30.03.1960
Efri deild: 50. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1867 í B-deild Alþingistíðinda. (507)

65. mál, almannatryggingar

Björn Jónsson:

Herra forseti. Ég mun ekki að þessu sinni ræða almennt það frv., sem hér liggur fyrir, enda hefur hv. 9. þm. Reykv. gert svo glögga grein fyrir afstöðu okkar Alþýðubandalagsmanna almennt til þess, að ég hef ekki við það að bæta að svo komnu máli. Ég vildi hins vegar með örfáum orðum gera grein fyrir brtt., sem ég hef leyft mér að flytja á þskj. 261 ásamt hv. 1. þm. Norðurl. e.

Þessi till. er á þá lund, að ákvæði um bótafjárhæðir samkv. 17. gr., þ.e.a.s. dánarbætur, verki aftur fyrir sig um eitt ár og nái til þeirra, sem fyrir því urðu að missa fyrirvinnu sína í slysförum á því ári. Þessi brtt. er flutt með sérstöku tilliti til banaslysa sjómanna, sem fórust á s.l. ári, en voru ekki lögskráðir, þar sem skip þeirra voru minni er 12 lestir að stærð, og í þeim tilgangi að heimila Tryggingastofnuninni að eiga þátt í því hjálparstarfi, sem unnið hefur verið til þess að létta þeim, sem um sárast eiga að binda af völdum þessara slysa, lífsbaráttuna, um leið og mikið misrétti er leiðrétt.

Meginbreytingin, sem nú er ráðgerð á dánarbótum, er sú, að nú er fyrirhugað, að þær verði hinar sömu fyrir alla, sem farast af slysförum við vinnu, en fram til þessa hafa sérákvæði gilt um lögskráða sjómenn og bætur vegna banaslysa. þeirra verið stórum hærri en annarra. Vissulega er það rétt, sem segir í grg. með frv., að ekki verði séð, að nein skynsamleg ástæða sé fyrir því að mismuna um dánarbætur eftir tegundum vinnu, eins og gert hefur verið. Áfall konu og barna þeirra, sem missa fyrirvinnu sína, er vissulega hið sama, hvert starf sem hinn látni vann. Enn fjær lagi hefur þó sú skipan verið að gera mun á dánarbótum og hann mikinn milli manna í sömu starfsgrein, en til þessa hafa dánarbætur eftir lögskráða sjómenn verið meira en fjórum sinnum hærri en eftír þann sjómann, sem var ekki lögskráður, þ.e.a.s. sem stundaði starf sitt á báti eða skipi minni en 72 lestir, en á báta af þeirri stærð er ekki aðeins leyfilegt að skrá ekki, heldur bannað að lögskrá á slík skip.

Á s.l. ári varð m.a. það hörmulega slys hinn 21. okt., að vélbáturinn Maí frá Húsavík fórst t fiskiróðri og með honum tveir ungir og vaskir sjómenn, er láta eftir sig konur og börn á unga aldri. Á þennan bát var ekki lögskráð, þar sem hann var aðeins 8 lestir að stærð. Einn eða tveir sjómenn aðrir en þeir, sem fórust með vélbátnum Maí, munu og hafa farizt á s.l. ári af minni bát en 12 lesta. Ég veit, að það stríðir þvert á móti réttlætisvitund allra Íslendinga, að konur og börn skipverjanna af Maí og annarra, sem eins var ástatt um, gjaldi þess fjárhagslega, að farkosturinn, sem hinir látnu sigldu á í hina hinztu för, var einni eða tveimur lestum minni en svo, að heimilt væri að lögskrá á hann og tryggja þannig skipverja á sama hátt og sjómenn af stærri skipum, og sama gildir að sjálfsögðu um önnur hliðstæð tilvik.

Það má ef til vill segja, að orkað geti tvímælis, að hve miklu leyti sé unnt að láta ný ákvæði, eins og þau sem hér er ráðgert að lögfesta, verka aftur í tímann. Ég held þó, að engir örðugleikar geti talizt á því, að sú leiðrétting á dánarbótum, sem hér ræðir um, gildi fyrir næstliðið ár. Hér er ekki um neinar þær fjárhæðir að ræða, sem nokkru skipta tryggingarnar í heild, þótt þær geti skipt miklu fyrir nokkrar fyrirvinnulausar fjölskyldur. Hér er heldur alls ekki um fordæmalaus ákvæði að ræða. Í því sambandi minni ég á að síðast þegar dánarbætur sjómanna voru hækkaðar með l. nr. 27 1959, voru hækkunarákvæðin látin verka aftur í tímann með sérstöku tilliti til þess mikla slyss, er öllum var þá ofarlega í huga, þ.e.a.s. þegar botnvörpungurinn Júní fórst og með honum þrír tugir manna. Um þá sjálfsögðu ráðstöfun voru allir sammála. Og mér er líka nær að halda, að hefði þá verið hugleitt, hvert ranglæti hefur verið gildandi um dánarbætur þeirra sjómanna, sem störf sín stunda á smærri bátum, þá hefði það þá þegar verið leiðrétt.

Ég tel ekki þörf á því að fara fleiri orðum um þessa brtt., svo auðskilið mál sem hér er um að ræða, enda er ég þess fullvíss, að hv. d. muni fúslega fallast á hana, enda er henni á engan hátt blandað inn í þær deilur, sem óhjákvæmilega hljóta hér fram að fara um margvísleg atriði varðandi þetta frv. í heild sinni.