28.04.1960
Neðri deild: 72. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2146 í B-deild Alþingistíðinda. (763)
131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.
Frsm. meiri hl. (Birgir Kjaran):
Herra forseti. Fjhn. hv. d. hefur haft til meðferðar frv. um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála o.fl. og rætt efni þess á þrem fundum. Auk nm. sat hr. Jónas Haralz ráðuneytisstjóri fundina, og hæstv. viðskmrh. sat einn fundinn. Gáfu þeir n. ýmsar upplýsingar og skýrðu frv. í heild og einstakar greinar þess. N. hefur ekki orðið sammála um afgreiðslu málsins, og munu minni hl. skila sérálitum og gera grein fyrir sínum skoðunum, en í minn hlut hefur komið að skýra afstöðu meiri hl., sem leggur til, að frv. verði samþ. með einni smávægilegri viðbót.
Þetta frv. fjallar um efnahagsmál. Þó er það aðeins hluti af heildarstefnu, en snertir þó hagsmuni allrar þjóðarinnar og afkomu. Eins og hæstv. viðskmrh. benti á í ýtarlegri og fróðlegri framsöguræðu, er hann fylgdi frv. úr hlaði, er það liður í aðgerðum í efnahagsmálum, sem verið er að hrinda í framkvæmd og marka kunna þáttaskil í efnahagsmálasögu Íslendinga.
Það er margt, sem mótar efnahag og afkomu þjóðar. Fyrst og fremst landið sjálft og gæði þess. Þá er það nýting landkostanna, tækni og fjármagn, sem til ráðstöfunar eru, búskaparhættir eða hagkerfi þjóðarinnar, viðskipti hennar við önnur ríki og svo þjóðin sjálf, mannfólkið, sem er aðalauðlegð hvers lands og ríkis eða höfuðstóll sjálfstæðrar þjóðar.
Þetta frv. fjallar um viðskiptin við önnur ríki fyrst og fremst, þ.e.a.s. verzlunarpólitík hins íslenzka ríkis, en hún er veigamikill þáttur hinnar almennu efnahagsmálastefnu. Peninga- og verzlunarpólitík lands eru þeir hemlar, sem úrslitum geta ráðið um þróun þjóðarbúskapar og einkabúskapar eða a.m.k. skorið þróunarmöguleikum þeirra stakk. Verzlunarpólitíkin hlýtur að vera hluti af hinni almennu efnahagsmálastefnu. Efnahagsmálastefna þessarar stjórnar, viðreisnarstefnan, er að tryggja þjóðinni næga atvinnu og helzt stöðugt batnandi lífskjör. Þessum markmiðum hyggst stjórnin fyrst og fremst ná með aukinni framleiðslu og sem hagkvæmastri sölu á afurðum landsmanna og innkaupum á nauðsynjum þeirra. Takmark þessarar verzlunarpólitíkur er að gera okkur fært að vera öllum sem óháðastir í viðskiptum, að gera okkur kleift að kaupa nauðsynjar okkar í sem ríkustum mæli þar, sem þær eru beztar, ódýrastar og hentugastar, og með þeim hætti að verða aðilar að sem frjálsustum viðskiptaheimi.
Aðaláhættan fyrir þjóð með tiltölulega ríka þörf fyrir umfangsmikla utanríkisverzlun, fjölbreyttar innflutningsþarfir, en einhæfa útflutningsframleiðslu, er að verða einstökum mörkuðum of háð. Af þessu höfum við Íslendingar vissulega bitra reynslu, þegar saltfiskmarkaðurinn brást á kreppuárunum, þegar ísfiskmarkaður Bretlands lokaðist, þegar síldarmarkaður Svíþjóðar gekk saman, svo að nokkuð sé nefnt. Svo einkennilegt sem það kann samt að virðast, fyrirfinnast þeir í hópi stjórnarandstöðunnar, sem einlæglega trúa því, að það sé beint æskilegt að gera okkur með jafnkeypissamningum sem allra háðasta ákveðnum mörkuðum með sem stærstan hluta af framleiðslu okkar og að góð lífskjör verði yfirleitt einungis tryggð með höftum á öllum sviðum viðskipta og framleiðslu. Við stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. erum hins vegar þeirrar skoðunar, að góð lífskjör verði helzt tryggð með sem allra víðtækustu athafna- og verzlunarfrelsi. Þetta er engin fræðileg deila, heldur mat á staðreyndum og fenginni reynslu. Það eru vissulega ekki Bright og Cobden eða Marx og Lenin, sem eiga að gefa okkur forskriftir í efnahagsmálum í dag, rök gærdagsins duga ekki nema að takmörkuðu leyti í dag. En reynslan er þó jafnan lærdómsrík.
Þær aðgerðir, sem nú eru fyrirhugaðar í innflutnings- og gjaldeyrismálum þjóðarinnar og felast í þessu lagafrv., verða ekki skildar til fullnustu, nema þær séu skoðaðar í ljósi liðinnar íslenzkrar verzlunarsögu og hafður sé í huga, að vísu stuttur, en töluvert viðburðaríkur ferill íslenzku krónunnar og gengis hennar eða skiptihlutfalls gagnvart öðrum myntum. Í þá hálfa þriðju öld, sem íslenzk utanríkisverzlun hefur verið ófrjálsust, „skipulögðust“, hafa lífskjörin verið einna lökust í landinu, fátæktin mest og framtakið minnst. Hver áfangi til frelsis þýddi auknar framfarir. Afangastaðirnir voru árið 1789, er verzlunin var gefin frjáls öllum þegnum Danakonungs, árið 1854, er hún var gefin algerlega frjáls hverjum þeim, er hér vildi reka viðskipti. Að fullum notum kom þetta frelsi þó ekki fyrr en landsmenn fengu nokkurt fé milli handa og þá fyrst og fremst með tilkomu íslenzkrar myntar. Krónan var tekin upp sem mynt á Íslandi, þegar stofnað var til Norræna myntbandalagsins árið 1873. Með því var lagður grundvöllur að dönsku krónunni, sem kom þó ekki í umferð fyrr en 2 árum síðar. Alíslenzk mynt kom svo ekki til sögunnar fyrr en með landssjóðsseðlunum, sem gefnir voru út samkvæmt lögum um stofnun Landsbanka Íslands, nr. 14 frá 18. sept. 1885. Þar með var stofnað til alíslenzkrar myntar og íslenzks gjaldeyris. Síðan hafa orðið margar breytingar á útgáfu íslenzkra peninga, sem hér er ekki tilætlunin að rekja að öðru en því, að sjálfstætt gengi gagnvart öðrum myntum öðlaðist íslenzka krónan ekki fyrr en árið 1922. Fram til þessa hafði gengi hennar jafnan fylgt gengi dönsku krónunnar, en frá því í júlímánuði 1922 hefur íslenzka krónan verið sjálfstæð mynt með eigin gengi.
Sjálfstæði íslenzku krónunnar í viðskiptum við aðrar þjóðir er því ekki nema tæpra 40 ára. Þótt aldurinn sé ekki hár, hefur þó saga þessara ára verið viðburðarík í íslenzkum peningamálum, því að á þessu árabili hefur gengi krónunnar verið fellt 6 sinnum eða að meðaltali sjötta hvert ár, og má þó fullyrða, að yfirleitt hafi verið forðazt í lengstu lög að stíga spor gengisfellingarinnar hverju sinni. Og ráðin, sem menn hafa oftast gripið til, til þess að komast hjá gengisfellingu, hafa verið viðskipta- og gjaldeyrishöft í einu eða öðru formi. 3/4 af lífdögum íslenzku krónunnar höfum við búið við einhvers konar verzlunarhöft. Höftin eiga nefnilega senn 30 ára afmæli, því að það var í októbermánuði árið 1931, að gefnar voru út tvær reglugerðir, sem veittu Landsbanka Íslands og Útvegsbankanum einkaleyfi til verzlunar með erlendan gjaldeyri og lögðu hömlur á innflutning nokkurra vörutegunda. Reglugerðir þessar voru gefnar út á grundvelli laga frá 8. marz árið 1920, sem heimiluðu ríkisstj. að takmarka eða banna innflutning á óþarfavarningi. Höftin frá 1931 áttu að vera vörn Íslendinga í fangbrögðum við heimskreppuna, sem orsakað hafði hrun á mörkuðum okkar og um 50% verðfall á útflutningsafurðunum. Síðan var þrívegis hert á höftunum fram að stríði, eða með lögum frá árunum 1934, 1935 og 1937. Á ófriðarárunum var höftunum viðhaldið, ekki svo mjög vegna gjaldeyrisskorts, heldur vegna vöruskorts af völdum erfiðra aðflutninga. Að ófriðnum loknum jókst svo eftirspurnin eftir erlendum gjaldeyri vegna rangrar gengisskráningar svo mjög, að árið 1947 var enn hert á höftunum með lögum um fjárhagsráð, sem er harðsoðnasta haftalöggjöf, sem komið hefur verið á hér á landi, og átti sér enga hliðstæðu skyldari en áætlunarbúskap járntjaldslandanna. Eina skiptið á öllu þessu árabili, sem alvarleg tilraun var gerð til þess að létta höftunum af, var eftir gengisfellinguna árið 1950. Því miður tókst sú tilraun ekki nema að takmörkuðu leyti vegna aflaleysis, erfiðra
viðskiptakjara af völdum Kóreustyrjaldarinnar og sökum þess, að engir gjaldeyrisvarasjóðir voru þá fyrir hendi til þess að brúa bilið, meðan nýtt jafnvægi væri að myndast. Eftir að misvægið tók aftur að vaxa í þjóðarbúskapnum árið 1955 og fram til s.l. árs, hefur svo innflutnings- og gjaldeyrishöftum verið beitt með stöðugt meiri harðneskju.
Það, sem í raun og veru er athyglisverðast við þessa 30 ára gömlu íslenzku haftasögu, er, að höftin hafa aldrei dugað til þess að vernda verðgildi íslenzku krónunnar, eins og þeim var ætlað. Þrátt fyrir höftin 1931–1939 varð að fella gengi íslenzku krónunnar árið 1939. Þrátt fyrir höftin 1947–1950 varð að fella gengi krónunnar árið 1950. Og þrátt fyrir höftin 1956–1960 varð að fella gengi krónunnar árið 1960. Höft í viðskiptum milli landa eru nefnilega engin lækning meinsemda, því að þau tengjast ekki að sjúkdómsorsökinni, heldur glíma aðeins við ytri einkenni sjúkdómsins. Þau eru hrossalækning, sem getur skotið vandanum á frest, og geta verið forsvaranleg neyðarúræði um stundarsakir, en þau leysa ekki vandann varanlega, til þess eru önnur úrræði nauðsynleg. Vil ég mjög taka undir þau ummæli hæstv. viðskmrh., er hann sagði, með leyfi hæstv. forseta: „Að því er gjaldeyris- og innflutningshöftin snertir, geta bæði jafnaðarmenn og borgaralegir flokkar verið sammála um það og hafa verið það í öðrum löndum, að þau eru hvorki nauðsynleg né heppileg í stjórn efnahagsmálanna“. Og ég vil þó ganga feti framar, því að ég tel, að verzlunarhöft séu ekki einungis oftast óheppileg og gagnslítil tæki til þess að ráða við þau viðfangsefni í þjóðarbúskapnum, sem þeim er ætlað að leysa, heldur séu þau þjóðinni og atvinnulífi hennar beint til tjóns, enda var það enginn óraunsærri maður en John Maynard Keynes, trúlega nafnkunnasti hagfræðingur 20. aldarinnar og ráðunautur ríkisstjórna um víða veröld í efnahagsmálum, sem svo komst að orði, með leyfi forseta: „Allar verzlunarhömlur eru tæki, sem þjóðirnar hafa fundið upp til þess að gera sjálfa sig og aðra fátækari.“
Þessi afstaða til haftabúskaparins kann að koma sumum af yngstu kynslóðinni, sem þekkir ekkert nema höft, ókunnuglega fyrir sjónir. Við höfum búið svo lengi við höft, að sumir halda þau eðlilegan þátt borgaralegs efnahagskerfis. En það er vissulega neikvæður þáttur í íslenzku hugviti, sú mikla frjósemi og gróska, sem reynzt hefur vera fyrir hendi við uppfinningu nýrra og nýrra haftaafbrigða, oftast í nafni hagsbóta til handa alþýðu manna, slík öfugmæli sem það nú eru, því að eins og dr. Jóhannes Nordal hefur svo skýrlega fært sönnur á í greinum í Fjármálatíðindum Landsbankans, með leyfi forseta: „er haftakerfið í raun réttri ein höfuðorsök óeðlilegrar gróðamyndunar og verndar því ekki almenning gegn gróðaöflunum,“ heldur tryggja þau einmitt fáum útvöldum óeðlilegan hagnað á kostnað hins almenna neytanda. Viðskiptahömlur eru því mjög óæskilegar fyrir allan þorra fólks, þótt hinu sé ekki að neita, að skyndilegar efnahagsbreytingar eða jafnvægisskerðing á viðskiptum milli landa geti neytt til þvílíkra aðgerða sem neyðarráðstafana um stundarsakir, meðan verið er að finna nýjan jafnvægisgrundvöll. Hitt er aftur hagsmunum alþjóðar algerlega fjandsamlegt, að höftin séu gerð að varanlegu ástandi eða bókstaflega innlimuð í hagkerfi þjóðarinnar til frambúðar, eins og gert hefur verið hér á landi, og þannig hindruð um árabil myndun nýs jafnvægis, tildrað upp gervibúskap, þar sem verðmyndunarlögmálið er sett úr skorðum og framleiðsla, dreifing og tekjuskipting meðal þegnanna að mestu keyrð undir alveldi ríkisins. Með nýjum höftum, skipulagningu, nefndum og áætlunarbúskap er engrar lausnar að vænta á vandamáli þessu, því að vandamálin halda áfram að vera vandamál, þótt skipt sé um nafn á þeim, og vitleysan að vera vitleysa, þótt hún sé skipulögð. Í stuttu máli, viðskiptahöftin, haftabúskapurinn, eru skaðleg vegna þess, að þegar til lengdar lætur, þá hindra þau raunverulega jafnvægismyndun í þjóðarbúskapnum, skekkja byggingu atvinnulífsins og gera misvægið að lokum óviðráðanlegt. Þau draga úr framförunum, minnka framleiðsluaukninguna og framleiðni fyrirtækjanna, hindra eðlilega framsækni og árvekni atvinnurekendanna, sljóvga áhugann fyrir öflun nýrra markaða, mismuna þegnunum, hafa í för með sér kostnað og leiða að lokum oft til beinnar spillingar í viðskiptalífinu. Af þessum ástæðum, einni og öllum, hefur núv. ríkisstj. góðu heilli ákveðið að hverfa frá þessu 30 ára gamla haftakerfi og stíga fyrstu sporin til frjálsari viðskiptahátta. Hæstv. ríkisstj. getur því að vissu leyti svarað haftapostulunum á svipaðan hátt og dr. Erhard efnahagsmálaráðh. Þjóðverja svaraði Clay hershöfðingja Bandamanna þar í landi á árunum. Clay sagði við ráðherrann: „Dirfizt þér að breyta fyrirætlunum herstjórnarinnar í efnahagsmálum.“ Og þá svaraði dr. Erhard: „Ég hef ekki breytt þeim, ég hef afnumið þær.“
En hvert er þá það viðskiptakerfi, sem að er stefnt, og hvaða kosti hefur það til að bera fram yfir önnur viðskiptakerfl? Það kerfi viðskipta, sem felst m.a. í því frv., sem hér er til umr., hefur verið nefnt fríverzlunarkerfið. Það er kerfi, sem gefur öllum jafnan rétt til verzlunar, ívilnar hvorki né íþyngir og skapar hvorki einstaklingum í ákveðnum hópum neina réttarlega né raunverulega sérstöðu til verzlunarrekstrar, og á þetta jafnt við um verzlun milli ríkja og innanlands. Rök fríverzlunarstefnunnar eru klár og einföld og öllum auðskilin. Þau byggja á staðreynd verkaskiptingar einstaklinga, stétta, byggða og þjóða, sem eykur framleiðsluna, og þeirri staðreynd, að frjáls viðskipti allra þessara aðila auka velmegun þeirra allra.
Ef fella á dóm um það, hvort eitt verzlunarkerfi sé öðru æskilegra og fremra, verður fyrst að gera sér ljóst, hvaða mælíkvarða á að leggja á kosti og bresti, eða m.ö.o. að slá föstu, hver sé tilgangur og markmið hagkerfis þjóðarinnar í heild. Þessi markmið geta verið tvenns konar, hagræn eða pólitísk. Við ákvörðun á íslenzkri verzlunarstefnu liggur það í hlutarins eðli, að hagræna sjónarmiðið á áð vera það, sem mestu ræður. Markmið íslenzkrar verzlunarstefnu hlýtur því fyrst og fremst að vera að auka þjóðartekjurnar og þjóðarauð íslendinga. Þetta gerist bezt með þátttöku Íslendinga í verkaskiptingu þjóðanna fyrir tilstilli frjálsrar utanríkisverzlunar, því að með þeim hætti fær þjóðin ódýrari vörur, betri vörur, meira vörumagn og aukið vöruval. Þetta hefur svo í för með sér auknar þjóðartekjur, meiri velmegun og fjölbreyttari lifnaðarhætti. Svo sannarlega ættu þessi grundvallarsannindi að vera Íslendingum öðrum þjóðum fremur ljós, einkum og sér í lagi hafandi hugfastar eftirtaldar staðreyndir: Aðal-, ef ekki einu auðlindir landsins eru fiskimiðin við strendurnar og orka vatnsfalla og heitra hvera. Við þurfum hins vegar að flytja inn allan kornmat og margar aðrar tegundir matvæla, sömuleiðis megnið af nauðsynlegum fatnaði, byggingarefni, kol og olíur, vélar og tæki, ef framleiðslan á að ganga sinn gang og við að lifa skaplegu lífi í landinu. Til greiðslu á þessum margvíslega varningi verðum við að flytja út framleiðslu, sem frá náttúrunnar hendi er mjög fábreytileg, aðallega fáeinar tegundir sjávarafurða: Íslendingum hentar því alþjóðleg verkaskipting flestum þjóðum betur, enda má fullyrða, að frjáls utanríkisverzlun sé þjóðinni bráð lífsnauðsyn. Sérhverjar hömlur, sem aðrar þjóðir leggja á innflutning og útflutningsafurðir okkar, og þau höft, sem við setjum á innflutning erlendra vara hingað til lands, gera lífsafkomu okkar lakari, því að þeim mun minna vörumagn og vöruval stendur okkur til ráðstöfunar og að sama skapi verður vöruverðið líka oftast hærra. Ekkert annað verzlunarkerfi uppfyllir betur hagrænar þarfir þjóðarinnar en fríverzlunarkerfið í heild. Verndartóllakerfið gerir vörurnar dýrari og rýrir þannig lífsafkomu borgaranna. Haftakerfið minnkar vöruval og vörugæði og rýrir þannig lífskjör. Og öllum hinum ófrjálsu kerfum ér það sameiginlegt, að þau mismuna þegnunum, ýmist ívilna einni stétt á kostnað annarrar eða ota tota einhverra einstaklinga og bera þá samtímis hlut annarra fyrir borð. Það er því vafalaust, að fríverzlunarkerfið er hið ákjósanlega, enda þótt það sé auðvitað fjarri því að vera án ágalla fremur en önnur mannanna verk. Það má og í raun og veru segja, að fríverzlunarkerfið sé eina lýðræðislega og félagslega — sósiala — verzlunarkerfið, því að þar eru völdin lögð í hendur þegnanna, en ekki ríkisins, embættismanna eða einokunar. Það verða þó ekki stofnanir eða stjórnir, sem ákvarðanir taka, heldur sá óbreytti borgari. Völdunum er þar með aftur skilað í hendur þegnunum. Innflytjendur, kaupmenn eða kaupfélög, verða þjónar fólksins, sem reyna að hafa á boðstólum þær vörur, sem óskað er eftir. Neytendurnir kaupa vörurnar þar, sem þeir fá þær beztar og ódýrastar, og knýja þá, sem vörurnar selja, til samkeppni. Þannig verður neytandinn húsbóndi á sínu eigin heimili og þarf ekki að haga neyzlu sinni og lífsvenjum eftir kennisetningum eða kenjum einhverra embættismanna eða nefnda; sem á tímum hafta eru allsráðandi um það, hvað almenningur leggur sér til munns og hverju hann klæðist. Þegnarnir þurfa enga slíka opinbera forsjá, þeir vita sjálfir bezt, hvar skórinn kreppir. Með frjálsri verzlun myndast þannig víst lýðræði í atvinnumálum, hliðstætt því, sem menn njóta í stjórnmálum, því að hver neytandi fer þar með sitt atkvæði og hefur með eftirspurn sinni bein áhrif á verðlag, vöruval, vörugæði, framleiðsluna sjálfa og innflutning til landsins.
Hitt er auðvitað jafnljóst, að það þarf tvo til að kaup takist. Við kaupum ekki frjálst, nema frjálst sé af okkur keypt og án skilyrða. Við getum því stundum af illri nauðsyn orðið að slá af óskum okkar eða a.m.k. að sækja fram til frelsisins í áföngum. Því hljótum við að fagna því, að sem flestar þjóðir vilja fara hina frjálsu leið í millilandaviðskiptum, því að þeim mun auðveldari verða okkur frjáls viðskipti við þær. Þess skulum við þá líka vera minnugir, að ef viðskiptin verða frjáls, þá getur samkeppnin ein, hæfnin ein tryggt öryggi okkar. Þá verða það vörugæði og verð framleiðslu okkar; sem lífskjörin munu skammta, en hvorki erlend lán né jafnkeypisviðskipti.
Í anda þeirrar stefnu, sem ég hér hef gert grein fyrir, er frv. um skipan innflutningsog gjaldeyrismála samið. Hæstv. viðskmrh. ræddi efni frv. svo nákvæmlega í framsöguræðu sinni við 1. umr. um frv., að ég ætla að leyfa mér að fara fljótt yfir þá sögu. Kjarni málsins felst raunverulega í þeirri setningu, sem 1. gr. I. kafla frv. hefst á, en hún hljóðar svo; með leyfi hæstv. forseta: „Inn flutningur á vörum til landsins skal vera frjáls.“ Þessi er hin stefnumarkandi höfuðyfirlýsing frv. Að vísu er hún síðar í frv. nokkuð þrengd með heimild til ríkisstj. um að setja skilyrði um innflutning og gjaldeyrissölu, sem nauðsynleg kunni að vera vegna viðskiptasamninga eða af öðrum ástæðum. Með frv. þessu, svo langt sem það nær, er þó tvímælalaust stigið fyrsta stóra sporið frá 30 ára haftabúskap, sem við höfum orðið að lúta. Innflutningsskrifstofan er lögð niður og leyfaveitingar, að svo miklu leyti sem þær halda áfram, gerðar að almennum bankamálum. Þá er jafnframt með frv. þessu létt af 13 ára gömlum fjárfestingarhömlum og þar með síðustu leifar fjárhagsráðs til grafar bornar. Í sama mund hefur ríkisstj. veitt eftirhreytum skömmtunarkerfisins nábjargirnar.
Persónulega leyfi ég mér að láta í ljós þá skoðun, að hin 20 ára gömlu verðlagshöft hefðu að mínum dómi einnig mátt leggjast í þá sömu gröf, því að verzlunarhöft, fjárfestingarhöft, skömmtun og verðlagshöft eru að mínu viti allt meðlimir sömu Bakkabræðrafjölskyldunnar, sem of lengi hefur farið með stjórn íslenzkra efnahagsmála. En þessi skoðun verður að skrifast á minn reikning, en ekki meðnm. minna eða hæstv. ríkisstj.
Fjárfestingarhöftin verða sem sagt lögð niður og þá samtímis felld úr gildi lög nr. 10 18. febr. 1957, um afnot íbúðarhúsnæðis í kaupstöðum, sem við berum hér fram brtt. um á þskj. 343, og er borgurunum þannig að nýju fengin í hendur frjáls ráðstöfunarréttur á húsum sínum og fasteignum. Löggjöf þessi hefur vafalaust alltaf orkað tvímælis, en er orðin tilgangslaus, eftir að mönnum verður nú heimilað að byggja eftir getu og þörfum, jafnt íbúðarhúsnæði sem húsnæði til atvinnurekstrar. Varðandi fjárfestingarmálin má svo geta þess, að frv, gerir ráð fyrir, að Framkvæmdabanki Íslands hafi með höndum skýrslugerð um alla byggingarstarfsemi í landinu. Þá hefur þessi nýskipan og í för með sér, að enn ein nefndin leggur upp laupana, og er það jeppaúthlutunarnefndin svokallaða. Varðandi útflutningsverzlunina kveður frv. svo á um, að útflutningsnefnd skuli hverfa úr sögunni, en störf hennar falin einhverju rn., eins og áður tíðkaðist. Er ekki að efa, að almennt muni því fagnað, að með frv, þessu týna nokkrar af nefndum þjóðfélagsins tölunni.
Stjórnarandstaðan hefur við 1. umr., í n. og í blöðum sínum gagnrýnt frv. þetta töluvert, og mun ég nú víkja að þeirri gagnrýni í stórum dráttum. Gagnrýni stjórnarandstöðuflokkanna er af mjög ólíkum toga spunnin. Annar stjórnarandstöðuflokkurinn, Alþb., hefur miklað mjög fyrir sér þá stefnubreyt. í efnahagsmálum, sem leiða muni af frv. þessu, og, svo að notuð séu orð hv. 3. þm. Reykv. (EOI), nefnt þessar aðgerðir „gagnbyltingu auðvaldsins á Íslandi.“ Fyrir þá, sem eru ekki vel heima í orðfæri kommúnista, má geta þess, að svipuðu nafni var uppreisn ungversku þjóðarinnar nefnd á sínum tíma, gagnbylting auðvaldsins þarlendis. Framsóknarmenn vilja hins vegar gera hlut frv. sem minnstan og segja t.d. í fyrirsögn í Tímanum 9. þ. m., með leyfi hæstv. forseta: „Höftin haldast áfram. Skipt um nöfn á nefndum.“
Ég mun nú fyrst víkja að gagnrýni þeirra framsóknarmanna og get verið fáorður, því að þar er ekki af ýkjamiklu að taka. Það er þá fyrst og fremst almennt að segja um afstöðu Framsóknarfl. til haftabúskaparins, að hún hefur verið tvínónandi og tækifærissinnuð. Upphaflega var Framsfl. eindreginn haftaflokkur og sá eiginlegi ættfaðir þeirrar stefnu hér á landi. Mér er þó til efs, að til þess hafi legið hugsjónalegar — ídeológískar — ástæður, heldur hitt, að höftin voru beinn hagnýtur þáttur í uppbyggingu valdakerfis Framsfl. Höftin þjónuðu Framsfl. sérlega vel í því mikla átaki að sveigja innflutningsverzlunina að verulegum hluta undir ofurvald Sambandsins. Þetta tilræði tókst fyrir atbeina haftanna og hefði sennilega aldrei tekizt með öðrum hætti en þeirri aðstöðu og þeim vinnubrögðum, sem harðsvírað haftakerfi veitti óbilgjörnum handhöfum þess. En þegar höftin gerðust óvinsæl, venti Framsókn sínu kvæði í kross og sagði, eins og lesa má í leiðara Tímans 23. þ. m., með leyfi hæstv. forseta: „Nú dettur að sjálfsögðu engum í hug að viðhalda höftum haftanna vegna,“ stendur þar. Og þessi mun, a.m.k. á yfirborðinu, vera stefna flokksins í dag, og skal þó raunar játað, að þegar árið 1941 gaf milliþn. í gjaldeyrismálum, sem hv. 1. þm. Austf. (EystJ) var formaður í, út álit, þar sem svo er að orði komizt, með leyfi hæstv. forseta:
„Þótt n. hafi þannig ekki getað orðið sammála um það, hvort grípa skuli til innflutningshafta eða annarra ráðstafana til að bæta úr gjaldeyrísskorti, er hún hins vegar sammála um það, að innflutningshöft eru ástæðulaus, ef ekki er um gjaldeyrisskort eða hættu á gjaldeyrisskorti að ræða, enda ekki þær aðstæður fyrir hendi, sem innflutningshöftum er ætlað að bæta úr. Er það einróma álit n., að tímabært hefði verið að afnema innflutningshöftin á s.l. ári, ef sérstakt ástand hefði ekki skapazt vegna ófriðarins.“
Satt að segja sé ég nú ekki, hvernig framsóknarmenn geta verið á móti frv. þessu án þess að vera sjálfum sér ósamkvæmir eða a.m.k. ekki samkvæmir þeim orðum forustumanns síns, sem ég hér hef tilfært. Þeir geta að vísu verið á móti frv., ef þeir telja, að aðstæður séu ekki fyrir hendi til þess að afnema höftin, en þau rök hafa þeir a.m.k. enn ekki fært hér fram. Þeir geta hins vegar ekki verið andvígir frv. sökum þess, að í því felist engin veruleg breyt. frá því, sem er, eða a.m.k. getur það varla verið þeim neitt kappsmál að ganga gegn frv., sem aðeins feli í sér staðfestingu á þeirri stefnu, sem stjórn undir forsæti formanns þeirra hefði að undanförnu rekið. Telji þeir hins vegar þá stefnu úrelta og frv. stjórnarflokkanna ekki ganga nógu langt til nýbreytni, ber þeim sjálfum að marka aðra nýja stefnu, en slíkt hafa þeir einnig látið undir höfuð leggjast að bera hér fram. Mér sýnist því allt andóf framsóknarmanna við þessu frv. frekar fálmkennt, og gengur það sennilega til, að þorri þeirra muni í hjarta sínu vera samþykkur þessari stefnubreyt. og því um geð að ganga í berhögg við hana.
Í ræðum hv. 3. þm. Reykv., sem tíðast túlkar hér efnahagsmálaskoðanir þeirra sósíalista og af mestum fjálgleik, hefur bæði við 1, umr. um þetta frv. sem og áður við umr. um efnahagsmálafrv. og skattamálin gætt nokkurrar biturðar og sárra vonbrigða. Þetta er í sjálfu sér ekki óskiljanlegt, því að kommúnistar hafa með beinni og óbeinni, óafvitandi aðstoð borgaraflokkanna reynt að lauma nýju efnahagskerfi, ríkissósíalismanum, inn um bakdyr íslenzks þjóðarbúskapar. Sumpart hefur þetta gerzt með skattakerfi, sem miðað hefur að því að gerbreyta þjóðfélagskerfinu og þannig verið dulbúin bylting. Þetta skattakerfi hefur haft í för með sér í æ ríkari mæli sósíalíseringu á tekjum einstaklinganna, þ.e.a.s. hið opinbera hefur tekið til sín stöðugt stærri hluta af tekjum einstaklinganna. Þetta skattakerfi hefur útilokað hagkvæman rekstur fyrirtækja og myndun sjóða til þess að endurnýja atvinnutæki í einkaeign. Þetta skattakerfi hefur ásamt rangskráningu gengisins búið svo að framleiðslunni, að hún hefur gengið úr greipum einstaklinganna og færzt yfir á hendur þess opinbera, og skortur á myndun einkafjármagns leitt af sér, að einkaframtakið var ekki megnugt að ráðast í kaup á meiri háttar nýjum atvinnutækjum, svo að það opinbera var sá eini aðili, sem til greina kom, þegar ráðast þurfti í meiri háttar nýsköpun atvinnulífsins. Til viðbótar þessu kom svo haftabúskapurinn með opinberum afskiptum af innflutningi, verðlagi og neyzlu og klafabindingu utanríkisverzlunarinnar í æ ríkari mæli í formi „clearing“-viðskiptanna. Á þennan hátt voru menn vel á veg komnir þegjandi og hljóðalaust að innleiða ríkissósíalismann á Íslandi, þvert ofan í vilja þjóðarinnar sjálfrar. Það var bylting, sem framkvæma átti bakdyramegin. Svo vel taldi hv. 3. þm. Reykv. sig hafa búið um hnútana, að hann sagði hér við einar umræðurnar, með leyfi hæstv. forseta: „Prívatkapítalisminn hefur verið bannaður á Íslandi og ekki getað þrifizt nema með skattsvikum og gjaldeyrissvikum.“
Með hinni nýju efnahagsmálastefnu hæstv. ríkisstj. hrynja þessar spilaborgir ríkissósíalismans til grunna. Loku er skotið fyrir bakdyrnar og fordyrið opnað upp á gátt fyrir nýrri, farsælli þróun, og það er þessi staðreynd, sem þeir Alþýðubandalagsmenn óttast mest.
Hv. 3. þm. Reykv. minntist í ræðu sinni við 1, umr. þessa frv. á það, sem hann vildi kalla næturvarðastefnuna frá 1850. Þetta er haglega orðað. En hitt er annað mál, að það er einmitt hann og hans flokkur, sem í þessu þjóðfélagi eru næturverðir frá 19. öld og stefna þeirra því sannnefnd 19. aldar næturvarðastefna. Voru það ekki 19. aldar næturverðirnir, Marx og Engels og lærisveinar þeirra, sem spáðu samdrætti kapítalsins, útrýmingu smáfyrirtækjanna, endalokum miðstéttarinnar og síharðnandi kreppum? Hver var svo dómur reynslunnar í heiminum og þá ekki sízt á Íslandi? Hafa litlu og miðlungsfyrirtækin horfið? Nei, hreint ekki. Þau hafa enn í dag, sem betur fer, haldið velli. Hafa atvinnutækin lent í höndum fárra auðmanna? Alls ekki. Eru ekki hér á landi og á Norðurlöndum stærstu atvinnufyrirtækin m.a. í eigu samvinnufélaga, sem stór hluti þjóðarinnar er aðili að, og í öðrum löndum í eigu hlutafélaga, sem tugþúsundir og hundruð þúsunda eru hluthafar í? Hefur öreigastéttinni farið fjölgandi og millistéttin horfið úr sögunni? Þvert á móti. Eignaleysingjunum hefur sem betur fer fækkað. Almenn velmegun og tekjujöfnun hefur átt sér stað í öllum löndum kapítalismans og þá ekki sízt einmitt hér á landi. Flibbalausu verkamönnunum hefur fækkað í iðnaðarríkjunum og eru sums staðar að hverfa sem stétt, en hin borgaralega millistétt hefur hvarvetna haldið velli. Og kreppurnar hafa sýnt sig að vera efnahagsleg fyrirbæri. sem borgaralega þjóðfélagið væri ekki ómegnugra að leysa en hið sósíalistíska. Stefnu næturvarðanna hefur dagað uppi og er nú steinrunnið nátttröll í lifandi þjóðfélagi. Hún byggist á úreltum kennisetningum og miðar við löngu horfnar sögulegar aðstæður og beinan misskilning á framvindu sögunnar. Tal næturvarðanna um efnahagsmálaleg viðfangsefni líðandi stundar er líkast því sem múmíur í egypzkum pýramídum væru að stinga saman nefjum og segja til um úrlausn viðfangsefna á atómöld.
En rekjum nú í stuttu máli viðhorf næturvarðanna til núverandi efnahagsmálaaðgerða, og mun ég, með leyfi hæstv. forseta, gera það einfaldlegast með nokkrum tilvitnunum í ummæli hv. 3. þm. Reykv. (EOl) við umr. hér á Alþingi í vetur. Þótt allt sé það ekki flutt í samhengi, er það a.m.k. ekkert slitið úr samhengi til þess að rangsnúa málstað hans, enda mun hann þá vafalítið leiðrétta mig síðar, ef hann telur mig hafa afflutt málstað sinn eða rangfært eitthvað. Með leyfi hæstv. forseta, hef ég þá lestur tilvitnannanna.
„Alþingi þarf að hafa vit fyrir þjóðinni. Það má ekki sleppa fjármunum við hana. Við höfum skapað stórfelldar framfarir með ríkisafskiptum. Við hefðum þurft að hafa ríkisafskiptin meiri. Við hefðum aldrei átt að afnema skömmtunina. Maður á að spara við sig sykur og kaffi, þegar maður á peninga. Það hættulegasta í þessu frv. er frjáls verzlun. Frjáls verzlun er verri en herinn. Engin ástæða er til að skrá rétt gengi. Óhjákvæmileg nauðsyn að þjóðnýta alla utanríkisverzlunina. Það, sem gera verður, ef menn verða varir við verðbólgu, er að herða á stjórn þjóðarbúskaparins. Almennt viðskiptafrelsi ér ekki lengur til í heiminum. Gallinn var, að höftin voru ekki nógu alger. Þjóðfélagið verður með harðri hendi að stjórna fjárfestingunni. Stundum er jafnvel betra að veifa röngu tré en öngu, og slæm stjórn er betri en engin stjórn.“
Þannig voru þau ummæli. Ja, svo syngur hver fugl sem hann hefur nef til. Þessar að vísu nokkuð handahófslegu tilvitnanir gefa þó í heild, að ég held, rétta og nokkuð skýra mynd af efnahagsmálaviðhorfum þeirra sósíalista og viðhorfum þeirra til meginatriðanna, sem umrætt frv. fjallar um. Þeir draga enga dul á, að þeir telja höftin æskileg, enda eru þau skilgetið afkvæmi hugsanakerfis þeirra. Þau eru eðlilegur þáttur í efnahagskerfi þeirra. Efnahagskerfi þeirra fær bókstaflega ekki staðizt án hafta. Þau eru því í borgaralegu þjóðfélagi áfangi á leið þeirra til hins fullkomna haftabúskapar, áætlunarbúskaparins, ríkis sósíalismans. Þeim er það líka fullljóst, sósíallstunum, að höftin eru andstæð frjálsu efnahagslífi og skapa mótsetningar innan þess, sem grafa undan frjálsu efnahagskerfi. Sósfalistarnir eru því í dag hinir einu sanntrúuðu haftapostular á Íslandi. Það eina, sem þeir geta fundið íslenzkri haftapólitík til foráttu, er, að höftin hafi ekki verið nógu ströng, ekki nógu alger. Það átti að beizla allt, tjóðra alla og sveigja undir opinbera forsjá, kaffæra einkaframtakið og athafnafrelsið í eitt skipti fyrir öll. Það átti aldrei að slaka á klónni. aldrei að afnema brauðskömmtunina, aldrei að gefa fjárfestingu frjálsa, aldrei að gefa verzlunina frjálsa, aldrei að leggja niður innflutningsskrifstofuna, aldrei að afnema jeppanefndina, aldrei að leysa upp útflutningsnefndina, aldrei að hagga við neinu af þessu, heldur bæta nýrri silkihúfu ofan á allt þetta, sem fyrir var, einhverju áætlunarráði og alls konar öðru planökonómísku fígúruverki.
Þetta er stefna fyrir sig, en er þetta stefnan, sem íslenzkur verkalýður ber í dag alveg sérstaklega fram kröfur um? Ég vil svara því neitandi. Þessi stefna er í beinni andstöðu við hagsmuni og hugsun allrar íslenzku þjóðarinnar og e.t.v. fyrst og fremst til mestrar kjararýrnunar fyrir verkalýðinn og launþegana í landinu. Þessi stefna er engum þjónanleg nema þeim, sem notfæra vilja sér hana sem tæki til þess að kollsteypa núverandi þjóðskipulagi og innleiða efnahagskerfl ríkissósíalismans á Íslandi. Innflutnings- og gjaldeyrishöftin eru eðlilegur hluti og bein nauðsyn í sósíalistískum áætlunarbúskap, og þau eru einmitt ein af orsökunum fyrir því, að við aðhyllumst ekki þá búskaparhætti. Þau eru nauðsynleg, því að annars mundu öll plönin góðu fara út um þúfur. Okkur eru plönin bara einskis virði, okkur er afkoma fólksins aðaláhugamálið.
Ég mun nú víkja að einstökum atriðum í gagnrýni Alþb. á frv. þessu og þó sérstaklega staldra við eitt atriðið, sem er viðskiptin við jafnkeypislöndin, löndin í Austur-Evrópu.
Hv. 3. þm. Reykv. hefur sagt, með leyfi hæstv. forseta: „Það er hatazt við þessi viðskipti. Frílistinn mun draga úr viðskiptum við sósíalistísku ríkin.“ En hver er sannleikurinn í þessu máli? Það verður að vísu engu spáð um jafnóvissan hlut sem þróun utanríkisverzlunar einnar þjóðar, en hinu er auðveldara að gera grein fyrir, að hverju stefnt er. Það dettur víst engum heilvita manni á Íslandi í hug að hatast við verzlun við einstök lönd. Þar ráða einfaldlega hagkvæmissjónarmiðin. Eins og bæði hæstv. forsrh. og hæstv. viðskmrh. hafa ítrekað lýst yfir, vilja Íslendingar vitaskuld eiga sem mest og bezt viðskipti við allar þjóðir, við hvaða þjóðfélagshætti sem þær annars kunna að búa. Hitt er svo önnur saga, að það hefur verið talinn hygginna manna háttur að dreifa utanríkisviðskiptunum sem mest og verða engum um of háður og að leggja meiri áherzlu á þau viðskiptin, sem gefa af sér frjálsan gjaldeyri en þann, sem bundinn er með clearing-samningum, því að af miklum clearing-samningum getur leitt þá miklu hættu, að kaupandinn fái þá þá aðstöðu, að hann fari óbeint að taka ákvarðanir um gengi myntar okkar með því að skammta okkur að eigin geðþótta bæði verð á útfluttum og innfluttum vörum. Þetta er fyrirbæri, sem Þjóðverjar voru ásakaðir um á dögum nazista og einnig hefur þótt gera vart við sig í viðskiptum Rússa við grannríki þeirra.
Sannleikurinn í málinu er sá, að ef nokkuð er, þá gerir þetta frv. ráð fyrir sérlegri vernd einmitt til handa viðskiptunum við jafnkeypislöndin, — staðreynd, sem við fylgjendur fríverzlunarinnar hörmum að gera hefur orðið af nauðsyn. Með þeim listum, sem gefnir verða út, er frv. þetta er orðið að lögum, er meiningin að tryggja beint með aðgerðum hins opinbera, að viðskiptin við þessi lönd geti ekki, ef ekki eitthvað alveg óvænt kemur fyrir, orðið minni en 87% af því, sem þau voru árið 1958, og verður þá varla til minna ætlazt en að samkeppnishæfni þeirra sjálfra tryggi þau 13%, sem á vantar, til þess að viðskiptin geti haldizt óbreytt frá því, sem verið hefur. Hinu er ekki að leyna, að að dómi fróðustu manna á því sviði þurfa viðskiptin við jafnkeypislöndin endurskoðunar við. — endurskoðunar, sem framkvæma hefði orðið alveg án tillits til þessa frv. og ég vil leyfa mér að segja alveg án tillits til þess, hvort núverandi stjórn fer með yfirstjórn þessara mála eða einhver vinstri stjórn hefði gert það, en hún er sú að koma þessum viðskiptum á grundvöll heimsmarkaðsverðs, eins og viðskipti okkar t.d. við Rússa byggjast á. Það er ekki frambúðarfyrirkomulag að reyna að selja óvandaðri tegundir útflutningsvöru á hærra verði í þessum löndum en fyrsta flokks vara er seld annars staðar á. Alveg jafnóeðlilegt er að greiða í þessum löndum sumum 20% hærra verð fyrir járn og 10% hærra verð fyrir sykur en hægt er að kaupa sömu vöru á í öðrum löndum, svo að fáein dæmi séu nefnd. Austur-Evrópu-þjóðirnar hljóta að gera kröfu til betri vöru, og við hljótum að gera kröfu til hagstæðara verðs. Með hliðsjón af þessum staðreyndum munu viðskiptin við jafnkeypislöndin vafalítið mótast, en ekki af einhverjum pólitískum fordómum.
Því hefur verið haldið fram, að viðskiptunum við sósíalistísku ríkin fylgdi eitthvert sérstakt efnahagslegt öryggi. Því miður er þetta ekki staðreynd. Um það bera viðskiptin við Pólland, minnkandi síldarkaup Rússa og vanefndir á afgreiðslu samkvæmt samningum frá öðrum þessara ríkja augljóst vitni, enda tel ég, að hv. 3. þm. Reykv. hafi einmitt við þessar umr. lagt fram sönnunargögn í málinu, sem sanna, svo að ekki verður um villzt, að þessi viðskipti eru sízt tryggari en viðskipti við kapítalistísk lönd, en hann sagði, með leyfi hæstv. forseta: „Mér er kunnugt um, að umtalið um frílista hefur þegar á undanförnum þrem mánuðum haft mikil áhrif, þannig að hin sósíalistísku ríki eru farin að gera samninga við önnur lönd um kaup á vörum, sem þau hafa keypt af okkur. Tékkar hafa t.d. samið um fiskkaup af Norðmönnum.“ Sér er nú hvert efnahagslegt öryggið, ef lauslegt tal eitt um frílista rýfur fyrirvaralaust viðskiptatengsl, sem staðið hafa nú í hálfan annan áratug. Ég veit ekki nema þeir þarna austur frá muni segja um þessi ummæli hv. 3. þm. Reykv. eins og karlinn: „Guð forði mér frá vinum mínum, sjálfur get ég séð um óvini mína.“
Nei, mergurinn málsins er, að þessu frv. er ekki beint gegn viðskiptum við neina þjóð, því er hins vegar ætlað að reyna að auka viðskipti Íslendinga við sem flestar þjóðir.
Það er að vísu ótalmargt fleira, sem segja mætti um efni þessa frv. og það, sem menn hefðu getað hugsað sér að í því væri til viðbótar. Frv. fjallar t.d. aðallega um aukna fríverzlun í innflutningi, og vissulega eru hagkvæm innkaup til landsins jafnmikilsvirði fyrir þjóðarbúskapinn og hátt verð á útflutningsafurðum, því að ef hægt er að spara 5–10% af erlendum gjaldeyri með því að kaupa vörur á lágu verði, kemur það þjóðhagslega svipað út og sams konar verðhækkun á útflutningsframleiðslunni. Í þessu felst og sú kjarabót, sem hin nýja verzlunarstefna á að geta fært neytendunum í landinu, hinni gleymdu stétt, sem við þó allir tilheyrum. Frjáls verzlun er nefnilega ekki fyrst og fremst hagsmunamál fárra ríkra auðhringa og heildsala, sem sumir hverjir vafalaust hagnast mun betur á tímum haftakerfisins, heldur hagsmunamál almennings í landinu og þá fyrst og fremst launþeganna, sem byggja afkomu sína á að fá sem bezta vöru við sem lægstu verði. Fríverzlunin er því í raun og veru alþýðutryggingar út á við.
Önnur hlið málsins er sú, sem að útflutningsverzlun landsmanna lýtur og þetta frv. fjallar lítið um. Sumir hafa viljað halda því fram, að frjáls útflutningsverzlun sé nauðsynleg forsenda frjálsrar innflutningsverzlunar. Svo er þó alls ekki. Hinu er engin launung á, að þeir eru margir, sem telja enga ástæðu til þess að viðhalda núverandi einokun á útflutningi ýmissa framleiðsluvara, þegar nýtt viðskiptajafnvægi hefur tryggt framleiðendum viðunamdi verð fyrir afurðir sínar. En um það skal ekki fjölyrt hér að sinni, þó að það sé vissulega um margt íhugunarefni og þar þurfi að hefja nýja sókn aukinnar hugkvæmni og nýrra úrræða. Við þörfnumst heils hers af frumherjum á því sviði. Við þörfnumst nefnilega ekki fyrst og fremst sendiráða og ambassadora, heldur herskara af sölumönnum íslenzkra afurða og það um allar jarðir, en það er önnur saga.
Að lokum þetta: Með frv. þessu er haftabúskapurinn á Íslandi því miður ekki með öllu úr sögunni. En hér er þó um merkilega tilraun að ræða til þess að stiga fyrsta sporið frá haftabúskapnum, og vonandi tekst okkur með hæfilegri þolinmæði að losna við höftin fyrir fullt og allt. En til þess að slíkt megi takast, þurfum við að ná jafnvægi í þjóðarbúskapnum, auka útflutningsframleiðslu okkar og mynda okkar eigin gjaldeyrisvarasjóði. Með þessu og öðrum efnahagsmálafrv. hæstv. ríkisstj, er ekki stefnt að neinu allsnægtaþjóðfélagi með tilheyrandi handjárnum og hugsanakúgun. Við látum okkur nægja þjóðfélag þeirra óánægðu og dálítið öfundsjúku, sem vilja þó sjálfir bera ábyrgð á sjálfum sér. Við í meiri hl. fjhn, teljum, að frjálsir einstaklingar búi sér farsælast þjóðfélag, og þar sem frv. þetta miðar að því að okkar dómi að auka efnahagslegt frelsi borgaranna og mun að vonum stuðla að aukinni framleiðslu, aukinni framleiðni og aukinni almennri velmegun allrar þjóðarinnar, leggjum við til, að frv. verði samþ. með þeirri breytingu, sem áður hefur verið lýst.