28.03.1960
Sameinað þing: 30. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1709 í B-deild Alþingistíðinda. (424)

42. mál, fjárlög 1960

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt fimm öðrum hv. þm. að flytja brtt. við 22. gr. fjárl. Þessi brtt. fór seint í dag í prentun, og mun ekki vera búið að útbýta henni. Skal ég því lesa hana, en flm. hennar eru Sigurvin Einarsson, Bjarni Guðbjörnsson, Gísli Guðmundsson, Karl Kristjánsson, Halldór Ásgrímsson, Ólafur Jóhannesson. Till. er þannig, að ríkisstj. verði heimilað að greiða vinnslustöðvum úr ríkissjóði eða útflutningssjóði sérstakar bætur á smáfisk, á tilteknar fisktegundir og fisk veiddan á víssum tímum árs, þó ekki hærri upphæð hlutfallslega en greidd var úr útflutningssjóði til slíkra uppbóta á árinu 1959, miðað við fiskmagn og fiskverð. Bætur þessar skal miða við ákveðna upphæð á hvert kg af fiski, sem vinnslustöð tekur á móti.

Með efnahagslöggjöfinni, sem var afgreidd frá hv. Alþ. fyrir nokkru, voru felldar niður allar þær sérbætur á fisk, sem áður voru greiddar samkv. útflutningssjóðslögunum, eins og aðrar uppbætur á útfluttar fiskafurðir yfirleitt. Hið nýja verð á erlendum gjaldeyri er ætlað að fullnægja sjávarútveginum yfir höfuð. En þessar sérbætur, sem greiddar voru á einstakar fisktegundir, á smáfisk og fisk veiddan á sérstökum tímum ársins, voru ekkert hégómamál fyrir útgerðina víðs vegar um land. Það mun ekki fara á milli mála, að vegna þessara sérbóta var haldið uppi blómlegum sjávarútvegi í ýmsum sjávarþorpum landsins. Þetta var því þýðingarmikil ráðstöfun, í fyrsta lagi til jafnvægis í byggð landsins, í öðru lagi til framleiðsluaukningar í landinu og í þriðja lagi til bættra lífskjara hjá þúsundum manna víðs vegar um landið. Uppbætur á bátafisk voru að meðaltali fyrir efnahagsmálaráðstafanir þær, sem nú er verið að gera, um 941/2% , en vegna sérbótanna urðu þessar uppbætur miklum mun meiri á einstakar fisktegundir, á smáfisk og á fisk veiddan á sérstökum árstíma. Ég skal nefna örfá dæmi um það, hversu miklar þessar uppbætur urðu, og sýnir það, hvað mikla þýðingu þær höfðu á þeim stöðum, þar sem aflamagnið var að verulegu leyti þessi fiskur, sem uppbótanna naut. Uppbætur á ýsu, steinbít og flatfisk, sem var veiddur fyrir 15. maí, voru 119 %. Uppbætur á þessar sömu fisktegundir, sem voru veiddar allt árið, voru 121.6%. Á ýsu, sem fór í skreið, en var veidd fyrir 15. maí, voru uppbæturnar 126.2%. Uppbætur á ýsu, sem fór í skreið og var veidd allt árið, 130.9%. Uppbætur á ýsu, steinbít og flatfisk veiddan eftir 15. maí voru 125.3%. Uppbætur á ýsu, sem fór til söltunar, en var veidd allt árið, voru 142.2% . Og uppbætur á ýsu, sem fór í skreið, en var veidd eftir 15. maí, voru 143.1%. Nú er gengisbreytingin við það miðuð, að bátaútvegurinn búi við hliðstæð kjör og voru, þegar uppbæturnar voru að meðaltali 941/2%. Hvernig verður þá hagur þeirra útvegsmanna, sem höfðu 50 og allt að 80% af aflamagninu fisk, er naut þessara sérbóta, er ég hef nú greint frá? Þessir útvegsmenn missa nú þessar sérbætur, og má geta nærri, hvernig hagur þeirra verður á eftir. Auðvitað verður útkoman sú, að sá fiskur, sem sérbótanna naut, lækkar mjög mikið í verði frá því, sem áður var, samtímis vaxandi útgerðarkostnaði vegna dýrtíðar. Þetta er mjög mikið alvörumál fyrir ýmsa útgerðarbæi landsins. Það er sannarlega hætt við, að stórkostlega dragi úr útgerð á þessum stöðum, og hlýtur slíkt að hafa alvarlegar afleiðingar.

Mikill fjöldi fólks í bæjum á Vestfjörðum, á Norðurlandi og Austurlandi lifir á því, að útgerð haldist eins og verið hefur að undanförnu, en það syrtir sannarlega í álinn hjá þessu fólki, ef menn treysta sér ekki lengur til að halda þessari útgerð áfram, af því að réttmætar og mjög svo skynsamlegar uppbætur á fisk, séruppbætur, eru nú felldar niður. Vestfirðingar fundu þetta og skildu fyllilega, strax og efnahagsmálin voru til umr. hér á hv. Alþingi. Þá sendu útvegsmenn á Vestfjörðum símskeyti til allra þingmanna Vestfirðinga, svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Eftirfarandi símskeyti sent Landssambandi íslenzkra útvegsmanna: Vegna fyrirsjáanlegs verðfalls steinbíts með niðurfellingu tegundabóta samkvæmt efnahagsmálatillögum ríkisstjórnarinnar viljum við sérstaklega taka fram: Steinbítsafli Vestfjarða undanfarið hefur verið fullur helmingur alls vertíðaraflans. Með tilliti til loforða stjórnarvalda í janúar s.l. um, að hlutur bátaútvegsins skyldi eigi skertur frá því, sem hann var árið 1959, krefjumst við þess, að hráefnisverð á steinbít haldi sama hlutfalli við þorskverð og var á síðasta ári.“

Með þessu símskeyti hafa Vestfirðingar sýnt mjög greinilega fram á það, hvaða þýðingu það hefur fyrir útgerðina þar, að felldar eru niður allar sérbætur. Eftir þeim upplýsingum, sem ég nú hef fengið þaðan að vestan, eru litlar horfur á því, að sum hraðfrystihúsanna a.m.k. taki á móti steinbít á þessari vertíð, og samkv. því, sem útgerðarmennirnir segja, er þessi fisktegund þarna fullur helmingur vertíðaraflans.

Úr ýmsum stöðum á Norðurlandi hef ég þær fregnir, að þar sé smáfiskur 70 og 80 og jafnvel milli 80 og 90% af aflamagninu.

Það má því nærri geta, hvaða áhrif þetta hefur, ef ekki verður mætt þessum erfiðleikum með einhverjum ráðstöfunum. Við flm. þessarar till. viljum því freista þess að fá samþykkta heimild fyrir ríkisstj. til þess að hindra tjón í þessum landshlutum, — tjón, sem verður sannarlega tjón allrar þjóðarinnar, ef ekkert er að gert. Og ég vænti þess, að hv. Alþ. sjái sér fært að veita bessa heimild, því að það eru alvarlegar afleiðingarnar, sem blasa við þessum landshlutum, þessum útgerðarbæjum og fólkinu þar, ef ekki verður neitt gert til að firra voðanum, sem að þessu fólki steðjar.