05.05.1960
Efri deild: 70. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2068 í B-deild Alþingistíðinda. (715)
69. mál, lækningaleyfi
Frsm. (Kjartan J. Jóhannsson):
Herra forseti. Þegar þetta mál var lagt fyrir hv. Nd., var gert ráð fyrir að skylda læknakandidata til að ljúka framhaldsnámi við sjúkrahús hér á landi. Ef það hefði verið gert, var nauðsynlegt að setja reglur um það, hvernig kandídötum væri raðað í þau námspláss, sem til eru hér á landi. Nú hefur hv. Nd. horfið frá þessu. Virðist því ákvæðið í 3. mgr. frv., eins og það nú liggur fyrir, óþarft. Það er a.m.k. skoðun Læknafélags Reykjavíkur og þeirra kandídata, sem hlut eiga að máli nú. Eðlilegast virðist, að þeir, sem ráða yfir þessum námsplássum, hagi því svo til, eins og nú þegar er komið í framkvæmd, að hægt sé að vita nokkuð fram í tímann, hvaða pláss verða laus, og geta kandídatar þá hagað sér eftir því. Yfirleitt hafa kandídatar sótt eftir að fá að ljúka þessari framhaldsnámsvist hér á landi, og er engin ástæða til að ætla annað en þeir muni sækja eftir því framvegis. N. telur því óhætt að fella 3. málsgr. frv. niður og leggur til, að það verði samþ. með þeirri breytingu.