07.04.1960
Neðri deild: 63. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2032 í B-deild Alþingistíðinda. (625)
113. mál, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Karl Guðjónsson:
Herra forseti. Í sambandi við þær umr., sem hér hafa orðið, sé ég aðeins ástæðu til þess að rísa enn úr sæti, enda þótt ekki sé um að ræða mikinn ágreining um stuðning við það frv., sem hér liggur fyrir. Ég hef áður lýst því yfir, að ég tel það til bóta, svo langt sem það nær, og mun að sjálfsögðu greiða því atkv. En það er sumt af því, sem fram hefur komið í umr., sem ég sé ástæðu til þess að líta svolítið frekar á.
Í sambandi við það, sem sagt hefur verið hér um útsvarsstigana, hefur það helzt verið fært fram til varnar því að hafa það svo sem frv. gerir ráð fyrir, að þessir stigar séu ekki endanlegir, þetta sé ekki lögfesting á einum stiga, sem gilda skuli hverju sem tautar og raular. Þetta er rétt. Ég vil viðurkenna það, að frv. gerir ráð fyrir því, að út frá þessum stigum megi breyta útsvörum. En þeir eiga þó að vera hlutfallið. Breyt. felst hins vegar í því, að ef tekjuþörf viðkomandi sveitarfélags eða bæjarfélags er meiri eða minni en sú útsvarsálagning, sem stiginn gerir ráð fyrir, þá má hreyfa gjöldin til. Engu að síður er þetta lögfesting á hlutum, sem eru líklegir til þess að verða leiðarsteinn fyrir sveitarstjórnirnar við álagningu, og er þar af leiðandi nokkurs konar viljayfirlýsing Alþingis, en hún er að sjálfsögðu stefnumótandi að verulegu leyti. Þar af leiðandi, þó að stigarnir séu ekki óhreyfanlegir, ekki óumbreytanlegir, eru þeir samt sem áður sú leið, sem Alþingi markar, og að því leyti tel ég hana vera slæma, að hún mismunar þegnum landsins, líka þeim, sem þurfa nákvæmlega sams konar þarfir að uppfylla, en það tel ég að séu nákvæmlega sams konar þarfir, sem íbúarnir í Reykjavík og íbúarnir í öðrum kaupstöðum landsins þurfa sameiginlega að framkvæma.
Varðandi það, sem hæstv. fjmrh. hafði hér til málanna að leggja, kemur enn fram sú sorglega staðreynd, að við erum ekki ævinlega sammála um tölur. Hann telur, að ég og hv. 4. landsk. þm. (HV), sem lét orð falla nokkuð á sömu leið og ég, munum hafa hagað máli okkar eins og við gerðum sökum þess, að við höfum enga tölulega grein gert okkur fyrir því, hver áhrif efnahagsráðstafana ríkisstj. mundu verða á útgjöld bæjarfélaganna. Nú skal ég að vísu játa það, að ég hef ekki sett upp reikninga neins heils bæjarfélags um þetta. En ég tel ekki heldur, að þess sé þörf til þess að gera sér grein fyrir því, að bæirnir yfirleitt tapa á þeim efnahagsráðstöfunum, sem þetta þing hefur gert, enda þótt til komi jöfnunarsjóðstekjurnar, sem bæirnir fá væntanlega í gegnum jöfnunarsjóð af söluskatti, og vil ég nú aðeins nefna tölulega örfá dæmi um þetta og biðja þá hæstv. ráðh., ef ég fer með rangt mál, að hrekja það, sem ég segi.
Ef við lítum hér rétt suður fyrir höfuðborgina, suður í Hafnarfjörð, stendur svo á með þann kaupstað, að samkvæmt íbúafjölda mun hann eiga von í að fá af söluskattinum í gegnum jöfnunarsjóð 2–2.2 millj. kr. Á hinn bóginn er nýbúið að skipa þar á land járni í eitt bryggjuþil, sem bærinn ætlar að reka niður á þessu ári. Hækkunin á þeim eina lið, járninu í bryggjuna í Hafnarfirði, nemur 11/2 millj. kr. Auk þess er þessi bær með á prjónunum skólabyggingu, íþróttahúsbyggingu og ýmislegt fleira, og á þessum tilteknu liðum er sýnilegt að hverfa muni að öllu það jöfnunarsjóðsgjald, sem þessi bær á von í. En auk þess er þessi bær að kaupa togara. Það var áætlað, að togarinn mundi kosta 25 millj. kr. Eftir efnahagsráðstafanir ríkisstj. er sýnilegt, að togarinn Maí, sem kemur væntanlega á þessu vori til Hafnarfjarðar, muni ekki kosta 25 millj., heldur 40 millj. Ætli bærinn fái þetta upp borið af jöfnunarsjóðsgjaldinu? Þá kann hæstv. fjmrh, meira fyrir sér en ég í töluvísi, ef hann getur sannað hagnaðinn, sem Hafnarfjarðarbær hefur af þessu.
Ef við lítum í hina áttina frá Reykjavík. upp á Akranes, og skoðum, hver áhrif efnahagsráðstafanirnar hafa á fjárhag þess bæjar, þá hef ég nú orðið var við það í fjvn., að þar hafa verið lögð fram sönnunargögn, sem ég tel algerlega óyggjandi, um það, að útgjöld hafnarinnar, sem er að heita má fullbyggð höfn, en verður að standa undir allmiklum lánum, sem tekin voru til hafnargerðarinnar, hækka á þessu yfirstandandi ári um því sem næst 2.4 millj. Á hinn bóginn mun Akraneskaupstaður eiga von í því að fá 1–1.2 millj. kr. úr jöfnunarsjóði. Ætli hann hagnist ekki óskaplega á ráðstöfunum ríkisstj.? Það væri a.m.k. gott fyrir þá á Akranesi að vita það, ef þeir eiga hagnaðarvon af ráðstöfunum ríkisstj., því að ég veit til þess, að þar er nokkur uggur í mönnum um hið gagnstæða.
Ég sé ástæðu til þess að víkja aðeins að mínu heimabyggðarlagi í leiðinni, Vestmannaeyjakaupstað. Hann mun eiga von í að fá nú úr þessum jöfnunarsjóði um 11/2 millj. kr. Hann ráðgerir hins vegar kaup á járnþili líkt og Hafnarfjarðarbær á þessu ári. Hvort hækkunin á því kemur til með að nema nákvæmlega sömu upphæð og í Hafnarfirði, veit ég ekki með vissu, en mér þykir líklegt, að í það eitt fari jöfnunarsjóðsgjaldið, verðhækkunina á því. En auk þess hefur Vestmannaeyjahöfn á þessu ári gert smíðasamning um hafnarbát, bara einn lítinn bát, til þess að flytja hafnsögumenn um höfnina í Eyjum og til annarra þarfa innan hafnar. Á þessum eina bát verður verðhækkun, sem nemur 2–3 millj., fyrir efnahagsaðgerðir ríkisstj. Það kæmi sér líka ágætlega fyrir okkur Vestmanneyinga, ef hæstv. fjmrh. getur bent okkur á það, svo að gagni verði, að við höfum hag af þessum ráðstöfunum hans.
Ég hirði ekki um að rekja þessa sögu öllu lengra, en vænti þess, að hæstv. ráðh. geti sýnt mér fram á, að það, sem ég og hv. 4. landsk. þm. höfum hér sagt, sé fleipur eitt. Það mundi gleðja mig, ef svo væri. En uggur minn stendur nú enn um það, að hér hafi ríkisvaldið, Alþingi undir forustu ríkisstj., farið einmitt þannig að, að það séu hinar þyngstu búsifjar fyrir bæi landsins, enda þótt til komi það jöfnunarsjóðsgjald, sem hér er til umræðu.
Svo vil ég að lokum spyrja hæstv. fjmrh. alveg beint. Hann sagði hér áðan, að það hefði verið gerður útreikningur á þessu. Ég vil spyrja: Hjá hvaða bæjarfélagi, hjá hvaða sveitarfélagi eða félögum hefur sá útreikningur verið gerður? Og ég vil óska alveg sérstaklega eftir því, að á Alþ. verði gefin skýrsla um hann, þann reikning, sem kann að sýna það hjá hæstv. fjmrh., að hér sé um að ræða aukinn og bættan hag hjá bæjarfélögunum, þegar saman er lagt það frv., sem hér er um að ræða, og aðrar þær ráðstafanir, sem af stjórnarvaldanna hálfu hafa veríð gerðar á þessu ári. Ég mun fagna því, ef sú er útkoman. En á meðan ég ekki sé slíka útreikninga, hef ég mínar hugmyndir, og þess vegna óska ég alveg sérstaklega eftir því, að hæstv. fjmrh. leggi slíka útreikninga fullgerða fyrir tiltekin og ákveðin bæjarfélög eða sveitarfélög í landinu fram hér á Alþingi, svo að við alþm. þurfum ekkert að vaða í villu og svima um það, hvað hér er að ske.