24.03.1960
Neðri deild: 54. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1820 í B-deild Alþingistíðinda. (481)

65. mál, almannatryggingar

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Hv. 4. landsk. þm. sagði, að nú verði að taka vægilega á dauðum manni, og skal ég víssulega taka það til greina. Hann sagði, hv. þm., og það er eiginlega aðalerindi mitt í ræðustólinn aftur að hnekkja því, að ekki hefði komið fram frá Alþfl. till. í fyrrv. ríkisstj. eða í vinstri stjórninni svokölluðu um endurbætur á tryggingalöggjöfinni og að Alþb. hefði ekki, hvorki með þögninni né á annan hátt, komið í veg fyrir, að þær till. næðu fram að ganga. Ég skal í þessu sambandi leyfa mér að skýra frá því, sem raunar er vitað og sjálfsagt í minni margra hv. þm., því að það er svo nýkomið fram, að hæstv. menntmrh. lagði hér fram í byrjun febrúarmánaðar till. þær, sem uppi voru frá öllum þeim þrem flokkum, sem að vinstri stjórninni stóðu, um það, hvernig bregðast skyldi við þeim efnahagsvanda, sem þá var verið að reyna að leysa. Þessar till. voru prentaðar í Alþýðublaðinu 7. febr. Þar eru bæði tillögur Framsfl. og till. Alþb. og till. Alþfl., sem þá voru lagðar fram, allar skriflegar frá þessum flokkum öllum þremur. Í till. Framsfl. og í till. Alþb. er ekki ýjað að því einu orði að breyta á nokkurn hátt tryggingalöggjöfinni í sambandi við þær efnahagsráðstafanir, sem þá var verið að gera, ekki með einu orði. En í till. Alþfl. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Athugaðir skulu möguleikar á því að hækka almenna tolla á nokkrum þeim vörum, er nú bera hæst innflutningsgjöld, og verði tekjur af tollahækkununum m.a. notaðar til þess að auka fjölskyldubætur og ellilífeyri og lækka tekjuskatt eða á annan hátt til að rétta hlut launþega.“

Þetta er ein af mörgum tillögum, sem Alþfl. þar þá fram í vinstri stjórninni. En svo mikið er víst, að þessar till, náðu ekki fram að ganga. Það var ekki vegna þess, að Alþfl. hefði ekki borið þessar till. fram, það er vegna þess, að hinir flokkarnir hafa ekki tekið nægilega undir þær, að þær náðu ekki fram að ganga. Og það verður ekki skýrt nema á bezta og vinsamlegasta hátt með því, að Alþb. hafi þar setið hjá og ekki beitt áhrifum sínum, því að ef það hefði beitt áhrifum sínum og verið með, þá var þetta samþ. Einasta leiðin og vinsamlegasta skýringin, sem á þessu máli finnst, er sú, að Alþb. hafi með þögninni komið í veg fyrir, að þetta yrði gert.

Hv. þm. sagði svo, og það finnst mér táknrænt fyrir hans málflutning: „Þetta hefði þó Alþfl. átt að geta gert að áróðursatriði með því að sprengja ríkisstj.“ Það eru alltaf áróðursatriðin, sem hv. þm. hugsar um fyrst og fremst. Það er ekki, hvernig leysa skuli mál, það eru áróðursatriðin. En Alþfl. notaði þetta ekki sem áróðursatriði, og þegar þetta náði ekki fram að ganga, þá féllst hann á þá lausn, sem hægt var að ná samkomulagi um og hann taldi forsvaranlega, án þess að nota það sem áróðursatriði.

Hv. þm, viðurkenndi að vísu, að með þessu frv. væru gerðar mjög gagngerðar bætur á tryggingalöggjöfinni. En sagði hann og bætti við: Hvenær hefur þjóðin horfzt í augu við aðrar eins hækkanir á verðlagi og þjóðin má nú horfast í augu við? Og þessar verðhækkanir, sem ríkisstj. stofnar til, gera á vissan hátt verulegan hluta af þessum hækkunum alveg sjálfsagðar. — En hv. þm. ætti að muna eftir því, sem gerðist 1.958. Verðhækkanirnar þá og sú raunverulega gengisbreyting, sem þá átti sér stað, var meiri en sú, sem nú er gerð. Hún var meiri. Og hvað fengu ellilífeyrisþegarnir þá? Þeir fengu 5% í lögum stjórnarinnar. Þeir fengu 5% fyrst, og svo þegar almennar launahækkanir komu síðar á árinu, þá var 9% bætt við, og þetta eru þá samtals, eftir að hálft ár var liðið frá bjargráðalögunum, komið upp í 14%. En 14% eru þó ekki 44% , eins og hér er lagt til að hækka ellilífeyrinn um — og margar aðrar bótagreiðslur líka hækkaðar um þá upphæð eða svipaða, svo að ég tel, og ég sný ekki aftur með það, að þær aðgerðir og breytingar, sem nú eru gerðar á tryggingalöggjöfinni, séu ólíkt meiri og aðrar en gerðar voru þá eða hafa nokkru sinni áður verið gerðar. Og verðhækkunin, sem vissulega er nokkur og sannarlega ber ekki að útiloka úr því reikningsdæmi, sem við erum að gera upp, er sízt meiri en 1958, í vinstri stjórn þessa hv. þm., og var þá ekki bætt upp nema fyrst með 5% og síðar með 9%, á móti þeim 44%, sem ellilífeyrisþegarnir fá nú eftir þessu frv. Þetta er ekki sambærilegt. Ég skal svo ekki ræða þetta mál frekar. Ég vildi aðeins láta þetta koma skýrt fram.

Alþfl. hefur áður borið fram sínar till. um endurbætur á tryggingalöggjöfinni. Hann hefur stundum notið stuðnings eins og stundum annars, og hvort hv. þm. telur sig þess umkominn að segja, að einn flokkur hafi verið meiri andstæðingur tryggingalaganna og tryggingalagabreytinganna, sem gerðar hafa verið, heldur en annar, það eftirlæt ég honum alveg að dæma um. En ég bendi aðeins á, að meginbreytingar tryggingalaganna og þær, sem hafa sett á þau lög núverandi svip, eru gerðar með Sjálfstfl., stundum í sambandi við Alþb., stundum ekki. En síðan almannatryggingalögin voru sett 1946, þá get ég a.m.k. ekki sagt, að Sjálfstfl. hafi verið meir á móti þeirri lagasetningu en Framsfl. 1946 var, þegar aðeins einn maður úr þeim hópi treysti sér til þess að greiða atkv. með lögunum. En þau orð hv. þm., sem ég tel að ættu að munast og eru kannske kjarni þess eða ástæðan til þess, hvernig ýmsir flokkar hafa staðið að þessari lagasetningu, eru þar sem hv. þm. segir, að það ha.fi verið fávíslegt, skildist mér, hjá Alþfl. 1958 að nota ekki málið sem áróðursatriði. Það er áróðursatriði, sem er fyrir hv. þm. aðalatriðið, en ekki efnisatriði málsins, og það kann að skýra nokkuð bæði það, sem hér er að gerast, og það, sem áður hefur gerzt í málinu.