29.03.1960
Sameinað þing: 31. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1736 í B-deild Alþingistíðinda. (439)
42. mál, fjárlög 1960
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Endanlegt samkomulag hefur ekki enn þá náðst um fiskverð milli framleiðenda og vinnslustöðvanna. Það liggur því ekki fyrir, hvert verð muni fást fyrir steinbít og smáfisk. Hins vegar hefur því verið lýst yfir í grg. hæstv. ríkisstj. með frv. um efnahagsmál, að efnahagsráðstafanir hennar séu miðaðar við það, eins og stendur í grg., að „stærsta grein útflutningsframleiðslunnar, þorskveiðar bátanna, beri það sama úr býtum og þær gera með þeim útflutningsbótum, er nú gilda, að öllum sérbótum meðtöldum“. Í trausti þess, að við þessa yfirlýsingu hæstv. ríkisstj. verði staðið, greiði ég atkv. gegn þessari brtt. og segi nei.