30.03.1960
Efri deild: 49. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1860 í B-deild Alþingistíðinda. (504)
65. mál, almannatryggingar
Frsm. 2. mimsi hl. (Alfreð Gíslason læknir):
Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls talaði ég um frv. í heild og gerði ýmsar athugasemdir, einkum um undirbúning þann, sem fram hefði farið í sambandi við samningu frv., og ágalla á þeim undirbúningi. Ég mun nú aðallega ræða um einstök atriði og þá sérstaklega í sambandi við brtt., sem ég flyt á þskj. 255.
Hv. heilbr.- og félmn. hafði þetta mál til athugunar. Hún ræddi það á tveim fundum og hafði mjög stuttan tíma til athugunar málsins. Það er kunnugt, að það er á eftir rekið um afgreiðslu málsins hér í hv. d. og að frv. þarf að vera orðið að lögum nú fyrir mánaðamótin.
Hv. heilbr.- og félmn. var sammála um það tvennt að flýta afgreiðslu frv. og að afgreiða það í heild jákvætt. Meiri hl. n, vill láta samþ. frv. óbreytt, en 1. og 2. minni hl. hafa að vísu lýst yfir fylgi sínu við aðalefni frv., en það er um hækkun bóta almannatrygginga, en telja hins vegar, að ýmislegt í frv. mætti betur fara.
Ég vil þá snúa mér að þeim brtt., sem ég flyt á þskj. 255, og fara örfáum orðum um hverja þeirra.
1, till. er við 2. gr. frv. og er þess efnis, að 10. gr. l. verði felld úr gildi, en sú gr. fjallar um skiptingu landsins í tvö verðlagssvæði. Þessi skipting landsins í tvö verðlagssvæði er áreiðanlega orðin úrelt nú. Hafi hún nokkru sinni átt rétt á sér, þá á hún það ekki lengur. Tekjur manna um landið allt hafa jafnazt mjög á síðustu árum og verðlag hefur farið í það horf að verða einnig jafnara um landið. Þess vegna er það tímabært — og raunar fyrir löngu — að fella þessa 10. gr. l. í burtu, afnema þessa skiptingu landsins í tvö verðlagssvæði. Hv. 3. þm. Vestf. (KJJ) minntist á þetta mál áðan og virtist vera alveg sömu skoðunar, þótt hann hins vegar óskaði að bíða enn um stund með framkvæmdir.
2. till. gerir ráð fyrir breyt. á 3. gr. frv., en þar ræðir um 13. gr. l. Í þessari till. er gert ráð fyrir, að ellilífeyrir sé ákveðinn fyrir hjón eins og um tvo einstaklinga væri að ræða, að hjónalífeyrir verði með öðrum orðum afnuminn.
Í frv. er gert ráð fyrir, að einstaklingar fái í ellilífeyri 14400 kr., og mundu þá hjón samkv. till. minni fá þá upphæð hvort um sig, eða saman 28800 kr., í stað 25920 kr., eins og frv. ætlar hjónum. Munurinn er þannig ekki geysimikill og kostnaðarauki trygginganna þar af leiðandi ekki að mínum dómi tilfinnanlegur. Hins vegar lít ég á þetta sem mikið réttlætismál og nauðsynjamál gamalla hjóna, sem dveljast saman. Nú þegar er ákvæði um það í tryggingalögunum, að ef hjón eru ekki samvístum, þá megi greiða þeim einstaklingslífeyri hvoru um sig. Að sjálfsögðu er þetta ekki óalgengt í lífinu, þar sem titt er, að annað hjóna fyrir sjúkleika sakir eða ellihrumleika verði að dveljast á stofnun, en hitt í heimahúsi, og því er till. mín aðeins lítið spor til fullrar leiðréttingar á því, sem ég tel vera óréttlátt í þessu efni gagnvart öldruðum hjónum.
3. till. mín er um nýja grein, sem skotið verði inn í frv., og á sú grein að fjalla um breyt. á 14. gr. tryggingalaganna. 14. gr. ræðir um rétt til örorkulífeyris. Þann rétt hafa nú aðeins þeir, sem eru varanlegir öryrkjar á svo háu stigi, að þeir teljast ekki færir um að vinna sér inn 1/4 þess, sem heilbrigðir menn gera. Þó er Tryggingastofnuninni heimilað að verja nokkurri fjárhæð til styrktar þeim, sem misst hafa 50–75% starfsorku sinnar. Með þessum ákvæðum er átt við menn, sem orðið hafa öryrkjar af völdum sjúkdóma, og verður örorka þeirra sem sagt að vera yfir 75%, til þess að þeir eigi skýlausan rétt á lífeyri. En sé hins vegar um örorku að ræða, sem hlotizt hefur af slysi, gegnir öðru máli. Þá á öryrkinn jafnskýlausan rétt á lífeyri, ef örorkan er 50% eða meira, sbr. 37. gr. laganna. Í minni till. er gert ráð fyrir, að þessari mismunun milli öryrkja vegna sjúkdóma og öryrkja vegna slysa verði hætt og að allir öryrkjar fái að sitja við sama borð hvað þetta snertir, að örorka af völdum sjúkdóms verði bætt á sama hátt og örorka af völdum slyss. Ég tel réttlátt, að sömu ákvæði gildi í báðum tilvikum, og rétt, að þau ákvæði, sem nú gilda um örorku vegna slyss, verði látin gilda almennt um örorkubætur. Þetta og annað ekki feist í 3. till. minni.
4. till. snertir 5. gr. frv. og 16. gr. l., um fjölskyldubætur. Er efni till. það, að greiddar verði fjölskyldubætur með öllum börnum undantekningarlaust í fjölskyldu, einnig þótt þau eigi framfærsluskyldan föður utan hennar, og er sérstaklega fram tekið í till., að börn örorku- og ellilífeyrisþega eigi sömuleiðis rétt á fullum fjölskyldubótum.
Eins og nú er í tryggingalögum, eru takmarkanir í þessu efni. Það er sérstök ástæða til að benda á þá mismunun, sem hér á sér stað, og leggja til, að hún sé afnumin, einmitt vegna þeirra breyt. á fjölskyldubótum, sem nú eru gerðar, og vegna þeirra ástæðna, sem liggja að baki þeim breytingum. En fjölskyldubæturnar eru í því formi, sem þeim er ætlað að verða af hæstv. ríkisstj., skoðaðar sem uppbætur vegna aukinnar dýrtíðar, vegna kjaraskerðingar af hennar völdum. Og sem slíkar uppbætur virðist aðeins sanngjarnt, að þær nál til allra barna jafnt og þar sé ekki gerður neinn munur á. Það mun víða mikill áhugi fyrir því, einkum í kvennasamtökum, að slík leiðrétting fáist nú á lögunum. Til hins háa Alþingis hefur borizt erindi, er snertir þetta efni, frá mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Er þar um að ræða tillögu samþykkta á fundi mæðrastyrksnefndar 17. marz 1960, og mun sú till. hafa verið samþykkt á þeim fundi samhljóða. En till. er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur vill vekja athygli á því, að samkv. frv. til l. um breyt. á l. nr. 24 29. marz 1956, um almannatryggingar, muni konur, sem taka mæðralaun, elli- og örorkulífeyrisþegar, sem njóta barnalífeyris, svo og þeir, sem njóta endurkræfs barnalífeyris, ekki fá fjölskyldubætur. Fer mæðrastyrksnefnd þess á leit við hið háa Alþingi, að við afgreiðslu frv. verði þessu breytt og burt numin útilokunarákvæði tryggingalaganna gagnvart fjölskyldubótum, þannig að það sé tryggt að fjölskyldubætur verði greiddar vegna allra barna innan 16 ára aldurs.“
Þessari samþykkt mæðrastyrksnefndar fylgir grg., sem ég vil einnig lesa upp hér, með leyfi hæstv. forseta:
„Til skýringar á samþykkt mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur frá 17. marz, sem fylgir hér með, viljum við undirritaðar nefndarkonur taka fram:
Fjölskyldubætur, eins og fyrirhugað er að greiða þær samkv. stjórnarfrv. til breytinga á tryggingalöggjöfinni, sem nú liggur fyrir Alþ., hljóta fyrst og fremst að skoðast sem bætur fyrir þær efnahagslegu byrðar, sem leiðir af ráðstöfunum þeim, er verið er að gera í efnahagsmálum þjóðarinnar. Virðist því öll sanngirni mæla með, að þessar bætur falli jafnt í hlut allra, sem hafa börn á framfæri. En samkv. núgildandi lögum og frv., sem hér um ræðir, munu þeir bótaþegar, sem í samþykkt mæðrastyrksnefndar eru upp taldir, ekki verða þeirra aðnjótandi. Koma þar til útilokunarákvæðin í V. kafla tryggingalaganna gegn því, að taka megi tvöfaldar bætur. Þegar það er athugað, að greiðslur trygginganna til þeirra bótaþega, sem hér ræðir um, eru háðar tekjuhámarki að undanteknum endurkræfum barnalífeyri, þannig að sé einhver sannanlega vel settur fjárhagslega, fær hann ekki þessar bótagreiðslur, er ljóst, að hér er einungis um að ræða fólk, sem hefur erfiðari aðstöðu en aðrir til þess að sjá sér og sínum farborða fjárhagslega. Það er þess vegna brýn nauðsyn, að ákvæði tryggingalaganna gegn tvennum bótum verði ekki látið útiloka þetta fólk frá fjölskyldubótum. Um endurkræfan barnalífeyri er það að segja, að hann er framlag föðurins til framfærslu barnsins og getur undir engum kringumstæðum talizt bætur frá tryggingunum, enda þótt Tryggingastofnun ríkisins hafi milligöngu um greiðslu hans til mæðranna. Vegna stjúpbarna, sem eiga föður á lífi, eru því alls engar bætur greiddar frá tryggingunum í einni eða annarri mynd. Þessi sjónarmið væntum við, að hv. alþm. muni athuga og taka til greina.“
Undir þessa grg. rita þessar nefndarkonur: Margrét Sigurðardóttir, Margrét Auðunsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Unnur Skúladóttir, Helga Rafnsdóttir.
Þannig líta þessi kvennasamtök á þetta mál, og efast ég ekki um, að flest eða öll kvennasamtök í landinu muni hafa svipaða skoðun á þessum málum.
5. till. á þskj. 255 er um breyt. á 6. gr. frv. eða 17. gr. l. Hún er um barnalífeyri. Er í till. ráðgert, að barnalífeyrir skuli greiddur með börnum, ef faðirinn eða móðirin er látin: Hér er það eitt nýmæli, að lífeyrir skuli greiddur með börnum, sem misst hafa móður sína, þótt raunar sé í l. heimild til að greiða ekki allt að fullum barnalífeyri, ef fyrirsjáanlegt er, að tekjur hans hrökkvi ekki til að sjá fjölskyldunni farborða. Í till. er því ekki um annað að ræða en það, að heimild í l. verði gerð að skyldu, að tryggingum verði skylt að greiða ekki barnalífeyri með börnum hans.
6. till. varðar 7. gr. frv. eða 18. gr. laganna og er um mæðralaun. Í þessari till. er það eitt nýtt, að afnumin er heimild Tryggingastofnunarinnar til að lækka mæðralaun eða láta þau falla niður. Í 3. mgr. 18. gr. l. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Tryggingastofnuninni er heimilt að lækka mæðralaunin eða láta þau falla niður, ef efnahagsástæður móðurinnar eru svo góðar, að hún þurfi þeirra ekki með.“
Fer till. fram á, að þessu ákvæði verði sleppt úr l. eftirleiðis, og þarf ég ekki að hafa mörg orð um þetta atriði. Þetta er sanngirnismál, að móðir fái laun og að engar hömlur verði lagðar á það eða heimild veitt til að fella slíkt niður.
7. till. er um, að 22. gr. l. verði numin úr gildi, en hún fjallar um hin frægu skerðingarákvæði, sem í fyrstu áttu aðeins að standa í nokkur ár, á meðan tryggingarnar væru að fóta sig, en hafa illu heilli haldizt allt fram á þennan dag, og virðist ætlunin, að svo verði áfram. Í sambandi við þessa till. mína um að fella niður 22. gr. l. vildi ég aðeins taka undir það, sem hv. 3. þm. Vestf. sagði um þetta efni nú áðan í ræðu sinni. Skildist mér á honum, að hann teldi, að skerðingarákvæðin ættu að nemast úr gildi eða meginefni þeirra, og vil ég taka undir þau ummæli. Aðeins er ég honum ósammála í einu, og það er, að hann vill draga að gera það, sem hann telur rétt vera, en það vil ég ekki.
8. till. er við 10. gr. frv., það er 23. gr. l. Í þessari 23. gr. er heimild til að greiða uppbót á elli- og örorkulífeyri, ef lífeyrisþegi á ekki aflögufæran framfæranda á lífi. Uppbót þessa má aðeins greiða þeim, sem þurfa sérstakrar umönnunar sökum veikinda, dveljast á elliheimili eða sjúkrahúsi eða eru einstæðingar. Nýmælið í minni till. er það eitt, að ef örorkulífeyrisþegi stundi námi meira en 6 mánuði á ári, þá beri honum að fá tvöfaldar örorkubætur. Þetta er sem sagt viðbót eða innskot inn í lagagreinina. Það mun hafa verið svo, að Tryggingastofnunin um nokkurt skeið hafi greitt með námsmönnum úr hópi öryrkja á þennan hátt, tvöfaldað örorkubætur þeirra, á meðan þeir stunduðu nám, sem síðan átti að gera þeim fært að verða meira eða minna sjálfbjarga. Þetta tel ég mjög lofsvert og til fyrirmyndar og vildi með till. minni aðeins undirstrika viðurkenningu löggjafans á þessu atriði með því að fá þetta lögfest.
9. till. snertir 16. gr. frv. eða 36. gr. l., 3. mgr., og er þess efnis, að niður falli orðin „allt að þrem“ í niðurlagi mgr. Mgr. fjallar um slysadagpeninga, og segir þar, að ákveðin upphæð,
3.50 í l., 8 kr. í frv., skuli greidd fyrir hvert barn allt að þrem. Þessi takmörkun hefur máske alltaf verið óréttlát, en hún verður það sérstaklega nú, eftir að þetta frv. er orðið að lögum. Það er sem sé beint samband á milli þessarar skerðingar og þess, sem er nú í l., að fjölskyldubætur skuli ekki greiddar með fyrsta og öðru barni. Þegar farið verður að greiða fjölskyldubætur með öllum börnum í fjölskyldu, þá verður þetta ákvæði mjög ranglátt og mjög barnmörgum fjölskyldum í óhag. Það er blátt áfram verið að skara eld að köku hinna barnfáu fjölskyldna með þeirri tilhögun á kostnað þeirra barnmörgu. Það er því sjálfsagt, um leið og farið er að greiða fjölskyldubætur með fyrsta og öðru barni í fjölskyldu, að þetta verði fellt niður úr 36. gr. l. og sömuleiðis úr 53. gr. l., en þar gildir sama ákvæði um greiðslu sjúkradagpeninga.
10. till. mín fjallar um 18. gr. frv. og er á þann veg, að greinin falli í burtu. Þessi grein í frv. er svo hljóðandi:
„Verði breyting á dagvinnukaupi almennra verkamanna í Reykjavík, er ráðh. heimilt að fengnum tillögum tryggingaráðs að breyta dagpeningum samkv. 36. gr. og eingreiðslum samkv. 38. gr. í samræmi við það.“
Ég legg til, að þetta verði fellt burt úr frv„ vegna þess að í till., sem ég síðar kem að, er gert ráð fyrir, að full vísitala verði greidd á allar bætur almannatrygginganna, og þarf ég því ekki að hafa um hana fleiri orð.
11. till. mín er við 20. gr. frv., þ.e.a.s. 53. gr. l., 4, mgr., um sjúkradagpeninga. Í frv. er gert ráð fyrir sem lágmarki, að einhleypingar fái 24 kr. á dag í sjúkradagpeninga, kvæntur karl eða gift kona 30 kr. og fyrir hvert barn allt að þrem skuli greiddar 6 kr. En þessar upphæðir eru, svo ótrúlegt sem það hljómar, lægri en sömu lágmarksupphæðir nú gerast. En þær eru nú 30.18 kr., 24.14 kr. og 6.03 kr., og þær eru verulega lægri en greitt er í Reykjavík, eins og ég benti á við 1. umr. Forstjóri Tryggingastofnunarinnar mætti á öðrum fundi heilbr.- og félmn. í gærmorgun. Þar staðfesti hann þennan ótrúlega hlut, að í stað hækkunar á bótum er hér um að ræða lækkun á bótum í frv, hæstv. ríkisstj. Því miður gerðu hv. meirihlutamenn í n. ekki annað en yppta öxlum við þessu og fengust ekki til að flytja um það brtt. Þykir mér leitt að þurfa að segja frá því, því að ég tel þeim það ekki til sóma. Eins og ég benti á við 1. umr., hef ég orðið var við það, að erfitt er að lagfæra skekkjur, þótt augljósar séu, en ég hélt þó ekki, að svona langt yrði gengið. Hv. 3. þm. Vestf., frsm. meiri hl., tók það fram, að hér væri um lágmarksupphæðir að ræða. Það er rétt. Það er nú um lágmarksupphæðir að ræða, eins og alltaf hefur verið. Á því er engin breyting. En staðreyndin er þessi, að bæturnar verða lægri eftir samþykkt frv. en fyrir hana. Hann vildi hugga sjálfan sig og hv. þdm. með því, að væntanlega mundu einstök sjúkrasamlög bæta hér úr skyssu hæstv. ríkisstj, með því að hækka sjúkradagpeninga meira en þeim ber skylda til. Ég vona, að svo verði. En það er ekki að þakka og verður ekki að þakka, hvorki hæstv. ríkisstj. né hv. alþm., og þótt sjúkrasamlögin kunni að hækka eitthvað sjúkradagpeningana, þá er það engin afsökun fyrir hið háa Alþ. að lækka lágmarkið. Ég flyt sem sagt í 11. brtt. minni ákvæði um, að úr þessu verði bætt og sjúkradagpeningar verði hækkaðir til samræmis við aðrar hækkanir í frv. og þó tæplega það. Í till. er gert ráð fyrir, að sjúkradagpeningar verði 30 kr. á dag fyrir einhleypa, 34 kr. fyrir kvæntan karl eða gifta konu og 7 kr. fyrir hvert barn á framfæri. Þetta er það lægsta, sem ég tel að hægt sé að bjóða nú, þegar verið er að hækka allar bætur.
12. og næstsíðasta till. mín er um nýja grein í frv., þess efnis, að ákvæði í 59. gr. l. um, að Tryggingastofnunin megi greiða algerlega tekjulausum bótaþegum, sem dveljast á stofnun, allt að 10% lágmarksbóta, skuli breytt úr heimild í skyldu. Annað fer þessi till. ekki fram á. En mikil sanngirni er í því, að tekjulausir og efnalausir bótaþegar fái einhverja peninga. til eigin ráðstöfunar, ef þeir dveljast á sjúkrahúsum langtímum saman eða öðrum stofnunum, enda hefur stefnan farið í þá átt hjá Tryggingastofnuninni að verða við þessu. En nú er með minni till. sporið stigið til fulls, ef hún yrði samþ.
13. og síðasta till. varðar 71. gr. l. og er um breyt. þess efnis, að allar bótagreiðslufjárhæðir l. séu grunnupphæðir, sem greiða beri verðlagsuppbætur á samkv. vísitölu framfærslukostnaðar. Í þessu sambandi vildi ég minna hv. þdm. á það, að upphæð bóta, eins og þær eru ákveðnar í frv. hæstv. ríkisstj., er miðuð við það verðlag í landinu, sem verið hefur að undanförnu. Að vísu höfum við heyrt það frá talsmönnum hæstv. ríkisstj., að hún hafi reiknað með aukinni dýrtíð, þegar bæturnar voru hækkaðar í frv. En þetta er ekki rétt nema að örlitlu leyti. Ég skal benda á það, að í þrem aðalköflum tryggingalaganna, köflunum um lífeyristryggingu, slysatryggingu og sjúkratryggingu, er þetta sannleikur hvað snertir lífeyristryggingarnar. Á síðasta ári vann nefnd að því að gera till. um hækkun bóta lífeyristryggingakaflans. Ofan á þær till. hefur verið lögð 20% hækkun vegna væntanlegrar vaxandi dýrtíðar. Á síðasta ári starfaði einnig n. að tillögugerð um hækkun slysatryggingabóta. Ofan á till. þeirrar n. hefur engin hækkun verið lögð til þess að mæta vaxandi dýrtíð. Um kaflann sjúkratryggingar hefur engin nefnd fjallað yfirleitt og þess vegna engar hækkunartillögur komið og alls engin prósentuhækkun á lögð af hálfu hæstv, stjórnarvalda. Í heild sinni verður útkoman sú, að ómögulegt er að líta á þetta frv. öðruvísi en sem hæfilegt, sé miðað við tímana eins og þeir hafa verið nú að undanförnu hvað verðlag snertir. Fjölskyldubætur tala ég ekki um í þessu sambandi. Þær eru dálítið utan við tryggingalögin að mínum dómi, góðar og gildar að vísu. En hvað snertir sjálf ákvæði tryggingalaganna að öðru leyti, þá er ekki gert ráð fyrir stórfelldri hækkun verðlags í landinu með þessu frv. Ég mundi telja að flestu leyti vel gert af hæstv. ríkisstj. að fá þetta frv. samþykkt í þeirri mynd, sem það er, ef gert væri ráð fyrir því, að engar skerðingar á bótunum skyldu nú eftirleiðis eiga sér stað. En til þess að svo verði, þarf að verðtryggja bæturnar, það þarf að vísitölutryggja bæturnar. Annars er allur vinningurinn, öll leiðréttingin á gömlu ranglæti unnin fyrir gíg, því að það er öllum mönnum ljóst í þessu landi, að gífurleg dýrtíðaraukning stendur nú fyrir dyrum. Ég vil næstum því kveða svo rammt að orði, að ef ekki fæst þessi leiðrétting á frv. um vísitölutryggingu bótanna, þá tel ég að verulegu leyti allt unnið fyrir gíg og a.m.k. ekkert fyrir hæstv. ríkisstj. að hrósa sér af, því að það fer allt í sama gamla farveginn og áður, fyrr en varir.
Við skulum minnast þess, að þótt vísitala sé afnumin í sambandi við greiðslu launa, þá er vísitala enn í fullu gildi í ýmsum öðrum greinum. Sparifé er vísitölutryggt að nokkrum hluta, verðbréf ýmiss konar eru vísitölutryggð, fé lánað gegn vísitölutryggingu o.s.frv. Það er ekkert í löggjöf, sem mælir gegn því að vísitölutryggja bætur bótaþega almannatrygginganna. Það eru ekki vinnulaun. Þess vegna tel ég ekki neina frágangssök fyrir hv. stjórnarsinna á Alþingi að greiða till. sem slíkri atkv.
Ég vil að síðustu aðeins láta í ljós ánægju mína yfir mörgu af því, sem hv. 3. þm. Vestf. sagði í ræðu sinni áðan. Hann viðurkenndi, að lögin um almannatryggingar séu ekki komin í æskilegt horf enn sem komið er. Hann talaði einnig um nokkurt misræmi í sambandi við lögin. Hann sagði, að flestar bætur væru nú hækkaðar í frv., — hann sagði flestar, af því að hann veit, að það eru ekki allar. Hann sagði, að skipting landsins í verðlagssvæði ætti engan rétt á sér, hefði ekki átt um langan tíma. Hann sagðist vera hlynntur því, að börn, sem eiga framfærsluskyldan föður utan heimilis, fengju einnig fjölskyldubætur. Í öllum þessum atriðum er ég honum sammála. En það er eitt, sem mér líkar ekki hjá þessum hv. þdm., og það er þetta: Ef hann sér þessa ágalla á löggjöfinni og hefur séð suma þeirra um áraskeið, hvers vegna vinnur hann ekki að því nú, þegar þetta mál er hvort sem er til meðferðar á hinu háa Alþingi, að koma því fram, sem hann telur rétt? Ég reyni ekki að slá mig til riddara, þó að ég segi, að það eina, sem virðist skilja okkur að, er það, að ég vil reyna að koma því fram, sem ég tel vera rétt, en hann vill fresta að koma því fram, sem hann þó telur rétt.