28.03.1960
Sameinað þing: 30. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1694 í B-deild Alþingistíðinda. (418)

42. mál, fjárlög 1960

Frsm. 2. minni hl. (Karl Guðjónsson):

Herra forseti. Í sambandi við þær till., sem fluttar eru af fjvn. sem heild, vil ég taka fram, að Alþb.-menn eru samþykkir þeim flestum, og hefur þó af okkar hálfu verið gerður á sá fyrirvari í fjvn., að óbundið væri um stuðning við einstakar till., og sömuleiðis áskilinn réttur til þess að flytja aðrar brtt.

Ég vil hér aðeins gera grein fyrir tveimur brtt., sem ég hef leyft mér að flytja við fjárlagafrv., en eru ekki enn komnar úr prentun og hefur ekki verið útbýtt hér á þinginu.

Önnur þeirra er þess eðlis, að þar er lagt til, að framlag til einnar hafnar, Kópavogshafnar, verði hækkað úr 100 þús. kr. í 200 þús. Svo er mál með vexti, að fjvn. barst skýrsla frá vitamálastjóra, eftir að hún hafði gert till. sínar um það, að þær framkvæmdir, sem fyrirhugaðar væru á þessum stað, væru miklum mun meiri en hún hefði tekið með í sína reikninga, þegar hún gerði till. um fjárveitingu, og lagði vitamálastjóri til, að fjárveitingin yrði hækkuð, en á hinn bóginn var ekki orðið við því af fjvn. sem heild, og því hef ég gert þessa till hér.

Þá flyt ég hér aðra till., sem er brtt. við 14. gr. fjárlaga, legg til, að liðurinn um útgjöld til Ríkisútgáfu námsbóka hækki um 60 þús. kr. og að þessar 60 þús. kr. renni til sérstakra þarfa hjá því fyrirtæki, sem sagt til þess að kaupa eða láta gera handbækur fyrir kennara í þeim námsgreinum, sem kenndar eru við barnaskólana. Svo háttar einmitt um þessar mundir, að eitt bezta framtakið, sem gert hefur verið í kennslumálum hjá okkur nú að undanförnu eða nú á allra síðustu árum, er það, að kennari einn, Jón Þórðarson, hefur unnið upp mjög merkilega og raunar glæsilega vinnubók, byrjar á að vinna í landafræði um Ísland. Þessar bækur eru mjög nauðsynlegar, einkum sem handbækur fyrir kennara. Sala á þeim getur því ekki orðið mjög mikil, sökum þess að almennt er varla til þess að ætlast, að nemendur, nema þá í beztu deildum, séu látnir hafa þær undir höndum við vinnubókagerð. Á hinn bóginn liggur það fyrir, að kennarastéttin er að því leyti öðruvísi sett en flestir aðrir starfsmenn ríkisins, að nálega alls staðar eru mönnum lögð upp í hendur einhver tæki til að vinna með. Þetta er mjög af skornum skammti hjá kennarastéttinni, og einkanlega er mikill skortur á því, að kennarar fái í hendur, nema að svo miklu leyti sem þeir verða sér úti um það sjálfir og fyrir eigið fé, handbækur til þess að auðvelda þeim starfið í hinum einstöku greinum. Fjvn. hefur fjallað einmitt um þetta mál, tekið því vinsamlega, en fyrir einhvers konar vöntun á því, að hin heppilegasta leið hafi fundizt, hefur ekki komið fram fyrr en þetta till. við fjárlög um sérstaka fjárveitingu í þessu skyni. Ég leyfi mér að flytja till. í því formi, að liðurinn um ríkisútgáfuna orðist svo: „Til Ríkisútgáfu námsbóka, þar af 60 þús. kr. til handbóka fyrir kennara, að öðru leyti til greiðslu 1/3 kostnaðar útgáfunnar gegn 2/3 af námsbókagjaldi“ — og liðurinn hækki um 60 þús. frá því, sem hann er í frv. nú.

Þessar brtt. hef ég leyft mér að flytja og munu þær væntanlega koma hér til útbýtingar innan stundar.

Þá þykir mér hlýða að gera einnig grein fyrir því, að þrátt fyrir fyrirvarann, hinn almenna fyrirvara um, að stuðningur við einstakar till. af hálfu Alþb. sé óbundinn, þá hef ég mælzt undan því að þurfa að vera tillögumaður að þeirri till., sem lögð er fram um ríkisábyrgð fyrir Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna til þess að byggja hraðfrystistöð í Hollandi. Ekki ber það svo að skoða, að ég álíti það neina fjarstæðu, að íslenzkir útflytjendur komi sér upp stöðvum eða aðstöðu til vörusölu erlendis. Á hinn bóginn er ýmislegt við það að athuga að veita þessa ríkisábyrgð. Ég vil þess vegna leyfa mér að nefna þrjú atriði, sem ég hefði viljað hafa tækifæri til þess að skoða og athuga nokkru nánar, áður en ég gæti heitið mínu liðsinni við þessa till.

Það er í fyrsta lagi, að ég hygg, að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hafi til þessa farið þannig að, þegar hún lagði fé til byggingar slíkra stöðva, að verð þeirra hefur verið skoðað sem „annar kostnaður“ við rekstur Sölumiðstöðvarinnar, þannig að raunverulega hefur kostnaðurinn við byggingu stöðva Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í New York og London komið niður á hinu almenna fiskverði í landinu. Þeir, sem hafa lagt út fé fyrir þessi fyrirtæki, hygg ég að séu fyrst og fremst útgerðarmenn og sjómenn, þ.e.a.s. eigendur þess fisks, sem á land er dreginn. Á hinn bóginn verða þessir aðilar ekki eigendur að þeim fyrirtækjum, sem þannig er stofnað til, heldur verða það allt aðrir aðilar. Ég álít þess vegna, að áður en þessi ríkisábyrgð yrði veitt eða áður en grundvöllur væri undir því, að ríkið sæi sérstaka ástæðu til að hlaupa undir bagga með þessu stóra fyrirtæki til þess að bæta aðstöðu þess erlendis, þyrfti það að vera á hreinu, að hraðfrystihúsin borguðu þetta af sínu fé, en þetta væri ekki greitt af fé útvegsmanna og sjómanna og verkaði ekki til þess að lækka almennt fiskverð hér heima.

Í öðru lagi hef ég ástæðu til að ætla, að þau gjaldeyrisskil, sem Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur gert fyrir þær stofnanir af þessu tagi, sem hún nú þegar rekur erlendis, séu mjög óglögg og ófullkomin, og mér er nær að halda, að þar hafi ekki öll kurl komið til grafar, þar hafi ekki allt komið til skila af þeim gjaldeyri, sem raunverulega hafðist upp úr þessum stöðvum, honum hafi ekki verið skilað fullkomlega inn til íslenzkra banka.

Og í þriðja lagi verð ég að líta svo á, að algerlega sé ástæðulaust, að þetta fyrirtæki, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, sem eins og allir vita hefur nú gerzt einhver voldugasti auðhringur í þessu landi, fái meiri ábyrgð af hálfu ríkisins en aðrir aðilar til þess að byggja fiskvinnslustöðvar sínar. Í fjárlögum hefur stundum að undanförnu verið ákveðin heimild til ríkisstj. um það að veita ríkisábyrgðir fyrir vissum hluta af kostnaði af fiskvinnslustöðvum. í fjárlögum ársins 1958 mun hafa verið sú síðasta af þessum heimildum, en þar var ríkisstj. heimilað að taka ábyrgð á allt að 60% af kostnaði við byggingu slíkra stöðva. Hér er hins vegar um það að ræða, að lagt er til, að ríkið taki að sér að ábyrgjast lán til að koma upp slíkri stöð í Hollandi fyrir Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna að allt að 77 % áætlaðs kostnaðar, þ.e.a.s. áætlun hefur verið gerð um, að stöð þessi mundi kosta 522 þús. dollara, en till. er gerð um, að ríkissjóður taki að sér að ábyrgjast allt að 400 þús. dollara af verði þessarar stöðvar.

Ég þykist nú hafa gert grein fyrir því, að þessi ábyrgð er með þeim hætti, að ég hef nokkra ástæðu til þess að láta hjá liða, daginn sem ég sé hana fyrst, að gjalda henni samþykki mitt.

Um afgreiðslu þessara fjárl. almennt vildi ég gjarnan fara fáeinum orðum og skal þó reyna að vera ekki langorður.

Þetta eru fyrstu fjárlög, sem núverandi ríkisstj. stendur að afgreiðslu á, þótt áður hafi sömu flokkar staðið að afgreiðslu fjárlaga. Þessi ríkisstj. er búin að gera nokkrar undirbúningsráðstafanir undir afgreiðslu fjárlaga. Hún er búin að fá samþykkt Alþ. fyrir endurskráningu á íslenzku gengi, hún er búin að koma fram gengisfellingu. Sú gengisfelling var gerð undir því kjörorði, að nauðsynlegt væri að afnema uppbóta- og niðurgreiðslukerfið. Hvað hefur svo skeð hjá ríkisstj., sem taldi það nauðsyn allra nauðsynja að afnema uppbætur og niðurgreiðslur? Jú, hún kemur ekki fjárlagafrv. sínu í gegnum hið fyrsta þing eftir slíkar ráðstafanir án þess að hafa á því í fyrsta lagi hærri upphæðir til niðurgreiðslu á vöruverði en sézt hafa áður á fjárlögum og í öðru lagi nýjan vísi að útflutningsuppbótum, því að eins og hv. þm. vafalaust hafa tekið eftir, er hér nú komin fram till., sem ættuð er alla leið ofan úr stjórnarráði, um það, að á 19. gr. fjárlaga skuli taka 5 millj. kr. útgjöld, sem eru áætlaðar útflutningsuppbætur vegna útflutnings á landbúnaðarafurðum. Ég nefni þetta ekki vegna þess, að ég sé á móti þessari till., öðru nær, en ég nefni þetta til þess að sýna fram á, að það er ekkert hald í þeim rökum, sem ríkisstj. hefur haft fyrir þeim málum, sem hún hefur knúið hér fram. Hún er komin í mótsögn við sjálfa sig þegar tveimur mánuðum eftir að hún leggur fjárlagafrv. fram í upphafi og er búin að skipta um kerfi. Þá er hún ekki lengur sjálfri sér samkvæm, og það er raunar vorkunnarmál, þó að hún sé það ekki, því að svo fráleitar voru efnahagsráðstafanir hennar, að það er ekki auðvelt að haga sér í samræmi við þær ráðstafanir, sem þar voru gerðar, enda er það deginum ljósara, að það hefur sjálfri ríkisstj. ekki tekizt. Þessar útflutningsuppbætur, 5 millj. kr., eru raunar miklum mun lægri upphæð en sýnilegt er að verður að greiða í uppbætur á landbúnaðarafurðir, útfluttar á þessu yfirstandandi ári. En ríkisstj. hefur talið nægilegt að setja þessa upphæð, 5 millj. kr., inn á sjálft fjárlagafrv., 7 eða 8 millj. mun hún ætla að koma á útflutningssjóð að greiða undir því yfirskini, að þar sé um að ræða vörur, sem framleiddar eru fyrir 16. febr. Ég leyfi mér nú að vefengja, að hér sé réttilega skipt. En það er ekki aðalatriðið í þessu máli, heldur hitt, að það er deginum ljósara, að ríkisstj. hefur sjálf hlaupizt undan þeim reglum, sem hún taldi höfuðnauðsyn og hún hafði sem réttlætingu á því að koma á þeirri gengisfellingu, sem á er orðin.

Þá vil ég leyfa mér að drepa á eitt atriði í afgreiðslu þessara fjárlaga, sem ég hygg vera algert einsdæmi. Það atriði felst í því, að einn af aðaltekjuliðum í fjárl. er enn sem fyrr tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti, af almennum tekjuskatti. Samkv. gildandi lögum er áætlunartalan, sem nú stendur í fjárlagafrv., alröng. Ef innheimta á tekjuskattinn eftir gildandi lögum, má ætla, að þessi tala sé 75150 millj. of lág. Á hinn bóginn hefur ríkisstj. tilkynnt, að hún ætli að freista þess að fá lögfesta breytingu á tekjuskattslögunum, og eftir þeirri hugmynd ríkisstj. er sú tala, sem nú stendur í fjárlagafrv, um áætlaðar tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti, hugsuð. Alþingi stendur hins vegar frammi fyrir því, að það hefur aldrei séð neins staðar á neinu blaði neinar breytingar eða brtt. af ríkisstj. hálfu um þennan skatt. Því fer ríkisstj. hér fram á það við Alþ., að Alþ. lögfesti í fjárlögum áætlunartölu upp á marga tugi milljóna samkv. einhverjum væntanlegum lagafrv., sem a.m.k. enginn úr ríkisstjórnarandstöðunni mun hafa séð enn þá, og ég leyfi mér einnig að draga í efa, að hv. stuðningsmenn ríkisstj. hér á Alþ. hafi almennt heldur fengið að sjá nokkrar till. í þessa átt. Það er annað mál, hversu mikla virðingu hæstv. ríkisstj. sýnir Alþ. með því að fara fram á það, að afgreidd séu fjárlög með þeim undirbúningi, sem hér er fyrir hendi að því er varðar tekjuskatt. Ég læt það þó vera, miðað við annað hennar framferði, þó að henni haldist það uppi að sýna Alþ. þá óvirðingu, sem hún hér gerir. En ég vil leyfa mér að láta í ljós samúð mína með þeim hv. stuðningsmönnum ríkisstj., sem fá þá ánægju af stuðningi sínum við stjórnina í ofanálag við allt annað að vera hafðir hér að slíku gjalti að eiga nú að samþykkja áætlun milli 70 og 80 millj. kr. inn á fjárlög án þess að hafa nokkra minnstu hugmynd um það, hvernig þau lög eiga að hljóða, sem á að innheimta þennan skatt eftir. Og ef miðað er við reynsluna af tilkynningum ríkisstj. um aðra skatta og svo frv. hennar, þegar þau koma fram, er það vissulega rétt, að þar ber ærið á milli, enda frægt orðið, þegar ríkisstj. glutraði niður úr áætlunum sínum rúml. 100 millj. kr. í sambandi við söluskattinn. En sem sagt, það er í rauninni aumkunarvert Alþingi, sem lætur bjóða sér það að áætla fjárlög ríkisins eftir hugmyndum ofan úr Arnarhvoli, sem aldrei hafa sézt á blaði. Ég tel, að ríkisstj. beri siðferðileg skylda til þess að láta ekki fara fram endanlega afgreiðslu fjárlaga, fyrr en hún a.m.k. hefur lagt hér fram frv. sitt um breyt. á lögum um tekjuskatt. Allt annað er fullkomin óhæfa.