03.03.1960
Efri deild: 36. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2075 í B-deild Alþingistíðinda. (743)

68. mál, fyrningarafskriftir

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Í lögum nr. 59 frá 7. maí 1946 voru heimilaðar sérstakar fyrningarafskriftir af ákveðnum framleiðslutækjum, sem nánar eru tilgreind í grg. þessa frv. Auk þessara framleiðslutækja var svo með síðari lögum ákveðið, að þessar afskriftaheimildir skyldu einnig ná til farþega- og vöruflutningaflugvéla. Síðan lög þessi voru sett, hafa þau verið framlengd og síðast árið 1957. En í þessu frv. er lagt til, að heimildin verði framlengd um næstu þrjú ár.

Fjhn. hefur athugað þetta frv. og komizt sameiginlega að þeirri niðurstöðu, að ekki sé ástæða til þess að fella þessa heimild niður að svo stöddu, og mælir því með því, að það verði samþykkt.