28.03.1960
Neðri deild: 56. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1740 í B-deild Alþingistíðinda. (444)

99. mál, alþjóðasamningur um fiskveiðar á norðausturhluta Atlantshafs

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Samningur sá, sem hér liggur fyrir til fullgildingar af Íslands hálfu á þskj. 220, er um ráðstafanir í því skyni að tryggja verndun fiskstofna fyrir ofveiði á norðausturhluta Atlantshafs og aðliggjandi hafsvæðum og jafnframt um leiðir til þess að tryggja hagnýtan rekstur fiskveiða á samningssvæðinu.

Samningsaðilar, auk Íslands, eru: Belgía, Danmörk, Frakkland, Sambandslýðveldið Þýzkaland, Írland, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Spánn, Svíþjóð, Samband sósíalískra ráðstjórnarríkja og Sameinaða konungsríkið StóraBretland ásamt Norður-Írlandi. Önnur ríki eiga þess kost að gerast síðar aðilar að samningnum.

Samningur um vernd fiskstofna á norðvesturhluta Atlantshafs var gerður í Washington árið 1949, og er Ísland aðili að þeim samningi. Samningssvæðin skiptast um Grænland rétt austan við Hvarf. Sá samningur, sem hér er um að ræða, nær yfir allt Norðaustur-Atlantshaf, frá Grænlandi að vestan og austur undir Novaja Zemlja, en suðurtakmörkin eru annars vegar við dönsku sundin, en hins vegar við línu, sem hugsast dregin í vestur frá Gíbraltar. Þessu stóra samningssvæði er síðan skipt í 3 undirsvæði, sem skilgreind eru í viðbæti við samninginn.

Samkv. 2. gr. samningsins getur ekkert ákvæði hans haft nein áhrif á réttindi, kröfur eða skoðanir samningsríkja að því er snertir víðáttu fiskveiðilögsögu. Er þetta ákvæði sett samkv. kröfu íslenzku samningamannanna.

Til þess að framkvæma samninginn verður stofnuð fastanefnd með aðsetri í London, og á hvert samningsríki rétt á að skipa í þá nefnd tvo fastafulltrúa, sem síðan geta haft sér til aðstoðar eins marga sérfræðinga og aðstoðarmenn og þurfa þykir. Fastanefndin heldur fundi árlega og oftar, sé þess óskað af fjórum samningsríkjum. Fastanefndin stofnar svæðisnefndir fyrir hvern hluta, sem samningssvæðið skiptist í, og hún getur einnig skipað undirnefndir í tilteknu skyni, þegar þess er talin þörf. Hvert samningsríki ræður einu atkv. í fastanefnd, og þar ræður einfaldur meiri hluti úrslitum.

Hvert ríki ber kostnað af fastafulltrúum sínum, sérfræðingum og aðstoðarmönnum, en að öðru leyti skiptist kostnaður af störfum fastanefndar eftir árlegri fjárhagsáætlun skv. ákvæðum 4, gr. samningsins. Ákvæði um hlutverk fastanefndar er í 6. gr. samningsins. Ber henni að fylgjast með fiskveiðum á samningssvæðinu, og síðan á hún, í ljósi þeirra upplýsinga, sem fyrir liggja, að athuga, hvaða ráðstafanir séu nauðsynlegar til verndar fiskstofnunum á svæðinu og til að tryggja hagnýtan rekstur fiskveiða þar. Svæðanefndirnar hafa sama hlutverk, hver fyrir sitt svæði. Skulu till. þær, er nefndin eða nefndirnar gera til samningsríkja, byggðar á niðurstöðum vísindalegra rannsókna og athugana, að svo miklu leyti sem hægt er. Þau atriði, sem till. n. geta fjallað um, eru talin í 7. gr. samningsins á þessa leið:

„a. Ráðstafanir til ákvörðunar möskvastærðar á fiskinetjum.

b. Ráðstafanir til ákvörðunar á lágmarksstærð fisks, er skip mega hirða, afferma eða sýna eða bjóða til sölu.

c. Ráðstafanir til fiskveiðabanns á tilteknum tímum.

d. Ráðstafanir til fiskveiðabanns á tilteknum svæðum.

e. Ráðstafanir til ákvörðunar um veiðarfæri og áhöld, aðrar en þær, er lúta að möskvastærð á fiskinetjum.

f. ákvarðanir til úrbóta og aukningar á auðlindum hafsins, og geta til þeirra talizt tækniklak og flutningur lífvera og seiða.

2. Til viðbótar ráðstöfunum þeim, er greinir í 1. liðgreinar þessarar, má gera ráðstafanir til þess að ákveða heildarveiði eða heildarsókn á tilteknu tímabili, svo og allar aðrar ráðstafanir til þess að varðveita fiskstofna á samningssvæðinu. Till., er að slíku lúta, skulu hljóta a.m.k. 2/3 hluta atkv. þeirra fastafulltrúa, er viðstaddir eru og atkv. greiða, og síðan samþykki allra samningsríkja í samræmi við stjórnarskrárákvæði þeirra.

3. Ráðstafanir þær, er greinir í 1. og 2. lið greinar þessarar, mega ná til allra tegunda sjófiska og skelfiska, en eigi til spendýra í sjó. Þær geta og náð til allra tegunda veiða og til allra hluta samningssvæðisins.“

Síðan koma í samningnum ákvæði um framkvæmd till. þeirra, sem gerðar eru til samningsríkjanna. Til þess að ríkjunum sé skylt að fara eftir till., þurfa þær að vera samþykktar með a.m.k. 2/3 atkv. fastafulltrúa þeirra, sem viðstaddir eru og atkv. greiða. Sérhvert ríki getur innan 90 daga, frá því að tilkynnt hefur verið um. samþykkt till. skv. 7. gr., mótmælt slíkri till. og ber þá ekki skylda til að framkvæma hana. Ef slík mótmæli eru send innan 90 daga, getur sérhvert annað aðildarríki sent mótmæli innan 60 daga, og berist mótmæli, meðan sá frestur er að líða, má enn mótmæla innan 30 daga frá tilkynningu um slík mótmæli. Ef þrjú eða fleiri samningsríki mótmæla till. fastanefndar, eru öll hin aðildarríkin leyst undan þeirri skyldu að framkvæma þær.

Heimilt er að taka aftur mótmæli gegn ályktunum fastanefndar, og koma þær þá til framkvæmda innan minnst 90 daga. Fastanefndin ákveður gildistökudag tillagna þeirra, er hún gerir, þó eigi fyrr en liðnir eru þeir frestir, sem ætlaðir eru til mótmæla.

Aðildarríki getur hvenær sem er að tveim árum liðnum, frá því er því var gert að framkvæma hvers konar ályktun, tilkynnt fastanefnd uppsögn á samþykki sínu við ályktunina, og gengur slík uppsögn úr gildi eftir 12 mánuði, og er ályktunin eftir það ekki bindandi fyrir aðildarríkin.

Aðildarríkjunum er skylt að láta fastanefnd í té allar tölfræðilegar og líffræðilegar upplýsingar, sem fáanlegar eru og n. mega að gagni koma í starfi hennar.

Þetta eru í stórum dráttum helztu atriði samningsins. Tilgangur hans er einkum mikilvægur fyrir fiskveiðaþjóð eins og Ísland, sem á allt sitt undir auðæfum hafsins og hlýtur þess vegna að styðja sérhverja viðleitni til að hindra, að þau auðæfi gangi til þurrðar. Segja má sem svo, að sú alþjóðlega stofnun, sem komið verður á laggirnar með samningnum, hafi ekki sterkt framkvæmdavald, því að hún getur einungis gert till. til aðildarríkjanna, og þeim er síðan í sjálfsvald sett, hverju og einu, hvort þau samþ. till. stofnunarinnar. Samt sem áður er hlutverk stofnunarinnar mikilvægt, ef þróun fiskveiðanna heldur áfram eins og nú horfir, þannig að veiðarnar á Norður-Atlantshafi verði stundaðar af stöðugt meira kappi. með fullkomnari og betri skipum og veiðarfærum en áður hafa þekkzt og af stöðugt fleiri þjóðum.

Það alþjóðlega samstarf, sem samningurinn gerir ráð fyrir, þarf tíma til að þróast, og má í því sambandi benda á, að hér er um að ræða víðtækari samning en þann, sem gerður var í London árið 1946 um möskvastærð á botnvörpu og dragnót og lágmarksstærð á fiski. Sömu ríki voru aðilar að þeim samningi, og fullgilti Ísland hann 1951 fyrir sitt leyti með fyrirvara varðandi landhelgina. Falla ákvæði þess samnings inn í nýja samninginn, að svo miklu leyti sem við á. Þannig þróast þessi mál að við skulum vona í rétta átt, þó að sumum finnist, að hægt gangi.

Við Íslendingar megum ekkert tækifæri láta ónotað til þess að sýna öðrum þjóðum fram á, hver lífsnauðsyn fiskveiðarnar eru fyrir þjóðina. Við heyjum í dag baráttu fyrir minnst 12 mílna fiskveiðilögsögu, og sú barátta okkar hefur opnað auga margra annarra þjóða fyrir nauðsyn þess, að strandríki, sem byggja lífsafkomu sína aðallega á fiskveiðum, fái stórlega aukinn rétt til að ákveða sína fiskveiðilögsögu. En þó að við vinnum sigur í þessu stærsta máli okkar í dag og þó að við fáum e.t.v. síðar nokkurra mílna viðbót við fiskveiðilögsöguna, þá er engan veginn víst, að það verði okkur nóg í framtíðinni.

Gegndarlaus ofveiði á Atlantshafinu að austan og vestan hefur áður komizt á það stig, að auðug fiskimið hafa verið þurrausin, sbr. t.d. Norðursjóinn fyrir síðustu heimsstyrjöld. Fjölgun fiskiskipa og framfarir í veiðitækni valda því, að nú er ofveiðin sums staðar farin að segja til sín á ný, þ.e.a.s. ofveiði, sem verður ekki fyrirbyggð með útfærslu á landhelgi einstakra ríkja einni saman. heldur þarf þar til að koma alþjóðlegt samstarf og samvinna um ráð til úrbóta. Sameiginlegar athuganir færustu manna á vandamálum ofveiðanna er sá grundvöllur, sem byggja verður á. Með þessum samningi er skapaður vettvangur, þar sem slíkir menn frá aðildarríkjunum geta borið saman bækurnar og gert sameiginlegar till. um, hvernig við skuli brugðizt. Einnig á þessi samningur að vera nokkur trygging fyrir því, að aðildarríkin kasti ekki slíkum till. í glatkistuna án athugunar eða umhugsunar.

Það ríður á meira fyrir okkur en flesta aðra, að þessi. samningur geti orðið upphaf að víðtæku samstarfi þjóðanna um skynsamlegar ráðstafanir til að vernda fiskstofnana í hafinu umhverfis Ísland. Þess vegna er lagt til, að frv. á þskj. 220 verði samþ. af Alþingi.