02.12.1959
Neðri deild: 7. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (68)
16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Það er ljóst, að fjárlög fyrir árið 1960 er ekki unnt að afgreiða fyrir áramót. Af þeim ástæðum hefur nú verið borið fram frv. um bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði á næsta ári, og er frv. alveg samhljóða þeim frv. og lögum, sem áður hafa verið afgreidd, þegar svipað hefur staðið á. En þetta frv. er tímabundið við febrúarlok.
Frv. var lagt fram í Ed. og hefur verið afgreitt þaðan. Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn.