07.03.1960
Neðri deild: 43. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2076 í B-deild Alþingistíðinda. (748)
68. mál, fyrningarafskriftir
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Árið 1946 voru sett lög um það, að sérstakar fyrningarafskriftir skyldu heimilaðar varðandi fiskiskip og önnur veiðiskip, flutningaskip, síldarverksmiðjur, dráttarbrautir og vinnslustöðvar fyrir sjávarafurðir og landbúnaðarafurðir. Þessar fyrningarafskriftir máttu nema 20% á ári í þrjú ár, frá því að þessi tæki eða mannvirki voru fyrst tekin í notkun. Síðan hefur þessi heimild verið framlengd, og fyrir fáum árum var bætt inn heimild um það, að þessar afskriftir mættu einnig ná til flugvéla til farþega- og vöruflutninga.
Núgildandi ákvæði ná aðeins til þeirra tækja, sem tekin voru í fyrstu notkun á árinu 1959 eða fyrr. Með þessu frv. er lagt til, að þessi heimild gildi einnig um framangreind tæki, sem tekin verða í notkun á árunum 1960, 1961 og 1962.
Ég vænti þess, að hv. þdm. fallist á að framlengja þessi ákvæði, sem að meginefni til hafa verið í gildi síðan 1946. Ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.