02.05.1960
Neðri deild: 74. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2304 í B-deild Alþingistíðinda. (775)
131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Það er nú búið að hafa svo langa kennslustund hér í Rússlandsviðskiptum, að það er eiginlega hálfgleymt, sem hæstv. viðskmrh. sagði í upphafi ræðu sinnar, þar sem hann vék nokkuð að því, sem ég hafði sagt hér fyrr í dag eða við fyrri umr. En það eru ekki nema fá atriði, sem ég þarf að svara af því, sem hann sagði.
Hæstv. ráðh. ræddi nokkuð mikið um gjaldeyrishöft og um orsakir þeirra og hvaða ráðstafanir mætti helzt gera til þess að losna við þau. Til þess að átta sig á því, er það einna auðveldast á þann veg, að menn geri sér grein fyrir því, hver er orsök haftanna eða hvers vegna verður að grípa til gjaldeyrishafta. Orsökin er sú, að eftirspurnin eftir gjaldeyri er of mikil, og þess vegna verður að grípa til ráðstafana til að takmarka hana. Til þess að mæta þessum orsökum eða draga úr þeim er um tvær leiðir að ræða. Önnur er sú að gera ráðstafanir til að draga úr eftirspurninni, en orsök hennar er kaupgetan, og hin er sú að reyna að afla aukins gjaldeyris og draga úr gjaldeyrisskortinum á þann veg. Hér er bersýnilega um tvo aðalmöguleika að ræða. Allt hið fræðilega tal hæstv. viðskmrh. um þessi mál breytir ekki því, sem ég sagði um þessar tvær meginstefnur til þess að draga úr gjaldeyrishöftum. Hitt er svo alveg rétt hjá honum, að það þarf fleiri ráðstafanir til viðbótar en þessar tvær meginleiðir, ef tilætlaður árangur á að nást. En ég sé ekki ástæðu til þess að fara út í það nánar hérna, vegna þess að þetta breytir ekki þeim meginatriðum, sem ég dró fram.
Það var sérstaklega það, sem ráðh. sagði hér um Frakkland og Tyrkland, og það, sem ég hafði sagt um þau mál, sem gaf mér tilefni til að segja hér nokkur orð að nýju.
Hæstv. ráðh. vildi draga mjög í efa, að það, sem ég hafði sagt um þessi mál, væri rétt. Ég ætla ekki að fara að deila lengi við hann um þetta efni nú. T.d. í sambandi við Frakkland mun ég láta það alveg nægja að vísa til aðila, sem eiga að vera dómbærir um þessi mál, og ég álít, að hæstv. ráðh. ætti ekki síður að geta sætt sig við úrskurð þeirra en ég, og það eru þeir menn í Frakklandi, sem hæstv. ráðh. telur flokksbræður sína, jafnaðarmennirnir. Ég veit ekki betur en þeir hafi sagt sig úr núverandi ríkisstj. Frakklands vegna andstöðu gegn þeirri efnahagsmálastefnu, sem ríkisstj. fylgir. Hins vegar eru þeir sammála ríkisstj. í öðru aðalmálinu, sem nú er efst á baugi í Frakklandi, sem er Alsírmálið. Þeir sögðu sig úr ríkisstj. vegna ágreinings um efnahagsmálastefnuna og halda nú uppi harðri andstöðu gegn stjórninni vegna stefnu hennar í efnahagsmálunum. Það er af þeirri einföldu ástæðu, að þeir telja, sem líka rétt er, að þessar ráðstafanir hafi skert lífskjör almennings í Frakklandi alveg stórkostlega. Ástæðan til þess, að það hefur ekki enn orðið mikið um verkföll í Frakklandi, er sú, að í raun og veru óttast verkamenn það og ekki að ástæðulausu, að ef þar yrði um einhver meiri Háttar verkföll að ræða, þá mundi ríkisstj. láta herinn grípa í taumana, svo að Frakkland er ekki neitt venjulegt lýðræðisríki í þessum efnum. Ef þessi ótti væri ekki yfirvofandi, væru að sjálfsögðu þegar hafin stórfelld verkföll í Frakklandi vegna þess ástands, sem þar hefur skapazt. Frönsku bændurnir hafa líka vakið stórkostlega mótmælaöldu.
M.a. hefur hún náð þeim árangri, að meiri hl. þingmanna óskaði þess fyrir nokkru, að þingið yrði kallað saman til að ræða þau vandamál þeirra, sem hefðu risið af efnahagsmálastefnu ríkisstj. En um þetta eigum við hæstv. ráðh. ekki að þurfa að deila. Við eigum að geta sætt okkur við dóm flokksbræðra hans í Frakklandi um þessi mál. Ég skal a.m.k. fullkomlega gera það fyrir mitt leyti, og ég trúi ekki öðru en hæstv. ráðh. vilji líka beygja sig fyrir úrskurði flokksbræðra sinna þar um þessi mál:
Það sem hæstv. ráðh. sagði um Tyrkland, þá er það að vísu rétt hjá honum, að kröfur manna nú í Tyrklandi beinast fyrst og fremst að því að fá aukið frelsi og afnumdar þær einræðisráðstafanir, sem ríkisstj. hefur gert. En hver er ástæðan til þess, að ríkisstj. hefur gripið til þessara ráðstafana? Það eru þær óvinsældir, sem hún á við að búa núna í landinu og eru sprottnar af þeim efnahagsráðstöfunum, sem hún nú hefur gert. Það eru kosningar skammt fram undan í Tyrklandi, og stjórnin óttast, að í þeim kosningum muni hún biða fullkominn ósigur vegna þeirrar andúðar, sem efnahagsráðstafanir hennar hafa skapað. Og til þess að komast hjá því, að þessi úrskurður kjósenda verði felldur um efnahagsráðstafanir ríkisstj., hefur hún gripið til þeirra einræðisráðstafana, sem nú valda mestum átökum í Tyrklandi. Þess vegna er það fullkomlega rétt, sem ég sagði, að þeir atburðir, sem nú eru að gerast í Tyrklandi, reki að verulegu leyti eða að mestu leyti rætur sínar til efnahagsaðgerða ríkisstj., og það, sem stúdentar og aðrir frjálslyndir menn fara fram á í Tyrklandi núna, er að fá frelsi til þess í kosningum að geta hnekkt þessari efnahagsmálastefnu ríkisstj. Það er það, sem er barizt um.
Ég held, að það hafi svo ekki verið önnur atriði í ræðu hæstv. ráðh., sem ég sé ástæðu til þess að elta ólar við að þessu sinni. En ég vil aðeins segja að lokum, og það er það, sem mér finnst mestu skipta, að í ræðu sinni kom ráðh. ekkert inn á þá megingagnrýni gegn þessu frv. eða þeirri stefnu, sem það hefur boðað. Hann gerði ekkert til þess að andmæla því núna, að í raun og veru væri verið að taka upp ný og verri höft með þessum ráðstöfunum en þau, sem fyrir voru. Hann bar ekkert á móti því, að með þeirri kjaraskerðingu, sem nú á sér stað, er í raun og veru verið að innleiða ný höft. Hann andmælti því ekki neitt heldur, að vaxtahækkunin eða vaxtaokrið væri ekkert annað en ný höft. Og sama gildir um útlánastarfsemi bankanna. Þetta er ný sönnun þess, þessi afstaða ráðh. sýnir, að það er rétt, sem hér hefur verið haldið fram, að með þessum ráðstöfunum sé síður en svo verið að auka frjálsræði í landinu eða gera ráðstafanir til þess að bæta verzlunina og bæta verzlunarkjörin, heldur miða heildarráðstafanir ríkisstj. allar í þá átt að auka höftin og gera þau raunverulega miklu þungbærari en þau þó hafa áður verið. Þessu fór ráðh. líka alveg fram hjá nú í seinustu ræðu sinni, ræddi aðallega um Rússlandsviðskipti, frönsk stjórnmál og tyrknesk, og það álít ég að hafi verið alveg rétt hjá honum, vegna þess að sú stefna, sem ríkisstj. hefur boðað með þessu frv. og er raunverulega að framkvæma, — sú stefna er þannig vaxin, að það er miklu betra fyrir hæstv. ráðh. að tala um flest annað en þau mál.