14.03.1960
Neðri deild: 47. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2051 í B-deild Alþingistíðinda. (655)
75. mál, jarðræktarlög
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Frsm. landbn. hefur, eins og hv. dm. er kunnugt, vikið af þingi, og ég vil því koma í hans stað.
Landbn. hefur fjallað um 75. mál, sem er frv. til l. um breyt. á jarðræktarlögunum, og er sammála um að mæla með þeirri breyt., sem þar greinir. Að auki leggur n. til, að annað atriði verði tekið inn í þetta frv., og er frekar ástæða til þess að gera hér örstutta . grein fyrir því.
Eins og menn muna, var á tímabili næstsíðustu ríkisstj. sett í lög ákvæði um sérstakan stuðning ríkisins til þess að auka ræktun og stækka minnstu býlin í landinu. Var þar miðað við 10 hektara stærð og ætlunin að gera sérstakar ráðstafanir til, að hægt væri að stækka öll þau býli, sem eru undir því marki, en teljast hafa ræktunarskilyrði og þar af leiðandi líklegt, að hægt sé á hagkvæman hátt að stækka þau. Síðan þessi ákvæði voru sett í lög, hefur landnám ríkisins látið vinna mjög mikið starf, sem er óhjákvæmilegur undirbúningur, en það er mæling, kortlagning á þessum jörðum. Og með nál. á þskj. 172 fylgir grg. frá landnámsstjóra, þar sem nákvæmlega er til tekið, hversu langt þessu starfi er komið. Þar að auki er búið að vinna allmikið á þessum jörðum samkv. þessum ákvæðum. En þó má segja, að þetta starf hafi ekki gengið eins hratt og upphaflega var ætlað, og er því ástæða til þess að framlengja það tímabil, sem talið var að duga mundi til að koma þessu í framkvæmd.
Upphaflega var ætlunin, að þetta skyldi gilda til ársloka 1960, en nú er lagt til, að þetta ákvæði um stuðning við jarðir, sem eru innan við 10 hektara, skuli gilda áfram til ársloka 1964. Hér er ekki um neina aðra breyt. að ræða en óhjákvæmilega leiðréttingu á tímanum, m.ö.o., það þarf að taka dálítið lengri tíma en upphaflega var ætlað að koma þessu í framkvæmd.
Um nánari atriði þessa máls vísa ég til grg. landnámsstjóra, sem fylgir með nál., en till. landbn. er eingöngu, að fyrir orðin „til. ársloka 1960“ komi: til ársloka 1964.