26.04.1960
Efri deild: 65. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2060 í B-deild Alþingistíðinda. (670)

75. mál, jarðræktarlög

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Ég get verið hv. síðasta ræðumanni, hv. 1. þm. Vesturl. (ÁB), sammála um það, að nauðsynlegt er að stuðla með sem flestum og beztum ráðum að því að auka landbúnaðarframleiðslu. En að því er snertir brtt. þá, sem hér er til umr. nú, tel ég rétt að gefa ofur litlar upplýsingar um það, hvað þetta mundi koma til með að geta kostað strax á fyrsta ári.

Eftir því sem mig minnir, og ég held ég muni það rétt, þá eru áætlaðar á fjárlögum núna 12 millj. til framræslu, og till. sú, sem hér liggur fyrir, mundi því sýnilega koma til með að kosta allmikið fé, nokkuð á þriðju milljón virðist mér svona í fljótu bragði, ef þessi áætlun er nærri lagi, sem maður veit náttúrlega ekki nákvæmlega um.

Í öðru lagi vil ég gjarnan segja það, að ég er talsvert mikið kunnugur þessum framræslumálum, því að í mínu byggðarlagi hefur verið mikið gert af skurðum. Fyrsta tímann, sem skurðgröfur voru þar að verki, var greiddur rétt um 1/3 eða eitthvað 33% kostnaðar af framræslunni. Þetta þóttu okkur raunar allgóð kjör þá, að geta gengið undir þetta, síðan smáhækkaði þetta upp í 65% af kostnaði, og nú hef ég ekki orðið annars var en að þeir, sem þurfa að láta ræsa fram land eða geta fengið framræst hjá sér land, séu allvel ánægðir með þetta, eins og komið er. Þess vegna verð ég að segja það, að ég hef ekki orðið var við neinar verulegar raddir um, að þetta framlag væri óeðlilega lágt nú, þær eru að sjálfsögðu einhvers staðar til, eins og gerist og gengur í öllum málum. En það eru náttúrlega mörg og mýmörg mál, sem menn kysu að hægt væri að styrkja með fé frá hinu opinbera, og ég tel, að þetta mál sé ekki eitt af þeim, sem mest knýi á að auka framlög til, að því er snertir landbúnað, heldur séu þar ýmisleg önnur mál, sem jafnvel ættu að ganga fyrir, og á þessu stigi tel ég ekki tímabært að samþykkja þessa till.