01.04.1960
Neðri deild: 60. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2011 í B-deild Alþingistíðinda. (614)

113. mál, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Fjárhagsmálefni sveitarfélaganna, útgjöld þeirra og tekjustofnar, hafa löngum verið til umræðu undanfarin ár. Flestir þeir, sem fjallað hafa um sveitarstjórnarmálefni, hafa vitað, að gagnger breyting þyrfti að verða um fjárhagsmálefni bæjar- og sveitarfélaga, til þess að þau gætu innt af höndum það verkefni, sem þeim er ætlað hér í landi, bæði samkvæmt stjórnarskrá, lögum og sögulegri hefð.

Svo hefur verið nú um langan aldur, að í rauninni hafa sveitarfélögin ekki haft nema einn tekjustofn, sem máli skiptir, útsvör, sem jafnað skal samkvæmt lögum niður eftir efnum og ástæðum. Hins vegar eru margvíslegar skyldur, sem á sveitarfélögum hvíla, og margháttuð útgjöld, og hefur svo verið undanfarið, að löggjafarvaldið hefur ekki skirrzt við að bæta nýjum og nýjum klyfjum á sveitarfélögin án þess að sjá þeim fyrir nýjum tekjum í staðinn. Þessi mál hafa undanfarinn áratug verið mjög rædd á fundum Sambands íslenzkra sveitarfélaga og bæjarstjórafundum, sem haldnir hafa verið, og ár eftir ár gerðar þær kröfur til Alþingis og ríkisstjórna, að hér væri ráðin bót á.

Þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð, var það eitt af samningsatriðum í málefnasamningi hennar að endurskoða skattakerfið allt og þá fyrst og fremst með það fyrir augum að afnema tekjuskatt á almennar launatekjur. Skömmu eftir að ríkisstj. tók til starfa var skipuð til þess 5 manna nefnd að athuga og gera till. til nýrrar löggjafar um tekjustofna sveitarfélaganna. Í þessa nefnd voru skipaðir þeir alþm. Birgir Finnsson og Guðlaugur Gíslason, ráðuneytisstjórinn í félmrn., Hjálmar Vilhjálmsson, sem jafnframt var formaður, og auk þeirra formaður og varaformaður Sambands íslenzkra sveitarfélaga, þeir Jónas Guðmundsson og Tómas Jónsson. Allir þessir menn hafa mikinn kunnugleika og langa reynslu af fjárhagsmálefnum sveitarfélaganna.

Það kom skjótlega í ljós, að ekki mundi unnt að hafa tilbúið frv. að nýrri löggjöf um tekjustofna sveitarfélaga almennt fyrir þetta þing. Var því horfið að því að gera nú till. um þær breyt., sem fært þætti á þessu stigi, en að öðru leyti mun þessi nefnd halda áfram störfum og stefna að því að hafa lokið undirbúningi þessara mála það tímanlega, að á næsta þingi í haust megi taka heildarlöggjöfina um tekjustofna sveitarfélaganna til meðferðar og afgreiðslu.

Í sambandi við athugun á tekjustofnum hins opinbera og við samningu fjárlaga varð það að samkomulagi innan ríkisstjórnar og milli stjórnarflokkanna að verða nú við þeirri gömlu og margítrekuðu ósk sveitarfélaganna að láta þeim í té nú þegar á þessu ári nýjan tekjustofn og þá fyrst og fremst þann tekjustofn, sem þau hafa lengst af óskað eftir að fá, sem er hluti af söluskatti. Var því svo ákveðið, eins og þegar hefur verið lögfest í lögunum um söluskatt, að fimmtungur af þeim söluskatti, sem á var lagður með þeim lögum, skyldi renna til jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna, m.ö.o. fimmtungur af 3% söluskattinum á smásölu og þjónustu og fimmtungur af hinum nýja 8% innflutningssöluskatti. Í fjárlagafrv. var gert ráð fyrir, að heildartekjur af þessum tekjustofnum yrðu 280 millj. og fimmtungur þess því 56 millj., sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. og einnig í því frv., sem hér liggur fyrir um jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

Ég verð að taka það fram að vísu, að í sambandi við fjárhagsmálefni sveitarfélaganna er auðvitað tvennt, sem sjálfsagt er að athuga jafnsnemma: annað er auknar tekjur, nýir tekjustofnar fyrir bæjar- og sveitarfélögin, og hitt að létta útgjöldum af þeim, sem nú eru á þeim hvilandi. Náttúrlega kemur hvort tveggja í einn stað niður. Hins vegar er verkaskipting ríkis og sveitarfélaganna mjög viðkvæmt og flókið mál og krefst mikillar og langrar athugunar, ef á að gera breyt. þar á. Það má vel vera, að rétt þyki, áður en langt um líður, að gera þar á breyt. Ég vil nefna sem dæmi að létta lögreglukostnaði af sveitarfélögunum, þannig að ríkið taki þann kostnað með öllu á sínar herðar, í öðru lagi að létta af sveitarfélögunum að einhverju leyti kostnaði við almannatryggingarnar eða þann hluta, sem á þeim hvílir nú. Það er fjölmargt fleira, sem hér kemur til athugunar, sem ég skal ekkert fullyrða um nú, en á þessu stigi hefur þótt rétt að taka strax þetta spor, að láta sveitarfélögin fá þennan hluta af söluskattinum.

Í gildandi lögum frá 1945 um fasteignaskatt bæjar- og sveitarfélaga o.fl. er einn kaflinn, II. kaflinn, sem fjallar um jöfnunarsjóð sveitarfélaganna. Tilgangur þess jöfnunarsjóðs er fyrst og fremst sá að jafna framfærslukostnað milli sveitarfélaganna og greiða fram úr fjárhagserfiðleikum sveitarfélaga samkv. lögum frá 1940 um eftirlit með sveitarfélögum. Þótti rétt að taka þessi lög um jöfnunarsjóð sveitarfélaganna til athugunar og gera um hann sérstakt frv., og liggur það hér fyrir.

Það er gert ráð fyrir, að hlutverk jöfnunarsjóðsins breytist. Annars vegar er gert ráð fyrir, að þessi jöfnun framfærslukostnaðar, sem hefur verið eitt aðalhlutverk jöfnunarsjóðsins, falli nú niður. Það virðist svo sem þessi ákvæði, sem byggjast á framfærslulögunum frá 1947, séu orðin úrelt, auk þess er nú búið að ákveða mjög auknar bætur almannatrygginga og þegar af þeirri ástæðu minni ástæða til þessarar jöfnunar en áður var. Þessi ákvæði um jöfnun framfærslukostnaðar eru því felld niður með þessu frv. Hins vegar kemur svo annað meginverkefni, sem greinir í 3. gr. a-lið og 2. gr., og það er að úthluta úr jöfnunarsjóði þessum hluta af söluskatti, sem þangað á að renna. Varðandi úthlutun úr jöfnunarsjóði á þessum fimmtungi af söluskatti er lagt til nú, eins og raunar hefur lengst af verið afstaða sveitarstjórnarsambandsins, að þessari upphæð verði skipt milli sveitarfélaganna eftir íbúatölu þeirra. Í fyrri frv. og till., sem legið hafa fyrir Alþ., flutt á ýmsum tímum og að ég ætla af þm. úr öllum flokkum stundum, hefur þessi verið till. jafnan, að hluta af söluskattinum skyldi skipt á milli sveitarfélaganna eftir íbúatölu. Þó er sett hér hámark, að ekkert sveitarfélag skuli þó fá hærri fjárhæð en nemur 50% af heildarútsvarsupphæð þess sveitarfélags árið á undan. Þetta er gert af þeirri ástæðu, sem greinir í athugasemdum varðandi 2. gr., að slík takmörkun sé nauðsynleg vegna þess, að ella þyrftu sum sveitarfélög ekki að leggja á útsvör eða þá svo óveruleg útsvör, að óeðlilegt mætti kallast. — Við athugun á fjárhagsmálefnum sveitarfélaganna kemur það nefnilega í ljós, að framkvæmdir þeirra, þjónusta og fjárþörf er svo ákaflega ólík, að ógerningur er að láta sömu eða jafnvel svipaðar reglur gilda um öll sveitarfélög landsins varðandi tekjustofna. Í sumum sveitarfélögum eru þarfirnar svo litlar, að því er virðist, að hluti þeirra af söluskatti, miðað við íbúatölu, mundi nægja fyllilega eða allt að því fyrir öllum þörfum sveitarfélagsins og því ekki verða neinna útsvara þörf. Þetta mundi skapa misrétti gagnvart íbúum annarra sveitarfélaga og vera í rauninni á marga lund mjög óeðlilegt, og af þessum ástæðum er þetta 50% hámark sett. Hins vegar er svo í ákvæði til bráðabirgða gert ráð fyrir, að á þessu ári skuli hámarkið vera 35%, en ekki 50%, og segir svo í aths. um bráðabirgðaákvæðið, með leyfi hæstv. forseta:

„Þar eð slíkt framlag sem gert er ráð fyrir í frv. þessu. er nýmæli, svo að sveitarfélög fá nú verulegan tekjuauka, sem lækkar útsvörin í mörgum sveitarfélögum hlutfallslega mjög mikið, yrði lækkunin á útsvörum þeirra nú á fyrsta ári óeðlilega mikil, ef ekki væri í fyrstu skipti miðað við lægri hundraðshluta en gert er ráð fyrir, þegar framlagið hefur valdið lækkun útsvaranna.“

M.ö.o.: á þessu ári er gert ráð fyrir, að sveitarfélögin fái hluta af söluskattinum eftir íbúatölu, en ekkert þeirra þó hærra en 35% af álögðum útsvörum árið 1959.

Varðandi greiðslur á söluskattinum er gert ráð fyrir því, að ríkissjóður greiði jöfnunarsjóði hluta af söluskattinum ársfjórðungslega eftir á.

Í 4. gr. eru svo hins vegar ákvæði um framlagið úr jöfnunarsjóði til sveitarfélaganna, og þar er ákveðið, að það skuli greitt missirislega eftir á fyrir 15. júlí og 15. jan. ár hvert.

Nú getur það komið fyrir, að þeir útsvarsstigar, sem gert er ráð fyrir að lögfesta og ég mun koma hér að á eftir í sambandi við það frv., gefi ekki sveitarfélagi þá fjárupphæð, sem nægi fyrir þörfum þess samkvæmt fjárhagsáætlun, og þá er gert ráð fyrir, að sveitarfélagið geti snúið sér til jöfnunarsjóðsins, og segir svo í 3. gr. d-lið, að hlutverk jöfnunarsjóðs sé m.a. að greiða aukaframlag til þeirra sveitarfélaga, sem ekki fá nægileg útsvör á lögð samkvæmt bráðabirgðabreytingunni á útsvarslögunum. Hins vegar er svo ákveðið í 5. gr., að ef sveitarfélag telur sér nauðsyn að fá sitt aukaframlag, skuli félmrn. hlutast til um ýtarlega rannsókn á fjárreiðum þess, og að slíkt aukaframlag skuli ekki veita fyrr en að lokinni rannsókn og eftir að teknar hafi verið til greina þær aðfinnslur, sem rannsóknin hafi gefið tilefni til.

Ég vil svo að lokum taka fram, að þetta frv., eins og það frv., sem hér er einnig á dagskrá, um bráðabirgðabreyting á útsvarslögum, er samið í nánu samráði við Samband íslenzkra sveitarfélaga.

Ég legg svo til, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.