30.11.1959
Efri deild: 5. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í B-deild Alþingistíðinda. (46)
16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960
Frsm. minni hl. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Ég hefði mjög gaman af því, ef hv. 9. landsk. (JÞ) væri hér nærstaddur. Hann vék til mín nokkrum orðum í dag og á því aðeins inni hjá mér, að hann sjálfsagt hyggur. Er hann ekki hér nærri?
Ég vil þá byrja á því að samhryggjast hv. 9. landsk. þm. Hann var svo glaður yfir því, hvað fimmburarnir væru efnilegir, og hann ásakaði ljósmóðurina fyrir það, að hún skyldi ugga um þá og henni skyldi þykja óvarlega með þá farið að ætla þeim að fara í þessum gusti í gegnum Alþ., en ekki hafa þann hátt á, eins og hafður var fyrrum, að leggja þá, af því að þeir voru ófullburða, í hveiti um stund. En nú hefur það komið fyrir, að þeir eru dánir fjórir þessir ófullburða fimmburar og hæstv. ríkisstj. hefur aftur á móti eignazt „bandorm“.
Það má annars á það líta, að þetta, sem gerzt hefur, er það, að hæstv. ríkisstj. hefur hopað og flúið af hólmi í sinu fyrsta áhlaupi, flúið af hólmi með sín 4 og þó raunverulega 5 frumvörp í eitt frv. Úr hv. Nd. er tekinn með einn liður „bandormsins“. Hún hefur hopað, hún hefur hvikað, hún hefur fundið, að hún hafði ekki sóknaraðstöðu, og hún hefur nú gert annað áhlaup, hvernig sem það fer. Þetta sýnir það, að hún kann þó að meta aðstöðu sína sem veika, eins og hún líka er.
Hv. 9. landsk. kvartaði undan því, að framsóknarmenn læsu upp úr Morgunbl., eða hann kvartaði sérstaklega undan því efni, sem þar væri upp lesið, en óskaði eftir því, að við læsum heldur upp úr framhaldssögu Morgunbl. Nú hafði ég ekki lesið framhaldssöguna og víssi ekki, hver hún var. En ég fór að líta í Morgunbl. og sá þá, að framhaldssagan heitir „Óþreyja hjartans“.
Mér hefur oft verið það mikið undrunarefni að undanförnu, þetta síðasta ár og part af árinu þar áður, hve Alþfl.-menn hafa sótzt eftir sambandi við þá, sem standa að Mbl. Þeir hafa borið það með sér, að þá hefur þjáð í því efni „óþreyja hjartans“. Og ég undrast þetta vegna þess, að þessi flokkur hefur talið sig verkalýðsflokk, fulltrúa og flokk hins vinnandi fólks, en hins vegar eru þeir, sem standa að Mbl., eins og allir vita, fyrst og fremst þeir, sem hið vinnandi fólk á í höggi við um kaup sitt og kjör.
Nú skil ég það betur eftir ræðu hv. 9. landsk., hvers vegna þetta hefur getað átt sér stað. Þeir hafa sem sé, Alþfl.-mennirnir, ekki lesið það, sem þeir hefðu þurft að lesa í Mbl., en þeir hafa sennilega lesið framhaldssöguna. Hann sagði það, ræðumaðurinn, allborginmannlega, að enginn gæti haft húsbóndavald yfir Alþfl. Nú vita það allir, að Alþfl, hefur verið í þjónustu Sjálfstfl. um skeið. Vitanlega vill hann ekki kannast við það, að Sjálfstfl. hefur stjórnað í gegnum hann. Hv. ræðumaður sagði, að það hefði einu sinni komið fyrir, aðeins einu sinni, að einn flokkur hefði reynt að fá húsbóndavald yfir Alþfl., það hefði verið Framsfl. En það hefði nú ekki tekizt.
Framsfl. hefur aldrei reynt að fá húsbóndavald yfir Alþfl. En í þingsögunni hefur hann oft hjálpað Alþfl. Og þegar Alþfl. t.d. virtist vera að því kominn að líða undir lok 1956 og virtist eiginlega hafa týnt þeim gömlu hugsjónum, sem hann barðist fyrir og gerðu það að verkum, að Framsfl. löngum studdi hann, þá, 1956, gerði Framsfl. bandalag við hann og tilraun til þess að vekja hann til hugsjónalífs aftur. Ég hygg, að það sé viðurkennt af öllum eða flestum í landinu, ef ekki opinberlega, þá í leynum hugans, að 1956 bjargaði Framsfl. Alþfl. frá dauða. En þegar hann fór að finna til krafta sinna aftur, kom yfir hann þessi óþreyja hjartans, og þá týndi hann aftur hugsjónum sínum og fór að lesa framhaldssögu Morgunbl. með þeim árangri, sem nú kemur í ljós. Spurningin er þá bara: hvað halda þeir lengi áfram að lesa framhaldssöguna, en ekki hitt, sem í Morgunbl. stendur og hv. 9. landsk. lýsti svo greinilega, að honum fellur illa að hlusta á?
Hæstv. fjmrh. hafði setið hljóður lengi og hlustað á það, sem fram fór. Stundum brosti hann, stundum varð hann alvarlegur. Loksins tók hann til máls, og þá spurði hann: Hvað er eiginlega verið að ræða um? Vita menn, hvað þeir eru að ræða um? Það, sem verið er að ræða um hér, er þetta frv., eins og hann sagði. En af því að forsrh. hefur borið fram till. um að fresta þingi þar til síðla í janúar, þá geti þeir helzt ekki um annað talað. Og menn telja, að sú till. beri vott um einræðishneigð og það að skerða eigi þingræðið. Það væri nú síður en svo, því að þessi till. væri borin fram samkv. óskum meiri hl. Alþingis. Þá veit maður það! Auðvitað hafði ég aldrei búizt við öðru en stjórnin í þessu máli hefði tryggt sér fylgi flokka sinna. Ég hafði aldrei búizt við öðru. En ég fyrir mitt leyti er jafnviss um það, að það að knýja fram frestun Alþ. nú, án þess að þáð hafi fengið tækifæri til þess að setjast á laggirnar eða sinna þeim málum, sem fram hafa verið lögð, og gera þeim þau skil, sem skylt er í upphafi þings, til þess að þau geti fengið þinglega afgreiðslu, nefndir athugað þau, það er gerræði og það er að misbeita naumum meiri hluta. Hæstv. fjmrh. sagði þrátt fyrir allt, sem búið er að leiða hér fram og rifja upp úr þingsögunni og sögu vinnubragða Alþingis, að þessi till. væri skynsamleg og hún væri í fullu samræmi við venjur og vinnubrögð og þingræðið sjálft. Hann sagðist ekkert átta sig á því, hvað menn ættu við hér í þessari hv. d., þegar menn væru að tala um það, að með þessari till. ætti að skerða lýðræði og þingræði.
Ég er þess fullviss, að hæstv. ráðh. mun komast að þeirri niðurstöðu, að ef stjórnin, þó að hún hafi meiri hl., ætlar að beita honum eins og hún hyggst gera í sambandi við afgreiðslu þeirra mála, sem hér liggja fyrir, og sennilega í sambandi við afgreiðslu á till. um þingfrestun, sem liggur fyrir Sþ., þá lánast henni ekki vel sitt stjórnarstarf. Ég er þess fullvíss, að þeir erfiðleikar, sem íslenzk þjóð á í, verða aldrei leystir með naumum meiri hluta. Þeir verða aldrei leystir á annan hátt en þann, að þjóðin sameinist um að leysa þá, og að fá þjóðina til að sameinast um að leysa þá er nauðsyn þessarar stjórnar eða hverrar þeirrar stjórnar, sem hugsar sér í alvöru að vinna það verk. En till. um frestun þings nú og beiting naums meiri hluta til að knýja ótímabær málefni til afgreiðslu er stefna í þveröfuga átt og stofnar til sundurþykkju, sem mun torvelda mjög að okkur — ég segi okkur — og þjóðinni takist að leysa efnahagsmálavandann. Og það er þess vegna, af því að ég veit og er sannfærður um, að það þarf samvinnu helzt allra þegna þjóðfélagsins eða a.m.k. miklu stærri meiri hluta en stjórnarflokkarnir hafa, að ég leggst á móti þeim frumvörpum, sem hér hafa veríð til umr. í deildinni.
Þá sagði hæstv. fjmrh., að það væri ekki skylt að leggja brbl. fyrir Alþ. fyrr en einhvern tíma. Vitanlega rétt. En hins vegar er það mikill vanskilningur samt sem áður að halda, að það eigi ekki að leggja slík lög fyrir næsta þing, áður en gildistími l. rennur út. En nú þarf ekkí um það að deila lengur, því að hæstv. ráðh, upplýsti, að brbl. yrðu lögð fyrir Alþ. fyrir þinghlé. En þá vil ég spyrja: Verða þau afgreidd? Það hefur vitanlega ekkert gildi að leggja lögin fyrir þing, sem afgreiðir þau ekki og fær ekki tíma til að fjalla um þau. Máske svarar ráðh. því, að þau muni fara gegnum 1. umr og fara til n. En þetta er ekkert annað en að fara kringum fyrirmæli laga um meðferð brbl., ef ekki á að afgreiða brbl., og þess vegna er það, að ég fyrir mitt leyti legg ekkert upp úr þessari yfirlýsingu, nema því fylgi sú yfirlýsing, að þingi verði ekki frestað, fyrr en búið sé að afgreiða lögin. Og ef sjálfstæðismenn gera þetta eftir allt það, sem þeir hafa sagt í sambandi við þessi brbl., sem ég satt að segja hef ekki tekið mjög alvarlega að undanförnu, er mælirinn fullur. Ég er þess fullviss, að þeir hefðu getað komið í veg fyrir setningu brbl., ef þeir hefðu viljað, því að svo sterklega stjórnuðu þeir í gegnum Alþfl., og það hefði vitanlega ekkert verið hættulegt, þó að Alþfl.-stjórnin hefði þá undir þingbyrjun eða t.d. í haust sagt af sér og hún hefði starfað sem „fungerandi“ stjórn, þangað til Alþ. kom saman. Nei, Sjálfstfl. hefur ekki kært sig um að koma í veg fyrir þessi brbl., og þó bar honum vitanlega skylda til þess, því að svo glöggt man maður það frá því í fyrra, þegar málefnið var til umr. og við framsóknarmenn fluttum till. um það, að 3.18% yrðu tekin inn í vísitölugrundvöllinn og vísitölugrundvöllurinn þannig heilsteypt byggður, þá sögðu sjálfstæðismenn: Við teljum að vísu rétt, að bændur fái þetta, en því látíð þið svona? Þetta kemur af sjálfu sér í haust. — Hvað sögðu þeir svo í haust? Þetta kemur af sjálfu sér, þegar þing kemur saman, og þá sjáum við um, að bændurnir fáí bætur. — Og af því að ég hef haft þennan skilning á framkomu sjálfstæðismanna, þá kemur mér ekkert á óvart, þó að þeir nú beiti atkv. sínum gegn þeirri till. að fá heimild til að gera það, sem þeir sögðust ætla að gera.
Ég sé, að klukkan er orðin nokkuð margt, og það vakir ekki fyrir mér að halda hér uppi neinu málþófi. Þess vegna get ég látið lokið máli mínu, enda er það svo, að ég á sæti í fjhn. og hef tækifæri til þess að fylgjast með því máli, sem þar er og gæti verið til umr. hér um leið og þetta. Í raun og veru eru öll þessi mál til umr. saman, af því að þau eru, ef þau verða samþykkt, lykill handa stjórnarflokkunum til þess að setja á hið ótímabæra þinghlé.