08.04.1960
Neðri deild: 66. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2004 í B-deild Alþingistíðinda. (606)
111. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Unnar Stefánsson:
Herra forseti. Ég get ekki látíð ómótmælt þeirri fullyrðingu hv. 3. þm. Reykv., að það skref, sem nú hefur verið stígið með þeirri breyt. á tekjuskattslöggjöfinni, sem hér er lagt til, sé skref aftur á bak, til afturhalds. Ég vil leggja áherzlu á, að það er ekki einhlítt að einblína á þá aura, sem hv. þm. telur að hátekjumaður losni við að greiða umfram lágtekjumanninn við þessar breyt., og það er ekki einhlítt að reikna út breytingar á tekjuskiptingu í þjóðfélaginu aðeins eftir þessum einu lögum. Í þessu sambandi er aðalatriðið að taka með í það dæmi allar ráðstafanirnar, fjölskyldubætur, almannatryggingar og söluskatt, sem vissulega lendir alls ekki jafnt á þá tekjulægstu og þá tekjuhæstu, eins og hv. þm. lét að liggja.
Hv. 3. þm. Reykv. sagði í gær og fullyrti, að hátekjumenn geti komizt undan skattbyrðinni með því að kaupa alls ekki hinar hátolluðu vörur, sem söluskatturinn lendir þyngst á. Þetta er réttilega athugað. En þá vaknar önnur mikilsverð spurning, og hún er sú: Hvað verður um þá peninga, sem landsmenn geta sparað sér með því að kaupa ekki hátollavöruna og komast þannig hjá greiðslu söluskattsins? Hv. 3. þm. Reykv. gerði sér þetta ljóst í ræðu sinni í gær, og hann svaraði því til, að þeir ríku settu fjármuni sína alls ekki til aukningar heildartekjum þjóðfélagsins, heldur í óhóflegar og gagnslausar húsabyggingar og í villur í ákveðnum hverfum hér í Reykjavík. „Þetta er reglan,“ sagði hv. þm. Þetta var reglan, leyfi ég mér að segja. Og nú erum við einmitt komnir að kjarna málsins. Það hefur verið reglan hér á landi undanfarin ár, að einstaklingar hafa dregið fjármagnið út úr framleiðslufyrirtækjunum, svo að milljónum skiptir, og lagt það í byggingar íbúðarhúsa, kaup á bilum og hvers kyns munaðarvörum. Þetta er ástæðan til þess, að óeðlilega mikill hluti af ráðstöfunarfé íslendinga hefur farið til svokallaðrar neyzlufjárfestingar og allt of lítill hluti hefur farið til framleiðslufjárfestingar, sem leiðir til aukinna. afkasta.
En hvernig stendur þá á því, að fjármagni landsmanna hefur raunverulega verið svona óskynsamlega varið? Hvers vegna hafa einstaklingar, sem komast í álnir, ekki lagt peninga sína í framleiðslufyrirtæki, sem gætu veitt þeim og þjóðinni allri enn meiri tekjur, í stað þess að bruðla þeim í ónauðsynlegar framkvæmdir? Þeir hafa gert þetta að miklu leyti vegna þess, að hið opinbera hefur rekið ranga fjármálastefnu. Vegna skipulagsleysis í þessari fjármálastefnu hefur verðbólgan verið ótamin undanfarin ár. Skattalöggjöfin hefur líka verið óskynsamleg. Og af þessu leiðir, að almenningur í landinu hefur ekki haft trú á því fjármálakerfi, sem ríkt hefur. Álnamenn hafa af þessum sökum alls ekki lagt fjármagn sitt í framleiðslufyrirtæki, sem gætu gefið þeim enn meiri tekjur, af því að þeir hafa óttazt, að allar viðbótartekjur þeirra færu í skatta og útsvör. En þeir hafa lagt þær heldur í íbúðarhús og bila, vegna þess að með þeim hætti gat verðbólgan tryggt þeim aukið verðgildi fasteignanna, eignaaukningu, sem var ekki af þeim tekin aftur í sköttum og útsvörum. Hérna er einmitt að finna orsökina til þess, að Íslendingar hafa nú haft það hlutfall milli framleiðslufjárfestingar og neyslufjárfestingar, það versta í heiminum, eins og hv. 3. þm. Reykv. sagði réttilega í gær. Og hann benti á, hve Norðmenn t.d. hefðu hagað sér ólíkt skynsamlegar í þessum efnum og náð glæsilegum árangri.
Hafi hv. 3. þm. Reykv, ekki gert sér grein fyrir því enn, leyfi ég mér að vekja athygli hans á því, að efnahagsmálaráðstafanir núv. ríkisstj. beinast beint að þessu alvarlega vandamáli. Þeim er einmitt ætlað að gerbreyta þessari háskalegu þróun. Og mætti ég líka benda á, að það efnahagskerfi, sem nú er verið að taka upp, er einmitt að miklu meira leyti en það gamla sniðið eftir efnahagskerfi Norðmanna, sem hafa undir því kerfi náð þeim fyrirmyndarárangri, sem hv. 3. þm. Reykv. hrósaði réttilega hér í gær.
Stefnan, sem nú er tekin upp, miðar að því, að almenningur geti í fjármálastofnunum þjóðarinnar fengið fyrir peninga sína meiri arð en menn áður gátu fengið eða töldu sér öruggast að fá í íbúðarhúsum og öðrum slíkum fasteignum. Stefnan miðar að því, að álnamenn hafa ekki lengur hagnað af því að leggja fram peninga sina og taka lánsfé til þess að kaupa niðurgreitt byggingarefni eða bíla, til þess eins að tryggja verðgildi sinna peninga. Og það er fullkomin ástæða til þess að ætla, að þeir peningar, sem landsmenn geti sparað með þessu móti og með því að eyða þeim ekki í söluskattsvöruna og hátollavöruna, komi í bankana sem sparifé og geti farið þaðan aftur sem lán í framleiðslufyrirtækin. Við þetta vinnst tvennt: að gjaldeyriseyðslan minnkar og framleiðslan eykst. Og ég vil spyrja: Er það ekki einmitt þetta, sem er farsælasta leiðin til skjótra efnahagslegra framfara?
Hv. 3. þm. Reykv. viðurkenndi í gær, að aukin framleiðsla og þó öllu heldur, sem væri réttara að segja, aukin framleiðni við arðsömustu greinar atvinnulífsins séu bezta undirstaða aukinnar velmegunar og hagsældar. Og séum við sammála um þetta, hvernig getur þá Alþ. látið það líðast, að sjálft ríkisvaldið með ranglátri fjármálastefnu geti ár eftir ár staðið beinlínis gegn auknum afköstum þjóðarbúsins, en það hefur ranglát skattalöggjöf og verðbólga vissulega gert?
Einn meginágalli núgildandi tekjuskattslaga er sá, að skatturinn getur dregið úr framleiðsluafköstum og þar með úr heildartekjum þjóðarbúsins. Vafalaust eru mikil brögð að því, að stighækkun skattsins á einstaklingum leiði til þess, að menn í framleiðsluatvinnugreinum sjái sér hag í því að vinna ekki nema ákveðinn hluta úr árinu, vegna þess að ríkisvaldið hirðir mestan hluta viðbótarteknanna upp í skatta. Ef skipstjóri fer t.d. ekki á síldveiðar eftir vel heppnaða vetrarvertíð eða á reknetaveiðar að haustinu af þessum sökum einum, en kýs heldur að vinna að eigin húsbyggingu, sem er ekki skattskyld, þá er augljóst mál, að slík skattheimta er þjóðarheildinni skaðleg, þar sem hér er í öllum tilfellum um að ræða aflakónga og duglega formenn, sem draga drjúgan afla úr sjó og skapa með því auknar þjóðartekjur í gjaldeyri. Hver sá skattur, sem þannig dregur úr arðsömustu nýtingu vinnuaflsins og rýrir þar með þjóðartekjurnar, er óréttmætur — og ekki aðeins óréttmætur, heldur öllu fremur óskynsamlegur af hálfu ríkisvaldsins.
Annar ágalli núgildandi skattalaga er sá, sem kalla má lögvernduð undanbrögð frá greiðslu skattsins, og er þar átt við undankomuleiðir, sem fyrirtæki og atvinnurekendur njóta góðs af, en launþegar ekki. Á tekjuskattslögunum hafa verið gerðar liðlega 200 breytingar og miða flestar að því að opna slíkar undanbragðaleiðir með hvers konar undanþágum og ívilnunum, sem síðar eru misnotaðar, og má þar til geta um ákvörðun á frádráttarbærum tilkostnaði við öflun tekna. Af þessu leiðir, að skattur af fyrirtækjum er meira miðaður við bókhaldslega afkomu en raunverulega skattgetu eigandans.
Þriðji ágalli tekjuskattslaganna er sá, að undirstaða réttlátrar álagningar skuli vera áreiðanleiki skattgreiðendanna sjálfra. Almennt er talið, að skattskýrslur hér á landi séu alls ekki óbrigðull mælikvarði á raunverulega skattgetu borgaranna. Vegna sívaxandi verðbólgu á undanförnum árum komast venjulegar meðaltekjur í svo háan skattstiga, að það var orðin veruleg freisting fyrir fólk að tíunda ekki allar tekjur sínar. Þetta er auðveldara nú en áður var, þar sem svo mikill hluti gjaldenda eru sjálfstæðir atvinnurekendur, sem erfitt er að vita, hvað miklar tekjur hafa. Viðurlög við skattsvikum hafa alls ekki verið nógu ströng í framkvæmd til þess að veita nægilegt aðhald í þessum efnum. Af þessu hefur leitt, að samkv. útreikningum hagstofu hafa skattsvik numið óhugnanlega háum tölum undanfarin ár. Af þessu leiðir, að framkvæmd tekjuskattslaganna særir af framantöldum ástæðum réttlætiskennd manna. Hún dregur úr virðingu fólks fyrir lögum almennt, úr því að óprúttnir samborgarar geta hagnazt á því að skálda nógu fáránlega á skatteyðublað sitt án þess að eiga nokkuð á hættu að þurfa að gjalda þess.
Beini skatturinn var hér á landi sem annars staðar þjóðfélagsleg umbót og mikill þáttur í þróun þjóðfélagsins í átt til lýðræðis og efnahagslegs jafnréttis. Og fræðilega séð er hugmynd tekjuskattsálagningarinnar enn í dag tvímælalaust réttlátasta tekjuöflunarviðmiðun ríkissjóðs, enda er talið réttmætt, að borgararnir taki þátt í sameiginlegum kostnaði af ríkisbúskapnum í hlutfalli við efni og ástæður, að skattar aukist við auknar tekjur og lækki við aukna framfærslubyrði. Tekjuhæðin sem skattstofn var þannig talin bezta trygging fyrir því, að skattþegnarnir fórnuðu nokkurn veginn jafnmiklu af efnum sínum til hins opinbera, en það er einmitt í nánasta samræmi við ríkjandi réttlætiskennd. Í þessum anda voru stíghækkandi tekjuskattar teknir upp í öllum löndum með lýðræðishreyfingu fyrstu áratuga aldarinnar undir kjörorðinu: Byrðarnar á breiðu bökin. Og samanborið við óbeina skatta á þeim tíma var beini tekjuskatturinn ólíkt réttlátari en óbeinir skattar þá hefðu orðið. Óbeinir skattar þá í formi innflutningstolla og veltuskatts hefðu fyrst og fremst lent á nauðsynjavörum af þeirri einföldu ástæðu, að nær allur innflutningur landsmanna taldist til brýnustu nauðsynja, og í öðru lagi var afkoma alls meginþorra landsmanna svo bágborin, að neyzluvörutollur hefði komið hart niður á hínum fátækustu, sem gátu ekki neitað sér um að kaupa hina skattlögðu vöru. En nú er þetta gersamlega breytt. Innflutningsvörur eru að miklu leyti svokallaðar munaðarvöru, sem fólk getur án mikils baga neitað sér um eða frestað að kaupa.
Norðmenn hafa nokkra reynslu af nútíma skattálagningarkerfi. Þeir hafa lagt á 10% almennan veltuskatt, og samkvæmt upplýsingum hagstofunnar þar í landi kom í ljós við athugun á þjóðhagslegum áhrifum óbeinna skatta í stað beinna skatta, að þegar tekið er tillit til niðurgreiðslna ríkisins á mikilvægustu neyzluvörunum, — eins og er hér á landi, — þá hækkuðu samanlagðar upphæðir óbeinna skatta greinilega með auknum tekjum og minnkandi framfærslukostnaði, og þar með er náð einmitt því sama markmiði og ætlað var að ná með stighækkandi tekjuskatti fyrr á árum.
Óbeinir skattar hafa m.a. þann kost fram yfir beina skatta, að þeir geta orðið ríkisvaldinu miklu heppilegra tæki til að hafa heildarstjórn á þjóðarbúskapnum. Þá er hægt að auka og minnka með mjög stuttum fyrirvara til samdráttar eða þenslu í efnahagslífinu, allt eftir því, hvaða markmið þykja æskileg á hverjum tíma. Þeir eru að vísu vandmeðfarnir í höndum hins opinbera, vegna þess að það hlýtur að vera matsatriði, hvaða vörur á að leggja á hærri tolla og hærri óbeina skatta heldur en aðrar, hvaða vörur skuli telja til munaðar og hvað til brýnustu nauðsynja.
Þegar upphæð allra beinna skatta í landinu er deilt niður á allar fjölskyldur, eins og hv. stjórnarandstæðingar hafa reynt að gera í skrifum sínum og fullyrt, að svona upphæð muni óbeinir skattar taka af hverri fjölskyldu, þá eru þær tölur rangar, vegna þess að alls ekki er tekið tillit til þess, hve misjafnlega óbeinir skattar í heild leggjast á varning og ýmiss konar þjónustu, eftir því, hvort um er að ræða nauðsynjavöru eða ekki. Hæstu yfirfærslugjöldin, sem nú eru greidd af innfluttum vörum, plús söluskattinn af þeim borga ekki aðrir en þeir, sem kaupa þessa hátollavöru, og á svipaðan hátt mundu auknir óbeinir skattar í formi innflutningstolla verka.
Mestu máli skiptir þó, þegar rætt er um heildaráhrif beinna og óbeinna skatta á þjóðarbúskapinn í heild og á tekjuskiptinguna í þjóðfélaginu, að félagsmálalöggjöf okkar hefur nú verið endurskoðuð. Eftir að elli- og örorkulífeyrir hefur verið hækkaður verulega, svo og barnalífeyrir og fjölskyldubætur, þá má segja með nokkrum rétti, að hið opinbera ábyrgist sæmilega fjárhagsafkomu hvers einasta samborgara. Um leið og sú ýtarlega endurskoðun tryggingalöggjafarinnar hefur farið fram, sem nú er unnið að, mun óhætt að fullyrða, að enn meiri lækkun beinu skattanna væri æskileg og jafnvel mikilvæg fyrir alla alþýðu manna og alþjóð í þeirri viðleitni að skapa þjóðinni batnandi lífskjör, meiri framleiðslu og meiri heildarafköst. Og það hlýtur auðvitað að vera meginverkefni ríkisvaldsins.
Ég ætla að lokum að vekja athygli á einni hlið þessa máls, sem hér er til umræðu, sem hefur ekki borið hér á góma. Einn alvarlegasti ágalli skattalöggjafarinnar er sá, að hún dragi úr siðgæðisvitund þjóðarinnar í heild. Ein orsök til þess, að eftirlit með skattaframtölum hefur verið svo slælegt sem af er látið, er ábyggilega sú, að embættismenn hins opinbera hafa viðurkennt, að sjálf lagaákvæðin væru ekki fullkomlega réttmæt, og hafa af þeim sökum ekki talið sér fært að ganga ríkt eftir framkvæmd þeirra. Framkvæmdastjóri stórs framleiðslufyrirtækis og reyndar fleiri en einn hafa tjáð, að skattalöggjöfin hafi verið svo ranglát á undanförnum árum, að forstöðumenn fyrirtækja standi á hverju einasta ári frammi fyrir þeirri spurningu, hvort þeir ættu heldur að tíunda algerlega rétt og leggja með því fyrirtækið í rústir á 2–3 árum eða að lagfæra tölur á skattaeyðublaðinu sínu og halda starfsemi fyrirtækjanna gangandi. Getur hinu opinbera verið sæmandi að koma borgurunum í slíkan vanda, sé þetta almenn skoðun hlutaðeigandi manna?
Ég vil varpa fram þeirri spurningu, hvort það gæti hugsazt að virðingarleysi almennings fyrir skattalöggjöfinni hafi óbeint stuðlað að lítilsvirðingu landsmanna gagnvart öðrum lögum. Hvernig stendur t.d. á því, að undanfarnar vikur og missiri hafa dagblöð þessa lands verið full af fréttum um svo stórtæk lögbrot, að það hefur slegið óhug á alla þjóðina? Hvernig stendur á því, að ungir menn í vel launuðum stöðum taka ófrjálsri hendi mikla fjármuni almennings? Hvernig stendur á því, að samtök einstaklinga á kaupskipaflotanum hafa hvað eftir annað verið uppvís að stórfelldum smyglmálum? Hvernig stendur á því, að stórir hópar, jafnvel embættismenn, hafa verið uppvísir að ámóta lögbrotum? Hvernig stendur á því, að jafnvel frímerkjabirgðir þjóðarinnar séu ekki taldar í nægilega óhultri vörzlu? Og hvernig stendur á því, að sú hugmynd hefur komið fram og rædd í alvöru, hvort hugsunarhætti landsmanna sé þann veg komið, að það sé fullkomin ástæða til þess að leita aðstoðar erlendis frá til þess að varðveita fyrir okkur frímerkjabirgðir og jafnvel gullforða þjóðarinnar? Gæti það hugsazt, að fordæmi ríkisins í sambandi við skattamál hafi átt einhvern hlut að þessu máli, að undirrót þessarar afsiðunar sé að nokkru leyti unnt að rekja til rangláts skattakerfis? Ef hér gæti verið um að ræða nokkurt samhengi, þá er það ein mikilsverðasta röksemdin fyrir lagfæringu tekjuskattslaganna.
Hv. 3. þm. Reykv. lagði til í gær, að nú yrði tekið upp miklu harðvítugra innheimtukerfí, í stað þess að lagfæra skattalögin sjálf. Ég er hv. 3. þm. Reykv. sammála um, að ríkisvaldið eigi að ganga ríkt eftír því, að borgarar komist ekki undan skyldum sínum með óeðlilegum brögðum eða refjum. En væri ekki rétt að færa fyrst alla skattalöggjöfina í það horf, að hún verði almennt af öllum hlutaðeigandi aðilum viðurkennd sem réttlát álagningaraðferð, og taka síðan upp strangt eftirlit með framkvæmd laganna?
Í þessu máli getum við lært mikið af nágrannalöndum okkar, og ég er þeirrar skoðunar, að þetta þurfi að gerast. Ég treysti núv. ríkisstj. til þess að stuðla að því, að þessu verði breytt og að með því verði stuðlað að hugarfarsbreytingu skattþegnanna í landinu.
Ég vil allra síðast leggja áherzlu á það, að þessi breyting á tekjuskattslöggjöfinni sé mikilsverður þáttur í heildarráðstöfunum núv. stjórnar í efnahagsmálum. Hún er mikilsverð að því leyti, að hún afnemur félagslegt ranglæti og stuðlar að aukinni réttlætiskennd landsmanna, og hún felur í sér hvatningu til þjóðarinnar í heild til meiri vinnusemi og stærri átaka til aukinnar framleiðslu.
Þjóðin er sannarlega löngu orðin þreytt á því að standa í stríði við ríkisvaldið. Hún er orðin langþreytt á því að láta þröngva sér á hverju ári til lögbrota. Hún vill, að ríkisvaldið hjálpi þegnunum til að gera gott, en torveldi þeim að gera rangt.
Íslenzka þjóðin hefur umfram allar aðrar þjóðir möguleika til þess að skapa með sér fyrirmyndarsamfélag, þjóðfélag samhjálpar og bræðralags og sameiginlegra átaka allra landsmanna til betri lífskjara.
Þessi breyting á skattalöggjöfinni, sem nú verður framkvæmd, er mikilsverður þáttur í þeirri viðleitni núv. ríkisstj. að hjálpa landsmönnum til að ná þessu markmiði.