20.04.1960
Neðri deild: 68. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2093 í B-deild Alþingistíðinda. (757)

131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Áður en ég vík að því frv., sem hér er til umr., finnst mér rétt að minnast nokkrum orðum á niðurlagskaflann í ræðu hæstv. viðskmrh. Sá kafli rifjaði upp fyrir mér umræður um svipuð mál, sem ég hlustaði á hér á Alþingi fyrir 25 árum. Þá var verið að ræða um innflutnings- og gjaldeyrishöft, líkt og nú. Ég minnist þess, að fulltrúar Sjálfstfl. héldu því fram, að það væri mjög auðvelt og sjálfsagt að losa sig við þessi höft. Til þess væri eitt einfalt ráð, og það væri það, sem þeir kölluðu að slá niður kaupgetuna. Ef kaupgetan væri slegin nægilega mikið niður, eins og þeir orðuðu það, þá væri hægt að losna við höftin. Ég minnist þess jafnframt, að þeir menn, sem þá voru einna eindregnastir andmælendur þessara skoðana, voru þáverandi forustumenn Alþfl. á Alþingi, Jón Baldvinsson, Héðinn Valdimarsson og Haraldur Guðmundsson. Þeir viðurkenndu, að það væri æskilegt, ef hægt væri að komast hjá því að hafa gjaldeyris- og innflutningshöft, en ef um það væri að velja ellegar þá leið að slá niður kaupgetuna, þá töldu þeir þann kost miklu skárri að búa við innflutnings- og gjaldeyrishöft.

Mér virðist, að sú ræða, sem hæstv. viðskmrh. var að halda hér, sé í mjög miklu ósamræmi við það, sem þessir forvígismenn Alþfl. héldu fram á Alþingi fyrir 25 árum, því að þegar búið er að klæða megnið af ræðu hæstv. viðskmrh. úr þeim umbúðum, sem hún var í, þá var niðurstaða hans sú, að það hefði verið nauðsynlegt að gera nú ráðstafanir til þess að slá niður kaupgetuna og að þær ráðstafanir, sem hefðu verið gerðar, gætu því aðeins heppnazt, að það tækist áfram að slá niður kaupgetuna. Hann var í því sambandi að rifja það upp, sem hefði gerzt í öðrum löndum, þar sem jafnaðarmenn hafa farið með stjórn, og hélt því fram, sem rétt er, að í sumum þeirra landa hafa gjaldeyris- og innflutningshöft verið afnumin. En ég minnist þess ekki, að í þeim löndum hafi það nokkru sinni gerzt, að innflutnings- og gjaldeyrishöft hafi verið afnumin með þeim hætti að slá niður kaupgetuna samtímis. Jafnaðarmannastjórnir í öðrum löndum og jafnaðarmannaflokkar í öðrum löndum hafa því aðeins staðið að slíkum ráðstöfunum, að það hafi verið unnt að gera það án þess að slá niður kaupgetuna, eins og hér hefur verið gert. Það er að þessu leyti meginmunur á milli þeirra og Alþfl. hér á landi, eins og hann hagar nú störfum sínum. En eins og kom fram í ræðu hæstv. viðskmrh. og þingheimi er kunnugt um, þá er það meginatriði þeirra efnahagsráðstafana, sem ríkisstj, hefur verið að gera, að slá niður kaupgetuna, og þær ráðstafanir, sem felast í þessu frv., eru að verulegu leyti á því byggðar, að það heppnist.

Ég skal svo víkja að sjálfu frv. og koma þá fyrst að því atriði, sem hér hefur verið lögð mikil áherzla á af hæstv. viðskmrh., þ.e. að hér sé verið að afnema höft. Á hæstv. ráðh. mátti jafnvel skilja, að þetta væri gert án þess, að nokkur höft kæmu í staðinn. Það er fullkomin blekking, að slíku sé til að dreifa. Það er að vísu talað um að leggja niður viss höft samkvæmt því frv., sem hér liggur fyrir, en það á að gerast með þeim hætti að láta önnur höft og að ýmsu leyti verri höft koma í staðinn. Í fyrsta lagi eiga það að vera höft fátæktarinnar, sem koma í staðinn. Hæstv. ríkisstj. er búin að gera margháttaðar ráðstafanir, eins og kunnugt er, til þess að minnka kaupgetu lágstofnunina niður og fela bönkunum það verksvið, sem hún hafði áður, verður til þess, að það dregst miklu meira vald í fárra manna hendur en áður átti sér stað. Bankarnir eða peningavaldið í landinu verður gert með þessu miklu sterkara og áhrifameira en það er nú, og það er líka samhliða þessu hætta á verulegri misbeitingu. Sú hætta getur skapazt í sambandi við þetta, að ýmis fyrirtæki, sem eru skuldug bönkunum og þeir telja sig sérstaklega þurfa að hjálpa, verði aðnjótandi óeðlilegra innflutningsfríðinda, eða m.ö.o., að bankarnir hafi tilhneigingu til þess að hlynna meira að slíkum fyrirtækjum og veiti þeim þess vegna fríðindi umfram önnur. Í þessu er mikil hætta fólgin í sambandi við þá breytingu, sem hér er ætlazt til að gerð sé. Jafnvel þó að þetta væri sæmilega heiðarlega framkvæmt, fylgir því alltaf mikil hætta að hlaða undir öflugt peningavald í landinu. Það hefur margvíslega að hér sé stefnt í mjög ranga og hættulega átt. Það er einn meginmunur á lýðræðisþjóðfélagi og einræðisþjóðfélagi, að í lýðræðisþjóðfélagi er lögð áherzla á það að dreifa valdinu sem mest, en það dragist ekki í hendur fárra aðila. Í einræðisþjóðfélagi er aftur á móti stefnt að því að draga valdið sem mest í fárra hendur. Sú breyting, sem hér er gerð á innflutningsog gjaldeyrishöftunum, að leggja innflutningslaunafólks og millistétta, og í trausti þess, að henni takist að halda þessari kjaraskerðingu áfram, treystir hún á það, að innflutningur dragist saman og þess vegna, sé minni þörf fyrir þau gjaldeyrishöft, sem fyrir eru og verið hafa. Í öðru lagi hefur ríkisstj. gripið til þess að hækka vexti stórkostlega. Í raun og veru er þar ekki um annað en höft að ræða, sem stuðla að því að draga úr innflutningi. Í þriðja lagi hefur ríkisstj. svo gripið til þess að koma á og er að framkvæma mjög víðtæk útlánahöft, sem einnig hafa hið sama í för með sér og hin höftin, þ.e. að draga úr innflutningi. Og þrátt fyrir þessi höft öll saman, höft minnkandi kaupgetu, vaxtahækkun og útlánahöft, ætlar hæstv. ríkisstj. samkvæmt þessu frv. að viðhalda mjög verulegum gjaldeyrishöftum, enda segir svo í 1. gr., að ríkisstj. hafi vald til þess að hafa gjaldeyrishöft áfram. Hæstv. viðskmrh. upplýsti það líka hér áðan, að það væri ætlunin að láta a.m.k. 40% af vöruinnflutningnum vera undir höftum og svo allar gjaldeyrisyfirfærslur aðrar. Þegar þetta allt er athugað, hlýtur mönnum að vera ljóst, að það er ekki nema blekking, að hér sé raunverulega verið að afnema höft. Það er verið að breyta um höft, það er verið að taka upp að ýmsu leyti höft, sem eru verri og óhagstæðari fyrir almenning en þau, sem var búið við og nú er búið við.

Ég vil þá víkja að því atriði frv., sem fjallar um það, hvernig þeim gjaldeyris- og innflutningshöftum, sem á að halda áfram, verður fyrir komið. En samkvæmt 2. gr. frv. virðist þeim eiga að vera fyrir komið á þann hátt, að bankarnir fari með það starf á þessu sviði, sem innflutningsnefndin fór með áður. Ég held, hækki.

En í þessu sambandi er rétt að skjóta því inn í til sönnunar því, að hér er ekki stefnt að auknu frjálsræði, að sú innflutningsáætlun, sem ríkisstj. byggir fjárlögin á, gerir ráð fyrir því, að innflutningur dragist verulega saman frá því, sem verið hefur. Þetta gefur auga leið um, hvers konar frjálsræði muni hér í raun og veru vera um að ræða. Sjálf ríkisstjórnin reiknar með því, að hin margvíslegu höft, sem sett eru á í staðinn fyrir þau, sem fyrir voru, muni valda samdrætti í innflutningnum og þó fyrst og fremst vegna hinnar minnkandi kaupgetu.

Ég kem þá að því atriði í þessu frv., sem fjallar um útflutningsverzlunina, eða 8. gr. þess. Ég verð að segja um hana, að ég varð fyrir miklum vonbrigðum af henni, einkum vegna þess, að hæstv. viðskmrh. er einn aðalmaðurinn að þessu frv. Ástæðan fyrir því er sú, að fyrir fjórum árum átti ég sæti í n. með honum, sem vann að því að setja upp sameiginlega lagsbreytingu, sem hér er gerð, þ.e. að láta þau gjaldeyris- og innflutningshöft, sem eiga að vera áfram, í hendur bankanna, í staðinn fyrir að láta þau heyra undir sérstaka stofnun, eins og nú er gert.

Það hefur verið talsvert um það rætt í þessu sambandi, að þær breytingar, sem hér væru fyrirhugaðar, mundu verða til þess að bæta hag verzlunarinnar, mundu verða til þess að gera hana frjálsari, mundu verða til þess að skapa almenningi betri verzlunarkjör. Ég held, að öllum, sem athuga þetta niður í kjölinn, hljóti að verða ljóst, að slíku getur alls ekki verið til að dreifa. Þegar kaupgeta fer stórminnkandi, eins og nú er stefnt að, og þegar útlánsvextir hækka stórkostlega, elns og nú hefur þegar verið framkvæmt, og þegar stefnt er að því að auka samdrátt í útlánum; þá gefur það auga leið, að allt þetta verður til þess að þrengja kjör verzlunarinnar. Það verður til þess, að hún getur haft minni vörubirgðir og minna úrval á boðstólum en hún hefur nú. Og það hlýtur einnig að verða til þess, þegar salan minnkar hjá verzlununum af þessum ástæðum, sérstaklega af minnkandi kaupgetu, að hún þarf að fá hærri álagningu, þegar umsetningin minnkar, enda hygg ég, að það muni eiga eftir að sýna sig, áður en langur tími liður, að þá verði það ein afleiðingin af þessum ráðstöfunum, að verzlunarálagningin aðstöðu til að misnota vald sitt, sem er ekki auðvelt fyrir almenning að fylgjast með eða hafa áhrif á, enda er það nú stefna í mörgum löndum að draga heldur úr bankavaldinu en að auka það. Ég vil t.d. í því sambandi minna á það, að á s.l. ári skilaði sérstök n. í Bretlandi áliti um bankamálin þar í landi. Þessi n. var skipuð ýmsum sérfræðingum úr öllum aðalflokkum landsins. Hún komst að mörgum athyglisverðum niðurstöðum, en eitt merkilegasta atriðið í skýrslu hennar var einmitt það, að nauðsynlegt væri að takmarka vald Englandsbanka frá því, sem verið hefði.

Samkv. framansögðu tel ég ranga þá skipustefnuskrá fyrir tvo flokka, Alþfl. og Framsfl. Í þessari stefnuskrá var alveg sérstakt ákvæði um útflutningsverzlunina. Þetta ákvæði var á þá leið, að komið yrði upp yfirstjórn á útflutningsverzluninni, sem væri skipuð fulltrúum frá sjómönnum, útgerðarmönnum og vinnslustöðvum og fleiri aðilum eða fleiri stéttum. Tilgangurinn með þessu var sá að gefa sem flestum aðilum, sem hér hafa hagsmuna að gæta, aðstöðu til þess að fylgjast með því, hvernig útflutningsverzlanir, væri af höndum leyst. Eins og nú. háttar til, eru það viss fyrirtæki, lokuð fyrirtæki, sem hafa meiri og minni einokunaraðstöðu, og almenningur og þær stéttir, sem sérstaklega eiga hér hlut að máli, hafa enga aðstöðu til að fylgjast með því, hvernig störf þeirra eru af hendi leyst. Þess verður líka mjög vart og það kannske ekki að ástæðulausu, að útflutningsverzlunin er undir verulegri gagnrýni af hálfu þeirra aðila, sem mestra hagsmuna hafa að gæta í sambandi við hana, eins og t.d. sjómanna og útgerðarmanna. Og það hafa hvað eftir annað komið fram ásakanir á þá leið, að mikil mistök hefðu átt sér stað í þessari verzlun og að ýmsir aðilar mundu nota aðstöðu sína til þess að hagnast óeðlilega í sambandi við hana. Þess vegna var það áreiðanlega spor í rétta átt, eins og gert var ráð fyrir í stefnuskrá Alþfl. og Framsfl. á sínum tíma, að skapa það fyrirkomulag í sambandi við útflutningsverzlunina, að sem flestir aðilar hefðu aðstöðu til að fylgjast með því, hvernig hún væri af hendi leyst, t.d. með því að eiga fulltrúa í sérstakri útflutningsyfirstjórn. Af hálfu vinstri stjórnarinnar var stigið nokkurt spor í þessa átt, en þó hvergi nærri fullnægjandi, með því að fela sérstakri nefnd að fylgjast með þessum málum og sjá um veitingu útflutningsleyfa. Nú er það ætlunin skv. frv. að leggja þessa nefnd niður og með því þá möguleika, sem almenningur hefur til þess að fylgjast nokkuð með því, hvernig þessi verzlun er yfirleitt af höndum leyst. En að sjálfsögðu skiptir það almenning í landinu og þó sérstaklega sjómenn og útgerðarmenn ekki litlu máli, hvernig útflutningsverzluninni er háttað, því að sé hún slælega rekin og eigi kannske einhver fjárdráttur sér þar stað, eins og nokkur grunur liggur á, þá getur það haft þær afleiðingar í för með sér, að afkoma útflutningsatvinnuveganna verði miklu lakari en ella. Ef alltaf hefði þar verið vel á málum haldið, hefði kannske stundum verið óþarft að gera ýmsar ráðstafanir til hjálpar útflutningsatvinnuvegunum, sem gerðar hafa verið. En hér er sem sagt stefnt í þá átt með þessu frv. Í stað þess, að það hefði átt að bæta aðstöðu almennings og þeirra stétta, sem mest eiga hlut að máli, til þess að fylgjast með því, hvernig útflutningsverzlunin er starfrækt, þá er þetta gert enn lokaðra en það hefur áður verið, og leyndin verður enn meiri en hún hefur áður verið með því að leggja útflutningsnefndina niður og láta það alveg vera í valdi ríkisstj. einnar, hvernig þessum málum er háttað.

Það er svo annað mál, að endurskoða þarf allt skipulag útflutningsverzlunarinnar og koma á öðru formi en því, sem nú ríkir þar. Það má vel vera og hlýtur að koma til athugunar, hvort það fyrirkomulag, sem tekið var upp með síldarútvegsnefnd ríkisins á sínum tíma, sé ekki einmitt það fyrirkomulag, sem eigi að færa út í sambandi við útflutningsverzlunina.

Þá er, eins og hæstv. viðskmrh, benti á, gerð sú breyt. með þessu frv., að allt fjárfestingareftirlit verður fellt niður. Þetta er gert samtímis því, sem öllum almenningi og öllum efnaminni fyrirtækjum verður gert erfiðara fyrir um að ráðast í framkvæmdir með þeim efnahagsráðstöfunum, sem ríkisstj. hefur gert og gera allar framkvæmdir dýrari. Þetta þýðir það með öðrum orðum, að einkafjármagninu er sköpuð miklu betri aðstaða en áður hefur verið til þess að ráða því, hvernig fjárfestingin er framkvæmd í landinu. Það má vel vera, að það sé rétt, sem hæstv. viðskmrh. minntist á hér áðan, að það hafi ýmis mistök átt sér stað í fjárfestingunni undir því kerfi, sem við höfðum búið við undanfarin ár. En það er ekki þar með sagt, að rétta svarið við því sé að fella allt slíkt eftirlit úr sögunni og gefa þetta algerlega frjálst, á sama tíma sem öllum almenningi er gert erfiðara fyrir með það að ráðast í fjárfestingarframkvæmdir. Ég hygg, að það hefði verið miklu réttara svar í þessum efnum að treysta fjárfestingareftirlitið frá því, sem nú hefur verið, og reyna að tryggja með því, að sú fjárfesting, sem við getum haft með höndum, beindist að þeim verkefnum, sem sjálfsagt er frá sjónarmiði þjóðarheildarinnar að láta hafa forgangsrétt, að það hefði verið sú stefna, sem hefði átt að taka upp, en ekki sú að gefa þetta allt saman frjálst, því að það veit enginn, hvaða afleiðingar það kann að hafa. En reynslan er hins vegar sú, bæði hjá okkur frá fyrri tímum og eins í ýmsum öðrum löndum, að þegar þetta er gefið alveg frjáist, þá vill svo oft fara, að alls konar misvöxtur á sér stað og fjárfestingin beinist alls ekki að þeim verkefnum, sem mikilvægust eru.

Og það er alveg sérstök ástæða fyrir þjóð eins og Íslendinga, sem hefur mjög takmarkað fjármagn til fjárfestingarframkvæmda, en þarf þó að hafa mikla fjárfestingu með höndum, að hún reyni að beina fjárfestingunni að þeim verkefnum, sem nauðsynlegt er að leysa. En það verður ekki gert með því að gefa þetta allt saman frjálst, heldur einmitt með því að reyna frekar að treysta fjárfestingareftirlitið og stefnu ríkisvaldsins í heild á þann veg, að sú fjárfesting, sem mestu máli skiptir fyrir uppbyggingu landsins og atvinnuveganna, sitji í fyrirrúmi. Þess vegna er hér tvímælalaust stigið spor í ranga átt, samtímis því sem gerðar eru svo ráðstafanir til þess að torvelda alla fjárfestingu almennings og hinna efnaminni fyrirtækja og landshluta.

Þá vil ég að síðustu benda á það atriði frumvarpsins, sem felst í 10. gr., en þar er gert ráð fyrir því, að sama leyfisgjald haldist áfram á gjaldeyris- og innflutningsleyfum, svo sem verið hefur um skeið. Þetta virðist fastlega benda til þess, að það sé ekki reiknað með því, að neinn sparnaður hljótist af þeirri breytingu, sem hér er stefnt að, þó að stundum sé verið að tala þannig, að með því að leggja innflutningsskrifstofuna niður sé stefnt að auknum sparnaði og fækkun embætta í þjóðfélaginu. En frv. ber það sem sagt með sér, að ekki er ætlazt til, að kostnaðurinn við þetta nýja fyrirkomulag verði neitt minni en sá kostnaður, sem fyrir var, svo að hér er ekki um neina breytingu að ræða, sem hefur sparnað í för með sér.

En það, sem ég vildi svo segja að endingu, er raunar hið sama, sem ég tók fram í upphafi, að með þessu frv. er raunverulega ekki stefnt að því að afnema höft, það er eingöngu verið að breyta um höft og að sumu leyti verið að taka upp verri höft en þau, sem áður var búið við. Og þar á ég þá sérstaklega við þau höft, sem leiðir af minnkandi kaupgetu, af aukinni fátækt í landinu, því að þar er tvímælalaust stigið mikið spor aftur á bak og gengið miklu lengra í kjaraskerðingu en nokkur þörf var fyrir. Og ég vil í því sambandi taka undir það, sem ýmsir fyrri forustumenn Alþfl., eins og Jón Baldvinsson, Héðinn Valdimarsson og Haraldur Guðmundsson, hafa hér áður sagt, að ef efnahagsástandið í landinu er þannig, að um það tvennt er að velja að búa við einhver gjaldeyrishöft eða að skera niður kaupgetuna langt frá því, sem nokkurt hóf er á, þá er það fyrra miklu skárra af tvennu illu. Að þessu leyti er ég algerlega ósammála núv. viðskmrh., eins og hann er líka ósammála hinum fyrri foringjum flokks síns. Það er líka tvímælalaust, að höft eins og vaxtahækkunin og útlánaskerðingin eru miklu þungbærari fyrir verzlunina og atvinnulífið í landinu en þau höft, sem nú er búið við. Og það er alger misskilningur, þegar verið er að reyna að hampa því, að þær breytingar, sem hér er stefnt að, muni verða til þess að bæta fyrir verzluninni og skapa almenningi betri verzlunarkjör, vegna þess að eins og ég hef áður sýnt fram á, þá muni þessar ráðstafanir, minnkandi kaupgeta, hærri vextir og samdráttur útlána, leiða til hins gagnstæða, leiða til þess, að það verður minna vörumagn á boðstólum og álagningin hlýtur að verða að hækka vegna samdráttar í umsetningu, og þess vegna verða þessar ráðstafanir bæði almenningi og verzluninni til tjóns.

Ég vil svo að endingu aðeins segja það í tilefni að niðurlagsorðum hæstv. viðskmrh., að ég harma það, að hann skuli nú ekki standa í sömu sporum og halda uppi sömu stefnu og þeir gerðu hér á sínum tíma Jón Baldvinsson, Héðinn Valdimarsson og Haraldur Guðmundsson, því að ég er viss um, að ef hann gerði það og flokkur hans, þá mundi eiga sér stað heppilegri þróun mála í landinu en sú, sem nú er að gerast.