20.11.1959
Sameinað þing: 1. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

Stjórnarskipti

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Hæstv. forsrh. hefur gefið Alþingi yfirlýsingu um stefnu hæstv. ríkisstj. Alþb. er í andstöðu við þessa ríkisstj. Góðum málefnum mun það vissulega fylgja, hvaðan sem þau koma. En oss uggir, að alþýða manna megi vænta illra tíðinda og árása á hag sinn, þegar ríkisstjórnin byrjar að berja lóminn um, að þjóðin hafi lifað um efni fram. Slíkur barlómur er venjulega yfirskin afturhalds og yfirstétta til þess að skapa það pólítíska andrúmsloft, er gerir hægara fyrir um árás á lífskjör almennings.

Það er ekki aðalmeinsemd íslenzks efnahagslífs, að þjóðin hafi lifað yfir efni fram, heldur hitt, að í heilan áratug var vanrækt að auka svo efni hennar, framleiðslutækin, að þau stæðu undir eðlilegum og vaxandi kröfum fólksins til lífsins. Og enn hefur ekki verið komið á heildarstjórn á þjóðarbúskap Íslendinga, er sameini krafta þjóðarinnar til voldugra, samstilltra átaka í uppbyggingu atvinnulífsins á grundvelli réttlátrar skiptingar þjóðarteknanna.

Þeir tveir flokkar, sem nú hafa myndað sameiginlega ríkisstj., hófu í vetur harkalega árás á lífskjör alþýðu og réttindi verkalýðssamtakanna. Stefnuyfirlýsing hæstv. ríkisstj. og ummæli stjórnarblaðanna gefa ástæðu til þess að óttast, að reynt verði að halda áfram á þeirri óheillabraut lífskjararýrnunar og réttindaskerðingar.

Það er venjulega vá fyrir dyrum hjá almenningi, þegar ríkisstj. fer að boða rannsókn sérfræðinga til þess að finna traustan efnahagsgrundvöll. Frá því að íslenzk yfirvöld hættu að treysta eigin dómgreind í slíkum málum og tóku að sækja til útlendra efnahagsráðunauta til slíkra ráðlegginga, hafa slíkir sérfræðingar aldrei fundið annan traustan grundvöll fyrir gjaldeyri landsmanna en kaupgetuleysi almennings, þ.e. fátækt og atvinnuleysi hjá alþýðu manna. Gengislækkunin 1950 og atvinnuleysið, sem á eftir kom, er ólygnust raunin. Ég óttast af illri reynslu, að ráð sérfræðinganna til ríkisstj. verði þau að vega tvisvar í sama knérunn. Slíkt hefur aldrei í sögu Íslendinga þótt til heilla horfa. Ég vil vara hæstv. ríkisstj. við að fara að slíkum ráðum, þótt ég óttist, að þegar sé afráðið að gera það. Mér fannst tilkynningin um góðu málin í yfirlýsingunni áðan þýða, að þau ættu að vera plástur á sárin, sem enn er eftir að veita alþýðu manna.

Ísland þurfti stórhuga, róttæka, þjóðlega ríkisstj., er samstillti hugi þjóðarinnar til voldugra átaka, er stórbættu lífskjör almennings í landi voru. Við fáum í staðinn ríkisstjórn tveggja af þeim launalækkunarflokkum, sem í vetur hófu árásirnar á afkomu almennings, og stefnuyfirlýsing hennar bendir til þess, að áfram verði haldið á sömu braut. Og árásir á lífskjör alþýðu leiða fyrr eða síðar til átaka milli auðvaldsins og alþýðu Íslands.

Alþb. heitir því á alla alþýðu, öll samtök vinnandi stétta að halda vöku sinni, vera vel á verði um hag sinn og rétt, sameinast um að vinna aftur það, sem tapazt hefur, og sækja fram til að skapa öruggan grundvöll að efnahagslífi án kreppu og atvinnuleysis, er tryggi alþýðu manna síbatnandi lífskjör og afkomuöryggi.