06.05.1960
Efri deild: 71. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2073 í B-deild Alþingistíðinda. (736)
76. mál, veiting ríkisborgararéttar
Ólafur Björnsson:
Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. og frsm. n., hv. 9. landsk., minntist á, hef ég fyrirvara um 2. gr. þess frv., sem hér liggur fyrir, og vildi gera grein fyrir honum með örfáum orðum.
Ég hef ávallt verið andvígur því, að það væri gert að skilyrði fyrir því að öðlast íslenzkan ríkisborgararétt, að menn skiptu um nafn og tækju upp nýtt íslenzkt nafn í samræmi við lögin um mannanöfn. Ég tel það óeðlilegt, að slíkt skilyrði sé sett fyrir því, að íslenzkur ríkisborgararéttur sé veittur.
Það er mörgum mönnum mikið tilfinningamál að geta áfram haldið því nafni, sem þeir ef til vill eru búnir að bera um langa ævi, en fyrir utan það getur það fyrir marga verið fjárhagslegt atriði að vera þannig neyddir til þess að skipta um nafn. Þess munu ýmis dæmi á undanförnum árum, og ef til vill kannast ýmsir hv. dm. við það dæmi af erlendum málakennara, sem hafði verið búsettur hér í Reykjavík um margra ára skeið og naut mikillar aðsóknar og vinsælda sem slíkur, að honum var gert að skipta um nafn samkvæmt þessum lögum og verður þá að auglýsa kennslu sína undir nafni, sem enginn kannast við.
Þau höfuðrök hafa verið borin fram fyrir því að halda þessu ákvæði, að íslenzkri tungu gæti að einhverju leyti stafað af því hætta, ef íslenzkir ríkisborgarar bæru erlend nöfn. Ég tel nú satt að segja, að úr þessu hafi verið of mikið gert. Í fyrsta lagi má á það benda, að þó að það sé gert að skilyrði fyrir því að öðlast íslenzkan ríkisborgararétt, að menn taki upp íslenzkt nafn, þá komumst við aldrei fram hjá því, að eftir sem áður verða erlend nöfn notuð mikið í íslenzkri tungu. Bæði er það fjöldi manna, sem áfram ber erlend nöfn, og auk þess er fjöldi manna búsettur hér í landinu, sem er ekki íslenzkir ríkisborgarar, fyrir utan það, að auðvitað verður að nota erlend nöfn, þegar talað er um útlenda menn. Í öðru lagi má á það benda, að þeir fáu menn, sem öðlast ríkisborgararétt á hverju ári, eru tiltölulega mjög litill hluti þess mannfjölda, sem íslenzku þjóðinni fjölgar um á hverjum tíma. Og víst er um það, að í öðrum löndum mun það yfirleitt ekki tíðkast, að þetta skilyrði sé sett fyrir því að öðlast þarlendan ríkisborgararétt. Það má t.d. nefna sem dæmi í þessu sambandi, að ekki mun kunnugt um, að það sjónarmið hafi komið fram í Svíþjóð, að sænskri tungu stafaði af því sérstök hætta, þó að menn með finnskum nöfnum gerðust sænskir ríkisborgarar, og mun engum Svía hafa dottið í hug að gera það að skilyrði fyrir ríkisborgararétti þeirra, að þeir skiptu um nafn. Sænskan og finnskan munu þó miklu óskyldari tungur en íslenzkan og tungur þeirra nágrannaþjóða okkar, sem yfirgnæfandi meiri hluti þeirra manna, sem sækir um íslenzkan ríkisborgararétt, tilheyrir. Ég tel fyrir það fyrsta, að þessi röksemd sé ekki ákaflega veigamikil, en jafnvel þó að á hana væri fallizt, þá tel ég, að þá millileið mætti t.d. fara að skylda börn þeirra manna, sem fá íslenzkan ríkisborgararétt, til þess að taka upp íslenzk nöfn. Þá væri komið í veg fyrir, að þessi nöfn festust í málinu áfram. En auðvitað er það allt annað fyrir börn þessara manna, sem alin eru upp í íslenzku umhverfi, að taka upp íslenzk nöfn heldur en fyrir mennina sjálfa. Þetta eru meginrökin fyrir mínu sjónarmiði í þessu sambandi.
Árið 1957, eða fyrsta þing fyrra kjörtímabils, varð ég til þess ásamt nokkrum fleiri hv. þm. að bera fram till. um það, að 2. gr. þessa frv. yrði breytt. Sú till. var felld þá með nokkrum atkvæðamun í Nd., og þar með töldum við andstæðingar þessa ákvæðis að málið hefði verið afgert á því kjörtímabili, og var því ekki hreyft framar. Nú er hins vegar komið nýtt þing, og þar sem þetta mál er eðli málsins samkvæmt ekki flokksmál, þá var auðvitað fyrir fram óvissa um það, hvernig hið nýkosna Alþ. mundi líta á þetta mál, og á það sjónarmið get ég út af fyrir sig ekki fallizt, að vegna þess að þetta sé einu sinni komið í lög, þá verði það að halda áfram að standa í lögum. Það er nú einu sinni höfuðtilgangur setu okkar á hinu hv. Alþ. að breyta gildandi lögum, þegar talin er ástæða til þess. En með tilliti til þess, hve nú er orðið áliðið þings og telja má víst, að um þetta atriði mundu eins og oft áður verða miklar deilur, þannig að frv. í heild gæti verið stofnað í nokkra hættu, ef farið yrði að deila um þetta atriði hér, þá hef ég fallið frá því að sinni að bera fram brtt. um þetta, en áskil mér allan rétt í því efni í framtíðinni.