28.03.1960
Sameinað þing: 30. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1680 í B-deild Alþingistíðinda. (416)
42. mál, fjárlög 1960
Björn Pálsson:
Herra forseti. Ég ætla aðeins að minnast á smávægis brtt. í byrjun ræðunnar. Það er viðvíkjandi vegi, svokölluðum Bugsvegi, sem liggur fram Blöndudal, sem er farið fram á 100 þús. kr. hækkun til. Það er þannig, að 50 bús. kr. eru eftirstöðvar frá fyrra ári, sem ekki var unnið fyrir. Þetta er of lítið fé til að geta fullgert veginn, og við förum fram á 100 þús. kr. í viðbót.
Enn fremur fer ég fram á 15 þús. kr. hækkun til vegar heim að Reykjum á Reykjabraut. Það eru veittar til hans 35 þús. kr., en við förum fram á 15 þús. kr. hækkun, því að með þeirri hækkun á að vera hægt að fullgera veginn nokkurn veginn.
Ég geri ekki ráð fyrir, að þessar till. verði samþ., vegna þess að við höfum fengið hógværa ábendingu um það frá formanni fjvn., að okkar till. verði ekki samþ. En ég flutti þessar till. með öðrum í þeim tilgangi, að þær yrðu kannske teknar til greina viðvíkjandi þeim 4 millj., sem ráðgert er að veita umfram til vega og fimm manna n. á að úthluta, þannig að þetta gæti verið a.m.k. til ábendingar.
Enn fremur er ég 1. flm. að till. viðvíkjandi því, að ríkissjóður gangi í 1200 þús. kr. ábyrgð vegna gistihúsbyggingar á Blönduósi. Því er þannig háttað, að veitingamanninum á Blönduósi voru sett þau skilyrði, að hann yrði að endurbæta hótelið eða hætta að reka það s.l. sumar. Hann var því tilneyddur að fara í viðbótarbyggingu. Sú viðbygging mun kosta um 11/2 millj. Við förum fram á, að ríkissjóður ábyrgist 80% af þessari viðbótarbyggingu. Ástæðan til þess, að við fórum fram á þetta, var sú, að fyrir lá í frv. heimild um að ganga í 20 millj. kr. ábyrgð fyrir mann, sem hyggst að byggja hótel hér í Reykjavík. Það getur verið álitamál, hvort rétt er fyrir ríkissjóð að fara að ganga í ábyrgð fyrir hótelbyggingum, en ef það er gert hér, er eins réttmætt að gera það úti á landsbyggðinni. Það er óhjákvæmilegt að hafa viðunandi hótel á Blönduósi vegna mikillar umferðar, sem þar er einkum á sumrin, og þar fara um útlendir ferðamenn, og þess vegna er jafnmikil ástæða í sjálfu sér til þess að hafa þar viðunanlegt hótel eins og hér í Reykjavík.
Ég skal ekki bera á móti því, að það geti verið nauðsynlegt og þarft að hafa hér fleiri hótel en eru, en ég veit, að það er líka nauðsyn víða úti á landsbyggðinni, og ég álít, að ríkisstj. verði að gera það upp við sig, á hvern hátt eigi að leysa þessi mál. Það má vel vera, að það sé það réttasta, að sýslufélögin eða bæjarfélögin gangi í ábyrgðir vegna svona bygginga: En ef ríkið á annað borð gengur inn á að ganga í ábyrgð fyrir eitt hótel, er ekki hægt annað en gera það fyrir fleiri. Það verður að vera einhver stefna í málinu. Það má vel vera, að eðlilegasta lausnin væri sú, að Reykjavíkurbær gengi t.d. í bakábyrgð fyrir þessar 20 millj., sem á að ganga í ábyrgð fyrir Þorvald Guðmundsson hér, og að sýslufélagið gengi í bakábyrgð fyrir hótelið, sem byggt væri á Blönduósi, en við vitum, að það er miklu auðveldara að fá lán fyrir þá, sem hafa ríkisábyrgð, heldur en þá, sem hafa ábyrgð frá einstökum sýslufélögum.
Ég býst við, að ríkisstj. muni leysa þetta á viðunanlegan hátt, þannig að annaðhvort verði hótelum úti á landi veittir hæfilegir styrkir eða greiða fyrir þeim með ábyrgðum. Það má sífellt deila um, hvað langt á að ganga í þessum ábyrgðum, og það er vitanlega ekkert vit fyrir ríkissjóð að ganga í ábyrgðir, nema það sé athugað, hvort fyrirtækið er heilbrigt og hvort það er nauðsynlegt að gera þessa framkvæmd. En ég álít, að það sé ekki hægt annað en hafa eina línu yfir allt kerfið, annaðhvort að ganga í ábyrgð fyrir þau hótel, sem er álitið að nauðsynlegt sé að endurbæta eða byggja að nýju, eða þá að ríkissjóður gangi alls ekki í ábyrgð fyrir neinar hótelbyggingar, sama hvar bær eru á landinu. Þess vegna vænti ég þess, að annað tveggja verði gert, að það verði ekki gengið í ábyrgð fyrir hótel, sem á að byggja hér í Reykjavík og á að kosta 20 millj., eða þessi tiltölulega litla ábyrgð verði tekin gagnvart hótelinu á Blönduósi. Ég skal svo ekki fjölyrða meir um það mál.
Frv. það til fjárl., sem hér er til umr., gerir ráð fyrir, að tekju- og gjaldaliðir verði um 1500 millj., og nemur hækkun frá fyrra ári 470 millj. Ríkissjóður tekur nú að sér niðurgreiðslur á vörum, sem útflutningssjóður sá um s.l. ár. Munu þær hafa numið 263 millj. Af þeirri upphæð greiddi ríkissjóður til útflutningssjóðs 150 millj., mismuninn, 113 millj., ber að draga frá 470 millj. Er þá raunveruleg hækkun fjárl. ca. 360 millj., sem er meiri hækkun en dæmi eru til áður. Gert er ráð fyrir, að verðtollur hækki um 70 millj., innflutningsgjald af benzíni 40 millj., gjald af innlendum tollvörum 24 millj., aukatekjur 9 millj., stimpilgjald 9 millj., söluskattur 230 millj., innflutningsgjald o.fl. ca. 170 millj. Gert er ráð fyrir, að tekjuskattur og vörumagnstollur lækki um 76 millj. Þeir gjaldaliðir, sem mest hækka, eru til félagsmála 166 millj. og til óvissra útgjalda 152 millj. Eru það niðurgreiðslur, 113 millj., sem ríkissjóðurinn tekur við af útflutningssjóði, og vegna aukinna niðurgreiðslna ca. 38 millj. Fjárveitingar til verklegra framkvæmda hækka hins vegar litið, til vegamála 8 millj., sem er 9% hækkun, til vita- og hafnarmála 1.5 millj., sem er 6% hækkun, og til raforkumála 14 millj. kr. hækkun. Er gert ráð fyrir, að ríkissjóður leggi til raforkumála á árinu 36.5 millj., en lagði fram á árinu 1958 331/2 millj. kr. Þegar tekið er tillit til gengisbreytingar, er ljóst, að framlög til verklegra framkvæmda lækka raunverulega. Framlög til félagsmála og niðurgreiðslna fara hækkandi. Valda þar mestu um efnahagsráðstafanir ríkisstj. Hér er um vafasama þróun að ræða, að meira en 40% af ríkistekjunum skuli varið til að greiða þessa tvo útgjaldaliði, en tiltölulega litlu fé varið til raforkumála og hafnarbóta, sem eru mestu nauðsynjamál atvinnuveganna.
Hvergi er um sparnað að ræða í rekstri ríkisins, og ber þó þess að geta, að engra hækkana er farið að gæta vegna gengisbreytingarinnar sem neinu nemur, en þær munu óhjákvæmilega valda launahækkunum á næstu árum. Hefur ríkisstj. þá afsökun, sem taka ber til greina, að stuttur tími er liðinn síðan hún tók við völdum. Hins vegar vænta margir mikils af ríkisstj. í þeim efnum, af því að sjálfstæðismenn töluðu mikið um eyðslu og ráðleysi, meðan ráðh. Framsfl. fór með fjármálin.
Sjálfstæðismenn héldu því fram á fundum í vor og haust, að vinstri stjórnin sáluga hefði hækkað skatta og tolla um 1200 millj. Töldu þeir þá með allar tekjur útflutningssjóðs. Hér var um mikinn misskilning að ræða. Yfirfærslugjaldið var ekki annað en gengislækkun, sem var jákvæð fyrir neytendur, en neikvæð fyrir greiðslujöfnuðinn við önnur lönd. Neytendur fengu vöruna aðallega með 55% álagi, en þeir, sem seldu vörur úr landi, fengu að meðaltali 86% uppbætur. Þessar uppbætur gengu svo til þeirra, sem að framleiðslunni unnu, verkamanna, sjómanna og bænda.
Ráðstafanir núv. ríkisstj. eru jákvæðar fyrir viðskiptajöfnuð við önnur lönd, en neikvæðar fyrir neytendur, því að þeir verða nú að kaupa nauðsynjavörur sínar með sem svarar 133% álagi í stað 55% og 30% áður, en fá enga kauphækkun. Árið 1959 voru fluttar inn vörur fyrir 1300 millj., þar af skip fyrir 150 millj. og hátollavörur fyrir ca. 190 millj. Eftir eru þá ca. 950 millj., sem voru fluttar inn með 30—55% yfirfærslugjaldi. Gengisbreytingin ein hækkar verð á þessum vörum um ca. 750 millj., sé gert ráð fyrir, að 1/3 af þessum innflutningi séu rekstrarvörur, og ég reikna ekki með, að það skapi raunverulega kjaraskerðingu, vegna þess að þeir, sem kaupa rekstrarvörurnar, fá það endurgreitt í hærra verði fyrir vörurnar, sem út eru fluttar. Þegar þessa er gætt, eru eftir 500 millj. Vaxtahækkunin er nálægt 4%. Sé gert ráð fyrir, að útlán séu 4000 millj., heildarútlán yfir landið, hækka vaxtagreiðslur alls um ca. 160 millj. Gera má ráð fyrir, að 80 millj. af því renni til sparifjáreigenda. Eru þá eftir 80 millj., sem verka sem kjaraskerðing hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Skattar til ríkissjóðs hækka samkv. fjárlagafrv. um 360–370 millj., en ekki er ólíklegt, að raunverulega verði sú hækkun meiri. Mikið af þessari skattahækkun rennur til fólksins aftur í auknum niðurgreiðslum og hækkuðum almannatryggingum. Þó er sennilegt, að hækkun skatta muni valda allt að 100 millj. kr. kjaraskerðingu, vegna þess að líklegt er, að tekjuafgangur ríkissjóðs á þessu ári verði sem nemur þeirri upphæð. Nemur þá kjaraskerðing sú, sem ríkisstj. leggur á herðar íslenzkri alþýðu, allt að 700 millj, kr., og reyni ég þó á engan hátt að gera hlut ríkisstj. lakari en hann er.
Ég hef frétt á skotspónum, að Jónas Haralz telji kjaraskerðinguna 400 millj. Geri ég þá ráð fyrir, að hann taki aðeins tillit til þeirrar kjaraskerðingar, sem gengisbreytingin veldur, og reikni með minni innflutningi en ég geri, vegna þess að samkvæmt áætlun ríkisstj. um innflutning er gert ráð fyrir allt að 25% minni innflutningi en árið 1959. Ég tel, að miða beri við innflutninginn eins og hann var s.l. ár, því að það skiptir ekki máli, þó að kjaraskerðingin komi að einhverju leyti fram í minni innflutningi vegna minnkandi kaupgetu launþega. Vaxtahækkunin kemur enn meinlegar við en tölurnar segja til um, vegna þess að megnið af sparifé landsmanna eiga börn, gamalmenni og tiltölulega fáir einstaklingar, en vaxtahækkunin leggst með öllum sínum þunga á herðar þeirra einstaklinga og fyrirtækja, sem í framkvæmdum standa og bera atvinnulífið uppi. Hækkun skatta til ríkissjóðs tel ég ekki til kjaraskerðingar, að svo miklu leyti sem féð rennur aftur til fólksins í landinu. Hins vegar eru miklar líkur til, að tekjurnar reynist 100–200 millj. kr. meiri en ráð er fyrir gert, og má reikna þá upphæð til kjaraskerðingar á þessu ári. Hækkun á rekstrarvörum þarf ekki að taka með, því að það eiga atvinnuvegirnir að fá upp borið með því, að fleiri krónur fást fyrir afurðirnar.
Það er eðlilegt, að fólk spyrji: Er þessi kjaraskerðing nauðsynleg og er hún framkvæmanleg á þann hátt, sem ríkisstj. ætlar að framkvæma hana? — Gengislækkunin og hækkun skatta mun valda hækkun á innfluttum nauðsynjavörum, sem nemur um 50–100%. Ég get t.d. bent á það, að baðmullarvörur munu hækka rétt um 100% og yfirleitt þær útlendar vörur, sem eru í 30% innflutningsflokkum. Hins vegar er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. greiði niður sykur og kornvörur, og ég hef heyrt, að sú niðurgreiðsla muni nema því, að þær muni ekki hækka nema um 50%. Hins vegar mun hækkun á vörum, sem eru í 55% yfirfærslugjaldinu, nema allt að 70%, þegar hinn tvöfaldi söluskattur er kominn til framkvæmda, sem nú er búið að samþykkja.
Ég hef gert mér ofur litla grein fyrir því, hversu mikil hækkun komi á vísitöluheimili, og ég hef reiknað það út eftir því vörumagni, sem gert er ráð fyrir að hvert vísitöluheimili kaupi, og samkvæmt því hef ég reiknað út, að hækkunin muni nema 21.300 kr. Það skal tekið fram, að í þessari hækkun áætla ég hækkun fyrir hita, ljós og eldun 3500 kr., og ég skal játa, að hér í Reykjavík verður þessi hækkun miklu minni, vegna þess að hér er heita vatnið, en úti á landsbyggðinni nemur þessi hækkun sennilega meira en þessu, vegna þess að það er ekki mjög stórt heimili, sem þarf um 5 tonn af olíu til upphitunar, og það er líklegt, að olían hækki um 60–70%, og hækkunin á olíu til upphitunar einnar mun því nema fyrir heimili úti á landsbyggðinni sennilega á fjórða þús. kr. Auk þess er hækkun á koksi eða kolum til eldunar fyrir þá, sem hafa ekki rafmagn, þannig að ég hygg, að hækkun af þessum ástæðum muni nema fyrir heimili úti á landsbyggðinni jafnvel yfir 4000 kr. Þetta getur munað allmiklu hér, vegna þess að líklegt er, að heita vatnið hækki ekki mikið í verði.
Ég skal einnig taka það fram, að ég reikna með, að húsaleiga hækki fyrir vísitölufjölskylduna um 3000 kr. Sú hækkun verður vitanlega lengi að koma fram, en ég er sannfærður um, að hún kemur fram. Hún kemur fram vegna hækkaðra vaxta, hún kemur fram vegna þess, að byggingarefni, sem keypt er frá öðrum löndum, hækkar um 70%, þ.e. járnvörur og timbur, hún kemur fram af því, að vinnulaunin hljóta að hækka vegna gengisbreytingarinnar, og hún kemur m.a. fram í því, að það dregur úr öllum framkvæmdum og það verður minna byggt, og þess vegna verður erfiðara að fá hús leigð og eftirspurnin verður meiri, og þess vegna verður fólk að borga hærri húsaleigu. Ég er því sannfærður um, að eftir tvö ár mun húsaleiguliðurinn hækka ekki minna en sem nemur 3000 kr., eða ca. 30%, og sennilega hækkar hann meira. Þessa tvo liði hef ég tekið inn í auk þeirra hækkana, sem ég hygg að muni leiða af gengisbreytingunni og söluskattinum.
Ég hef tekið tillit til, hversu mikið vísitöluheimilið fær upp borið af þessu. Það eru fyrst og fremst fjölskyldubæturnar, það er lækkun á tekjuskatti, og það er dálítil lækkun á útsvari, og hef ég reiknað hana um 700 kr. á vísitöluheimili. Þessar hækkanir alls gera rúmar 8000 kr. Ég hygg því, að kjaraskerðing á vísitöluheimili muni nema sem næst 13 þús. kr. Þetta er vitanlega fjarri því, sem upphaflega var tekið fram í efnahagsmálafrv. ríkisstj. og hagfræðinganna. — Annars finnst mér nú illa farið með þessa hagfræðinga. Þeir eru bornir fyrir öllu, hvað vitlaust sem það er, og allt fært á þeirra kostnað. En ég efast ekki um, að þeir eru saklausir af miklu af þessu, en þarna er um stórfelldan misreikning að ræða frá hinni upphaflegu áætlun og útreikningum alveg tvímælalaust.
Það hefur verið svo í minni sveit, að það hefur aldrei verið álitinn mikill fjárhirðir, sem þurfti að fá vit að láni eða fá fyrirsögn um það, hvernig hann ætti að gefa kindunum á hverjum degi. Góðir fjármenn þurftu aldrei að fá leiðbeiningar um það. Þeir sáu það á kindunum, hve mikið þeir þurftu að gefa, og þeir kunnu að hirða hjörðina þannig, að þeir þurftu ekki að vera alltaf að fá sífellda tilsögn um, hvað þeir ættu að gefa í hvert skipti og hvernig þeir ættu yfirleitt að haga sér við fjármennskuna. En þetta er það, sem ríkisstj. hafa gert hér á landi undanfarið. Þær hafa alltaf verið hlaupandi til þessara blessaðra hagfræðinga og sérfræðinga, sumra útlendra og sumra innlendra, spyrjandi þá, hvað þær eigi að gera, og berandi þá fyrir öllum mögulegum hlutum, vitlausum og ekki vitlausum. En þetta er slæm meðferð, og ég held satt að segja, að ef ein ríkisstj. getur ekki séð sjálf, hvað þarf að gera til að leysa vandamálin, sé hún hreinlega ekki fær um að vera í ráðherrastólunum.
Hæstv. fjmrh. hélt því fram hér í umr., að söluskatturinn væri í raun og veru alls ekki aukin skattbyrði á þjóðina. Hann er áætlaður 280 millj., en hæstv. fjmrh. og Morgunblaðið bentu á það, að tekjuskattur lækkaði um 110 millj., söluskattur lækkaði um 114 millj., og svo ættu nú sveitarfélögin að fá 56 millj., og þetta var jafnhá upphæð, 280 millj. En hæstv. fjmrh. er gáfaður maður, og í umr., sem ég hlustaði á, fann hann það út, að þessar 280 millj. gætu orðið í framkvæmdinni meira en 280 millj., vegna þess að hann hélt því fram, að hvert einasta vísitöluheimili græddi 700 kr. á þessum skattbreytingum og á þessum nýja skatti. Ég, hef aðeins athugað þetta, og hlutirnir liggja þannig fyrir mér: Ef ég á að taka tillit til 280 millj. kr. söluskatts, verður að reikna hann yfir jafnlangan tíma og tillit er tekið til þeirra skatta, sem á að draga frá, það verður að reikna hvort tveggja yfir árið. Þessi 280 millj. kr. söluskattur gerir 370 millj. yfir árið. Við drögum frá því 110 millj. kr., tekjuskattslækkunina, og þá eru eftir 260 millj. En svo er bara „nota bene“, að þessar 114 millj. voru ekki skattur til ríkisins, 2/3 af því fóru í útflutningssjóðinn, sem nú kemur fram í gengisbreytingunni, þannig að raunverulega fara ekki nema 38 millj. til ríkisins, og þó ber þess að gæta, að mikið af þessu kemur ekki á neytendurna beint, heldur kemur það á þjónustu við fyrirtæki og kemur tiltölulega meira á þjónustu við fyrirtæki en hinn skatturinn, þannig að þarna er aldrei um að ræða fé ríkisins nema 38 millj. Alls eru þetta því 148 millj. Og við eigum að draga þessar 148 millj., sem ríkið fékk af þessum sköttum, frá 370 millj., og þá eru eftir rúmar 220 millj. Svo skulum við taka hlutann, sem fer til sveitarfélaganna, 74 millj., og þá eru eftir ca. 150 millj. eða sem nemur öllum fjölskyldubótunum, þannig að fólkið í landinu hefur ekkert eftir fyrir kjaraskerðingunni.
En viðvíkjandi því, að þessi 8% söluskattur eigi ekki að gilda nema þetta ár, þá vil ég bara segja það, að það eru ekki nokkrar minnstu líkur til þess, að hann verði afnuminn á annan hátt en þann, að nýir skattar taki við, vegna þess að í fjárlagafrv., sem nú liggur fyrir, er ekkert tillit tekið til gengisbreytingarinnar hvað launakjör snertir, og vitanlega hlýtur að reka að því, að laun hækki, þannig að þessi skattur hverfur ekki á annan hátt en þann, að nýir skattar komi í staðinn, svo að þarna er vitanlega um geysilega skattahækkun að ræða.
Þess ber og að geta, að 7% skatturinn, sem fyrir var, hækkar um þriðjung vegna gengisbreytingarinnar, því að 7%, sem áður voru lögð á eina krónu, koma nú á kr. 1.50, þannig að þetta verður 101/2 eyrir, og þessi 8% söluskattur kemur líka á kr. 1.50, þannig að hann verður 12 aurar, svo að söluskatturinn, þessi tvöfaldi söluskattur, heildsöluskatturinn, sem lagður er á cif-verð vörunnar plús álagningu plús tolla að nokkru leyti, verður nokkuð hár skattur. Og þessi tvöfaldi söluskattur og hækkunin á 7% söluskattinum gerir það að verkum, að vara, sem mundi ekki hækka nema um 50% vegna gengisbreytingar, hækkar um 70%, þannig að megnið af þeirri vöru, sem flutt er inn með 55% yfirfærslugjaldinu, hækkar um 70%. Þessi hækkun mun koma fram, þegar þetta er allt saman komið í ganginn. Þarna er því um geysilega kjaraskerðingu að ræða.
Ég get ekki annað en dáðst að snilli fjmrh. að geta túlkað málið þannig, að þetta væri 700 kr. gróði fyrir hverja vísitölufjölskyldu. Og mínir elskuðu flokksbræður skildu þetta ekki alveg á stundinni, sem var nú kannske ekki eðlilegt, en fjmrh. gæti alveg eins haldið fram þeirri kenningu: Þú, góði vinur, lætur mig hafa 1000 kr., ég læt þig hafa 500 kr. í staðinn, og þá græðir þú 70 kr. Góð hagfræði það!
Ég hef nú frétt það eftir ríkisstj., að hún huggar sig helzt við það, að allir séu óánægðir með þessa efnahagslöggjöf, og það sé eiginlega styrkur hennar, og ég skal játa það, að hæstv. ríkisstj. hefur verið aðdáanlega lagin að gera öllum eitthvað svolítið til miska, jafnvel þeim, sem græða á ráðstöfununum. Við getum t.d. tekið fyrirtæki og verzlanir, þau þurfa þriðjungi meira fé til þess að kaupa fyrir vörurnar, og þetta fé eiga þær ekki að geta fengið, vegna þess að það á ekkert að rýmka lánskjörin. Ég hygg, að þetta leiði til þess, að það verði minna flutt inn, minna verzlað, minna keypt, og að því leyti til mun þetta verka þannig, að innflutningurinn mun minnka og greiðslujöfnuðurinn við útlönd lagast í bili, en m.a. fyrir það, að ganga mun á innfluttar vörubirgðir í landinu. T.d. er ég sannfærður um, að það verður lítið keypt af vefnaðarvöru fram eftir árinu, vegna þess að menn eru yfirleitt búnir að birgja sig upp, og svo hafa þeir ekki fjármagn til þess. Út af fyrir sig mun þetta verka jákvætt í bili. Ég skal ekki fullyrða, hvernig þetta verkar fyrir verzlanirnar, en ég gæti hugsað, að fjárhagslega séð mundu þær standa dálítið svipað, það mundi aðeins valda óþægindum, en vitanlega verða tekjurnar ekki þeim mun minni, vegna þess að krónunum fjölgar.
Þá er annar liðurinn, þ.e. hraðfrystihúsin og fiskvinnslustöðvarnar. Það sagði einn ráðh. hér við umr. um efnahagsfrv., að það væri meiningin að lána alls ekki fleiri krónur út á fiskinn en verið hefði, þó að verðið hækkaði. Það er náttúrlega hægt að segja mönnum að borga 1 kr. með 80 aurum, en það er bara ekki hægt. Það eru vandræðin. Og nú standa hlutirnir þannig, að frystihúsin eða fiskvinnslustöðvarnar þurfa að borga 40–50 aurum meira fyrir hvert kg af fiski, en fá minni lán. Vegna þess að vextirnir hafa hækkað, fá þeir 2–5% minni lán út á fiskinn en undanfarið, en þurfa að borga 50 aurum meira fyrir kg. Og svo ímyndar hæstv. ríkisstj. sér, að þetta geti gengið!
Nú get ég sagt ríkisstj. alveg hreinskilnislega, hvernig þetta verður í framkvæmdinni. Fiskvinnslustöðvarnar geta ekki staðið í skilum við bátana, og það er ekki hægt að gera upp í vertíðarlokin nema fá meiri lán, hvað sem ríkisstj. hefur ætlað sér að gera og hvað sem allir blessaðir hagfræðingar segja. Þetta er ekki hægt. Við vitum þetta allir, að í lok vertíðarinnar koma frystihúsin til bankanna og segja: Við getum ekki greitt, nema við fáum meiri lán. — Og það er satt. Þau eru þegar að komast í greiðsluþrot eða geta réttara sagt ekki staðið í skilum. Og þá er um tvennt að velja, að frystihúsin taki sig saman um að hætta að kaupa fisk eða að það verður að lána meira. Þarna er sá liðurinn sprunginn hjá hæstv. ríkisstj. Og ef bankarnir láta ekki undan að lána meira, hætta frystihúsin að taka fiskinn, vegna þess að þau geta ekki borgað. Þetta er ekki framkvæmanlegur hlutur, því að þótt bankarnir lánuðu 2/3, eins og þeir hafa gert undanfarið, yrði samt halli, vegna þess að það þarf að greiða fleiri krónur, og 1/3 af því verða frystihúsin að taka á sínar herðar, þ.e.a.s. 1/3 af þessari 50 aura hækkun. Þetta er því óframkvæmanlegt, og þetta átti hæstv. ríkisstj. að sjá strax. Hún getur ekki haldið sömu seðlaveltu, það er ekki hægt. Seðlaveltan er eitthvað rúmar 400 millj., og það er óhjákvæmilegt að auka hana, það er óhjákvæmilegt fyrir bankana að lána meira til atvinnuveganna, vegna þess að verðlag varanna hækkar. Það getur skeð, að ríkisstj. trúi þessu ekki, en reynslan mun sýna þetta. (Forsrh.: Allt hefði þetta nú lagazt, ef dollarinn hefði verið 30 kr.) Það hefði aldrei þurft að koma til þess. Þetta er alveg eins víst og það, að stór þorskur kemst ekki í magann á litlum þorski.
Ég hef athugað, á hverjum þessi kjaraskerðing kemur harðast niður. Skattafrv. hæstv. ríkisstj. er ekki komið fram enn, en við vitum um menn, sem hafa haft svona eins og vinur minn og flokksbróðir, 3. þm. Norðurl. v. (ÓlJ), — maður má nú ekki nefna menn hér með eigin nöfnum, — hann hefur víst haft um 160 þús. kr. tekjur eða eitthvað svoleiðis, að helmingurinn af þessu er tekinn í útsvar og skatta. Nú er búið að hækka persónufrádrátt og sennilegt, að skattstiginn lækki. Ég geri ráð fyrir, að kjaraskerðing á meðalvísitöluheimili verði ca. 13 þús., þó með því móti, að menn eigi eitthvað af krökkum, svo að þeir fái fjölskyldubæturnar. Það þarf ekki að vera mjög mikil skattalækkun á manni með á annað hundrað þús. kr. tekjur, til þess að hann vinni þessi 13 þús. upp. Ég gæti því vel hugsað mér það og er raunar sannfærður um, að menn, sem hafa haft tekjur um 100 þús. og þar yfir, muni sleppa við alla kjaraskerðingu. Ég hygg, að kaupmenn og þeir, sem hafa einhverja verulega veltu, sleppi nokkurn veginn. Raunar skapar lánsfjárþröngin þeim erfiðleika, en ég hygg, að þeir skaðist ekki mikið. Ég veit, að menn eins og hv. 3. þm. Austf. (EinS) græða tugi milljóna, og svo eru ýmsir, sem græða 1 og 2 millj., —- jafnvel þó að þeir verði fyrir óþægindum með lán í bili, þá græða þeir.
Þeir, sem verða fyrir kjaraskerðingunni, er láglaunafólkið í landinu, hinn óbreytti verkamaður, fólkið, sem vinnur í iðnaðinum, þ.e. verkafólkið, verzlunarfólkið og bændur að því leyti til, sem kaup þeirra er miðað við kaup verkamannsins. Hitt eiga þeir að fá upp borið. Það er þetta fólk í landinu, sem tekur á sig byrðarnar. Í fyrra í febrúarlok var lækkað kaup við fólkið tilfinnanlega, en fólkið var rólegt og fólkið þagði. Það var af því, að verðbólgan undanfarin ár hafði verið svo þreytandi og augu fólksins voru farin að opnast fyrir því, að þetta var algerlega þýðingarlaust, að heimta alltaf fleiri og fleiri krónur, og dýrtíðin óx alltaf. Sannleikurinn er sá, að ríkisstj. hafði óvenjulega góð spil á hendinni, þegar hún tók núna við, vegna þess að fólkið í landinu vildi hjálpa henni til að stöðva verðbólguna. Ég átti tal við eina konu í mínu kjördæmi, sem sagði mér í haust, að hún ætlaði að kjósa jafnaðarmennina núna, því að þeim hefði tekist svo vel að stöðva verðbólguna og hún treysti þeim bezt til þess.
Og fólkið vildi hjálpa ríkisstj. til að stöðva verðbólguna. Er það að stöðva verðbólguna að gera þessar ráðstafanir? Er það að stöðva verðbólgu að fella gengið? Er það að stöðva verðbólgu að láta vörur hækka um 50–100% í verði? Ég las það í grein eftir þennan Sergent eða hvað hann heitir nú, franskur, sem kom hér, að hann sagði, að Efnahagsmálastofnunin vildi hjálpa. öllum til að stöðva verðbólgu. Jú, ríkisstj. íslenska samdi um það við þá að fá lán. En árangurinn varð bara sá að auka verðbólguna, því að hún hefur aldrei flogið svona fallega áfram eins og nú. Skrefið er nefnilega ekkert lítið niður brekkuna. Það er að meðaltali sennilega 50% aukning á öllu vöruverði í landinu fyrir utan innlendu vörurnar. Þetta er ekki að stöðva verðbólguna.
Ég hygg því, að kjaraskerðingin komi nær eingöngu niður á fólki, sem hefur 60–70 þús. kr. tekjur. Og trúið þið því svo, að fólkið muni sætta sig við þetta? Ég er sannfærður um, að það gerir það ekki. Það verður bið á því, en fólkið sættir sig ekki við það. Og ef ríkisstj. vildi nú vera réttlát og hyggin, átti hún vitanlega að byrja að spara ofan frá. Hún átti að byrja á forsetaembættinu, hún átti að byrja á sendiráðunum, ráðuneytunum, og við áttum að byrja á okkur sjálfum. Svona átti þetta að halda áfram, því að ef fólkið sér, að húsbóndinn deilir við það kjörum, gerir það sig frekar ánægt með hlutina. En þið þurfið ekki að ímynda ykkur, að láglaunafólkið sætti sig við þetta, þegar það sér, að þeir, sem betur eru settir í þjóðfélaginu, verða ekki fyrir neinni kjaraskerðingu. Afleiðingin verður sú, að það kemur verkfall og það koma kauphækkanir, þá stöndum við alveg í sama farinu. Öll vandamálin eru óleyst, verðbólgan er aðeins hækkuð um 1/3. Ég varaði við þessu strax í byrjun, það yrði að láta alla bera vissan hluta af byrðunum og þá væri hægt að leysa málið, öðruvísi ekki. Þetta hefur því verið algert ævintýri, þetta dýrtíðarstökk, sem nú hefur verið tekið.
Ríkisstj. hafði um þrjár leiðir að velja: Fyrsta leiðin var að hækka gengi krónunnar, og með því eina móti var hægt að afnema bæði niðurgreiðslur og útflutningsuppbætur.
Önnur leiðin var sú að stöðva dýrtíðina, þar sem hún var, hafa dollarann á 30 kr., eins og ég lagði til.
Þriðja leiðin var sú, sem ríkisstj. fór, og það var lakasta leiðin, hún var til að auka verðbólguna, en leysti engan vanda.
Það var hægt að leysa efnahagsmálin án þess, að láglaunafólkið yrði fyrir nokkurri kjaraskerðingu. Við urðum aðeins að rétta gengið, réttara sagt að láta bankana kaupa gjaldeyrinn jöfnu verði, hvort sem varan var flutt út eða inn. Og það varð að draga úr fjárfestingunni. Þetta hefði nægt, ef skynsamlega hefði verið á haldið. Hygginn búmaður leggur í framkvæmdir, þegar það er hagkvæmt, en hann dregur úr framkvæmdum, þegar það er nauðsynlegt vegna efnahagsins. Og það þýðir ekkert að heimta alltaf meira og meira, við verðum að kunna okkur hóf. Það er ekki til neins að eyða alltaf meira en aflað er. Það voru fluttir inn bílar og skip s.l. ár fyrir um 200 millj., þar af bílar fyrir réttar 50 millj. Og það var m.a. verið að flytja inn alla þessa bíla til þess, að útflutningssjóður hefði einhverja peninga til að greiða í uppbætur á útfluttu vörurnar. En hvaða vit er nú í þessu og hvaða vit er í því á einu ári fyrir þjóðfélag, sem er orðið gjaldeyrislaust, að ætla að flytja inn 60 –70 skip, ekki stærra þjóðfélag en Íslendingar eru, þegar fyrir eru svo mörg skip, að það er ekki hægt að manna þau? Það er sjálfsagt og gott að flytja inn skip, en það er ekki hyggilegt að flytja inn fleiri skip en menn eru til á.
Það var eytt svo miklum gjaldeyri til ýmissa hluta á s.l. ári, að það var komið í alger gjaldeyrisvandræði um áramót. Ýmsar hátollavörur voru fluttar inn fyrir um 190 millj. Vafalaust hefur mikið af þeim innflutningi ekki verið nauðsynlegt. Korkur og timburvörur voru fluttar inn fyrir 90 millj. Með því að draga úr fjárfestingunni hefði sá liður getað stórminnkað. Ýmiss konar málmvörur voru fluttar inn fyrir 140 millj. Það hefði einnig verið hægt að minnka með því að draga úr fjárfestingunni. Og vélar voru fluttar inn fyrir 71 millj. Vafalaust hefði mátt minnka þetta eitthvað líka. Það þurfti ekkert annað að gera en að rétta gengið og draga úr fjárfestingunni, þá þurfti ekki að skerða kjör láglaunafólksins, og ef það átti að skerða kjör einhverra, átti að gera það við þá, sem betur máttu sín, en ekki þá, sem úr minnstu höfðu að spila. Þess vegna er þetta alveg óþarft ævintýri, þessi dýrtíðarskriða, sem nú er hleypt af stað.
Ég hygg, að það, sem hvað mest ýtti undir ríkisstj. að fella gengið, sé verðlag á mjöll og lýsi. En er nú nokkurt vit í því að láta það eitt út af fyrir sig ráða, hvort Perúmenn veiða mikið eða lítið af þessum síldarfiski sínum? Og ríkissjóður verður fyrir mörg hundruð millj. kr. skaða af gengisbreytingunni. Það er t.d. óhjákvæmilegt að greiða Búnaðarbankanum á annað hundrað millj. kr. vegna þess, hve gengið hefur lækkað mikið. Raunar hefði þurft að greiða honum eitthvað hvort sem var, þó að það hefði verið stöðvað í 30 kr. dollarinn, en miklu minna. Allar erlendar skuldir hækka og ríkisútgjöldin sjálf stórhækka, svo að skiptir hundruðum milljóna. Var þá ekki betra nú í ár, að ríkið hefði hlaupið undir bagga með síldarverksmiðjunum, ef þær hafa greitt of hátt verð fyrir síldina s.l. sumar, heldur en að fella gengið svona mikið? Ég segi jú. Og ef bátarnir fá of hátt verð fyrir síldina, þá vitanlega kemur það af sjálfu sér, að það hlýtur að lækka fyrr eða síðar, því að við fáum bara minni krónur, þó að við fáum kannske fleiri krónu:r. Það er ekki hægt að reka ríkisverksmiðjur með stórhalla ár eftir ár. Perú-fiskurinn gerir okkur því alveg sama ógagn, hvort sem gengið er fellt í þetta sinn vegna þess eða ekki. Togararnir græða ekki neitt á gengislækkuninni, vegna þess að veiðarfæri, olía og annað, sem þeir þurfa að kaupa, og auk þess kauphækkanir, sem koma m.a. af gengislækkuninni, munu éta algerlega upp þær upphæðir, sem þeir fá meira fyrir fiskinn en þeir hefðu fengið. Auk þess hef ég heyrt, að ríkisstj. hafi nú rétt að þeim 30 millj. úr útflutningssjóði, ég veit ekki samkvæmt hvaða heimildum. Ég frétti það eftir einum togaraeiganda, að hann hefði verið að taka á móti eitthvað 800 þús. eða svo og sagðist hafa sloppið vel með reksturinn s.l. ár, þetta hefði bara verið af kumpánahætti. En það er sem sagt ekki búið að skýra opinberlega frá þessu, en ég hef frétt þetta. Þetta er tekið úr útflutningssjóði, og svo verða bátar og togarar að borga þetta sameiginlega. Ég skil ekki annað en þetta sé hálfgerður skrípaleikur. Raunar hafa togararnir sennilega verið í vandræðum með rekstrarfé, og ríkisstj. hefur hlaupið undir bagga með þeim til þess að geta haldið öllu gangandi. En þarna eru í vissum tilfellum auðugum mönnum gefnir peningar með vafasamri heimild, því að bátarnir verða náttúrlega að taka sinn hluta af þessu, ef þeir eiga að borga halla á útflutningssjóði. Annars hefur ekki verið opinberlega tilkynnt um þetta, og ég get ekkert fullyrt um það.
Ég hef satt að segja enga ánægju af því að rifja þetta dýrtíðarstökk upp sérstaklega. Ég veit, að ríkisstj. vill vel, og ég veit, að hún hefur haft einlægan vilja á að gera rétt, en ég er sannfærður um það, að hún gerði sér ekki fullkomlega ljóst, hvernig þetta yrði í framkvæmdinni. Þessi kjaraskerðing kemur svo að segja eingöngu niður á láglaunafólki, það mun nota sínar aðferðir til þess að vinna hana upp aftur, og þá stöndum við bara alveg í sama farinu. Tekjur sjómanna hækkuðu s.l. ár og þeir fara tiltölulega betur út úr því. Þær hækkuðu fyrst og fremst vegna þess, að aflamagnið hefur stóraukizt. Hásetar hafa um það bil 100 þús. kr. Skipstjórar og vélamenn hafa á annað hundrað þús. og jafnvel upp í 200 þús. og stundum meira, þannig að kjaraskerðingin kemur ekki tilfinnanlega við þá. En það, hvað afkoma báta og jafnvel frystihúsa er miklu betri en hún hefur verið, er fyrst og fremst aflamagninu að þakka. Og vegna þess að sjútvmrh. í vinstri stjórninni var alveg ósárt um, þó að hann léti undan kröfum útvegsmannanna, þurfti meiri peninga í útflutningssjóðinn, og þá minnkaði hver króna þeim mun meira og dýrtíðarskriðan hélt pínulítið áfram, þannig að fyrrv. fjmrh., Eysteinn Jónsson, hafði ekki alltaf góða aðstöðu. Það er dálítið erfitt að sigla skipinu, þegar sumir vilja fara í austur, en aðrir í vestur. En það er eitt stórvirki, sem þessari ríkisstj. hefur tekizt, en það er það að gera Eystein Jónsson sennilega að dýrlingi. Ég get vel hugsað, að fólkið úti á landsbyggðinni fari að kalla hann Eystein góða, áður en mörg ár líða.
Ríkisstj. fékk góð spil. Meira að segja við framsóknarmennirnir vorum hálfvonsviknir yfir, hvað vinstri stjórnin var fljót að kveðja. Ég var aldrei mjög hrifinn af henni, hafði ekki sérstaklega trú á því, að hægt væri að vinna með kommunum. Ég veit, að þetta eru góðir drengir, en þeir vilja bara fara í aðra átt en við. En ég hélt, að þeir mundu nú reyna að hanga út kjörtímabilið, en þeir gerðu það ekki. Ég skal ekki fara út í það. En ríkisstj. fékk góð spil í hendurnar, fólkið vildi hjálpa henni, og hún fékk þau beztu spil, sem ef til vill nokkur ríkisstj. hefur fengið. En það vildi einu sinni til í minni sveit, að það var maður, sem hét Guðmundur og var kallaður póli. Hann var að spila víst, og það vildi nú þannig til, að hann fékk 13 spil í sama lit. Hann var í forhönd, en hann sagði sóló og tók alla slagina. Ég er ekki að líkja hæstv. ríkisstj. við Guðmund póla, það er fjarri mér, það er bara, að ríkisstj. sagði ekki rétt á spilin, sem hún fékk. Í staðinn fyrir að stöðva verðbólguna tók hún stærsta stökk niður dýrtíðarbrekkuna, sem nokkur ríkisstj. hefur tekið fyrr eða síðar, og það að óþörfu, bara að gamni sínu, því að það var ekkert, sem rak hana til þess. Þetta er leiðinlegt, það er leiðinlegt, ef góðir menn segja skakkt á spilin.