í þessu efni eins og flestum öðrum atriðum, sem fjallað er um, síðan þessi hæstv. ríkisstj. tók við völdum.
Bollaleggingar þeirra um, að það hafi ekki verið hægt vegna tímaskorts að koma fram með eina einustu till. — ekki eina einustu — til sparnaðar, tekur náttúrlega enginn alvarlega. Þeir hafa sem sagt haft tíma til alls annars. En sparnaðarráðstafanir verða að bíða, þeir hafa ekki haft tíma til að sinna þeim.
Auðvitað er þetta allt saman ekkert annað en eðlileg undanbrögð þeirra manna, sem ekkert geta staðið við af því, sem þeir hafa sagt. Þetta er ekkert annað, eins og reynslan mun smátt og smátt leiða enn gleggra í ljós en þegar er fram komið. En byrjunin bendir ljóslega til, hvers vænta má, eins og ég hef nú rakið með aðeins örfáum orðum og nefnt aðeins örfá dæmi, sem sýna, hvert stefnir í þessu tilliti.
Þá er annað atriði, sem ég vil aðeins minnast á. Það er heildarstefnan í afstöðu Framsfl. til fjárlaganna, sem þeir hafa, bæði hæstv. fjmrh. og hv. frsm. meiri hl., talið ámælisverða og raunar óábyrga afstöðu. Lítum á þetta aðeins.
Ríkisstj. hefur ákveðið að beita sér fyrir stórfelldum álögum á þjóðina, eins og hér hefur verið rakið undanfarnar vikur og verður á næstunni. Ríkisstj. og stjórnarliðið beitir sér fyrir gífurlegri tekjuaukningu til ríkissjóðs. En það er reynt samt sem áður nokkuð að leyna því, hversu stórfelldar þessar álögur eru, með því að áætla tekjur fjárlaganna af þessum tekjuaukum og af eldri tekjulöggjöf miklu lægra en til greina kemur að tekjurnar verði, og þetta munar alveg gífurlegum fjárhæðum, sem hér hlýtur að skakka. Þetta sést á því, að innflutningsáætlun sú, sem ríkisstj. leggur til grundvallar þessum tekjuáætlunum, er verulegum mun lægri en innflutningurinn var 1958, sem sé fyrir tveimur árum. Þó fer neyzlan í landinu vitanlega vaxandi ár frá ári með vaxandi fólksfjölda, og framleiðslan eykst og innflutningurinn einnig í sambandi við það, þannig að hér er um innflutningsáætlun að ræða, sem aldrei getur komið nálægt veruleikanum, og þá ekki sízt þegar hér við bætist, að hæstv. ríkisstj. ætlar að beita sér fyrir stórfelldri lántöku erlendis eingöngu til vörukaupa á árinu, eins og raunar hæstv. fjmrh. drap á í sambandi við það, sem hann sagði um tekjuáætlunina. Hér hlýtur því miklu að skakka og álögurnar verða meiri en hæstv. ríkisstj. gerir ráð fyrir og þar með tekjur ríkissjóðs. Nú er það ætlun stjórnarflokkanna með þessu bæði að leyna því, hvað álögurnar eru stórfelldar, sem þeir ætla að láta verka til samdráttar í þjóðarbúskapnum, og enn fremur vakir það fyrir stjórninni með því að áætla tekjurnar á þessa lund, eða það er ekki hægt að sjá annað en það vaki fyrir henni með því að búa til tylliástæðu fyrir því að skera niður verklegar framkvæmdir eða minnka verklegar framkvæmdir ríkisins með því að setja dæmið svona upp, enda gefur auga leið, að í þessu fjárlagafrv., eins og hæstv. ríkistj. virðist ætla að ganga frá því, á að verða stórfelldur niðurskurður á framlögum til framkvæmda og til uppbyggingar yfir höfuð í landinu og til margvíslegs stuðnings við almenning. Það er ætlunin að láta framlög til þessara mála fara stórlega lækkandi, og það er liður í samdráttarstefnu ríkisstj.
Nú hefur Framsfl. lýst sig algerlega andvígan þessari samdráttarstefnu og telur hana til stórtjóns fyrir þjóðina, eins og ýtarlega hefur verið rökstutt. Það er þess vegna hlutverk Framsfl. við þessa fjárlagaafgreiðslu að berjast fyrir því, að sem mestur hluti af hinum nýju álögum gangi til uppbyggingarinnar í landinu og stuðnings við almenning í því sambandi, og af þeim ástæðum eru sprottnar þær brtt., sem flokkurinn leggur fram varðandi verklegar framkvæmdir og framlag til stuðnings atvinnuvegunum. Það er tilraun til þess að fá aukin framlög til þessara mála. Það er tilraun til að koma í veg fyrir, að það verði framkvæmdur þessi stórfelldi samdráttur, sem hæstv. ríkisstj. vill þvinga fram, og það er tilraun til þess að tryggja, að álíka mikill hluti af ríkistekjunum gangi til verklegra framkvæmda og til stuðnings við atvinnuvegina og verið hefur fram að þessu. En stjórnin stefnir að því, að sífellt minnkandi hluti af tekjum ríkissjóðs gangi til verklegra framkvæmda og stuðnings atvinnuvegunum. Hér er því um alveg gerólíkar stefnur að ræða: annars vegar stefnu Framsfl. og hins vegar samdráttarstefnu þeirra flokka, sem standa að allri afgreiðslu efnahagsmálanna og þar á meðal fjárlögunum.
Ég neita því algerlega, að afstaða Framsfl. í þessu tilliti eigi í einu eða neinu nokkuð skylt við ábyrgðarleysi, eins og gefur að skilja, þar sem sýnt er fram á það með fullum rökum, að tekjuáætlun sú, sem við stingum upp á, er langt frá því að vera óvarleg, miðað við eðlilegan þjóðarbúskap og miðað við þann innflutning, sem þjóðin hefur fullkomlega ráð á að verði, ef skynsamlega og rétt er á haldið. Og meira að segja tel ég, að okkar áætlun muni standast miðað við sjálfa samdráttarstefnuna í framkvæmd, því að ég hef enga trú á því, að hæstv. ríkisstj. geti í framkvæmdinni þvingað innflutninginn eins mikið niður og hún sýnist vilja gera og ætlar sér að gera, ef dæma á eftir innflutningsáætluninni fyrir 1960. Það er sem sé óhugsandi að ríkisstj. takist að þjarma svo að mönnum, minnka kaupgetu manna í svo stórfelldum mæli, að innflutningurinn verði jafnlágur og hún gerir ráð fyrir. Og þó að ríkisstj. takist að sjálfsögðu með öllum þessum aðförum að draga stórkostlega úr framkvæmdum manna í landinu, þá eru engar horfur á því eða a.m.k. fullkomlega vafasamt, að henni takist að berja svo niður innflutning fjárfestingarvara eins og hún gerir ráð fyrir.
Þessi tekjuáætlun okkar er því fullkomlega raunhæf og áreiðanlega mjög lágt metnar tekjurnar miðað við það, sem þær gætu orðið af eðlilegum innflutningi til landsins, því að við neitum algerlega að miða okkar till. um úrlausnir í efnahagsmálunum við þá stefnu fátæktarinnar, sem hæstv. ríkisstj. beitir sér fyrir.
Það hefði verið býsna furðuleg afstaða af okkar hendi, ef við hefðum látið blekkjast til þess að samþ. hér á Alþ. með þögninni þann stórfellda niðurskurð á framlögum til verklegra framkvæmda, sem stjórnarliðið stefnir að, og þær áætlanir um þessi efni, sem settar eru fram og sumpart beinlínis miðaðar við að dylja það, hvað á þjóðina er raunverulega lagt, og sumpart miðaðar við samdráttarstefnu, sem við erum algerlega á móti og teljum ófyrirsynju tekna upp.
Máttu stjórnarliðar ómögulega ímynda sér, að þeim yrði kápa úr því klæði, að á slíkt yrði fallizt og að þeim héldist uppi að saxa niður stuðning ríkisvaldsins við almenning í landinu í margvíslegum myndum, eins og þeir eru að gera með þessari afgreiðslu sinni á fjárlagafrv.. — að þeim héldist það uppi, án þess að till. kæmu fram, sem sýndu, hvað raunverulega er hægt að gera og hvað raunverulega liggur beint við að gera, miðað við þær álögur, sem stjórnarliðið hefur ákveðið að berja fram og beita sér fyrir.
Hæstv. fjmrh. var að tala um ýmsa búhnykki, sem hefði verið fitjað upp á, og var m.a. að tala um, að það væri sýnd mikil ráðdeild með því að færa nú saman fjárveltingar til vega og veita fé í færri vegi en áður hafa verið settir á fjárlögin. Hann sagði, að það væri svo útdráttarsamt að vinna að mörgum vegum og hafa smáa fjárveitingu í hvern veg. Það, sem hæstv. ráðh. hefur sagt um þetta, er að mestu leyti byggt á ókunnugleika. Það er nefnilega byggt á þeim misskilningi, að hann virðist halda, að hver tiltölulega lítil fjárveiting til nýbyggingar kosti sérstakan vinnuflokk, sem settur sé á laggirnar. En þetta er byggt á algerum ókunnugleika, vegna þess að hæstv. ráðh. þekkir ekki til þessara mála. Sannleikurinn er sá, að fyrir langflestar af þessum smærri fjárveitingum, sem veittar eru til nýbygginga, til þess að byggja smátt og smátt vegi í afskekktari byggðarlögum, fyrir þessar fjárveitingar er yfirleitt unnið í sambandi við viðhald það, sem fer fram á vegunum árlega, og viðhaldsflokkarnir sjá yfirleitt um þessar endurbætur, um leið og þeir hvort sem er starfa að vegavinnunni. Mest af því, sem hæstv. ráðh. sagði um þetta, er því á misskilningi byggt. Á hinn bóginn er það alveg augljóst, að þessi stefna, sem hæstv. ráðh. hefur beitt sér fyrir, verður í reyndinni til þess, að þessir smávegir, sem nú fá enga fjárveitingu, fá ekki þessar fjárveitingar. Það verður hætt við að sinna þeim, ef þessari stefnu verður fylgt til lengdar. Þeir fá ekki þessar fjárveitingar, sem nú eru teknar af beim. Það verður bara haldið áfram að vinna að öðrum vegum en hinir verða algerlega út undan. Þannig verður þetta í reyndinni, enda mun þetta vera meiningin í raun og veru. Þetta er bara einn angi af þeirri stefnu, sem nú hefur verið upp tekin, að vera ekkert að skipta sér af eða leggja fé í framkvæmdir í afskekktari byggðarlögum. Það er þarna byrjað á því, sem þessir menn kalla eða telja útskæklana, og svo á að smáfikra sig áfram eftir þessum leiðum. Eftír nokkur ár, ef þeir fá að ráða, verður farið að reikna út, að það borgi sig ekki heldur að veita 100–150 þús. kr. í þá vegl. sem eru nú heldur meiri háttar en hinir, sem nú eru felldir niður, og þannig verður þróunin áfram, ef þessir menn fá að ráða. Allt verður það auðvitað gert í því skyni að koma á meiri ráðdeild, það veit maður. Það verður allt gert í því skyni að koma á meiri ráðdeild, því að yfirleitt skilst mér, að til þess að koma á fullkominni ráðdeild í þjóðfélaginu megi ekkert kosta til, a.m.k. í hinum afskekktari byggðarlögum. Það eitt sé fullkomin ráðdeild að sinna þeim verkefnum, sem bezt borga sig í bili. Allt annað sé bara óráðsía, sem smátt og smátt eigi að útrýma úr þjóðarbúskapnum.
Þetta voru aðeins fáein orð sem eins konar inngangur að því, sem ég vildi segja um vegatill. okkar í Austurlandskjördæminu, því að þær eru einmitt til komnar út af þessu m.a., sem ég hef nú verið að nefna. Þar er nefnilega þannig farið að, þvert ofan í till. fjögurra af fimm þm. úr þessu kjördæmi, að það eru felldar niður fjárveitingar til fjöldamargra vega, en aftur að vísu nokkuð aukið til annarra vega. Skal ég nú víkja nokkuð að þessum till., en þær eru yfirleitt byggðar á því, þessar till. okkar, sem eru enn þá skriflegar, en koma síðar fram prentaðar, að þessar fjárveitingar, sem verið hafa til smærri vega, verði teknar inn í fjárlögin, það verði hætt við þá fyrirætlun meiri hlutans að fella þær út af fjárlögunum.
Það er þá fyrst, að við leggjum til, að til Bakkafjarðarvegar verði teknar upp 30 þús. kr. og til Jökulsárhlíðarvegar 30 þús. kr. Það eru þær sömu fjárhæðir, sem verið hafa til þessara vega á síðustu fjárlögum, en hafa nú verið felldar niður af meiri hlutanum.
Þá er lagt til, að í stað Kirkjubæjarvegar komi Hróarstunguvegir. Þannig er háttað, að í Hróarstungunni eru nýir vegir, sem allir hafa haft nokkra fjárveitingu á síðustu fjárlögum, en nú þóknast meiri hlutanum að fella alveg niður fjárveitingu til tveggja veganna og veita aðeins í einn. En við stingum upp á til miðlunar í þessu máli, að fyrirsögnin fyrir þessari fjárveitingu verði þó a.m.k. Hróarstunguvegir, þannig að fleiri en einn af þeim þremur vegum, sem í sveitinni eru, komi til greina í sambandi við fjárveitinguna.
Þá leggjum við til um Fellaveg efri, að í hann verði veittar 25 þús. kr., Hjaltastaðaveg 20 þús. kr. og Seyðisfjarðarveg eystra 20 þús. kr. Eru þetta sömu fjárveitingarnar og veittar voru til þessara vega í fyrra, en nú eru allar felldar niður af meiri hlutanum.
Þá leggjum við til, að til Hellisheiðarvegar verði veittar 200 þús. kr. En þannig er ástatt, að Vopnafjörður er skilinn frá Fljótsdalshéraði með fjallgarði nokkrum, en á honum er heiði, sem Hellisheiði heitir. Það er að vísu talsverður kostnaður við að leggja veg yfir þessa heiði, en ekki stórkostlegur, eins og nú er háttað tækni við vegagerð. En á hinn bóginn mundi þessi vegagerð yfir heiðina stytta vegalengdina, sem farin er nú á milli Vopnafjarðar og Fljótsdalshéraðs, um marga tugi km. Við leggjum því hina mestu áherzlu á, að byrjað verði á þessari vegagerð nú, og leggjum til, að í því skyni verði veittar 200 þús. kr. Ég skal koma því að í þessu sambandi, að við hefðum vel getað hugsað okkur, að fé til þessarar vegagerðar hefði komið af benzínfé, því að hér er um millibyggðaveg að ræða.
Í því sambandi verð ég að segja hv. þm. frá því, að benzínvegaféð, millibyggðaféð af benzínskatti, hækkar nú um 1 millj. og 300 þús. kr., en samkvæmt náðarsamlegri úthlutun þess meiri hluta, sem nú ræður á Alþ., er Austurlandi öllu ætlað að fá 100 þús. kr. af 1300000 kr. Við þm. Austf. höfum reynt að fá þetta leiðrétt í fjvn. fyrir milligöngu manna í henni, en það hefur reynzt alveg ómögulegt að fá þessu breytt. Hér er hið freklegasta ranglæti framið á Austurlandi og verr búið að vegamálum þar en nokkur dæmi eru til á síðari áratugum með þessari framkvæmd. Það fullyrði ég. Má segja, að þetta séu einkennilegar efndir á kosningaloforðum þeirra þm. úr stjórnarliðinu, eða þingmanns úr stjórnarliðinu og varaþingmanns, sem við tvennar undangengnar alþingiskosningar á Austurlandi hafa lagt höfuðáherzlu á það, að ef Sjálfstfl. fengi fulltrúa af Austurlandi, þá mundi fást stóraukið framlag til framkvæmda í fjórðungnum á öllum sviðum og alveg sérstaklega í vegagerð. En nú eiga efndirnar á þessum fyrirheitum að verða þær, að af þessari 1 millj. og 300 þús. kr., sem benzínfé eykst til millibyggðavega, eiga að fara til Austurlands einar 100 þús. kr. Það má segja, að þeir séu ekki vandir að virðingu sinni, sem svona standa að málum.
Þá er það næst, að við leggjum til, að Norðurbyggðavegur í Skriðdal fái 35 þús. kr., og er það jafnt og verið hefur til þess vegar, og til Vaðlavíkurvegar 15 þús. kr. og til Vattarnesvegar 15 þús. kr. Það er einnig jafnt og verið hefur til þessara vega, en til þessara þriggja vega er ekkert framlag í till. hv. meiri hl. fjvn.
Þá kem ég að Stöðvarfjarðarvegi. Í þennan veg hafa á undanförnum árum verið veittar 260 þús. kr. árlega. Þetta er ákaflega þýðingarmikill vegur og eftir að leggja mikið af honum. En nú er það till. meiri hl., að framlagið til þessa vegar verði lækkað um 150 þús. kr. Þó að þessi vegagerð sé tæplega í miðjum klíðum, á að lækka framlagið til hennar um 150 þús. kr. Þetta er að okkar viti hrein óhæfa. Því er að vísu skotið við, að þetta sé gert til þess að taka upp nýjan lið til vegagerðar milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur, sem er ákaflega þýðingarmikill og nauðsynlegur vegur. En auðvitað er slíkt ekkert annað en viðbára af þeirri einföldu ástæðu, að Austurland átti fullkomlega kröfu á því, að fá nýtt framlag í þennan millibyggðaveg á milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar, annaðhvort beint á fjárlögunum sjálfum eða af millibyggðavegafénu, án þess að klipið væri af þeim litlu fjárveitingum, sem á fjárlögunum voru fyrir til annarra vega í fjórðungnum. Og það er hreint hneyksli, að þannig skuli vera farið að.
Það er hreint hneyksli, að það skuli vera klipið af þeim litlu fjárveitingum, sem eru til annarra vega í fjórðungnum, til þess að byrja á þessum nauðsynlega vegi. Við erum að sjálfsögðu með því að leggja fé til þessa Stöðvarfjarðarvegar, á milli Breiðdals og Stöðvarfjarðar, en við álitum, að það eigi að vera viðbótarframlag til fjórðungsins frá því, sem verið hefur, annaðhvort af benzínfé til millibyggðavega eða þá af fjárlögunum beint sem sérstakur liður.
Þá kem ég að vegum í Breiðdal. Þar er leikinn sami leikurinn, þótt í smærri mæli sé. Þar er meiningin að klípa 50 þús. kr. af þeim 200 þús. kr., sem veittar hafa verið til vega í þeirri sveit. En við leggjum til, að það verði sama framlag til vega í þeirri sveit og verið hefur. Þá er einnig gert ráð fyrir því hjá hv. meiri hl. fjvn., að það verði veitt í einu lagi til Breiðdalsvegar 150 þús., niðurskorið um 50 frá því, sem var, en við leggjum til, að þessu verði skipt eins og verið hefur í fjóra staði. Það verður óhjákvæmilega að þoka áfram vegum í þessu byggðarlagi á fjórum stöðum og við viljum, að það sé ákveðið af Alþ., hvernig þessu skuli skipta, en ekki komið undir duttlungum stjórnarvaldanna, ekki komið undir duttlungum þeirra í stjórnarráðinu. ráðherranna, hvernig þessu verði skipt á milli í byggðarlaginu, heldur gangi Alþ. frá því eins og verið hefur. Till. okkar eru þær, að Breiðdalsvegur fái 60 þús. kr., Breiðdalsvegur syðri 30 þús. kr., Breiðdalsvíkurvegur 30 þús. og Norðurdalsvegur í Breiðdal 30 þús.
Þá er þannig ástatt, að veitt hefur verið byrjunarframlag til brúar á Fjarðará í Loðmundarfirði, mun hafa verið 100 þús. kr., en nú tekur meiri hl. sig til og fellir niður fjárveitingu til þessarar brúar, þ.e.a.s. það er engin fjárveiting til hennar á fjárlögunum. Er það okkar till., að til þessarar brúar verði veittar 200 þús. og þannig verði haldið áfram að safna til hennar. Við óttumst það fullkomlega, að ef þessi brú verður strikuð út af fjárl., þá verði það til þess, að þessi framkvæmd verði látin undir höfuð leggjast.
Svipað er ástatt um Selá hjá Starmýri í Álftafirði. Þar hafa verið veittar 100 þús. kr., og nú er hún strikuð út af fjárl. þeim, sem nú er ætlunin að samþykkja. Við leggjum til, að til þessarar brúar verði veittar 250 þús. kr. og með því verði tryggt, að brúin verði byggð alveg á næstunni, en óttumst um hana eins og hina brúna, að ef nú verður alveg fallið frá að veita framlag til hennar, þá muni þessi framkvæmd verða lögð til hliðar og verða alveg út undan.
Þá leggjum við loks til, að framlag til hafnargerðar í Höfn í Hornafirði verði hækkað um 250 þús. kr. Það eru aðeins 100 þús. kr., sem meiri hl. ætlar til hafnarframkvæmda í Höfn í Hornafirði. En það er náttúrlega allt of lítið, miðað við þær miklu framkvæmdir, sem þarf að gera í þessari myndarlegu verstöð, og er fyllsta þörf á því, að þessari fjárveitingu verði lyft í 350 þús. kr., og er það þá meira til samræmis við það, sem gert er um aðrar hliðstæðar hafnir. Það er um ýmsar áætlanir að ræða, sem liggur fyrir á næstunni að framkvæma, eins og gerð hefur verið grein fyrir annars staðar.
Ég skal svo aðeins að lokum taka það fram, að því miður eru það aðeins 4 af þm. Austf., sem standa að þessum brtt. um nokkuð aukin framlög til samgöngumála í fjórðungnum, en fimmti þm., þ.e.a.s. fyrst aðalþm., sem hvarf um það leyti, sem átti að fara að taka fyrir fjárlagatill., og eins varaþm., sem kom í staðinn fyrir hann og birtist um sama leyti, hafa ekki viljað vera með í því að flytja slíkar kröfur eða. slíkar till. um aukin framlög til samgöngumála í fjórðungnum. Fer náttúrlega ákaflega vel á því, því að það eru einmitt þessir menn og þá alveg sérstaklega varaþm., sem er nýkominn á þingið, sem skýrast lofaði því í síðustu alþingiskosningum tvennum og skörulegast, að hann mundi beita sér fyrir stórfelldum auknum framlögum til samgöngumála á Austurlandi og menn mættu treysta því. Það væri alveg víst, að það kæmi fram undireins, ef Sjálfstfl. fengi fulltrúa af Austurlandi, að þá yrðu umskipti í framkvæmdamálum í fjórðungnum og yrðu stóraukin framlög til allra mála og alveg sérstaklega samgöngumála, eins og hann orðaði það, að þá yrðu byggðir vegir, en ekki þetta ómyndarlega kjótl, sem verið hefði, það yrðu byggðir langir og breiðir beinir vegir í stórum átökum. En nú hefur risið lækkað það á þessum hv. þm. á öðrum degi þingsetu hans, að hann lýsti því yfir í dag, að hann gæti ekki staðið með okkur í því að flytja fram þessar smávægilegu kröfur, sem hér er um að ræða, til hækkunar á framlögum til samgöngumála í Austfirðingafjórðungi. Þannig er nú þetta. Þannig er nú þessi frammistaða, og mun eftir því verða tekið, vegna þess að það var ekkert skorið utan af því og allt haft mjög greinilegt um það, hvað ætti að gera. Það var ekkert um að villast, hvað átti að ske. Nú hefur Sjálfstfl. fengið þm. af Austurlandi. Þessu langþráða takmarki hefur verið náð, að flokkurinn fengi þm. af Austurlandi, og þá sjáum við umskiptin: Samdráttur á öllum sviðum og beinlínis níðzt á fjórðungnum í sambandi við skiptingu vegafjár, eins og ég hef gert fullkomna grein fyrir í sambandi við skiptinguna á millibyggðavegafénu af benzínskatti.