24.03.1960
Neðri deild: 54. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1779 í B-deild Alþingistíðinda. (473)
65. mál, almannatryggingar
Frsm. 2. minni hl. (Hannibal Valdimarsson) [frh.]:
Herra forseti. í inngangsorðum ræðu minnar í gær vék ég að viðhorfum manna og flokka til framfærslu- og tryggingamála, og var þar komið ræðu minni, þegar hæstv. forseti óskaði, að ég gerði hlé á henni þar til í dag, að ég hafði skýrt frá setningu alþýðutryggingalaganna 1936. Í framhaldi af því vil ég svo segja þetta:
Við hverja tilraun til endurbóta á alþýðutryggingunum gætti þverúðarfullrar andstöðu íhaldsaflanna, og alltaf var undiralda andspyrnunnar hin sama og hjá Magnúsi Jónssyni forðum, tryggingarnar væru fylgifiskur sósíallsmans. Og hvað þyrfti þá frekar vitnanna við? Þá væru almennar tryggingar auðvitað af því vonda og bæri að berjast gegn slíkum vágesti. Eftir því sem sósíalistar væru sterkari í löndunum, eftir því væri meira um alls konar tryggingar, allt væri þá fjötrað og flækt í alls konar tryggingum. Loks var svo gerð mjög stórfelld skipulagsbreyting á fyrirkomulagi tryggingamálanna hér á landi með setningu laga nr. 50 frá 7. maí 1946, um almannatryggingar, laganna, sem hér eru nú til umræðu í því formi, sem þau eru nú. Við þessa lagasetningu gætti enn sem fyrr andúðar ýmissa sjálfstæðismanna á tryggingum, og bera lögin þess enn merki á margan hátt. Má þar sérstaklega nefna sem dæmi skerðingarákvæðin hvimleiðu og illræmdu, sem beint voru sett inn til samkomulags við Sjálfstæðisflokkinn og að settu skilyrði frá honum.
Fylgi ýmissa sjálfstæðismanna við lögin var bundið því skilyrði, að dregið yrði úr kostnaði við framkvæmd þessarar lagasetningar fyrstu árin, m.a. með svo hljóðandi ákvæði til bráðabirgða:
„Greiðslur ellilífeyris samkv. 15. gr., örorkulífeyris skv. 18. gr. og barnalífeyris skv. 20. gr. eru um næstu 5 ár háðar þeim takmörkunum, sem hér segir: Fullur elli- og örorkulífeyrir skv. 15. gr. skal því aðeins greiddur, að aðrar tekjur hlutaðeiganda fari ekki fram úr fullum lífeyri. Séu tekjurnar hærri, lækkar lífeyririnn um helming þess, sem umframtekjurnar nema, og fellur niður, þegar þær ásamt lífeyrinum hafa náð upphæð, sem er jafnhá þreföldum lífeyri.“
Þingmeirihluti fékkst ekki fyrir almannatryggingalögunum 1946, nema gengið væri að þessu bráðabirgðaákvæði og ýmsum fleiri skilyrðum. En hitt var margtekið fram og mjög á lofti haldið, að eftir 5 ár skyldi þetta bráðabirgðaákvæði örugglega niður falla, en nú eru þau orðin 13 eða nær 14, og enn eru bráðabirgðaákvæðin í gildi.
Það er óþarft að fara um það mörgum orðum, því að við hverja endurskoðun tryggingalaganna síðan hafa íhaldsöflin staðið gegn því, að skerðingarákvæðin væru niður felld. Og alltaf hafa þau fengið með sér þingmeirihluta til þess að framlengja þau. Ég minni t.d. á, að árið 1955 bar ég fram tillögu um, að skerðingarákvæðin skyldu niður felld. Þessa tillögu flutti ég í nafni Alþfl. og með fullu samþykki þingflokks hans. Mér kom það því meira en lítið á óvart, þegar ég flutti þessa sömu till. á s.l. sumri, að það var þá ríkisstj. Alþfl., sem studdist við fylgi Sjálfstfl., sem varð til þess að afstýra afnámi skerðingarákvæðanna í það sinn.
Nú ber ég þessa till. fram enn og reynir þá enn á ný á Sjálfstfl. og hinn forna alþýðutryggingafrumherja, Alþfl., hvort þeir geta nú fallizt á afnám skerðingarákvæðanna eða ekki. Ég vil vona, að það komi í ljós, að Sjálfstfl. hafi nú breytt um afstöðu, svo að hægt væri að segja við mig: Þér stoðar ekkert að vitna til afstöðu Sjálfstfl. fyrir 20–30 árum, eins og þú gerðir í upphafi ræðu þinnar, því að það, sem máli skiptir, er afstaða hans nú, og nú er hann horfinn frá þeirri afstöðu sinni. — Ég játa, að þá væri mikil og gleðileg breyting orðin á Sjálfstfl., ef hann fengist nú undanbragðalaust til þess að greiða atkvæði með till. um afnám skerðingarákvæðanna og annarra meiri háttar endurbóta á tryggingunum. Hitt mundi þó hryggja mig enn meir, ef það kæmi nú aftur í ljós, eins og í sumar er leið, að Alþfl. hefði skipt um skoðun á þann veg að taka upp fjandsamlega afstöðu íhaldsins til tryggingamála og verði því nú ásamt því til að fella tillögu um afnám skerðingarákvæðanna, um að gera landið að einu verðlagssvæði, um að breyta ellilífeyrinum í fullnægjandi framfærslulífeyri o.s.frv.
En þótt nú þegar hafi örlað á slíkri samfylgd Alþfl. við Sjálfstfl. í n., vil ég ekki trúa því, fyrr en ég tek á því, að Alþfl. sé svo breyttur orðinn, einnig í tryggingamálum, að hann gangi þar gegn sínum fyrri till. En máske er það þó svo, að hin endurskoðaða jafnaðarstefna á atómöldinni sé andstæð fullkomnum almannatryggingum, og ef svo er, þá er að taka því.
Þessu næst vil ég víkja nokkuð að hinu stórbrotna nýmæli almannatryggingalaganna frá 1946, heilsugæzlukaflanum. Myndarleg framkvæmd á þeim kafla tryggingalaganna hefði valdið tímamótum í meðferð heilbrigðismála á Íslandi, en því miður varð þar ekkert af framkvæmdum. Upphafsorð heilsugæzlukaflans frá 1946 voru á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Tryggingastofnunin skal vinna að því í samráði og samvinnu við heilbrigðisstjórnina, að látin verði í té skipuleg heilsugæzla, er nái sem bezt til allra landsmanna. Heilsugæzla merkir í lögum þessum bæði heilsuvernd og sjúkrahjálp.“
Komið skyldi upp heilsuverndarstöðvum um land allt undir stjórn heilsugæzlunefnda. Hlutverk heilsuverndarstöðvanna átti að verða það að rækja hvers konar heilsuverndarstarfsemi, svo sem mæðravernd, barna- og unglingavernd, þar með talið skólaeftirlit og eftirlit með íþróttaiðkunum, berklaveiki-, holdsveiki- og sullaveikivarnir, varnir gegn kynsjúkdómum, almennar farsóttavarnir og andlega heilsuvernd, enn fremur heilbrigðiseftirlit með vinnustöðvum, aðstoð við almennar slysavarnir, híbýlaeftirlit, matvælaeftirlit og manneldisrannsóknir. Auk almennrar sérfræðilegrar læknishjálpar og tannlækninga, nuddlækninga, fæðingarhjálpar áttu heilsugæzlustöðvarnar að annast rannsóknir, sem miðuðu að sem fullkomnastri sjúkdómsgreiningu. Samkv. heilsugæzlukaflanum átti Tryggingastofnun ríkisins og að greiða kostnað við dvöl hinna tryggðu eftir læknisráði á sjúkrahúsum, heilsuhælum og fæðingarstofnunum. Tryggingastofnunin skyldi enn fremur greiða læknishjálp alla fyrir alla, sem njóta lífeyris- og örorkubóta, svo og fyrir börn þeirra, munaðarleysingja og fyrir þá, sem njóta slysabóta. Hún skyldi og greiða að fullu þau lyf, sem sjúklingum væri brýn nauðsyn á eða lífsnauðsyn að nota að staðaldri að dómi læknis. Önnur nauðsynleg lyf og umbúðir skyldu greiðast að hálfu. Tryggingastofnunin átti að greiða að fullu kostnað við röntgenskyggningu og töku röntgenmynda, ef framkvæmdar voru af viðurkenndum lækni eða af viðurkenndri heilbrigðisstofnun, svo og kostnað við röntgen- og radíumlækningar í viðeigandi tilfellum.
Mörg stórmerk efnisatriði voru í heilsugæzlukaflanum, þó að þau verði ekki rakin hér nánar.
Frumhöfundur heilsugæzlukaflans mun hafa verið Jóhann heitinn Sæmundsson, fyrrv. félmrh., síðar tryggingalæknir og prófessor, og munu þeir, sem þekktu þennan mæta mann og ágæta lækni, telja það eitt út af fyrir sig vera nokkra tryggingu fyrir því, að allvel hafi verið til þessa hluta tryggingalöggjafarinnar vandað. Síðan starfaði mþn. að undirbúningi laganna, en ekki var látið þar við sitja, því að þegar Finnur heitinn Jónsson var félmrh., skipaði hann enn nefnd 3 lækna til að endurskoða alveg sérstaklega heilsugæzlukaflann. Þessir læknar voru Guðmundur Thoroddsen prófessor, Magnús Ágústsson héraðslæknir og Snorri Hallgrímsson núv. prófessor. Síðar tóku heilbr.- og félmn. þingsins við málinu, og hafði kaflinn mjög lítið breytzt frá því, sem Jóhann heitinn Sæmundsson hafði gengið frá honum, þrátt fyrir alla þessa endurskoðun, sem síðar fór fram.
En hvernig atvikaðist það svo, að heilsugæzlukaflinn kom aldrei til framkvæmda? Það verður fullljóst með því að rifja upp eftirfarandi úr ræðu Gísla Jónssonar, þáv. þm. Barð., en hann var fulltrúi Sjálfstfl. í mþn. um tryggingamálin árið 1946. Gísli Jónsson sagði þá: „Í áttunda lagi,“ þá var hann í 7 atriðum búinn að flytja fram ýmis vandkvæði, sem hann taldi á tryggingalagafrv., „var ég óánægður með að taka allan heilsugæzlukaflann upp í frv. Hins vegar varð samkomulag um að fresta framkvæmd þessa hluta laganna um eitt ár.“
Um síðari framvindu þessa máls má svo lesa í árbókum Tryggingastofnunar ríkisins. Í árbók trygginganna 1947–1953 segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Í lögum um almannatryggingar frá 1946 var gert ráð fyrir því, að Tryggingastofnun ríkisins tæki að sér sjúkratryggingar á öllu landinu í stað sjúkrasamlaga, og skyldu sjúkrasamlög hætta störfum, þegar III. kafli laganna, um heilsugæzlu, kæmi til framkvæmda, en það átti að gerast hinn 1. jan. 1948. Framkvæmd þessa kafla almannatryggingalaganna hefur síðan verið frestað frá ári til árs, nú síðast til 1. jan. 1957 með lögum frá 29. des. 1955.“
Þetta er í árbókinni frá 1947–1953. Í árbókinni frá 1954–1956, þeirri seinustu, sem út hefur komið, er aftur vikið að frestun heilsugæzlukaflans og sérrekstri sjúkrasamlaganna, sem upphaflega átti að falla undir tryggingarnar. Þar segir svo m.a.:
„Með almannatryggingalögunum frá 1946 var ákveðið að leggja sjúkrasamlögin niður í árslok 1947, en í stað þeirra átti að koma heilsugæzla á vegum almannatrygginganna. Heilsugæzluna skyldu annast heilsuverndarstöðvar, sjúkrahús og lækningastöðvar, sem til þess væru viðurkennd af heilbrigðisstjórninni; en þar, sem ekki væru heilsuverndar- eða lækningastöðvar, skyldu héraðslæknar með aðstoð annarra heilbrigðisstarfsmanna annast störf þeirra. Framkvæmd heilsugæzlukaflans var frestað frá ári til árs, og sjúkrasamlög störfuðu áfram. Árið 1950 voru samþykkt lög, sem ákváðu, að stofnuð skyldu sjúkrasamlög í þeim hreppum, sem þá höfðu ekki þegar starfandi samlög, og skyldu samlagsmenn njóta réttinda frá 1. okt. 1951. Enn var framkvæmd heilsugæzlukaflans frestað, og með hinum nýju lögum 1956 var horfið frá hugmyndinni og sjúkrasamlög látin starfa áfram.“
Þetta held ég að hafi verið mikið óheillaspor.
Á þinginu 1955 bar ég .fram till. um, að heilsugæzlukaflinn yrði tekinn upp í löggjöfina aftur, en þá hafði mþn. lagt til, að hann yrði felldur niður, og varð svo. Þessi breyting kom mér og ég hygg mörgum öðrum á óvart, því að með breytingu á almannatryggingunum 1953 voru sett margvísleg ákvæði til að undirbúa einmitt framkvæmd heilsugæzlukaflans. Þar á meðal var sett inn ákvæði um ráðningu heilsugæzlustjóra, sem annast skyldi forstöðu heilsugæzlumála, þegar III. kafli laganna, þ.e. heilsugæzlukaflinn, kæmi til framkvæmda. 1. gr. I. kafla l., sem um þetta fjallaði, frá 1953, var svo hljóðandi:
„Auk þeirra starfsmanna, sem nefndir eru í 4. gr. l., er ráðh. heimilt að skipa sérstakan yfirlækni Tryggingastofnunar ríkisins, er nefnist heilsugæzlustjóri. Heilsugæzlustjóri skal hafa yfirstjórn allra læknamála stofnunarinnar í samráði við forstjóra. Hann hefur með höndum framkvæmd og forstöðu heilsugæzlumála Tryggingastofnunarinnar, er III. kafli l. kemur til framkvæmda, en vinnur þangað til að undirbúningi þeirra framkvæmda og hefur yfirumsjón með starfsemi sjúkrasamlaganna, meðan þau starfa. Tryggingayfirlæknir annast í samráði við heilsugæzlustjóra störf þau, er honum eru sérstaklega falin í lögunum“.
Í þessa áttina var stefnt árið 1953. En ekkert varð af undirbúningi heilsugæzlunnar eða framkvæmd hennar þrátt fyrir stofnun þessa embættis. Enn starfa sjúkrasamlögin sem sérstök fyrirtæki með sérstakt skrifstofubákn, t.d. hér í Reykjavík, og nú er 1. gr. þessa frv. um almannatryggingar, sem hér liggur fyrir til umr., einmitt um það að leggja seinustu leifarnar af embætti heilsugæzlustjóra niður. Embættið mun, síðan kaflinn um heilsugæzlu var felldur niður, hafa heitið sjúkramálastjóri. Um þetta segir svo í athugasemd við stjórnarfrv., sem nú er til umræðu, með leyfi hæstv. forseta:
„Við Tryggingastofnun ríkisins hafa starfað 3 læknar, sjúkramálastjóri Sigurður Sigurðsson, berklayfirlæknir, og hefur sjúkramálastjórastarfið verið hálft starf, tryggingayfirlæknir Páll Sigurðsson í fullu starfi og aðstoðarmaður hans, Bergþór Smári, og hefur það verið hálft starf. Nú hefur Páll Sigurðsson beðizt lausnar, en hann er orðinn 67 ára gamall, og Sigurður Sigurðsson hefur fengið veitingu fyrir landlæknisembættinu. Þótt hagkvæmt hafi reynzt að skipa læknastörfum stofnunarinnar á þennan veg hingað til, er ekki hægt að gera ráð fyrir því, að svo verði framvegis. Þykir eðlilegast, að læknastörf við stofnunina verði full störf og að þeim gegni þá aðeins tveir menn, tryggingayfirlæknir og tryggingalæknir, tryggingayfirlækninum til aðstoðar. Tryggingayfirlæknir tæki þá við deildarstjórn sjúkratryggingadeildar, en tryggingalæknir annaðist sérstaklega örorkumat lífeyrisdeilda. Brýn þörf er á því að fá lagabreytingu þessa samþykkta hið fyrsta, svo að hægt verði að auglýsa störfin laus til umsóknar.“
Það má vel vera, að sú skipan læknamála hjá Tryggingastofnuninni, sem þarna er lagt til að upp verði tekin, reynist eins hagkvæm og hin fyrri, þótt horfið verði að því ráði að
taka upp aftur heilsugæzlukaflann, sem ég vil vona og tel sjálfsagt að gert verði, enda geri ég enga till. um það, að þessari tilhögun læknaskipunar hjá Tryggingastofnuninni verði breytt nú. Hins vegar teldi ég þó eðlilegt, ef heilsugæzlukaflinn yrði tekinn upp aftur, að yfirlæknir Tryggingastofnunarinnar bæri sitt fyrra embættisheiti, nefnilega heilsugæzlustjóri.
Eins og frsm. meiri hl. skýrði frá, ræddi heilbr.- og félmn. þetta stjórnarfrv. á einum 4 fundum, en bríklofnaði, þar sem stuðningsmenn stjórnarinnar vildu ekki fallast á neinar breytingar á frv., sem máli skiptu. N. er þó öll sammála um smábreytingar þær, sem eru á þskj. 169, og hefur áður verið frá því skýrt af frsm. Hv. 4. þm. Reykn. (JSk) vildi meiri breyt. á frv. en stjórnarliðar gátu fallizt á, og hefur hann gert grein fyrir þeim breytingum. Skildist mér á honum bæði í n. og í framsöguræðu hans, að hann og flokkur hans mundu geta stutt ýmsar þær till., sem ég ber fram á þskj. 171.
Frsm. meiri hl. (BF) gerði mikið úr þeim breytingum og endurbótum á almannatryggingunum, sem fælust í frv. ríkisstj. Hafa slíkar bumbur verði barðar nú um langan tíma, eða allt frá því a.m.k. að nokkuð fór að kvisast um aðgerðir ríkisstj. í efnahagsmálum. Þegar stuðningsmenn stjórnarinnar hafa látíð í ljós ugg sinn og kvíða út af gengisfellingunni, dýrtíðarflóðinu, skattaklyfjunum, afnámi vísitölunnar, lánabanninu, söluskattinum, vaxtahækkuninni og fyrirsjáanlegum atvinnusamdrætti, hefur þrautalendingin alltaf verið sú hjá verjendum stjórnarinnar að segja eitthvað á þessa leið: Já, en kæru vinir, verið þið bara rólegir, við ætlum að gera svo stórkostlegar umbætur á almannatryggingunum, að nærri því allir fá fullar bætur dýrtíðar og atvinnuleysis og sumir jafnvel meira. — Þessa tóns fannst mér einnig gæta, því miður, í framsöguræðu meiri hlutans. Og af þessari sjálfsánægju sjáum við líka nokkurn vott í nál. meiri hl., sem hér liggur á borðum hv. þm.
Umbæturnar á tryggingunum, sem felast í þessu stjórnarfrv. og eru kallaðar gagngerar og stórmerkar, eru svo smávægilegar, að ég held, að þeir menn verði að vera lítilþægir um umbætur í tryggingamálum, sem geta lýst sig ánægða með bær. Það eru því miður engar gagngerar breytingar á kerfi almannatrygginganna í þessu frv. ríkisstj. Borgurum landsins er misgert eins og áður, landinu er skipt í tvö verðlagssvæði, ellistyrkurinn er enn þá svo naumur, að flestir, sem hans njóta, eru jafnframt gerðir að opinberum styrkþegum, og til annars var þó ætlazt í upphafi. Ekki er orð eða stafur um það í þessu frv., að afnema beri hin ranglátu og heimskulegu skerðingarákvæði gagnvart ellilífeyri og örorkubótum.
Ekki er tekið í mál að koma heilsugæzlu og heilsuverndarstarfsemi í skipulegt form undir merki trygginganna, sem var þó ein glæsilegasta hugsjón þeirra manna, sem brutu brautina fyrir tryggingum hér á landi. Allt
þetta vantar í frv. stjórnarinnar. Ekkert af þessu er í því. Hitt finnst mér ekkert vera til þess að miklast af, þótt stjórnarherrar dýrtíðarinnar treystust ekki til þess að fyrirskipa gamalmennum og öryrkjum, einstæðum mæðrum og ekkjum, sjúkum mönnum og slösuðum að búa við sömu tryggingabætur að krónutölu og verið hefur ákveðið til þessa, og það mega þeir eiga, til þess ætlast þeir ekki heldur. Það er rétt, að flestar bætur trygginganna eru hækkaðar að krónutölu í þessu frv., en samt efast ég um, að hagur hinna tryggðu verði nokkuð betri en áður, eftir að afleiðingar efnahagsaðgerðanna eru allar komnar fram. Ef ég reynist sannspár um það, hvað er þá orðið um öll stóru orðin um gagngerar umbætur á tryggingunum? Ekkert. Þær eru orðnar að engu.
Nei, sannleikurinn er sá, að allt þetta gum um stórkostlegar endurbætur og útfærslu tryggingamála, sem í þessu stjórnarfrv. eigi að felast, minnir helzt á þann þjóðarrétt, sem nefndur var flautir. Hann var gerður úr mjólk að vísu, en hann var mestmegnis loft, froða, og þótti aldrei vera undirstöðufæða, enda aðallega ætlaður snauðu fólki. Þetta flautafrv. ríkisstj. er svo sannarlega miklu minna að raunverulegu innihaldi en málgögn og málpípur stjórnarliðsins vilja vera láta, og mætti þó kveða þar öllu fastar að orði. Það er líka fyrst og fremst borið fram, þetta frv., til þess að reyna að sætta landslýðinn við þær þungu búsifjar, sem allir verða fyrir vegna aðgerðanna í efnahagsmálum. Dýrtíðar- og fátæktarstjórana, — ég á þar við 7 hæstv. ráðherra, vantaði einhverja dulu til að dansa í til þess að skýla nekt sinni í verðbólgu- og dýrtíðardansinum frammi fyrir þjóðinni. Og þar urðu tryggingarnar fyrir valinu. Þetta er sannleikur málsins, hvort sem mönnum kann nú að finnast hann eitthvað eilítið beiskur á bragðið. Þetta er .hann. Frá því verður a.m.k. með engu móti hlaupizt né yfir það breitt héðan af, að einn meginþáttur þessa tryggingafrv. er einmitt sá að friða fólk, milda afstöðu þess gagnvart efnahagsmálaaðgerðunum með þeirri krónutöluhækkun, sem sett er hér á ýmsar tryggingabætur. Ég veit ekki, hvort ég á að kalla það plástur eða almennar sárabætur. Þetta er berum orðum játað í athugasemdum, sem með frv. um efnahagsmál voru, en þar sagði svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Til þess að draga úr þeirri kjaraskerðingu, sem þessar ráðstafanir hafa í för með sér vegna hækkaðs verðlags, leggur ríkisstj. til, að mjög mikil“ — eins og þar stendur — „hækkun sé gerð á bótum almannatrygginganna, sérstaklega á fjölskyldubótum og elli- og örorkulífeyri.“
Í hvítu bókinni, sem ríkisstj. gaf út og dreifði út um landið á kostnað ríkissjóðs, þ.e.a.s. á kostnað þegnanna, er þetta sárabótasjónarmið einnig játað afdráttarlaust, því að þar segir svo, á bls. 19 og 20, með leyfi hæstv. forseta:
„Slík hækkun framfærslukostnaðar hlyti að sjálfsögðu að verða öllum almenningi .afar þungbær. Af þeim ástæðum telur ríkisstj. alveg óhjákvæmilegt, að sérstakar ráðstafanir séu gerðar til þess að draga úr áhrifum gengisbreytingarinnar á lífskjörin og þá fyrst og fremst á lífskjör barnafjölskyldna og aldraðs fólks.“
Takið eftir! Þarna játar ríkisstj., að efnahagsmálaaðgerðir hennar hljóti að verða öllum almenningi afar þungbærar, svo að óhjákvæmilegt sé að hlaupa undir bagga með barnafjölskyldum og öldruðu fólki. Sams konar játningu er enn fremur að finna í nál. hv. meiri hl., þar sem skýrt er frá þeim hækkunum bóta, sem í þessu frv. felist, en þar segir svo um ástæðuna til þessara hækkana: „Kemur einkum tvennt til: Í fyrsta lagi höfðu bótagreiðslur trygginganna síðustu árin ekki hækkað í samræmi við vaxandi dýrtíð og í öðru lagi ber að líta á hækkun þeirra nú sem veigamikinn þátt þeirra efnahagsmálaráðstafana, sem gerðar hafa verið af hæstv. ríkisstj. og stuðningsflokkum hennar.“ Þetta er úr nál. meiri hl. heilbr.- og félmn.
Það er vissulega hverju orði sannara, að bótagreiðslur trygginganna hafa ekki hækkað í samræmi við vaxandi dýrtíð, og hafa bæturnar því minni kaupmátt en áður var. En tryggingarnar hafa líka alltaf verið undir stjórn þess flokks, sem nú er í flestum málum kominn íhaldsmegin við íhaldið. Þær hafa einnig heyrt undir ráðherra þessa sama flokks, og var þá vart við öðru að búast en þær drægjust aftur úr, enda hefur svo orðið.
Mþn., sem skipuð var á miðju ári 1958 til þess að endurskoða ákvæði tryggingalaganna um lífeyrisgreiðslur með það fyrir augum, að slíkar bætur yrðu hækkaðar, skilaði áliti og frv., sem lagt var fyrir seinasta þing. Auðvitað lagði n. til, að verulegar hækkanir yrðu á lífeyrisgreiðslunum. Sú n. sá þó auðvitað ekki fyrir það dýrtíðarflóð, sem nú blasir við. Er því ekkert undrunarefni, þótt bætur séu hækkaðar frá því, sem n. lagði til. Að öðrum kosti hefðu tili. mþn. verið að engu gerðar strax við lögfestingu þeirra. Þetta er einn meginþáttur frv.
Í öðru lagi byggist efni þessa frv. á frv. sömdu af annarri mþn., sem hóf störf sín í ársbyrjun 1959 og átti að endurskoða ákvæði tryggingalaganna um slysabætur með það fyrir augum, að slíkar bætur yrðu hækkaðar. Till. þessarar mþn. eru að mestu teknar upp í frv. Þar er um að ræða nokkra hækkun á dagpeningum, enda var svo komið, að Ísland fullnægði ekki lengur skilyrðum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um, að dagpeningar skyldu a.m.k. vera helmingur af daglaunum.
Meginbreytingin í þessum kafla er þó sú, að dánarbætur verða nú 90 þús. kr. fyrir alla, en hafa verið frá rúmum 19 þús. kr. og upp í 87 þús. kr. Þarna er um verulega umbót á slysatryggingakaflanum að ræða, það skal ég fyllilega játa.
Þessu næst vil ég svo gera nokkra grein fyrir brtt. þeim, sem ég flyt.
Fyrsta brtt. mín er við 2. gr. frv. Þar blasir strax við, að ekki er um neinar gagngerar umbætur á sjálfu tryggingakerfinu að ræða. Þar er gert ráð fyrir því, að landinu verði framvegis sem hingað til skipt í tvö verðlagssvæði og bætur allar og iðgjöld verði yfirleitt fjórðungi lægri á öðru verðlagssvæði en á því fyrsta. Með þessu er gert upp á milli þegnanna eftir því einu, hvar þeir eru búsettir. Ef þeir búa í kaupstöðum með 2000 íbúa eða fleiri, njóta þeir 25% hærri bóta, en ef þeir eru búsettir í fámennum kaupstað, kauptúni eða í sveit, þá skulu þeir búa við skarðan hlut, eiga fjórðungi minni rétt. Þetta er óþolandi misrétti, enda lýsti Alþfl. sig andvígan þessu í öndverðu, og framsóknarmenn fordæmdu þetta að vonum þá. Þeir heimtuðu jafnan rétt til handa fólkinu í sveitunum, og lái ég þeim það ekki. Þetta er gert til að spara á fólkinu í dreifbýlinu. Íhaldssamar sveitarstjórnir sleppa líka með lægri greiðslur til trygginganna af þessum sökum. Þess vegna er heimild sveitarstjórna til að óska eftir tilfærslu á fyrsta verðlagssvæði nálega einskis virði, og þýðir alls ekki að vitna til hennar sem neins möguleika fyrir fólkið. Það er fólkið í dreifbýlinu, sem situr svo með hinn skerta rétt og fær ekkert að gert, fyrr en lögunum er breytt.
Ég hef aldrei getað fellt mig við þetta ákvæði„ og ég tel það úrelt með öllu, hafi það nokkurn tíma átt rétt á sér, og ranglátt er það a.m.k., eins og nú er komið. Ég legg því til, að sú meginbreyting verði nú gerð á fyrirkomulagi trygginganna í landinu, að allt landið verði eitt verðlagssvæði. Ég vil rökstyðja þetta nokkru nánar.
Þegar þetta ákvæði var upphaflega tekið inn í tryggingalögin, var kaupgjald yfirleitt hæst í Reykjavík, nokkru lægra í flestum öðrum kaupstöðum og mun lægra í smærri kauptúnum og í sveitunum. Nú er þetta breytt í verulegum atriðum, og ber að þakka það viðleitni verkalýðssamtakanna til að jafna kaup og kjör í landinu. Fyrir nokkrum árum náðu verkalýðssamtökin því takmarki, að kaup samkv. stéttarfélagasamningum skyldi vera jafnt, hvar sem væri á landinu. Hið sama gildir, eins og allir vita, um alla embættismenn ríkisins og opinbera sýslunarmenn. Laun þeirra fara ekki eftir því, hvar þeir eru búsettir. Auk þess hefur atvinna jafnazt nokkuð um land allt hin síðari ár, og atvinnuleysistryggingum hefur verið komið á. Rök verða því ekki fundin fyrir því, að iðgjöld verði að vera lægri úti um landsbyggðina vegna lægra kaupgjalds þar eða vegna ótraustari atvinnugrundvallar. Það getur verið sitt á hvað áreiðanlega. Sé svo litið á hina hlið málsins, hvort fólk geti ef til vill komizt af með minni bætur úti um landið, því að þar sé ódýrara að lifa, þá mæla einnig flest rök gegn því, að svo geti verið. Yfirleitt hlýtur vöruverð að vera heldur hærra en lægra á öðru verðlagssvæði en á því fyrsta, og væri því öllu eðlilegra, að einmitt þar væru greiddar hærri bætur, ef landinu á annað borð er skipt í tvö verðlagssvæði. En þessi skipting er helber vitleysa og auk þess ranglát og á því að hverfa. Ákvæðið um að skipta landinu í tvö verðlagssvæði er að finna í 10. gr. almannatryggingalaganna, og legg ég því til, að sú grein l. falli niður.
Ég vil vænta þess, að hv. alþm. fallist nú á, að þessi breyting sé réttmæt, og styðji hana því með atkv. sínu. Ég gat ekki heldur betur heyrt á hæstv. félmrh., þegar hann mælti fyrir frv., en hann kannaðist fyllilega við réttmæti þess, að landið yrði eitt verðlagssvæði. Mætti sú vitneskja um afstöðu ráðh. e.t.v. endast til að gera einhverjum stjórnarsinna auðveldara að stuðla að þessari verðu og sjálfsögðu breytingu.
Í 3, gr. stjórnarfrv. er lagt til, að árlegur ellilífeyrir verði 14400 kr. fyrir einstakling á fyrsta verðlagssvæði, en 10800 kr. á öðru verðlagssvæði. Þetta gerir, eins og menn sjá, 1200 kr. á mánuði á fyrsta verðlagssvæði og 900 kr. á mánuði á öðru verðlagssvæði. Það mætti e.t.v. bjóða hv. alþm. eða máske sjálfum ráðh, til æfinga í að lifa ekki um efni fram á 9–12 hundruð kr. mánaðartekjum. Sannast að segja býst ég við heldur fáum lysthafendum að slíku tilboði.
Hjónum er svo ætlaður 10% lægri lífeyrir en tveimur einstaklingum, þ.e. 25920 kr. á fyrsta verðlagssvæðinu, en 19440 kr. á öðru. Það er, eins og menn sjá, 1620–2160 kr. á mánuði fyrir tvær manneskjur. Hvaða heimili skyldi nú geta dregið fram lífið á þessum tekjum? En svo er mér spurn: Hvers skyldi þjóðfélagsstofnunin, heimilið, eiga að gjalda, fyrst tveir einstaklingar, sem standa að stofnun þess, fá skertar bætur frá tryggingunum fyrir vikið? Það er ýmislegt refsivert í þessu landi. Það kostar þessa 2 einstaklinga 10% af bótum frá tryggingunum að taka upp á slíkum skratta.
Þessi réttindaskerðing heimilisins eða hjónanna, sem til þess stofna, finnst mér vera frekar til vanvirðu. Það verð ég að segja. Till. mín er því sú, að einstaklingslífeyrir verði 16 þús. kr. á ári, auðvitað hvar sem er á landinu, og að hjón fái tvöfaldan einstaklingslífeyri, þ.e. 32 þús. kr., og verði ekkert af honum tekið. Þetta tel ég algert lágmark þess, sem hugsanlegt sé að nokkur maður geti dregið fram lífið á, miðað við núverandi dýrtíð, hvað þá eftir að blessun efnahagsmálaaðgerðanna hefur dropið á okkur í nokkrar vikur eða mánuði. Þegar við leiðum svo hugann að þeirri framtíðarblessun, þá verða þessar lífeyrisuppbætur ófullnægjandi með öllu skömmu eftir samþykkt þeirra, nema jafnframt sé ákveðið, að þær skuli fylgja vísitölu framfærslukostnaðar, og það tel ég sjálfsagt að þær geri og legg því til, að á nefndar grunnupphæðir ellilífeyris og örorkubóta og skyldar bótagreiðslur komi ávallt full vísitala framfærslukostnaðar. Aðeins með þessu móti væri sýnd viðleitni til að tryggja það, að aldrað fólk og öryrkjar njóti þó þeirra bóta, sem ákveðnar eru með lagasetningunni, nokkru lengur en ella mundi. Verði þetta ekki gert, er mjög tjaldað til einnar nætur um kaupmátt ellilífeyris og örorkubóta, þegar tillit er tekið til þess, að verðlag allt er nú á hverfanda hveli hér á landi.
Í merku riti um félagsmál á Íslandi, sem út var gefið af félmrn. árið 1942, segir allýtarlega frá úthlutun ellilauna og örorkubóta samkv. l. um alþýðutryggingar frá 1936, en þá höfðu sveitarstjórnirnar, en ekki Tryggingastofnunin, með höndum úthlutun ellilauna og örorkubóta. Í bók þessari er margoft vikið að því, að úthlutun beri að haga svo af sveitarstjórnunum, að sá, sem ellilaun fær, þurfi ekki jafnframt að verða styrkþegi sveitarinnar. Á bls. 95 í nefndri bók segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Skal haga úthlutuninni svo, að gamalmenni eða öryrki, sem styrks nýtur, þurfi ekki fyrirsjáanlega að njóta almenns framfærslustyrks.“
En hvernig finnst mönnum útlitið vera fyrir það, að menn, sem fá 900–1200 kr. á mánuði núna, mundu þurfa að leita framfærslustyrks að auki? Ég held, að það sé heldur dökkt útlit. Síðan segir svo á sömu blaðsíðu í sömu bók:
„Af framansögðu sést, að sveitarstjórnir ákveða í fyrsta lagi, hverjir af umsækjendum skuli fá ellilaun eða örorkubætur, og í öðru lagi, hve háar hverjum umsækjanda eru úthlutaðar bæturnar. Aðeins er það fyrirskipað, að þær megi ekki vera svo lágar, að umsækjandinn þurfi fyrirsjáanlega að leita almenns framfærslustyrks að auki.“
Þarna endurtekur höfundur bókarinnar þessa skyldu sveitarstjórnanna, að ellilífeyririnn verði að vera svo hár og örorkubæturnar, að ekki líti út fyrir það fyrirsjáanlega, að viðkomandi þurfi að leita sveitarstyrks að auki.
Svona hátt var markið sett þá. Þetta var þegar tryggingarnar voru á byrjunarstigi og áður en Tryggingastofnun ríkisins tók þessi mál í sínar hendur. Síðan hefur fáninn fallið okkur til lítils sóma. En vissulega ættum við að leggja metnað okkar í það, að tryggingakerfi okkar verði samboðið okkur sem menningarþjóð, a.m.k. að því er snertir börnin og gamla fólkið, gagnvart því fólkinu, sem ber framtíðina á nerðum sér, og þeim, sem þegar hafa gefið þjóðinni líf sitt og krafta. Ef við getum það ekki og höfum ekki efni á því, þá höfum við ekki reynzt fær um að halda uppi tryggingakerfi á sómasamlegan hátt.
Nú er öllum kunnugt um, að ellilífeyrir og örorkubætur hafa um nokkuð mörg ár verið svo lágar upphæðir, þær eru 336–448 kr. á mánuði, að óumflýjanlegt hefur verið, að flestir elli- og örorkulífeyrisþegar yrðu jafnframt styrkþegar. Þetta er ljótur blettur á tryggingunum okkar, gagnstætt anda þeirra og tilgangi í upphafi. Það er manndómslegt takmark, sem brautryðjendur trygginganna settu sér í öndverðu, að elli- eða örorkulífeyrisþeginn skyldi ekki þurfa jafnframt að vera styrkþegi, og því merki verðum við að halda hátt á loft, en vera minni menn, ef við fellum það mark. Og hvað þarf þá ellilífeyririnn a.m.k. að vera hár, til þess að þessu marki verði náð? Er því náð með 9–12 hundruð kr. lífeyri á mánuði? Því mun enginn treystast til að halda fram. Daggjald á elliheimili hér í Reykjavík mun nú vera 85 kr., og kostar þá ársdvölin rúmar 31 þús. kr. Sé ellilífeyrir nú ákveðinn 14400 kr., nægir hann sem sé ekki til greiðslu á dvalarkostnaðinum, þó að heimildin um 100% álag sé að sjálfsögðu notuð til fulls. Ellilífeyrisþeginn verður styrkþegi jafnframt.
Ég legg til, að ellilífeyririnn verði nú ákveðinn 16 þús. kr., og tel það algert lágmark, til þess að hjá aukastyrk verði komizt, en með 100% álaginu mundi þetta rétt nægja til greiðslu á dvalarkostnaðinum, og smáupphæð væri að auki, sem ég legg til að aldrað fólk og öryrkjar, sem á hælum dveljast, fái til nauðsynlegustu eigin nota. Nú er, eins og allir vita, hækkandi verðlag fram undan, og það er vitað, að nýir samningar um hækkuð daggjöld á elliheimilum eru hafnir, ef þeim er þá ekki lokið í dag, og er talið, að með þeim verði daggjaldið ákveðið 100 kr., en það þýðir, að ársdvölin kostar 36500 kr. Það er með þessa vitneskju í huga, sem ég ber fram þá till., að vísitöluuppbót á ellilífeyri og örorkubætur verði ákveðin í þessum lögum. Verði sú till. felld, er elli- og örorkulífeyrisþeginn orðinn styrkþegi, áður en varir. Ég held, að það verði ekki sagt með neinni sanngirni, að till. mínar um ellilaun og örorkubætur séu neinar öfgar, ég hef haldið mig þar við algert lágmark og aflað mér vitneskju um, hver kostnaðurinn er við framfærslu gamalmennis t.d. hér í Reykjavík.
Í 4. gr. frv. er heimild til að greiða eiginkonum elli- og örorkulífeyrisþega makabætur allt að 80% óskerts einstaklingslífeyris, ef sérstakar ástæður séu fyrir hendi. Ég held, að þeim mönnum, sem framkvæma eiga tryggingalöggjöfina, hljóti að vera meinilla við allar slíkar lauslega orðaðar heimildir. Þær hljóta margoft að setja þá í mikinn vanda og því bezt að fækka slíkum heimildum eins og hægt er, en setja í staðinn skýr ákvæði um ákveðin réttindi hinna tryggðu. Ég legg því til, að skylt verði að greiða maka, hvort sem væri karli eða konu, eiginmanni eða eiginkonu, makabætur allt að 80% lífeyris viðkomandi bótaþega, en mat á sérstökum ástæðum ráði ekki úrslitum um þetta.
Þá er ég kominn að fjölskyldubótunum, sem mest hefur verið hampað sem sérstaklega stórfenglegri endurbót á tryggingunum.
Í 5. gr. frv. er ákveðið, að árlegar fjölskyldubætur með hverju barni í fjölskyldu skuli vera 2600 kr., nema til þeirra barna, sem eigi framfærsluskyldan föður utan fjölskyldunnar. Slík börn eiga engar fjölskyldubætur að fá, hvers sem þau eiga annars að gjalda, sem ég fæ nú ekki séð, þar sem fjölskyldubæturnar í þessu formi eru einmitt rökstuddar með þeim miklu verðhækkunum, sem á öllu lendi vegna efnahagsaðgerða ríkisstj. Lendir þessi aukaframfærslukostnaður ekki á þeirri fjölskyldu, sem annast uppeldi þessara barna? Eða hver er eiginlega hugsunin í þessu? Þar sem fjölskyldubæturnar í þessu formi eru hugsaðar sem sárabætur vegna kjaraskerðingar af völdum efnahagsmálaaðgerða ríkisstj., sem bitna á öllum, legg ég í fyrsta lagi til í sambandi við þessa grein frv., að fjölskyldubæturnar nái til allra barna. Í þessu sambandi sé ég ástæðu til að taka fram, að börn örorku- og ellilífeyrisþega eigi líka rétt á fullum fjölskyldubótum, en það hefur ekki alltaf verið auðsótt. Mér er það ljóst, að það er ekki út frá neinum tryggingasjónarmiðum, að hæstv. ríkisstj. leggur nú til, að upp séu teknar fjölskyldubætur einnig með fyrsta og öðru barni í fjölskyldu. Þetta er gert vegna sektartilfinningar fyrir að hafa hleypt dýrtíðarófreskjunni á almenning, og ég virði það vissulega við stjórnina, að hún skuli finna til sektar sinnar og vilja í einhverju bæta fyrir brot sitt. En yfirbótin er tilviljunarkennd og mun naumast hljóta almenna viðurkenningu meðal þjóðarinnar. Í ársbyrjun 1953 var farið inn á það að greiða fjölskyldubætur með öðru og þriðja barni í fjölskyldu, en þangað til höfðu fjölskyldubætur aðeins verið greiddar með fjórða barni og fleiri í fjölskyldu. Þessari mannúð og umhyggjusemi tóku menn almennt með góðlátlegri gamansemi, og þann 1. apríl 1956 var aftur felld niður greiðsla fjölskyldubóta með öðru barni. Eiginlega var hún hlegin út úr lögunum aftur af þjóðinni.
En nú stendur sérstaklega á, segja menn, og svo er vissulega. Það stendur sérstaklega á. Það má ekki hafna nú neinum bótum, sem kostur er á, vegna dýrtíðarflóðsins, og það er einungis vegna þess, sem ég flyt ekki brtt. um þetta atriði, a.m.k. um að setja hámark, skerðingarákvæði á fjölskyldubætur til auðmanna. En látum það vera. Skoðun mín á eðli þessa atriðis málsins er ákaflega lík skoðun merkisbónda norðanlands, sem nýlega hefur látið uppi álit sitt á þessari endurbót trygginganna. Honum fórust orð á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Mér er til efs, að nokkur Íslendingur hafi óskað eftir þeirri breyt. eða telji hana eðlilega við eðlilegrar aðstæður. Fullkomnar almannatryggingar eru meðal réttláts þjóðfélags til að jafna fjárhagsaðstöðu þegnanna innbyrðis og stuðla að efnalegu öryggi þeirra í fallvaltleika lífsins. En munu nokkur hjón, sem hlotnast hefur sú hamingja að sjá frumburð sinn, ætlast til þess, að þjóðfélagið bæti þeim upp þá byrði til jafnvægis við barnlausa fólkið? Ég held varla, enda virðist mér það stríða gegn óspilltri réttlætistilfinningu. Hins vegar er það réttlætismál, að þjóðfélag, sem skattleggur til hins ýtrasta fyrir ríkissjóð þá hluti, sem hvert mannsbarn þarf til sín að taka dagsdaglega, skili. aftur skattinum til þeirra, sem eru að ala upp nýja þegna, og til annarra þeirra, sem róa þyngstan róðurinn. Almannatryggingakerfið er hentugt tæki til þess að annast þau skil, og er það ekki einmitt það, sem nú er að gerast? En þá er aukning greiðslna í gegnum almannatryggingar alls engin aukning og þaðan af síður endurbætur á tryggingakerfi þjóðarinnar og á ekki að nefnast þeim nöfnum.
Í annan stað hefur verið á það bent, að ég held réttilega, að ef þær 2600 kr., sem nú verða greiddar með 1. og 2. barni, nema nokkurn veginn því, sem árskostnaður af uppeldi barnsins vex við efnahagsmálaráðstafanir stjórnarinnar, þá hljóta foreldrar, sem eiga 2–3 börn, að bera bótalaust eða því sem næst kostnaðaraukninguna við þau börn, sem þar eru fram yfir, því að aukning fjölskyldubóta vegna þeirra er aðeins lítilræði. Gagnvart þeim mörgu fjölskyldum tákna því nýju aðgerðirnar ekki aukningu trygginga, heldur skerðingu, ekki endurbætur, heldur spjöll.“
Þetta sagði norðlenzki bóndinn, — og hefur hann ekki rétt fyrir sér? Þarna gegnumlýsir norðlenzki bóndinn þetta fyrirbæri alveg hárrétt að mínu áliti. Og ég hygg, að jafnvel ríkisstj. hljóti að viðurkenna það í hjarta sínu.
Með ákvæðum stjórnarfrv. fá fámennustu barnafjölskyldur í landinu mestar sárabætur vegna vaxandi dýrtíðar, en fjölskyldan með fjögur börn eða fleiri mjög litla viðbót við það, sem áður var. Fjölmennustu barnafjölskyldurnar fá því þrátt fyrir þetta fyrirkomulag fjölskyldubótanna sáralitla aðstoð til að mæta auknum framfærslukostnaði, en það var meiningin með þessu fyrirkomulagi. Réttlætinu er því ekki fyrir að fara í þessu atriði fremur en í mörgum öðrum tilfellum.
Því hefur verið haldið fram, að fjölskyldubæturnar til fjölskyldna með 3 börn eða færri muni kosta tryggingarnar um 60 millj. kr., og lausleg athugun hefur farið fram á þessu atriði hér í Reykjavík. Við þá athugun kom það í ljós, að hér munu vera um 1596 hjón með eitt barn með yfir 70 þús. kr. nettótekjur. Vegna þessara aðila verða greiddar 4149600 kr. í fjölskyldubætur, hjóna með eitt barn og meira en 70 þús. kr. tekjur. Einnig kom í ljós, að hér voru 1424 hjón með 2 börn og höfðu yfir 80 þús. kr. árstekjur. Til þeirra verða samkv. frumvarpinu greiddar fjölskyldubætur 7404800 kr. Samtals til fjölskyldna með eitt og tvö börn hér í Reykjavík, með yfir 70 þús. kr. í fyrra tilfellinu og 80 þús. kr. nettótekjur í síðara tilfellinu, verða þetta 11554400 kr. Nú segi ég: Það er gott og blessað að geta þetta, hafa efni á þessu. En fyrst þetta er hægt, hvernig geta menn þá sætt sig við ellilífeyrisómynd, sem gerir alla, sem hans njóta, að opinberum styrþegum? Og fyrst þetta er hægt án þess að hafa nokkur skerðingarákvæði gagnvart tekjum fjölskyldnanna með eitt og tvö börn, hvernig geta þm. stjórnarliðsins þá látið hafa sig til þess, segi ég, að fella till. um afnám skerðingarákvæða gagnvart atvinnutekjum gamalmenna og öryrkja? Ég spyr bara. Ég fæ máske að heyra rökin undir þessum umr., eða a.m.k. ættu þau að koma fram, ef þau eru til. Auvirðilegan fyrirslátt um kostnað, sem af þessu leiði, samþykki ég ekki sem nein rök.
Barnalífeyrir er í stjórnarfrv. ákveðinn 7200 kr. á ári á fyrsta verðlagssvæði og 5400 kr. á öðru verðlagssvæði. Upphaflega, þegar tryggingalöggjöfin var sett, var barnalífeyrir ákveðinn 2/3 hlutar af fullum ellilífeyri, en hvað eftir annað var barnalífeyririnn ekki hækkaðaður, þegar lögin voru endurskoðuð. Hefur barnalífeyrir því um mörg undanfarin ár aðeins verið helmingur af elli- og örorkulífeyri. Þessu hlutfalli er enn haldið í stjórnarfrv. Barnalífeyririnn er ákveðinn 7200 kr. Það er helmingur af 14400 kr. Ég legg til, að barnalífeyririnn verði 9600 kr., sem eru 2/3 af ellilífeyrinum eins og hann var ákveðinn í stjórnarfrv. sjálfu. Þannig ætlast ég til, að hann verði færður til sins upphaflega hlutfalls við ellilífeyrinn, eins og hann verður nú eftir þessa lagfæringu samkv. till. ríkisstj. Barnalífeyririnn skal og greiddur, hvort sem það er móðirin eða faðirinn, sem er látið.
Í 7. gr. frv. eru ákvæði um árleg mæðralaun. Þau skulu með einu barni vera 1400 kr. á fyrsta verðlagssvæði, en 1050 á öðru. Með tveimur börnum skulu þau samkv. frv. vera 7200 kr. á fyrsta og 5400 kr. á öðru verðlagssvæði. Með þremur börnum og fleiri skulu greidd mæðralaun, sem nemi fullum lífeyri, 14400 kr. á fyrsta verðlagssvæði, en 10800 á öðru. Út frá sömu viðmiðun og með hliðsjón af þeirri till. minni, að fullur ellilífeyrir verði 16 þús. í staðinn fyrir 14400, legg ég til, að mæðralaun með einu barni verði 2000 kr., með tveimur börnum 8000 kr. og með þremur börnum eða fleiri verði þau 16000 kr., sem er fullur lífeyrir samkv. till. minni, enda verði uppeldi þriggja barna að teljast fullt starf.
Samkv. frv. er fæðingarstyrkur ákveðinn 2160 kr. En með tilliti til fyrirsjáanlegra hækkana á sjúkrahúsdaggjöldum legg ég til, að hann verði 2500 kr., og mun þá öllu til skila haldið, að hann hrökkvi til að greiða það, sem stofnunin tekur til sín.
Ekkjubætur eru samkv. frv. ákveðnar 1440 kr. mánaðarlega í þrjá mánuði eftir lát eiginmanns. Ég legg til, að ekkjubæturnar verði 1600 kr. með sama hætti, og er það hlutfallslega sama hækkun og ég geri um flestar aðrar bótagreiðslur. Samkv. frv. á ekkja, sem hefur barn yngra en 16 ára á framfæri sínu, enn fremur rétt á bótum í 9 mánuði í viðbót, 1080 kr. mánaðarlega. Ég legg til, að þessi greiðsla verði 1200 kr. jafnlangan tíma.
Næsta till. mín er svo sú, að eftir 9. gr. frv. komi ný grein, er orðist svo: „22. gr. laganna falli niður.“ Þetta er ekki fyrirferðarmikil till. á pappírnum, en hún er samt um það, að nú verði hin illræmdu og ranglátu skerðingarákvæði niður felld. Það náðist ekkert samkomulag um þessa till. fremur en hinar, og er þó haft við orð, að hún sé eiginlega þarflaus, þar sem skerðingarákvæðin eigi að falla niður í lok þessa árs, ef ekkert sérstakt komi til. En jafnframt hefur þó heyrzt talað um nýja endurskoðun tryggingalaganna jafnvel á þessu ári, og væri þá ekki óhugsandi, að hún væri m.a. hugsuð til þess að framlengja skerðingarákvæðin. Ef ríkisstj. ætlar hins vegar að fella skerðingarákvæðin niður frá og með ársbyrjun 1961, þá getur það ekki skoðazt stórt vandamál fjárhagslega að ráða fram úr því, hvernig eigi að standa straum af þeim auknu útgjöldum, sem af þessu leiði, einungis það sem eftir er af þessu ári. Mér virðist svo sem ríkissjóður hafi þá aldrei getu til að standast þau útgjöld, sem af afnámi skerðinganna leiðir, ef ekki einmitt nú, þegar 100 millj. í nýjum sköttum er hellt yfir þjóðina. Það væri auk þess í algerri andstöðu við hátíðleg loforð og svardaga stjórnarflokkanna fyrir kosningar, ef þeir víkja sér nú undan því að afnema skerðingarákvæðin, a.m.k. mundi það vera vel fallið til þess að vekja tortryggni um, að þeir ætluðu að halda skerðingarákvæðunum eftir næstu áramót, ef till, um þetta yrði nú felld. Ég held, að þessi smánarblettur á íslenzkri félagsmálalöggjöf sé búinn að vera nógu lengi, þó að þingmenn taki sig nú saman um það að afmá hann.
Ég sé fulla ástæðu til þess að rifja upp fyrir hv. alþm., hvernig skerðingarákvæðin eru. Þau felast í þessu orðalagi í 22. gr. laganna:
„Fullur elli- og örorkulífeyrir samkv. 13. gr. skal því aðeins greiddur, að aðrar tekjur hlutaðeiganda fari ekki fram úr því marki, sem hér greinir:
a. 11/2 hluta lífeyris, ef um einstakling er að ræða.
b. Tvöföldum einstaklingslífeyri, ef um hjón er að ræða.
c. Þreföldum einstaklingslífeyri, ef um hjón er að ræða og aðeins annað þeirra fær lífeyri.
Séu tekjurnar hærri, lækkar lífeyrir um 60% þess, sem umframtekjurnar nema. Þó skal lífeyrir annars hjóna aldrei vera hærri en lífeyrir hjóna með sömu tekjur.“
Þetta eru hin illræmdu skerðingarákvæði tryggingalaganna, sem upphaflega var smeygt inn í löggjöfina með samningum við Sjálfstfl. sem bráðabirgðaákvæði til fimm ára, en hefur alltaf verið framlengt síðan, eins og ég tók fram í fyrri hluta ræðu minnar. En alltaf hafa jafnframt verið gefin fögur loforð og fyrirheit um afnám skerðingarinnar, en aldrei fram til þessa við það staðið. Nú hafa þau staðið síðan 1947, eða milli 13 og 14 ár. Og enn er lofað, að þau skuli falla niður við næstu áramót. Ég vona, að nú verði við það staðið, en illan grun vekur það hjá mér, ef till. um að fella þau niður nú með þessari löggjöf verður felld.
Skerðingarákvæðin þýða það í framkvæmd, að gamalmenni eða öryrkjar, sem eru svo lánsöm að hafa getu eða löngun til að vinna eitthvað fyrir sig og þjóðfélagið, fá minnkandi ellilífeyris- og örorkulífeyrisgreiðslur með vaxandi tekjum, unz allar greiðslur hjá tryggingunum falla niður, ef tekjurnar nema sem svarar hálfum verkamannslaunum. Þessi lagaákvæði eru hvorki mannúðleg né skynsamleg að mínu áliti. Þau neyða aldrað fólk og öryrkja til að búa við það sultarlágmark, sem lífeyrisgreiðslurnar ákveða þeim, og þau aftra eldra fólki bókstaflega frá því að taka þátt í framleiðslustörfunum, þó að heilsa og kraftar leyfi. Því verra er þetta, sem það er alkunna, að gamalt fólk, sem erfiðað hefur alla ævi, þolir sízt af öllu að hætta að vinna. En hver getur vænzt þess, að fólk vinni til þess eins að lækka að sama skapi greiðslurnar frá tryggingunum og sitja svo eftir með sömu tekjur að kalla. Mér finnst engin von til þess. Samt gerir margur öldungurinn þetta heldur en hætta að vinna, og þess eru mörg dæmin, að menn um áttrætt hafa engar ellilífeyrisgreiðslur fengið frá tryggingunum. Af hverju? Af því að þeir hafa unnið þær af sér. Þeir hafa lagt þjóðinni þær til sem eins konar sektargreiðslur fyrir að vinna.
Þetta ranglæti á að nema úr lögum þegar í stað. Það hefur lengi verið Alþ. til vansæmdar að þola svo viðurstyggileg og ranglát ákvæði í félagsmálalöggjöf þjóðarinnar. Ég sé það á nál. hv. meiri hl. heilbr.- og félmn., að þeir viðurkenna ranglætið, bæði í því að skipta landinu í tvö verðlagssvæði og einnig segja þeir, að skerðingarákvæðin séu orðin úrelt. Ég tel, að þau hafi verið svívirða frá upphafi, en það er bara smávægilegur skoðanamunur hjá okkur. Hinir segja, að þau séu nú orðin úrelt. Hitt vekur furðu mína, að þeir ágætu menn, sem búnir eru að koma auga á röng eða úrelt lagaákvæði, skuli samt ekki fást til að vera með í að fella þau niður. Í því fer þeim líkt og postulanum, sem sagði: Það illa, sem ég vil ekki gera, það geri ég, en hið góða, sem ég vil gera, það geri ég ekki. — Heldur hefði ég nú viljað óska stjórninni og fylgismönnum hennar á þingi þess að líkjast Páli postula í einhverju öðru en þessu. En hvað stoða frómar óskir um það? Þær stoða auðvitað ekkert. Það er bara í þessu, sem Páll postuli er þeirra fyrirmynd.
Hitt er að vísu rétt, sem sagt er í nál. meiri hl. og hv. frsm. meiri hl. færði líka fram, að mér skildist sem rök fyrir því, að enn um sinn mætti nú una skerðingarákvæðunum, sem sé þetta, að við hækkun ellilífeyris og örorkubóta sleppi nokkru hærri tekjur við að verða fyrir barðinu á skerðingarákvæðunum og þeim fækki þannig nokkuð, sem fyrir þeim verða. Þetta er alveg rétt. En þá kemur líka hitt, að þeim mun minna vandamál er það fjárhagslega að afnema skerðingarákvæðin, þegar þau þannig ná til færri manna og skerða aðeins hærri tekjur. En sé litið á málið frá sjónarmiði þess, hvað sé réttlátt og ekki réttlátt, þá skiptir næsta litlu máli, hvort þeir eru nokkrum tugum fleiri eða færri, sem fyrir ranglætinu verða. Afnám ranglætisins er það einasta, sem almennilegir menn geta auðvitað sætt sig við.
Við 10. gr. frv. geri ég þá breyt., að skylt sé að greiða örorkulífeyrisþega, sem stundi nám meira en sex mánuði á ári, tvöfaldar örorkubætur. Þetta munu tryggingarnar hafa gert í ýmsum tilfellum, og þykir mér réttara, að öryrkjum sé þetta kunnugt af lagabókstafnum, að þeir eigi þennan möguleika til að standast kostnað af námi til þess þar með að gera sig hæfari í þjónustu þjóðfélagsins.
Eins og ég vék að fyrr í ræðu minni, voru miklar og margvíslegar vonir bundnar við starfsemi trygginganna, þegar þær tóku til starfa, og ekki hvað sízt voru þessar glæstu vonir bundnar við þá margþættu heilsuverndar- og heilsugæzlustarfsemi, sem ákveðið var að hefja með lagasetningu almannatrygginganna. Kaflinn um heilsugæzlu í tryggingalöggjöfinni var, eins og ég vék að áðan, glæsilegt nýmæli. Hann var saminn á grundvelli þeirra skoðana nútíma læknisvísinda, að miklu væri það þýðingarmeira og skynsamlegra að geta komið í veg fyrir sýkingu og sjúkdóma en að gera það að uppistöðu í starfi lækna og allrar heilbrigðisþjónustunnar að eltast við sjúkdómana og glíma við þá, stundum í örvæntingu og vonleysi, með ærnum tilkostnaði á síðara stigi þeirra. En þannig högum við okkur nú og höfum gert. En hér urðu menn fyrir miklum vonbrigðum, að því er framkvæmdina snerti. Kaflinn um heilsugæzlu kom, eins og áður hefur verið tekið fram, aldrei til framkvæmda, og árið 1955 var það glapræði framið að fella þennan að mínu áliti merkasta kafla almannatryggingalaganna alveg niður. Ég er einn hinna mörgu, sem aldrei hafa getað sætt sig við, að heilsugæzlu- og heilsuverndarstarfseminni skuli þannig hafa verið vikið til hliðar. Þess vegna legg ég til, að í stað IV. kafla: sjúkratryggingar — komi nýr kafli: heilsugæzla — með 24 greinum shlj. þeim, sem felldar voru úr l. árið 1955. Ég lít á þessa till. mína sem eina af þeim höfuðtill., sem ég flyt, ásamt hækkuninni á ellilífeyrinum, afnámi skiptingar landsins í tvö verðlagssvæði og skerðingarákvæðunum.
Ég býst við, að ýmsir segi: Jú, við erum á sama máli og þú um þetta. Heilsugæzla og heilsuvernd eru sennilega hin skynsamlegustu viðbrögð við komandi veiklun og sjúkdómum. En mundi það ekki kosta öll lifandi ósköp að koma á heilsugæzlu samkv. heilsugæzlukaflanum? — Jú, auðvitað kostar það alltaf að halda sig sem mann, en ekki sem vesaling. Það getur kostað mikið. En það mundi í fyrsta lagi mikið sparast við það, að sjúkrasamlögin yrðu einn liður í heildarheilsugæzlustarfseminni hjá tryggingunum, en ekki sérstakar stofnanir með eigin skrifstofubákni. En eins og kunnugt er, áttu sjúkrasamlögin sem sérstakar stofnanir að hverfa, þegar heilsugæzlukaflinn kæmi til framkvæmda. En það, sem ég held að sparaði þjóðinni raunverulega mest í sambandi við góða heilsugæzlu, er minni sjúkdómar, minni sjúkdómskostnaður og aukin vinnuorka með bættri heilbrigði þjóðarinnar. Og hver getur reiknað út þann sparnað, þær tekjur, ef alltaf er hikað og alltaf er frestað að taka upp þessa myndarlegu hætti í heilbrigðismálum þjóðarinnar, eins og gert hefur verið? Á sama hátt segi ég gagnvart bættum ellilífeyris- og örorkubótum: Eru það aukin útgjöld að hækka þessar bætur upp í nauðsynlegt lágmark? Því neita ég alveg. Hinn lági ellilífeyrir sparar þjóðinni ekkert, ekki einn einasta eyri. Það, sem á vantar ellilífeyrinn, verður að koma einhvers staðar frá sem styrkur eða ölmusa. Það er allur munurinn. En það var ekki það, sem stefnt var að með tryggingalöggjöfinni. Eða bótatryggingar yfirleitt, tryggingar barna og einstæðra mæðra, er það skynsamlegt að lita í því sambandi einungis á útgjöldin og láta sér vaxa þau í augum? Fáum við ekkert í staðinn í bættri heilbrigði barnanna og væntanlega einnig vegna bættra uppeldisskilyrða, sem þau njóta við fullkomnar tryggingar, hjá því, sem ella væri? Ég vil a.m.k. halda því fram. Að öðrum kosti væri mér ekki ljóst gildi trygginga eða hvers vegna við værum yfirleitt að halda uppi slíku kerfi.
Þau útgjöld, sem tryggingarnar taka til sín, eru svo sannarlega ekki ný útgjöld fyrir þjóðfélagið. Það vita þeir bezt, sem fengust við sveitarstjórnarmál, áður en tryggingarnar hófu göngu sína. Fátækra- og framfærslumálin voru þá hið ævarandi vandamál allra sveitarstjórna og gerbreyttust við tilkomu trygginganna. Og þegar menn nú spyrja, hvað þær breytingar, sem ég legg til að gerðar verði á tryggingalögunum, kosti, þá skal ég játa fúslega, að það veit ég ekki með neinni víssu. Það getur m.a. verið komið undir því, hversu myndarleg framkvæmd væri á öllu því, er varðar framkvæmd heilsugæzlukaflans. Upphaflega hugsaði Jóhann heitinn Sæmundsson sér, að farið væri af stað með t.d. 14 heilsuverndarstöðvar í landinu og síðan aukið þar við, og ég hef aldrei ímyndað mér, að það væri hægt að koma þeim á fullkomnum í einu vetfangi. En hitt er víst, að meginhluti þessara útgjalda væri tilfærsla innan þjóðfélagsins, en ekki ný útgjöld. Það, sem vinnst við góðar og fullkomnar tryggingar, á að færast í tekjudálkinn, og það hygg ég að séu meiri verðmæti en öll þau útgjöld, sem til trygginga fara.
Við 20. gr. frv. geri ég þá breytingu, að sjúkradagpeningar séu jafnt greiddir kvæntum manni og giftri konu, án tillits til þess, hvort hún telst hafa verið fyrirvinna heimilisins eða ekki. Af svipuðum ástæðum legg ég til, að 6. mgr. 53. gr. l. falli niður.
Þá legg ég enn fremur til, að 2. mgr. 76. I. verði niður felld, þar sem hún hefur oft og mun jafnan gefa tilefni til misnotkunar. Er líklegt, að þeim skattleysingjum, sem í grein þessari er heimilað að víkja iðgjaldagreiðslum sínum yfir á sveitarsjóð, geti nú fjölgað allverulega. Skrár yfir skattleysingjana, sem hafa öðlazt rétt til að sleppa við iðgjaldagreiðslur til trygginganna, eru nokkuð langir listar, t.d. hér í Reykjavík einni, og þeir væru líklegir til að lengjast núna, en ýmsir aðrir hafa greitt sín iðgjöld, þó að ástæður þeirra hafi að mörgu leyti verið lakari. Ég held því, að bezt sé að fella þennan hluta 76. gr. alveg niður.
Margoft hefur komið fyrir, að bótaþegar almannatrygginganna hafa verið krafðir um skatta til hins opinbera. Þetta tel ég hina mestu fjarstæðu, að vera fyrst að veita mönnum tryggingabætur eða styrki óendurkræfa og heimta síðan skattgjald af. Þess vegna er sjálfsagt að taka fram með sérstakri grein, að engar bætur almannatrygginganna séu skattskyldar til ríkis eða sveitarfélags.
Seinasta brtt. mín er svo við 25. gr. frv. og er á þá leið, að fjölskyldubætur skuli greiðast frá 1. marz þessa árs, og tel ég það eðlilegt, þegar þessar bætur eru settar vegna vaxandi dýrtíðar af völdum gengislækkunarlaganna, og því réttmætast, að þær greiðist frá næstu mánaðamótum eftir gildistöku laganna.
Allar þær brtt., sem ég hef nú rætt, hef ég borið fram á þskj. 171 og vil vænta þess, að hv. alþm. kynni sér þær nánar.
Nú heimtar ríkisvaldið slíkan skattpening af þegnunum, að ég tel fyllilega forsvaranlegt að heimta mikið af ríkisvaldinu í staðinn. Og það hygg ég, að margir mundu una skattpíningunni skár en ella, ef nú yrði gert mjög myndarlegt átak til endurbóta á tryggingunum, þótt ekki væri víðtækara en ég hef hér lagt til með þessum tillögum. Hitt eru ekki umbætur á tryggingunum, að hækka lítillega í krónutölu ýmsar bætur til að mæta tilbúinni verðbólgu og dýrtíð.
Ég lýk svo máli mínu með tilvitnun í ræðu, sem Stefán Jóh. Stefánsson flutti hér á Alþingi, þegar tryggingalöggjöfin var hér til umræðu árið 1946. Þá sagði Stefán Jóhann m.a. þetta:
„Flestar menningarþjóðir eru nú“ (þ.e.a.s. fyrir 14 árum) „að fara inn á tryggingalöggjöf, sem byggist á réttindareglunni, en ölmusureglunni er hvarvetna vikið til hliðar.“
Síðan þetta var sagt, hafa allar menningarþjóðir fullkomnað mjög hjá sér hvers konar tryggingar. En hjá okkur hefur miðað hægt og seint og stundum aftur á bak. Enn þá höfum við langt í frá yfirgefið ölmusuregluna, því miður. En það er von mín, að hv. alþm. víki henni nú endanlega til hliðar með því að samþykkja þær umbótatill., sem ég hef hér flutt og gert grein fyrir í umboði Alþýðubandalagsins.