02.12.1959
Neðri deild: 7. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í B-deild Alþingistíðinda. (70)

16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Mér þykir leitt til þess að vita, að ég sé ekki fjmrh. hér í salnum, en til hans hefði mig sérstaklega langað að beina máli mínu. En fyrst hann er ekki hér, þá leyfi ég mér samt sem áður að segja það, sem ég þarf, og beina máli mínu til hans í þeirri von, að honum berist a.m.k. efnislega það, sem ég hef hér sagt, áður en langt um líður, og hann geti svarað því þá síðar í þessum umræðum. Á fundi í Sþ. í dag urðu einmitt svolítil orðaskipti milli mín og þess hæstv. ráðh. varðandi þau vinnubrögð, sem til er stofnað með framlagningu þess frv., sem hér er til umræðu. Ég drap þar á það, að hæstv. dómsmrh. hafði nokkru fyrr, að því er mér virtist með nokkrum ásökunarsvip í minn garð, haldið því fram, að haustið 1957 hefði verið rasað um ráð fram við setningu fjárlaga, þar hefði verið flaustrað af afgreiðslum á óhóflega skömmum tíma. Ég gat þess þá og vil endurtaka það hér, að haustið 1957 fór fjárlagaafgreiðsla fram með þeim hætti, að þing byrjaði einn af fyrstu dögunum í októbermánuði, fjvn. var sett á laggirnar mjög fljótlega og það var flutt framsöguræða með fjárlagafrv. og því vísað til n., og n. hafði frv. til meðferðar í um það bil 2 mánuði. Þetta mun hafa átt við um haustið 1957, en fjárlög fyrir 1958 voru afgr, hér á Alþingi hinn 20. des. Af þeirri ályktun þess hæstv. ráðh. þykist ég mega draga þá ályktun, að hann telji tveggja mánaða tíma of skamman — óhóflega skamman — fyrir fjvn. til þess að hafa fjárlagafrv. til meðferðar, áður en það kemur til samþykktar í Alþingi. Hafi þessi regla gilt þá, þá sé ég ekki annað en hún eigi við enn þá, og með því að af hálfu núverandi hæstv. ríkisstj. er til þess efnt, að fjárlagafrv. það, sem nú hefur verið lagt hér inn í þing, komi aldrei til umræðu, heldur verði lagt fram nýtt frv. til fjárlaga, eftir að þing kemur saman að nýju, þá þykir mér auðsætt, að ekki muni það fjárlagafrv. liggja frammi fyrr en um mánaðamótin jan.–febr. Og með því að tveir mánuðir teljast að áliti Sjálfstfl. of skammur tími til afgreiðslunnar, þá er útilokað, að fjárlög geti orðið tilbúin fyrr en í fyrsta lagi um miðjan apríl. En þó þykir mér líklegra, að það mundi síðar verða, því að að óreyndu vil ég ekki halda því fram, að neitt verði rasað um ráð fram við setningu þeirra laga.

Nú er ég þeirrar skoðunar, að það sé með öllu óeðlilegt að stofna fyrir fram og vitandi vits til þess, að landinu verði stjórnað án fjárlaga, kannske heilan þriðjung af ári. Og þá er ég kominn að því, sem ég þurfti sérstaklega að ræða við hæstv. fjmrh., því að hann sagði einnig og með beinni ásökun í minn garð, að það hefði komið fyrir undir minni forustu í fjvn., að setning fjárlaga hefði dregizt fram á vor. En þetta segir hann einmitt satt. Þetta gerðist á yfirstandandi ári, árinu 1959. Fjárlög þessa árs voru samþ. endanlega hér á þingi hinn 29. apríl, en það þýðir, að landinu var stjórnað fjárlagalaust þriðjung ársins. Ég mæli ekki með þessu. Hinu vil ég andmæla gersamlega sem ódrengilegri ásökun í minn garð, að það hafi verið mér að kenna eða fjvn. sem slíkri, að afgreiðsla fjárlaga dróst svo lengi. Hæstv. fjmrh. ætti að vita það, sem allir þm. vissu þá og vita vafalaust enn þá, að vart er hægt að afgreiða fjárlög, fyrr en sú ríkisstj., sem að völdum situr hverju sinni, er til þess tilbúin.

Nú stóð einmitt svo á, að á yfirstandandi ári, árinu 1959, sat að völdum mestan hluta ársins ríkisstjórn, sem einmitt Sjálfstfl. kom á laggirnar og studdi, þ.e.a.s. stjórn Alþfl., og þætti mér nokkurs um það vert, að ráðh. úr þeim flokki, sem enn þá eru í ríkisstj., gæfu hér um það yfirlýsingar, hvort þeir hafi um eitt eða neitt við fjvn. að sakast um það, að afgreiðsla fjárlaga dróst þetta langt fram á árið.

Ég ætti ekki að þurfa að rifja upp þau fræði fyrir hæstv. fjmrh., þótt hins vegar framkoma hans og ræðuhöld hér í dag gefi nokkurt tilefni til þess að álykta hið gagnstæða, að vinnubrögð fjvn. hafa verið með þeim hætti að undanförnu, að n. hefur jafnan byrjað á því að kynna sér framlagt fjárlagafrv., bera það saman við fjárlög liðins eða líðandi árs og einnig við síðasta tiltækan ríkisreikning, sjá hverjar hreyfingar þar eru á ferðinni. Síðan hefur n. í mörgum tilfellum og raunar flestum kynnt sér ástand og horfur hjá hinum ýmsu og margvíslegu ríkisstofnunum. Hún hefur kallað á sinn fund menn frá þeim og spurt þá um reksturinn, spurt þá um horfurnar og fengið sínar upplýsingar hjá þeim og komizt með þeim hætti inn í málefni fjölmargra ríkisstofnana. Einnig hefur n. í mörgum tilfellum talið ástæðu til þess að heimsækja annaðhvort ríkisstofnanirnar eða þá staði, þar sem sérstaklega var um að ræða einhvers konar vandamál fjárhagslegs eðlis, sem ríkið þurfti með einhverjum hætti að blanda sér í eða til mála hafði komið að ríkið gerði. Enn fremur hefur n. að sjálfsögðu tekizt á hendur þann vanda að gera tillögur sínar um það, hvernig skipta beri fé til hinna ýmsu framkvæmda í landinu, t.d. til lagningar þjóðvega, til brúagerðar, til hafnagerðar, til skólabygginga, til flugvallagerðar o.s.frv. Það er ekki torskilið, að fjvn. á í rauninni ómögulegt með að gera tillögur um þessa hluti, fyrr en hún hefur hugmynd um það og þá ævinlega í samráði við ráðandi ríkisstj., hversu háar fjárhæðir er hægt að ætla til þessara framkvæmda hverrar um sig. Og tillögurnar um skiptingu á hina einstöku vegi, á hinar einstöku brýr o.s.frv. getur hún að sjálfsögðu ekki gert, fyrr en hún hefur nokkurn veginn fast undir fótum um það, hverjum fjárhæðum hún hefur yfir að ráða til þess arna eða hverjar fjárhæðir muni verða samþykktar til þess af Alþingi sem slíku.

Ég þykist hér með hafa sýnt fram á það, að þótt fjvn. sé að sjálfsögðu virðingarverð stofnun innan Alþingis, þá er hún ekki þess megnug að ráða til fulls fjárlögum nema í samráði við ráðandi ríkisstjórn. Þær ásakanir, sem hæstv. fjmrh. hefur hér haft uppi í garð fjvn. og sérstaklega beint til mín sem fyrrv. formanns þeirrar n., tel ég því falla ómerkar, með því að töfin í það skipti, sem afgreiðsla fjárlaga dróst óhóflega lengi, meðan ég hef átt sæti í þeirri n., hlýtur að teljast á reikning hæstv. fyrrv. ríkisstj. og með öllu ómaklegt að saka n. þar um.

En ég hjó eftir því í ræðu hæstv. fjmrh. hér í dag, að hann hefur ekki hugsað sér að láta fjárlagaafgreiðsluna taka lengri tíma, eftir að hann hefur lagt fram hið væntanlega fjárlagafrv., sem hann boðaði hér í dag að gert mundi, heldur en einn mánuð eða þó raunar, eins og hér hefur verið sýnt fram á, ekki heilan mánuð. Það mætti segja mér, að þeir, sem töldu fjárlagaafgreiðslu vera hreint flaustur á tveimur mánuðum, hefðu nú kannske eitthvað við þessa ákvörðun hæstv. fjmrh. að athuga, að ætla að koma öllu því starfi, sem ég hef hér aðeins lýst litlu broti af, — að koma því af á einum eða minna en einum mánuði. Ég held, að sæmra hefði verið fyrir hæstv. fjmrh. að fara að lögum og taka hér fjárlagafrv. sitt, það sem fyrir liggur, til 1. umr., vísa því síðan til fjvn. og að sú n. gæti hafið eðlilegan undirbúning að afgreiðslu fjárlaga. Ég efast ekkert um það, að hv. 6. þm. Norðurl. e., sem nú hefur tekið sæti sem form. fjvn., er mjög reyndur og gegn maður og til þess líklegur að geta unnið gott starf í þeirri n. sem slíkur, og ég held, að það hefði engin goðgá verið af hæstv. fjmrh. að leggja fjárlagafrv. í hendurnar á n. undir forustu Magnúsar Jónssonar, hv. 6. þm. Norðurl. e., og þar hefði verið fjallað um þær nauðsynlegu breytingar, sem hæstv. fjmrh. teldi sig þurfa að gera á frumvarpinu.

Hæstv. fjmrh. hefur lagt sig mjög eftir lögum og verið prófessor við Háskóla Íslands í þeirri grein um nokkurt árabil. Það er máske þess vegna, sem hann leyfir sér að viðhafa þær aðferðir, sem hann hér hefur boðað. Mér og væntanlega fleirum, sem ekki hafa jafnmikla kunnáttu í þeirri fræðigrein, lögfræði, og hæstv. fjmrh. hefur, mundi hreinlega finnast það lögbrot að fara að með þeim hætti, sem hann hér boðar að hann muni gera og hefur að nokkru gert, þ.e.a.s. með því að leggja hér fram frv. til fjárlaga og lýsa því nokkurn veginn samhliða yfir, að það sé ekkert að marka þetta plagg, þetta sé bara til málamynda, hann sé ekki einu sinni í góðri trú um það, að þetta sé skaplegt plagg, heldur í fullri vissu um það, að þetta sé ógurlegt plagg og plagg, sem eigi ekki að afgreiðast á þessu þingi. Það kann vel að vera, að sitthvað hafi verið fyrir af rusli og ónýtum pappírum í fjmrn., þegar hæstv. núverandi fjmrh. kom þar, og ég skal að óreyndu ekkert efast um það, að þar hafi verið þörf á einhvers konar hreingerningu, þar hafi gjarnan mátt sópa ýmsu út og koma fyrir kattarnef. En hitt verð ég rétt að segja, að ég tel það fullkomna ósvífni að ætla að nota Alþingi fyrir öskutunnu fjmrn. og henda hingað ónýtum plöggum úr því ráðuneyti.

Meðal þess, sem Sjálfstfl. notar hér til afsökunar þeim einstöku vinnubrögðum, sem hér eru viðhöfð, er það, að hann sé málum ekki nægilega kunnugur, hann þurfi að kanna fjármál ríkisins og fjárreiður þjóðarbúsins, til þess að hann geti gert hér nokkrar tillögur. Ég hef áður bent á það og sé, að það veitir ekki af að benda á það öðru sinni, að allt slíkt hlýtur að vera hreinn uppspuni hjá þeim ágæta flokki. Annaðhvort er hann ekki vandanum vaxinn sem stjórnmálasamtök eða hann segir hreinlega ósatt um það, að hann hafi ekki þá þekkingu til að bera á fjármálum þjóðarinnar, að hann geti gert sínar tillögur. Fyrir ári eða um það bil lýstu blöð þessa hv. flokks því yfir, að nú hefði flokkurinn, þ.e.a.s. formaður flokksins fyrir flokksins hönd, tekið í sína vörzlu mikið af plöggum og skilríkjum varðandi fjármál Íslendinga og hann hefði sett alla sína færustu sérfræðinga, viðskiptafræðinga og hagfræðinga, í að kanna þessi gögn til þess að komast að niðurstöðu um það, hvort flokkurinn ætti að taka að sér stjórnarmyndun eða ekki, eins og við hann hafði verið orðað af forseta Íslands. Allir sérfræðingar Sjálfstfl. höfðu þessi plögg með höndum, — ég veit ekki, hvað lengi, kannske eru þau hjá þeim enn þá, — en það hljóta að vera heldur tornæmir sérfræðingar, ef þeir hafa allan tímann legið í þessum plöggum og eru ekki komnir með neina útkomu enn þá, og ég fyrir mitt leyti verð þá að leyfa mér að efast um, að sú útkoma verði frekar fengin fyrir 28. jan. heldur en nú er. Hvað í þessum plöggum hefur staðið, það hef ég að sjálfsögðu enga möguleika til að rekja. En hitt veit ég þó, og það veit allur þingheimur, að eftir athugun á þessum plöggum myndaði Sjálfstfl. stjórn. Að vísu gerði hann það ekki sjálfur, hann fór að svipað og formenn gera stundum, ef þeir hafa ekki réttindi til þess að vera með bátinn sinn eða hafa ekki nægilega gott taugakerfi til þess að bera ábyrgðina sjálfir, hann fékk sér lepp, þ.e.a.s. réð Alþfl. til þess að mynda ríkisstjórn. Alþfl. gerði þetta, en Sjálfstfl. hafði eftir sem áður alla forustu um setningu fjárlaga og um setningu nýrra laga um útflutningssjóð og tók þar með að sér að hafa forustuna um lögþekkingu á öllu því, sem til þurfti að stjórna fjárreiðum ríkisins á yfirstandandi ári. Og það má hafa til marks um það, hvort plöggin, sem Sjálfstfl. og hans fulltrúar rýndu í á þeim dimmu desemberdögum í fyrra, muni hafa verið eins óskapleg og ægileg og sá virðulegi flokkur vill stundum vera láta, að þegar við fengum fjárlögin í hendur, samþykkt af þeim sjálfstæðismönnum og Alþfl.-mönnum, þá voru þar í tekjudálkum stórar fúlgur fjár, sem voru afgangar frá fyrra ári, afgangar frá tíð fyrrv. ríkisstjórnar. Við heyrðum líka meira en óminn af því í nýafstaðinni kosningabaráttu, þegar báðir hv. stjórnarflokkar, Sjálfstfl. og Alþfl., héldu því fram, að aldrei hefði verið blómlegra í kössum hins opinbera en einmitt nú, útflutningssjóður hefði aldrei staðið með neitt svipuðum blóma og einmitt nú og ríkissjóður stæði einnig vel. Og í því fjárlagafrv., sem að vísu hæstv. fjmrh. telur okkur nú trú um að ekkert sé að marka, stendur skýrum stöfum í grg., að ekki þurfi að búast við því, að það verði neinn greiðsluhalli hjá ríkissjóði á yfirstandandi ári. En það er hitt, sem við heyrum ekki nema óminn af, það sem hæstv. forsrh. vill ekki segja hér í þingsölum og segist lítið um vita, þegar hann er hér, en kveður upp úr með á fundum í sínu stjórnmálafélagi, að það muni vanta einn kvartmilljarð króna, til þess að ríkið geti haft fjármuni upp í sín útgjöld á næsta ári.

En það er fleira, sem er dálitið einkennilegt í framkomu hæstv. ríkisstj. í sambandi við það frv., sem hér liggur fyrir, og í sambandi við fjármál þjóðarinnar yfirleitt, sem frv. að víssu leyti tekur til.

Frv. er fram komið vegna þess, að hæstv. ríkisstj. telur sig fyrir hvern mun þurfa að vera alþingislausa um skeið til þess að geta gert eitthvað í efnahagsmálum þjóðarinnar. Ríkisstjórn undir forustu þess sama aðila, sem hæstv. núverandi ríkisstjórn er, sýndi sig í því á árunum 1953–56 að hugsa harla lítið um það, hver yrði framleiðsla íslenzku þjóðarinnar. Í hennar tíð voru t.d. að mestu látin niður falla meiri háttar skipakaup til landsins, a.m.k. hrörnaði fiskiskipastóllinn verulega í hennar tíð. Og það var ekki nóg með það, að skipum fækkaði eða að heildarstærð skipastólsins rýrnaði, heldur lágu þau skip, sem íslenzkir aðilar áttu og ríkisstjórnin að ýmsu leyti var raunverulega stærstur eigandi að, vegna þess að þau voru keypt fyrir ríkisfé og ríkið hafði veð í þeim, mörg hver vikum og mánuðum saman án þess að ýta úr vör, án þess að verða íslenzku þjóðarbúi að nokkru gagni. Ég minnist þess t.d. einn veturinn af þeim þremur, sem hæstv. fyrrv. ríkisstj. Ólafs Thors frá árunum 1953—56 sat að völdum, vegna þess að ég á vanda til þess að labba stundum niður að höfn, að heilan vetur lá einn ágætur togari hér ævinlega bundinn við bryggju, hann fór aldrei út á fiskimiðin, jafnvei þó að væri hávertíð og fiskigengd ágæt hér á íslenzkum miðum. Og hvers vegna fór hann ekki? Jú, það var vegna þess, að sú virðulega ríkisstj., sem raunverulega var eigandi skipsins, gat ekki komið sér saman um það, hvern hún ætti að skrá sem eiganda að þessu skipi. Raunverulega var íslenzka ríkið eigandi þess sem sá aðili, sem leysti út þær kröfur, sem á skipinu hvíldu. Það var sem sagt deilt um það, hvernig ætti að bóka þetta skip. Þess vegna var því kippt út úr framleiðslunni og ekkert látið gera.

Það hefur margt verið sagt misjafnt af Sjálfstfl. hálfu um vinstri ríkisstjórnina. Það lá þó fyrir hreinlega um þá stjórn, að slíkt kom aldrei fyrir í hennar tíð, aldrei nokkru sinni. En ef maður gengur hér niður að höfn nú, þá sjást þess greinilega merki, að það er setzt að völdum ný stjórn Ólafs Thors, ný stjórn Sjálfstfl. Togarinn Austfirðingur er lagztur hér sams konar legu og togarinn Keflvíkingur, eins og hann hét þá, lá hér lengst, vegna bókhaldsörðugleika hjá ríkisstjórninni. Ég hygg, að það séu sams konar örðugleikar og sams konar ráðleysi núverandi ríkisstjórnar, sem veldur því, að slíkt ágætisskip sem hér um ræðir skuli ekki fara út á miðin til þess að draga björg í þetta þjóðarbú.

Það getur vel verið, að það sé hollt og gott fyrir ríkisstj. að þurfa ekki að svara þeirri gagnrýni, sem stjórnarandstaða hlýtur jafnan að hafa uppi varðandi þau mál, sem illa fara úr hendi hjá ríkisstjórninni. En mér dettur í hug í sambandi við þá till., sem hér liggur fyrir, till. um bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði á tímabilinu fram til febrúarloka n.k., að spyrja um þáð: Eiga þær bráðabirgðafjárgreiðslur einnig að ná til ríkisábyrgða?

Ég vil sérstaklega spyrja að gefnu því tilefni, sem ég hér hef nefnt, að togarar landsmanna, þau stórvirku framleiðslutæki, eru þegar teknir að stöðvast, vegna þess að eigendur þeirra, hinir skráðu eigendur, standa ekki í skilum með sínar skuldbindingar, en ábyrgðir falla á ríkissjóð: Er það meiningin, að ríkisstjórn Íslands, hæstv. núverandi ríkisstjórn, óski eftir því að hafa ekki í höndum neinar lagaheimildir um næsta 2 mánaða skeið til þess að inna af hendi fjárgreiðslur til að halda íslenzkum fiskiskipum í gangi, til þess að koma í veg fyrir það, að til framleiðslustöðvunar komi, svo sem nú er þegar tekið að bóla á? Ég held, að það væri sæmra fyrir ríkisstj. að ganga beint til verks og reyna að leysa þann vanda, sem á höndum er í þessu tilfelli og í allmörgum fleiri tilfellum, þótt ekki sé komið eins langt í þeim mér vitanlega og nú er komið varðandi þetta tiltekna skip, — að það væri sæmra fyrir ríkisstj. að leita eftir því að fá afgreiddar lagaheimildir til þess að geta komið í verk þeim greiðslum, sem nauðsynlegar kunna að vera, til þess að okkar beztu framleiðslutæki þurfi ekki að stöðvast, heldur en að beina öllum áhuga sínum að því að koma Alþingi burt af sínum verustað.

Það er á allra vitorði, að einmitt á þeim tíma, sem hæstv, ríkisstj. hefur fyrirhugað að láta Alþ. hvergi koma nálægt þjóðmálum, er samkv. venju og samkv. sérstökum ástæðum, sem skapazt hafa, alveg sérstök og einstæð vá fyrir dyrum í íslenzku þjóðlífi. Ætli það hafi t.d. farið alveg fram hjá hæstv. landbrh., að undanfarna daga hefur farið fram atkvgr. meðal bænda um það, hvernig bregðast skuli við þeim vandamálum, sem íslenzkur landbúnaður er nú staddur í varðandi verðlag á afurðum, og að í þessari atkvgr., sem ég að vísu veit ekkí úrslit í enn þá, er líklegt að veitt verði heimild til handa stjórn stéttarfélags bænda að boða hreinlega stöðvun afurðasölu á búvörum að meira eða mínna leyti hinn 15. des. ? Væri ekki sæmra að reyna með aðstoð Alþingis að leysa slíkan vanda heldur en að ætla að keyra allt í hnút með því að senda Alþingi heim, en láta ríkisstj. eina eiga við það að greiða úr þeim vanda, sem hér getur verið í uppsiglingu og ég óttast að sé í uppsiglingu. Þegar tekið er sérstakt tillit til þess, að í ríkisstj. er þannig ástatt, að annar ríkisstjórnarflokkurinn segir þar hreinlega nei, þar sem hinn segir já, þá held ég, að það væri fremur ríkisstjórninni til happs, fremur ríkisstjórninni til gæfu, að hún mætti njóta aðstoðar Alþingis til þess að leysa slík vandamál, heldur en að senda Alþingi heim og ætla síðan að glíma innbyrðis í stjórninni um málin, þar sem mér skilst, að engin úrslit séu fáanleg. Það hefur verið fullyrt hér í blöðum, að ekki geti komið til þess, að mál verði afgreidd í ríkisstjórninni með því að leita þar atkvæða um þau, því að annar stjórnarflokkurinn og sá, sem hefur á hendi stjórnarforustuna, hafi beinlínis afsalað sér einu atkv. í stjórninni, þannig að þar geti hvorugur borið af öðrum. Þessu hefur ekki verið beinlinís mótmælt mér vitanlega, og hygg ég því, að ríkisstj. standi eftir algerlega ómegnug að leysa þann vanda, sem hér er í uppsiglingu.

Það er kannske að bera í bakkafullan lækinn að minnast á vinnubrögð ríkisstj. að öðru leyti í sambandi við þetta mál, þar sem það hefur mjög verið rætt hér að undanförnu. En ég fyrir mitt leyti á bágt með að skiljast svo við þetta mál, að ég minnist þess ekki einnig, að hér er verið að fremja, að því er mér virðist, annað lagabrotið frá af stjórnarinnar hálfu. Ég hef þegar minnzt á það, að það, sem ríkisstj. gerir í sambandi við fjárlög, getur ekki litið öðruvísi út frá mínum bæjardyrum heldur en sem lagabrot, og það lítur ekki heldur út frá mínum bæjardyrum öðruvísi en hreint lagabrot að ætla að sniðganga þá lagaskyldu að leggja brbl. fyrir Alþingi, en það hefur, svo sem margsinnis hefur verið rætt, verið hreinlega gert hér, með því að hæstv. ríkisstj. leggur ekki fyrir brbl. hæstv. fyrrv. ríkisstj. um verðlag á landbúnaðarvörum. Mér þykir þetta máske einkennilegra en öðrum þm., ekki sízt vegna þess, að ég hef í undanförnum mánuði, í októbermánuði, verið á fjölmörgum fundum með hæstv. landbrh., þar sem hann hefur lýst því yfir, að það væri eðlilegt, að Alþingi fjallaði um þessi lög, strax og það kæmi saman, og felldi þau, — og ég er honum sammála um það, það ber að fella þau. Hitt er svo annað mál, að það eitt mundi ekki leysa þann vanda, sem hér er á ferðum. Hér þarf greinilega að byggja upp nýjan lagagrundvöll, til þess að neytendur og framleiðendur geti tekið að nýju til starfa og samið um það, hvert verðlag skuli vera á landbúnaðarvörum. Það er þess vegna ekki einasta það lagabrot eða þau undanbrögð frá lögum að leggja ekki brbl. um búvöruverð fyrir Alþingi, sem hér er ríkisstj. um að saka fyrir, heldur einnig hitt að reyna ekki að gera jákvæðar ráðstafanir með nýrri lagasetningu, sem tryggt geti það, að ekki þurfi að koma til þess ósamkomulags eða til þeirra deilna um búvöruverð, sem nú er upp runníð.

Ég hef fyrir satt, að það séu fyrst og fremst hæstv. landbrh. og hæstv. fjmrh., sem sæki það af mikilli festu, að Alþingi skuli látið víkja af vettvangi, að hv. alþm. skuli hafðir heima hjá sér, en ekki í þingsölum, á hinum næstu dögum, — að fjmrh. gangi það fyrst og fremst til, að hann vilji ekki og treysti sér ekki til að flytja framsöguræðu með sínu fjárlagafrumvarpi, og að hæstv. landbrh. treystist ekki til þess að leggja fyrir Alþingi með eðlilegum hætti það mikla mál, sem nú er verið að gera úr tiltölulega litlu máli, varðandi búvöruverðið í landinu. Ég vil fyrir mitt leyti aðvara þessa hæstv. ráðh. um það, að ef þetta væri rétt, að þetta séu orsakirnar, þá eru þeir á mjög rangri leið og ólýðræðislegri, að maður nú ekki tali um óþingræðislegri, með því að færast undan þeirri skyldu, sem hlýtur að hvíla á þeim í þessu sambandi. Það er einmitt til þess að ráða fram úr vandamálum, sem Alþ. er kosið. Það er einmitt til þess að láta vandamál þjóðarinnar, hvort sem þau eru um almennar fjárreiður hennar eða um einstaka þætti í þeim, eins og t.d. búvöruverðið, — það er einmitt til þess, sem Alþingi er kosið, að fjalla um slíka hluti. Og það er vægast sagt ákaflega ábyrgðarlaust af þeim mönnum, sem hafa tekið að sér að fara með æðstu stjórn í slíkum málaflokkum, að ætla að sitja inni með sína málaflokka óafgreidda um langan tíma, gera þá með töfinni erfiðari en þeir í rauninni eru og óviðráðanlegri og máske efna hreinlega til árekstra og framleiðslutruflana í þjóðfélaginu að ástæðulitlu, ef ekki að ástæðulausu.

Að hinu leytinu vita það allir, að um hver áramót hefur að undanförnu þurft að fara fram sérstök samningagerð við útvegsmenn í landinu um það, hver skyldi vera rekstrargrundvöllur sjávarútvegsins á þeirri væntanlegu vertíð, sem í hönd fór. Mér vitanlega er þetta í engu frábrugðið nú. Sami vandinn og jafnan áður er hér enn fyrir dyrum. Útvegsmenn og hraðfrystihúsaeigendur hafa mér vitanlega aldrei látið í það skína, að þeir gætu í þeirri óvissu, sem nú ríkir um framtíð fjármála hjá okkar þjóð, hafið framleiðslu. Mér vitanlega er þess vegna ekkert líklegra en það fari engin vertíð af stað um áramótin nú næst komandi, fyrr en búið er að gera einhvers konar samning eða gefa einhvers konar vilyrði um það, hvern hlut ríkisvaldið ætlar bátaframleiðslu landsmanna, togaraframleiðslu og fiskvinnslu. Ef þetta væri með einhverjum öðrum hætti en verið hefur, þá álit ég, að það væri ekki heldur vanþörf á því að gefa Alþ. skýrslu um það. Slík skýrsla hefur engin verið gefin.

Og ég vil enn spyrja til viðbótar þeim spurningum, sem ég hef þegar beint til hæstv. ríkisstjórnar: Er það meiningin, að hæstv. ríkisstj. ætli að láta sér það í léttu rúmi liggja, hvort hér hefjast nokkrar vertíðarveiðar hjá bátaflotanum eða hjá togaraflotanum í janúarmánuði?

Ég held, að helzta leiðin til þess að bæta úr íslenzkum efnahagsmálavanda sé að reyna til þrautar að láta framleiðslutækin ganga og að reyna til þrautar að afstýra því, sem nú vissulega vofir yfir, að þessi framleiðslutæki stöðvist. Hvaða ráð gætu það verið, sem hæstv. ríkisstjórn hygðist grípa til, ef þau væru þess eðlis, að þau gætu komið í staðinn fyrir framleiðslu, að þau gætu komið í staðinn fyrir fiskveiðar eða þau gætu bætt þjóðinni það upp, ef ekki yrðu búvörur á markaði á næstu vikum eða mánuðum? En það virðist ekki vera neitt af þessu, sem ríkisstj. hefur áhyggjur af. Hún er búin að gera sinn stjórnarsamning, sinn sjö-stóla-sáttmála, og það telur hún nægilegt. Eftír það virðist hún fyrst og fremst eiga eitt áhugamál, og það er að koma Alþingi heim.

Hæstv. fjmrh. gat þess hér svo sem í framhjáhlaupi í dag, og ég held, að það hafi verið utan dagskrár, að það stæði til að skipta hér um efnahagskerfi. Ja, mig skal ekki furða, þó að Alþingi þurfi að fara heim!

Ég vil spyrja hæstv. ríkisstj. enn til viðbótar því, sem ég hef spurt: Er það kannske meiningin að skipta hér um efnahagskerfi með bráðabirgðalögum? Ég skal ekki halda því fram, að efnahagskerfi íslenzku þjóðarinnar sé sérlega fullkomið, öðru nær. Ég skal ekki halda því fram, að það sé ekki hægt að skipta um efnahagskerfi og gera það til bóta. En hitt skal ég einnig taka fram, að ég vantreysti núv. ríkisstj. algerlega til þess að gera það til bóta. Ég hygg, að það, sem við er átt, þegar hæstv. fjmrh. talar um að skipta hér um efnahagskerfi, sé fyrst og fremst það að leggja niður hið svokallaða verðbótakerfi og afnema tekjuskatt, eins og hér var boðað af hæstv. forsrh. fyrir nokkrum dögum.

Ég get upplýst hæstv. ríkisstj. um það, að ef hún ætlar bara að afnema uppbótakerfið og gera ekkert annað, þá er henni ráðlegra að reikna með ögninni minni framleiðslu en verið hefur á undanförnum árum. Kannske er hún við því búin í sínum plönum, — ég skal ekki um það segja. Hitt uggir mig eftir ýmsu því tali, sem farið hefur fram, þótt aldrei hafi það verið í beinum orðum sagt, að hér standi til að gera þá gengisbreytingu, sem mundi hækka erlendan gjaldeyri í verði svo sem um 130% eða eitthvað nálægt því. Slíkt verður auðvitað ekki gert, án þess að þess verði alvarlega vart í verðlagi.

Hæstv. fyrrv. ríkisstj., sem að hálfu eða allt að því að hálfu er aðill að núv. ríkisstj., hældi sér mikið af því fyrir rúmum mánuði, að hún hefði stöðvað verðbólguna í landinu. Skyldi það nú eiga að verða áframhaldið af verðbólgustöðvuninni að koma hér á almennri gengislækkun, svo sem upp á 130% ? Ég hygg, að slík ráðstöfun væri ekki verðbólgustöðvun líkust, heldur hinu gagnstæða. Og það skyldi nú aldrei vera, að þrátt fyrir gallana í okkar gamla uppbótakerfi þætti það vera sómafyrirtæki, þegar búið væri að framkvæma slíkar hugmyndir, sem maður heyrir úr ýmsum hornum, að á baugi muni vera í stjórnarráðinu. Ef það væri rétt, sem heyrzt hefur haft eftir hæstv. forsrh., að það muni vanta 250 millj. kr. frá núverandi ástandi, til þess að hið opinbera geti staðið við skyldur sínar á næsta ári, þá má geta þess, að tekjuskatturinn er líklegur til þess að nema 150 eða 160 millj. kr. Ég geri ráð fyrir því, að einhvers staðar mundi þurfa að taka fjármuni til þess að mæta þeim tekjumissi, sem ríkið yrði þannig fyrir. Og eftir þeim ræðum, sem hæstv. viðskmrh. hélt í nýliðinni kosningabaráttu, má ætla, að til mála hafi a.m.k. komið að bæta þessari fjárfúlgu eða einhverri henni svipaðri ofan á vöruverðið í landinu, — og hvað er þá að segja um stöðvun dýrtíðarinnar? Varla verður bætt ofan á verðlagið í landinu hálfu öðru hundraði milljóna, án þess að einhver hreyfing verði á hinu almenna verðlagi. Ýmsir hafa haldið því fram, að það mætti kannske setja þetta á hinar ónauðsynlegri vörur. En þar á móti er því til að svara, að ég veit ekki betur en það hafi verið ein meginskoðun í herbúðum núv. stjórnar, að við séum þegar búnir að mismuna allt of mikið eða að minnsta kosti komnir í algert hámark í tollheimtu eða yfirfærslugjaldainnheimtu á hinum ýmsu vörutegundum og liggi nú frekar fyrir að jafna en mismuna, og þýðir þetta þá að sjálfsögðu það, ef þeirri stefnu væri fylgt, að hækka yrði mest þær vörurnar, sem til þessa hafa verið á lægsta verðinu eða sloppið með minnstar álögur til hins opinbera.

En um allt þetta þegir hæstv. ríkisstj. þunnu hljóði hér í þingsölum. Það kann að vera rétt, að hún sé ekki búin að glöggva sig á því, hvað gera skuli í þessu. En siðferðisskylda hlýtur það að vera hverjum þeim, sem gerir stjórnarsamning, að taka tillit til þess, hvernig þjóðmál standa á þeim tíma, sem slíkur samningur er gerður, — ekki bara tillit til þess, hve mikið af húsgögnum er til í Alþingi, hve margir stólar eru til undir ráðherra, heldur líka, hvað á að gera. En enn sem komið er er það greinilegt, að hæstv. ríkisstj. hefur það fyrst og fremst að hugsjón sinni að gera ekki neitt nema misþyrma Alþingi og koma í veg fyrir, að það geti unnið sín eðlilegu störf.

Ég hef hér aðeins haft uppi fáeinar hugleiðingar frá sjónarmiði áheyrandans, frá sjónarmiði hins óbreytta áheyranda, sem heyrt hefur hér þá boðun, að það ætti að skipta hér um efnahagskerfl. Ég held, að ef það er meiningin, að svo verði gert, þá veitti síður en svo af því, að Alþingi yrði gefin rækileg skýrsla um það, hvernig málefni íslenzku þjóðarinnar standa efnahagslega, og það yrði ekki látið nægja að leggja hér á borð eitt frv., sem segir: Það er allt í lagi, — og segja síðan á eftir: Það er ekkert að marka þetta frv. — Slík vinnubrögð eru ekki til þess að vekja traust Alþingis á þeirri ríkisstjórn, sem tekið hefur að sér að stjórna þessu landi.

Í framhaldi af því, sem ég hér hef sagt varðandi þau mál, sem hér hljóta að fylla hugi manna, um leið og afgreiða skal heimild til ríkisstj. til að framkvæma bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði, hefði ég viljað beina þremur spurningum alveg sérstaklega til hæstv. fjmrh. Ég vildi spyrja forseta, hvort von væri til þess, að hæstv. fjmrh. væri hér í húsinu. (Forseti: Ráðh. mun hafa setið við umr. í Ed., en það mun verða sent boð til hans. Hans frv. munu líka vera fyrir Ed. — Gripið fram í: Er ekki sjálfsagt að fresta fundinum, þangað til ráðh. getur verið viðstaddur? — Forseti: Það eru margir á mælendaskrá, og ef ræðumaður vill bíða eftir því, þá getur hann fengið frestun á sinni ræðu. Það yrði reynt að halda umr. áfram. ) Ég vildi fyrst og fremst biðja forseta um að gera svo vel að athuga, hvort fjmrh. gæti komið því við. (Forseti: Ráðh. kveðst vera bundinn við umr. í Ed. og getur ekki komið. ) Ég ætla þá, með leyfi hæstv. forseta, að spyrja samt, og þó að það hafi verið upphaflega ætlunin að beina spurningunni til hæstv. fjmrh., þá vænti ég þess, að sá ráðh., sem viðstaddur er, muni þá kannske svara, því að a.m.k. að nokkru leyti ætti hann að geta það, þótt ekki sé ég alveg eins viss um það, að viðeigandi sé í öllum atriðum að krefjast svara af honum við því. sem ég sérstaklega þarf að spyrja um. En ég hafði hugsað mér að spyrja hæstv. fjmrh. í fyrsta lagi: Telur hæstv. fjmrh. ekki þörf neinna laga til þess að tryggja framleiðsluna í þá tvo mánuði eða um það bil tvo mánuði, sem stjórnin hyggst losa sig við Alþingi? Í öðru lagi: Er það skoðun hæstv. fjmrh. þrátt fyrir þá fullyrðingu í grg. fjárlagafrv., að enginn greiðsluhalli verði hjá ríkissjóði í ár, að vanta muni 250 millj. kr. til að mæta útgjöldum ríkisins á næsta ári, eins og forsrh. hefur haldið fram á fundi í stjórnmálafélagi hér í bænum? Og í þriðja lagi: Styðst sú fullyrðing fjmrh., að skipta eigi hér um efnahagskerfi, við ákvæði í stjórnarsamningnum, þeim sem nú er í gildi, eða er þetta hans ákvörðun eins?

Ég vil sérstaklega vænta þess í sambandi við síðustu spurninguna, að viðskmrh., sem hér er staddur, — því að ég hygg, að hann muni geta svarað því, hvort hér er um að ræða ákvæði í stjórnarsáttmálanum eða ekki, — ég vil sérstaklega óska eftir því, að jafnvel þótt hann teldi sér ekki skylt að svara þeim fyrri spurningum, sem ég hef borið fram, sæi hann sér fært að svara þeirri síðustu, sem er á þá leið: Styðst sú fullyrðing fjmrh., að skipta eigi hér um efnahagskerfi, við ákvæði í stjórnarsamningi núv. stjórnarflokka eða ekki?