16.03.1960
Sameinað þing: 25. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1584 í B-deild Alþingistíðinda. (386)
42. mál, fjárlög 1960
Alfreð Gíslason læknir:
Herra forseti. Ég flyt 3 till. til breyt. á fjárlfrv., og er þessar brtt. að finna á þskj. 203. Vil ég nú fara um þær örfáum orðum og ætla að byrja á að gera að umtalsefni till., sem snertir 14. gr. fjárlfrv.
Þar er ætlað til styrktar íslenzkum námsmönnum 4 millj. 625 þús. kr. Ég legg til; að þessi upphæð verði hækkuð lítið eitt, eða upp í 5 millj. og 400 þús. kr. Í síðustu fjárl., fyrir árið 1959, var samsvarandi upphæð 3 millj. Nú hefur hún sem sagt verið hækkuð af stjórnarvöldunum upp í rúmlega 41/2 millj. Ástæðan til þessarar hækkunar er auðvitað öllum ljós. Það er sú stóraukna dýrtíð, sem hæstv. ríkisstj. hefur hleypt af stað, er þessari hækkun veldur. Þessum námsstyrkjum er varið til handa námsmönnum íslenzkum, sem stunda nám innanlands og utan. Það er mjög augljóst, að ungir menn, sem nú stunda nám innanlands, fá fyrir aðgerðir hæstv. ríkisstj. gífurlegt dýrtíðarflóð í fangið þegar á þessu ári, og venzlamenn þessara manna fá á sig þessar auknu álögur stj. án nokkurra bóta. Þar er ekki um að ræða neinar fjölskyldubætur. Af þessu leiðir, að hinir efnaminnstu hljóta að gefast upp og hætta fjárhagslegum stuðningi sínum við sína skjólstæðinga á námsbrautinni. Afleiðingin verður sú, að fjölmargir fátækir námsmenn neyðast til að hætta námi eða gefa upp vonina um fyrirhugað nám.
Ekki verða erfiðleikarnir, sem stjórnarvöldin þannig valda, þeim námsmönnum léttari, sem stunda nám erlendis, og nægir í því sambandi að benda á gengislækkunina, sem með öllum sinum þunga leggst á þessa námsmenn. Á því sviði virðist því blasa við fullkomið öngþveiti, sem vissulega snertir ekki aðeins fáeina einstaklinga, heldur þjóðfélagið allt. Það er mjög hæpin stefna frá sjónarmiði heildarinnar að takmarka aðgang að háskólanámi eða öðru framhalds- eða sérnámi, og sérstaklega er sú stefna fordæmanleg, að heimild til að nema sé miðuð við efnahagsástæður. Það er mjög hæpin stefna að útiloka menn frá námi fyrir þá sök eina, að þeir séu fátækir. Reynslan mun sýna, að úr hópi hinna fátækustu námsmanna komi beztu lærdómsmennirnir. Þetta er ekki tilviljun, heldur kemur það af því, að úr hópi fátækasta fólksins leggja ekki aðrir út á námsbrautina en þeir, sem efnilegir eru og líklegir til frama.
Námsstyrkina þarf að hækka vegna dýrtíðaraðgerða hæstv. stj., og bað þarf að hækka þá verulega. Þetta er ekki gert í fjárlfrv. Því lagði ég til á þskj. 203, að nokkur bragarbót yrði gerð á í þessu efni, og var mér þó ljóst, að sízt væri hart farið í sakirnar. Till. mín miðast við eins litla hækkun og ég taldi fært að flytja till. um, í þeirri von, að hæstv. ríkisstj. sæi að sér og hækkaði framlagið til þessara þarfa.
Ég sé nú, að frá hv. fjvn. hefur komið till. til hækkunar á þessum lið, og er á þann veg, að í stað 4 millj. 625 þús. komi 6 millj. 595 þús. Ég hafði ekki veitt þessu athygli, áður en ég kom hér í ræðustólinn, og ég vil taka það fram, að ég fagna þessum sinnaskiptum, sem þarna koma fram, og að sjálfsögðu mun ég styðja þá till. frekar en mína eigin, þar sem hún gengur lengra í þá átt, sem ég tel að beri að ganga.
Önnur till. mín fjallar um 17. gr. fjárl., þann lið, sem nefndur er húsnæðismál. Í fjárlfrv. er ætlað til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis 3 millj. og 800 þús. kr. Þetta er lækkun frá í fyrra, því að þá voru ætlaðar til þessara þarfa 4 millj. kr., eins og einnig var árið 1958. Hér er því um samdrátt að ræða, afturför um þetta brýna nauðsynjamál. Ég legg til, að þessi liður í fjárlfrv. verði hækkaður upp í 8 millj, kr.
Það má segja það sama um þessa till. mína og hina fyrri, að ég reyni að fara eins vægt í kröfurnar til hækkunar og ég tel mögulegt. Ég minni á það, að á undanfarandi þingum hafa verið uppi brtt. við þennan lið á þann veg, að þetta framlag til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis yrði hækkað verulega. Minnist ég þess, að hv. 5. þm. Reykv. (JóhH) flutti á bingum 1956 og 1957 brtt. við þennan lið á þá leið, að framlagið yrði hækkað, í fyrra skiptið upp í 10 millj. og í síðara skiptíð upp í 12 millj. Svo hátt treysti ég mér ekki til að fara, enda þótt dýrtíð hafi síðan stórlega aukizt. Ég batt mig við 8 millj., eins og ég sagði áðan, í þeirri von, að einhver úrbót fengist.
Það er mikið um heilsuspillandi húsnæði í þessu landi, ekki sízt hér í Reykjavík. Áð sjálfsögðu eru óhollar og óheilnæmar íbúðir hvarvetna í landinu, en í Reykjavík eru þær flestar á einum stað. Á síðustu 5 árum, árunum 1955–59, hefur verið gerð lausleg athugun á heilsuspillandi húsnæði í Reykjavík. Það voru á þessu tímabili athugaðir 463 herskálar, 69 skúrar og 1740 kjallarar, en alls var athuguð 2791 íbúð á þessu tímabili vegna gruns um óhollustu. Matíð á þessum íbúðum í Reykjavik var það, að meir en helmingur þeirra væri lélegur og í svo slæmu ástandi, að óhæfar mættu kallast. Það er því af nógu að taka, nóg verkefnin, sem leysa þarf á þessu sviði, útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis.
Það er fleira, sem gerir þörf á að hækka þennan lið, m.a. það, að nú virðast fara í hönd tímar minnkandi íbúðabygginga í þessu landi. Ég vil aðeins benda á í því sambandi, að á árunum 1957 og 7.958 komst tala íbúðabygginga, fullgerðra á einu ári, upp yfir 800 annað árið og upp yfir 900 hitt árið. En á síðasta ári, stöðvunarári Alþfl., hrapar tala fullgerðra íbúða í Reykjavík niður í 740. Það eru allar líkur til, eins og efnahagsmálum horfir nú, að þessi tala muni lækka stórlega frá í fyrra á þessu ári og síðan jafnvel áfram. Það er ekkert líklegra en að eins fari um íbúðabyggingar í landinu nú og á árunum eftir gengislækkunina 1950. Af þessum ástæðum er sérstök ástæða til að hlynna að þessum þætti byggingarmálanna.
Ég vil í því sambandi minna á þau orð hv. 5. þm. Reykv., sem hann viðhafði, er hann mælti fyrir sams konar till. hér á hinu háa Alþ. fyrir 2 eða 3 árum. Þá sagði hann orðrétt á þessa leið: „Hvort sem mikið eða litíð er byggt, þá er það forgangskrafa, að sveitarfélögin og valdhafarnir í þjóðfélaginu beiti fyrst og fremst kröftum sinum til þess að útrýma heilsuspillandi húsnæði.“ Undir þessi ummæli hv. 5. þm. Reykv. get ég tekið fullum rómi, og ég er honum einnig sammála, þegar hann segir, „að hækkuð upphæð til þessara þarfa“, sem hann nefndi 12 millj. kr., „væri lágmark til þess að mæta þeim þörfum, sem fyrirsjáanlegar og augljósar eru, til þess að sveitarfélögin geti unnið sómasamlega að útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis“. Ég þarf ekki heldur að minna á það, að a.m.k. bæjarstj. Reykjavikur hefur þrásinnis á undanförnum árum skorað á hið háa Alþ. að hækka þetta framlag og að fyrrv. borgarstjóri, núv. hæstv. fjmrh., hefur stutt það mál hingað til af alefli hér á þingi.
Ég get ekki stillt mig um í þessu sambandi að benda á eina brtt., sem er að finna á þskj. 203, sama þskj, og mínar till. eru á. Sú till. er borin fram af hæstv. forsrh. Hann leggur þar til, að 1 millj. kr. verði varið til byggingar stjórnarráðshúss. Nú er ég honum sammála um það, þessum hæstv. ráðh., að það er full þörf á að byggja stjórnarráðshús. En það er óendanlega miklu minni þörf á að byggja stjórnarráðshús nú í ár eða næsta ár heldur en að útrýma heilsuspillandi húsnæði í landinu. Þess vegna hefði ég viljað stinga upp á því hér nú, að hæstv. forsrh. hefði tekið þessa till. aftur með þeim tilmælum til stjórnarvaldanna, að þessari milljón yrði varið til byggingar íbúða í stað þeirra, sem eru óhollar og heilsuspillandi.
Ég læt þetta nægja um þessa tili. og sný mér þá að þeirri till. minni á þessu þskj., sem ég hef ekki minnzt á enn.
Þær till., sem ég hef gert að umtalsefni, miða báðar í hækkunarátt, allverulega, en sú till., sem ég nú geri að umtalsefni, miðar hins vegar í lækkunarátt. Sú till. snertir 10. gr. fjárlfrv., og langar mig í því tilefni að fara nokkrum almennum orðum fyrst um þetta fjárlfrv., en skal vera stuttorður.
Að sjálfsögðu er þetta frv. til fjárl. hæsta fjárlfrv. til þessa, þrátt fyrir hina svokölluðu stöðvun dýrtíðar og verðbólgu, sem átti að hafa farið fram á árinu 1959, og þrátt fyrir öll kosningaloforð núv. stjórnarflokka um auknar aðgerðir í lækkunar- og sparnaðarátt á þessu ári. Heildarupphæðin á fjárl. í fyrra var rúmar 1030 millj., en nú er heildarupphæðin 1464 millj., eða rúmum 433 millj. kr. hærri en síðasta ár. Í samræmi við þessa verulegu hækkun eiga svo skattar og tollar og aðrar álögur á almenning að stórhækka, en í heild munu skattar og tollar hækka um 422.7 millj. eða yfir 50% frá í fyrra. Þetta er öll stöðvunin, og þetta er allur sparnaðurinn í þessu efni. Nú leynir það sér ekki, þegar lesið er yfir þetta frv. til fjárl., að þar er mikill munur á eftir efni. Sumir kaflar frv. eru þannig úr garði gerðir, að þar er ekki um neina teljandi hækkun að ræða, og það eru einkum þeir kaflar, sem snerta framkvæmdir í landinu, uppbyggingu í landinu. En svo eru aðrir kaflar, þar sem hækkunin er mikil, ég vil segja gífurleg, og meðal þeirra kafla er einmitt 10. gr., en hún ræðir um útgjöld til ríkisstj. Mér virðist ekki vera lögð mikil áherzla á stöðvun verðbólgu og dýrtíðar í hinu virðulega stjórnarráði Íslands. Þar virðast gilda allt önnur hagfræðileg og efnahagsleg lögmál en eiga að gilda meðal almennings. Þegar fullyrt er, að þjóðin hafi lifað um efni fram og verði nú að spinka og spara og jafnvel herða sultarólina, þá stendur stjórnarráðið þar langt fyrir utan og ofan. Í efnahagslífi þjóðarinnar er talið óumflýjanlegt að koma á samdrætti og jafnvel kreppu og til þess sett sérstök, margföld löggjöf. En í stjórnarráðinu heldur verðþenslan áfram, eins og ekkert hafi í skorizt.
Það má segja, að lögmálið um hina eilífu verðþenslu í stjórnarráðinu sé algilt hvað heildarútgjöld þess snertir. En það á sér eina undantekningu, ef einstök atriði eru athuguð. Undantekningin er sú, að laun greidd einstökum starfsmönnum hækka ekki í samræmi við annað á þeim stað, heldur lúta þau þeim reglum, sem almennt gilda í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Þannig var kaupmáttur þeirra skertur verulega á árinu 1959, og enn meiri skerðing á þeim er ákveðin á þessu ári. En þrátt fyrir þennan samdrátt, sem bitnar eingöngu á starfsfólki stjórnarráðsins, vex verðbólgan óðfluga þar. Sparnaður, stöðvun, samdráttur virðast þar óþekkt hugtök. Þar vaxa útgjöldin ár frá ári, enda þótt laun hvers einstaks starfsmanns fái ekki að hækka nú síðustu árin.
Ég minnist þess, að núv. stjórnarflokkar gumuðu mikið á síðasta ári af þeim afrekum leiðtoga sinna að stöðva verðbólgu og dýrtíð, og með því var lífskjaraskerðing almennings afsökuð. Stjórnarleiðtogarnir þreyttust aldrei á að státa af þessu og því hugrekki, sem til þessa þyrfti. En engar ráðstafanir náðu til stjórnarráðsins. Til þess entist ekki hugrekkið. Þenslan í stjórnarráðinu hélt áfram það ár með sama hraða og áður, og hún heldur enn áfram árið 1960, meira að segja með vaxandi hraða. Hin efnahagslega gagnbylting hæstv. ríkisstj. nær ekki til stjórnarráðsins. Það stendur nú eins og í fyrra utan og ofan við allar ráðstafanir sparnaðar, stöðvunar og samdráttar.
Árið 1958 voru útgjöld ríkissjóðs vegna stjórnarráðsins áætluð 141/2 millj. kr., árið 1959, á stöðvunarári Alþfl., 17 millj., og 1960, sjálft samdráttarárið, eru þau áætluð 19.6 millj. kr. Þessi útgjöld ein hækka því um rúmar 5 millj. kr. á þessum tveimur stjórnarárum Sjálfstfl. og Alþfl., árunum, sem boða þjóðinni ekki aðeins efnahagslega stöðvun, heldur stórfelldan efnahagslegan samdrátt og skerðingu. Þessi 5 millj. kr. kostnaðaraukning er ekki til komin vegna almennra launahækkana á staðnum, heldur vegna stórfelldrar útþenslu skrifstofubáknsins, — útþenslu, sem virðist haga sér í samræmi við hið fræga lögmál Parkinsons. Ég skal nefna tvö dæmi þessarar þenslu í ráðuneytunum. Árið 1958 námu áætluð vinnulaun í utanrrn. 680 þús. kr., næsta ár 727 þús. kr., og nú í ár eru þau áætluð 758 þús. kr. Hér verður því um 11.5% hækkun að ræða á þessum tveim árum, þrátt fyrir að launakjör í krónutali eru óbreytt. Í viðskmrn. eru samsvarandi tölur þessi árin 283 þús., 374 þús. og 391 þús. Þar nemur hækkunin hvorki meira né minna en 38%, og ber það óneitanlega meiri keim af viðreisn þess ráðuneytis en af samdrætti.
Ég hef gert stjórnarráðið að umtalsefni vegna þeirrar útþenslu, sem þar fer fram. Stjórnarráðið er annar aðalliðurinn í 10. gr. fjárlaganna. En hinn liðurinn heitir „utanríkismál“. Um hann er svipaða sögu að segja. Þar er ekki uppdráttarsýkinni fyrir að fara. Árið 1958 voru framlög til utanríkismála áætluð 9.2 millj. Næsta ár, 1959, er áætlun þeirra komin upp í 14.3 millj. Þau hækka þannig um 5 millj. á tímabili stöðvunarstjórnar Alþfl., og er það 55.4% hækkun frá árinu 1958. A þessu ári, árinu 1960, eru sömu útgjöld áætluð 22 millj. tæpar og hækka því um 7.7 millj. kr. frá í fyrra eða um 53.9%, enda er gengislækkunin nú farin að segja til sín. Á þessum tveim árum, 1959 og 1960, hækka útgjöld ríkissjóða til utanríkismála því um 109.3%, m.ö.o.: þau gera talsvert betur en tvöfaldast á þessum tveim síðustu árum.
Ekki virðist hafa flökrað að hæstv. ríkisstj. að draga neitt úr þessari gífurlegu útgjaldahækkun á þessum lið. Samdráttur eða sparnaður virðast bannorð, begar um er að ræða 10. gr. fjárlaga, greinina, sem fjallar um rekstur stjórnarráðsins og utanríkisþjónustunnar. Þeir liðir vaxa og dafna, eins og ég nú hef bent á, vaxa eins og illkynjað æxli í hrörnandi líkama. Samanlögð útgjöld til stjórnarráðs og utanríkismála aukast úr 23.8 millj. árið 1958 í 31.3 millj. árið eftir og verða nú í ár 46.6 millj. Þannig hækka ríkisstjórnir, sem þykjast stöðva dýrtíð og verðbólgu, þessi eyðsluútgjöld ríkisins ein um 22.8 millj. kr. á tveimur árum, eða sem næst 96 % .
Hæstv. ríkisstj. mun afsaka sig með því hvað utanríkismálin snertir, að bar sé hækkun óhjákvæmileg vegna gengislækkunarinnar. Ég vil ekki ganga inn á þetta sjónarmið, og í minni till. bendi ég á leið til sparnaðar, leið, sem oft hefur verið bent á áður, og leið, sem er raunhæf. En sú leið er að fækka sendiráðunum erlendis. Það hefur oftlega á siðasta áratug eða hálfum öðrum áratug verið bent á það hér á hinu háa Alþingi, að þörf væri á fyrir okkar litla þjóðfélag að spara við sig sendiráðin erlendis. Menn ýmissa flokka hafa borið fram tillögur þessa efnis hér á Alþingi, þó að þær hafi ekki náð fram að ganga til þessa. Að þessu sinni legg ég til, að sendiráðið í Stokkhólmi, sendiráðið í London, sendiráðið í Osló og annað sendiráðið í París verði lagt niður á miðju þessu ári. Þess vegna hef ég leyft mér að flytja till. um, að kostnaður við þessi ráðuneyti, eins og hann er áætlaður í fjárlagafrv., verði lækkaður um helming, en það mundi spara ríkissjóði eitthvað hátt á 3. millj. kr.
Það er þung byrði svo lítilli þjóð sem við Íslendingar erum að standa undir kostnaði fjölmargra sendiráða úti um heiminn. Þessi kostnaður er almennt það mikill, að jafnvel þjóðir, sem eru allmiklu stærri en við og raunar miklu stærri, kvarta undan þessum bagga. Og erlendis meðal smáþjóða heyrast raddir um það, að þörf sé á að halda í í þessu efni eða jafnvel draga saman seglin. Ég las í Morgunblaðinu 20. febr. s.l. grein um þetta efni, grein, sem varðar Dani, og vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa hana upp. Þessi stutta grein hljóðar svo:
„Vilja leggja niður sendiráðið í Reykjavik. — Kaupmannahöfn, 18. febrúar. — Einkaskeyti til Morgunblaðsins. — Kvöld-Berlingur skýrir frá því, að vinstri og íhaldsmenn undirbúi nú frv. um 4-5 millj. kr. sparnað í utanríkisþjónustunni, m.a. með því að leggja niður sendiráðin í Reykjavík, Osló, Stokkhólmi og að líkindum einnig í Helsinki. Sé það álit þeirra, að nóg sé að hafa ræðismenn á þessum stöðum. Þá er gert ráð fyrir í því frv. að koma fram enn frekari sparnaði með því að sameina nokkur sendiherraembætti. Sú staðreynd, að mörg þau verkefni, sem sendiráðin hafa löngum annazt, má nú leysa á vettvangi ýmissa albjóðastofnana, mun liggja að baki þessum sparnaðartillögum. Þannig munu t.d. rökin fyrir því að leggja niður sendiráðin á Norðurlöndum hvað helzt vera þau, að í undirbúningi er að setja á stofn norræna ráðherranefnd, og einnig má vísa til samvinnu landanna innan Norðurlandaráðsins, hjá Sameinuðu þjóðunum og í fríverzlunarbandalaginu.“
Þannig hljóðar þessi grein í Morgunblaðinu. Hún er athyglisverð fyrir okkur Íslendinga og hlýtur að vekja okkur alla til umhugsunar um það, hvort ekki sé tímabært fyrir okkur að staldra við og athuga þetta mál betur, hvort ekki sé rétt að vinda sér að því nú þegar að spara við okkur lítið eitt í utanríkisþjónustunni. í þessari grein eru tilnefnd rök, sem ég hef ekki nefnt. en ég vil gera að mínum rökum í þessu máli.