07.04.1960
Efri deild: 58. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1893 í B-deild Alþingistíðinda. (542)
127. mál, lánasjóður íslenskra námsmanna erlendis
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Mig langar aðeins til þess að láta í ljós sérstakar þakkir til hv. menntmn. fyrir að hafa tekið mál þetta til svo skjótrar afgreiðslu sem raun ber vitni um og einnig til hæstv. forseta deildarinnar og dm. allra fyrir að hafa reynst fúsir til. að afgreiða málið með svo skjótum hætti, og vænti ég, að það hljóti afgreiðslu þessarar hv. d. nú í dag. Hið sama á auðvitað einnig við um menntmn. Nd, og þá deild, að þar hlaut það mjög skjóta og góða fyrirgreiðslu, og kann ég þeim aðilum einnig beztu þakkir fyrir.