24.03.1960
Neðri deild: 54. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (480)

65. mál, almannatryggingar

Frsm. 2. minni hl. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Það er ekkert nema gott um það að segja, þó að fram komi þakkarávarp frá Alþfl. til Sjálfstfl. fyrir samstarf við að endurbæta tryggingar á Íslandi, að svo miklu leyti sem sá flokkur á það skilið. Ekki skal ég öfundast yfir því. En hitt tel ég ekki sannleikanum samkvæmt, sem hæstv. félmrh. vék hér að Alþb. áðan, að fullyrða, að það hafi með þögninni staðið á móti umbótum á almannatryggingalögunum í landinu. Alþb. er haft fyrir rangri sök um það. Það hefur aldrei sýnt Alþfl. nokkra mótspyrnu gegn nokkurri till. af hans hendi til umbóta á tryggingum. Ég lýsi allar staðhæfingar í aðra átt ósannindi.

Hæstv. félmrh. sagði, að það mætti flokka till., sem hér lægju fyrir til breyt. á tryggingalögunum, í þrennt. Það eru í fyrsta lagi till., sem fram hefðu komið um skerðinguna, að afnema skerðinguna gagnvart ellilífeyri og örorkubótum, í öðru lagi að gera landið að einu verðlagssvæði og í þriðja lagi ýmsar hækkunartill. Þetta er í meginatriðum rétt. En ég held nú, að ég mundi telja tillögu mína um að taka heilsugæzlukaflann upp aftur. Ég held, að það verði að teljast ein meiri háttar brtt. á tryggingakerfinu í landinu, — enn fremur ef sú prinsipbreyting hefði fengizt, að hjón fengju tvöfaldan einstaklingslífeyri, og fleiri prinsipbreytingar, sem hér eru lagðar til af hendi Alþb., sem allar væru til stórfelldra umbóta á tryggingakerfinu.

Það þriðja voru ýmiss konar hækkunartill. á ýmsum bótagreiðslum, og hæstv. ráðh. spurði: Hvenær hafa orðið meiri breyt. á tryggingunum að því er snertir hækkaðar bætur heldur en nú er lagt til í stjórnarfrv.? En þá spyr ég aftur: Hvenær hafa menn líka horfzt í augu við aðra eins holskeflu vaxandi dýrtíðar í landinu, sem líkleg er til að gleypa á augnabliki allar þessar krónuhækkanir, sem nú eru lagðar til, og gera þær að engu? Það er það, sem er grundvöllurinn fyrir því, að ég fullyrði, að í raun og veru sé hér um smávægilegar lagfæringar að ræða, því að ekki er gengið inn á að afnema skerðingarákvæðin, ekki gengið inn á að gera landið að einu verðlagssvæði, ekki gengið a.m.k. í n. inn á að taka heilsugæzlukaflann upp, ekki gengið inn á það að gera rétt hjóna jafnan rétti tveggja einstaklinga. Þetta allt hefði ég talið meginbreytingar á tryggingakerfinu í landinu og hefði talið það til stórkostlegra bóta. En á móti þessu ætlar Alþfl. engu síður en Sjálfstfl. að standa í þetta sinn. Tryggingaumbótaáhuginn hjá þessum fóstbræðrum er nú ekki meiri en þetta. Þeir ætla að leggja til verulegar krónuhækkanir á móti vaxandi dýrtíð, enda verður ekki hjá því komizt, en varðandi umbætur á tryggingakerfinu, þá ætla þeir ekki að ganga til móts við neinar till. um það. Þó skal ég ekkert undan draga. Ég skal fagna yfirlýsingu hæstv. ráðh. um það, að hann ætli að láta skerðingarákvæðin niður falla um næstu áramót, og tel hans orð nú hafa gefið mér vaxandi vonir um að mega treysta því, að þau verði ekki framlengd eftir áramótin næstu.

Það er að vissu leyti rétt, að saga flokkanna í sambandi við tryggingamálin er sú, að ég hygg, að alþýðutryggingalögin hafi verið sett 1936 með samstarfi Alþfl. og Framsfl.; — er það ekki rétt? — Og mörðust þá í gegnum þingið með eins atkvæðis mun. Íhaldið stóð þá dyggilega á móti alþýðutryggingalögunum, eins og það gat. Svo er 1946, þegar almannatryggingalögin eru hér í undirbúningi að afloknu miklu starfi í mþn. Þá stendur þannig á í landinu, að nýsköpunarstjórnin situr, Sjálfstfl., Alþfl. og Sósfl.. eru í stjórn, — er það ekki rétt? Þá er það, sem málið er knúið fram, og ég hygg, að það sé ekkert að saka Sósfl. um það, að hann hafi með neinni þögn eða neinni tregðu veitt málinu stuðning. En var það svo auðvelt verk að fá Sjálfstfl. þá með til þess að fallast á frv. um almannatryggingar? Var það auðvelt verk? Ég skal rifja það svolítið upp. Ég fór í gegnum umr. nú fyrir þessa umr.

Þá greindi hv. þm. Steingrímur Aðalsteinsson frá því í umr., að frsm., þ.e.a.s. Haraldur Guðmundsson, hafi getið um það, að það sé orðið að samkomulagi að láta þetta mál ganga fram, en það hefði orðið að draga mikið út ákvæðum frv., vegna þess að Sjálfstfl. krafðist þess, að dregið yrði úr kostnaði við tryggingarnar. Kannske kunna menn að segja: Það er nú ekki alveg óyggjandi heimild, Steingrímur Aðalsteinsson, sósíalistinn, um, hvað Sjálfstfl. hafi gert. En hv. þm. Barð., Gísli Jónsson, tók til máls næst á eftir, og hann sagði: „Fyrstu kröfur mínar í n. gengu í þá átt, að lækkun um 7 millj. kr. yrði gerð.“ Hann gerði nánari grein fyrir þessu. „Ég taldi ekki ógerlegt að lækka þrjá fyrstu árgangana“, þ.e.a.s. að því er snertir gamalmennin, „árgangana, sem ellilauna njóta, um helming, tel unandi við hálfan lífeyri fyrstu árin.“ Og þetta áætlaði hann að gæfi 3 millj. kr. sparnað, bara á gamalmennunum. Enn fremur sagði Gísli Jónsson: „Önnur krafa mín var byggð á ekkjulaununum, að þar yrði sparnaður gerður, sem yrði 1.7 millj. kr. — Þriðja atriðið er það,“ sagði Gísli Jónsson, „að ég krafðist, að felldar yrðu burt 600 þús. kr. dánarbætur. Fjórði liður var svo að því er snerti atvinnutryggingarnar. Ég sótti fast að fá þennan þátt trygginganna afnuminn og taldi skaðlaust að nema á brott þessar 3 millj. kr. — Þessar upphæðir mundu alls hafa numið um 7 millj. kr., en samkomulag varð um niðurskurð, er næmi 4 millj. og 100 þús. kr.“ Og þá sagði Gísli Jónsson enn: „Ég er óánægður með ákvæði í 66. gr. um, að launagreiðendum,“ þ.e.a.s. atvinnurekendum, „sé skylt að greiða laun fastra starfsmanna a.m.k. í 14 daga, ef þeir fatlast frá vinnunni. — Í áttunda lagi,“ sagði þm., „var ég óánægður með að taka allan heilsugæzlukaflann upp í frv. Hins vegar varð samkomulag um að fresta framkvæmd þessa hluta l. um eitt ár.“ Það var ekki vakurt, þótt riðið væri. Svona streittist íhaldið á móti setningu almannatryggingalaganna eins og það gat og reyndi að knýja þetta niður, og Alþfl. átti í glímu, — sumir sögðu í umr., að það hefði verið samið um þetta á einni kvöldstund, en þá leiðrétti Haraldur Guðmundsson það og sagði: „Það hefur raunar tekið allan þingtímann að komast að samkomulagi við Sjálfstfl. um þetta mál.“ Svona gekk það greiðlega. En Framsfl., sem var að þvælast fyrir á móti, sagði, — það er rétt, að Páll Hermannsson sagði, að hér væri verið að skapa nýtt þjóðfélag með svona tryggingakerfi, og hann greiddi því atkv með því, en framsóknarmennirnir sögðu: Við teljum hér svo mikla og gagngera breytingu gerða frá alþýðutryggingalögunum, sem við stóðum að því að setja með Alþfl:, að við viljum fá frestun á þessu máli til næsta þings og nánari athugun og kynnast málinu betur. — Og þetta gekk gegnum þeirra ræður allar saman, og þeir greiddu af þessari ástæðu atkv. með rökst. dagskrá, sem þeir fluttu um það, að málið yrði ekki knúið í gegnum það þing. Þetta er sannleikur málsins. En satt er það, að Framsfl. fékkst ekki sem heild til þess að styðja framgang almannatryggingalaganna á þinginu 1946. Og þá held ég, að hver flokkur hafi fengið sitt um það, hvaða stuðning eða hvaða andstöðu þeir hafi veitt tryggingamálum í landinu.

Viðvíkjandi því, að Alþfl. hafi á vinstristjórnarárunum borið fram innan um efnahagsmálatill. sínar einhverjar till. viðvíkjandi auknum framlögum til trygginganna, þá verð ég að segja það, að mér er það ekki minnisstætt, og það fullyrði ég, að hæstv. ráðh. Guðmundur Í. Guðmundsson, sem fór með tryggingamálin, lagði aldrei fram í ríkisstj. á fundi nokkrar till. til endurbóta tryggingunum, aldrei þáltill., aldrei frv., svo að ég muni. Og ég þori að fullyrða, að það hefði ekki orðið andstaða af Alþb. hendi gegn því að standa að endurbótum á tryggingunum. En ef áhuginn hefði verið brennandi, þá hygg ég, að hæstv. ráðh. hefði komið því í verk að semja annaðhvort þáltill. eða frv. og látið þá springa á því, það hefði getað orðið áróðursatriði fyrir hann, ef það hefði sprungið í ríkisstj. að fá stuðning við slíkar till. En þær komu aldrei fram. Og svo mikið er víst, að hafi þetta verið í efnahagsmálatill. Alþfl., þá hefur ekki heldur staðið á stuðningi Alþb. við þær till.

Hv. 1. þm. Norðurl. v. gerði hér áðan grein fyrir samþykkt, sem félag fatlaðra á Siglufirði hefði gert og sent þm. Norðvesturlandskjördæmis viðvíkjandi því, að þeir stæðu að afnámi skerðingarákvæðanna. Mörg fleiri bréf hafa borizt Alþingi, sem hafa farið í líka átt, bæði að því er snertir afnám skerðingarákvæðanna og eins að því er snertir ýmsar aðrar nauðsynlegar endurbætur á tryggingalöggjöfinni. Mér hefur borizt eitt slíkt skjal, og tel þá rétt að láta það líka koma hér inn í þingtíðindi, því að það virðist vera allvandlega að þessum till. unnið, sem hér er um að ræða. Mér er einnig kunnugt um það, að mörg kvennasamtök í landinu, Kvenfélagasamband Íslands, einstök kvenfélög, Kvenréttindafélag Íslands og mæðrastyrksnefndir, hafa þráfaldlega sent Alþ. tillögur, óskir, bænir og kröfur um lagfæringar á ýmsum atriðum trygginganna, en mjög sjaldan fengið áheyrn. Flest af þessu er því óframkvæmt enn og þessar fyrri kröfur áður sendar þinginu þannig í fullu gildi. Það, sem ég vildi gera þm. kunnugt af þeim skjölum, sem mér hafa borizt, eru einkum till. um tryggingar sendar Alþ. í marz 1960 frá trygginganefnd Menningar- og friðarsamtaka íslenzkra kvenna.

1. liðurinn í samþykkt þeirra er, að fjölskyldubætur verði greiddar vegna allra barna innan 16 ára.

2. Barnalífeyrir verði 2/3 af einstaklingslífeyri.

3. Barnalífeyrir verði skattfrjáls.

4. Barnalífeyrir verði greiddur án tillits til tekna.

5. Barnalífeyrir verði greiddur með barni látinnar móður.

6. Hjón taki lífeyri sem tveir einstaklingar.

7. Makabætur megi greiða bæði eiginkonu og eiginmanni.

8. Sjúkradagpeningar verði einnig greiddir konum, sem vinna einungis á heimilum sínum, — 6. málsgr. 23. gr. núv. almannatryggingalaga falli því niður.

9. Heilsugæzlukaflinn frá 1946 verði tekinn inn í lögin að nýju.

10. Sjúkrasamlag Reykjavíkur og annarra stærri bæja verði sameinað Tryggingastofnun ríkisins, en það mundi gerast, þegar heilsugæzlukaflinn yrði tekinn upp.

11. Ellilífeyrisskerðing falli niður með gildistöku væntanlegra breyt. á almannatryggingalöggjöfinni.

12. Landið verði eitt verðlagssvæði.

„Þessar till. hafa flestar verið á dagskrá og fengið samþykki hinna ýmsu kvennasamtaka í landinu mörg undanfarin ár og eru því engar dægurflugur. Það hryggir okkur að þurfa að viðurkenna, að löggjafarþing þjóðarinnar hefur metið svo lítið till. og álit hinna fjölmennu kvennasamtaka í landinu, að það hefur tekið tryggingalöggjöfina til meðferðar æ ofan í æ án þess að taka meira tillit til margendurtekinna óska þeirra en raun ber vitni.

Skylt er þó að geta þess og meta, að sú krafa kvennasamtaka, að einstæðingsmóðir fái mæðralaun þegar í stað með fyrsta barni, er tekin upp í tryggingafrv. það, sem liggur fyrir þinginu. Hins vegar verður það að skoðast sem mikið ranglæti, að ráð er gert fyrir því í sama frv., að mæðralaun konu séu 1400 kr. með einu barni, þegar hjón fá 2600 kr. eða 1200 kr. hærra með einbirni, hversu háar tekjur sem þau kunna að hafa. Verður því ekki að óreyndu trúað, að Alþ. samþ. slíkt þjóðfélagslegt misrétti. Stoðar ekki að benda á, að móðirin hafi auk mæðralaunanna meðlag með barni sínu, þar sem það er aðeins hið eðlilega og sjálfsagða framlag föðurins til framfærslu barns síns og sízt of mikið.

Auk kvenna, sem njóta mæðralauna, eru öryrkjar, sem njóta örorku- og barnalífeyris, svo og konur, sem njóta endurkræfs barnalífeyris, útilokaðar frá fjölskyldubótum. Þar sem ljóst er, að fjölskyldubætur þær, sem ráð er fyrir gert í frv., hlíta ekki sömu venjum og aðrar greiðslur trygginganna, hvorki um tekjuöflun né skiptingu landsins í verðlagssvæði, heldur eru fyrst og fremst hugsaðar sem framlag til að mæta þeim kjaraskerðingum, sem nýlega samþ. efnahagsráðstafanir hafa í för með sér, er það fráleitt, að viss hópur bótaþega a]mannatrygginganna skuli ekki njóta þeirra vegna þess, að þeir njóti annarra bóta frá tryggingunum.

Það hefur verið krafa Menningar- og friðarsamtaka íslenzkra kvenna svo og annarra kvennasamtaka um langt skeið, að mæðralaun, örorkubætur og endurkræfur barnalífeyrir útilokaði ekki fjölskyldubætur. Nú eru enn ríkari ástæður til þess að herða á þessum kröfum, þar sem öllum má nú vera ljóst, að þessi hópur fólks er ekki færari um að taka stórhækkuðum framfærslukostnaði heldur en aðrir landsmenn, sem börn hafa á framfæri, heldur þvert á móti, því að þarna er að finna fólk, sem örðugast á fjárhagslega.

Við setningu tryggingalaganna 7.946 var barnalífeyrir ákveðinn 2/3 af einstaklingslíf eyri. Er það eðlilegt hlutfall, þegar þess er gætt, að hinar þjóðfélagslegu aðstæður konunnar eru að ýmsu leyti örðugri en karlmannsins, t.d. vegna þess, að konur njóta ekki almennt launajafnréttis á við karlmenn. Þetta hlutfall hefur breytzt, og undanfarin ár er barnalífeyrir aðeins helmingur einstaklingslífeyris, en sú breyting er stór mistök frá hendi Alþ. í meðferð tryggingalaganna. Barnalífeyrir er að langmestu leyti endurkræfur af barnsíöður og þarf því ekki að falla hinu opinbera til gjalda, en óendurkræf barnsmeðlög hljóta að skoðast S því ljósi, að þau séu trygging, sem faðirinn er búinn að greiða til og vinna fyrir, meðan hans naut við, eða nokkurs konar arfur, sem barnið á eftir föður sinn. Það er ekki sanngjarnt að ætlast til þess, að vandalaus maður taki að sér framfærsluskyldu annars manns, jafnvel þótt hann giftist móður barnsins. Auk þess má fullyrða, að núverandi eða væntanlegur barnalífeyrir muni ekki hrökkva til sem helmingur raunverulegs framfærslukostnaðar barnsins.

Þá leggjum við til, að greiddur verði barnalífeyrir með barni látinnar móður eins og með barni látins föður. Það teljum við réttlátt og sanngjarnt út frá því sjónarmiði, að faðir og móðir séu jafnmikilvægir aðilar við framfærslu barns og því eigi að greiða bætur vegna missis þess vinnuframlags, sem venjulega er hlutur móður í framfærslunni.

Á svipuðu viðhorfi byggist það atriði, að heimilt sé að greiða maka elli- og örorkulífeyrisþega makabætur, í staðinn fyrir að núgildandi tryggingalög og frv. til breyt. á þeim gera ráð fyrir, að einungis eiginkona örorkulífeyrisþegans skuli eiga rétt á makabótum. Við teljum, að fjárhagur heimilisins byggist á framlagi beggja hjónanna, vinnuframlagi húsmóður og tekjuöflun húsbóndans, og því beri að greiða makabætur vegna þess þeirra, sem ófært verður um að standa undir framfærslu heimilisins, án alls tillits til þess, hvort það er eiginkona eða eiginmaður.

Þá viljum við, að viðurkenndur sé skýlaus réttur húsmóður til sjúkradagpeninga, en ekki sé þar einungis um heimild að ræða, eins og nú er. Viljum við benda á, að húsmæður eru sá starfshópur í þjóðfélaginu, sem einna sízt má fatlast frá störfum. Komi það fyrir, verður að fá einhvern annan til að vinna hennar störf utan heimilis eða innan. Slíkt hlýtur að leiða til beinna fjárútláta fyrir heimilið.

Mismun þeim á hjónum og einhleypingum, sem 6. mgr. 53. gr. tryggingal. gerir ráð fyrir, mótmælum við því eindregið. Hjón borga til sjúkrasamlaga algerlega sem tveir einstaklingar, og er þá engin ástæða til annars en þau njóti fullra réttinda sem slíkir.

Það er einnig skoðun okkar, að réttlátt sé, að hjón taki lífeyri sem tveir einstaklingar, þó að því sé oft haldið fram, að ódýrara sé fyrir hjón að lifa en einhleypa, og er það hæpin fullyrðing. Á það má benda, að hjón taka raunverulega á sig meiri þjóðfélagslega ábyrgð heldur en sá, sem aldrei hefur til fjölskyldu stofnað, og mörg eru þau útgjöld, sem fjölskyldulíf og heimilishald hefur í för með sér, sem einhleypt fólk hefur ekki af að segja. Virðist það skjóta nokkuð skökku við, að löggjafinn gangi beinlínis á hlut hjóna og heimilislífs, sem þó venjulega er talið hornsteinar þjóðfélagsins.

Við látum í ljós undrun okkar á því, að enn skuli ekki hafa verið framkvæmd þau fyrirmæli, sem upphaflega voru í tryggingalögum, um að sameina sjúkrasamlög Tryggingastofnuninni, þar sem því verður við komið, og hagnýttur sá sparnaður, sem af því hlyti að leiða.

Að lokum viljum við undirstrika þá kröfu, að kaflinn um heilsugæzlu frá 1946 sé aftur tekinn inn í lögin og unnið verði að framkvæmd hans. Óhætt er að fullyrða, að þar er að finna mörg hin merkustu fyrirmæli, sem komið hafa fram um almennar tryggingar hér á landi.

Það hefði verið æskilegt, að Alþingi hefði tekið l. um almannatryggingar til allsherjarendurskoðunar með það fyrir augum að tryggja og treysta þann grundvöll, sem almannatryggingar eiga að vera félagslegu öryggi í landinu. Við óttumst, að með því frv. til breyt. á tryggingalögunum, sem fyrir Alþ. liggur nú, sé ekki stefnt að því. Við skorum alvarlega á hvern einasta fulltrúa, sem sæti á á Alþ., að stuðla að því, að óskir, sem mikill hluti allra kvenna á Íslandi hefur gert að sínum, verði réttlátlega teknar til greina við afgreiðslu frv. Í því trausti sendum við hinu háa Alþ. þessar tillögur.“

Þetta skjal, sem að mínu áliti er vel hugsað og vel samið og hófsamlega fram sett, er frá trygginganefnd Menningar- og friðarsamtaka íslenzkra kvenna.

Ég held, að hv. Alþ. setji ekkert ofan við það að endurskoða afstöðu sína nú milli 2. og 3. umr. og athuga þær brtt., sem nú liggja fyrir og flestar eru í samræmi við þessar kröfur og aðrar kröfur frá kvennasamtökunum, og íhuga vandlega, hvort ekki væri unnt að taka sem allra flestar af þeim til greina. Þykir mér furðulegt, ef konurnar hér á Alþ. snúast nú með öðrum stjórnarliðum gegn þessum till., sem þær eru búnar að hamra á og senda til Alþ. ár eftir ár.