02.05.1960
Neðri deild: 74. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2307 í B-deild Alþingistíðinda. (776)
131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.
Frsm. 1. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Í fyrri ræðu minni við þessa umr. um frv. benti ég á það m.a., að í frv. væru engin ákvæði um aukið frelsi í viðskiptum þjóðarinnar við útlönd. Enn þá er haldið óbreyttum höftunum á vöruútflutningnum til annarra landa. Verði þetta frv. samþ., hefur ríkisstj. sömu heimild og hún hefur í núgildandi lögum um það að hafa afskipti af útflutningnum. Það er ákveðið, að ríkisstj. geti mælt svo fyrir, að vörur megi ekki flytja úr landi nema með hennar leyfi. Þetta er í lögum nú. Frv. boðar enga breytingu viðkomandi gjaldeyrisverzluninni. Enn sem fyrr á öllum þeim, sem afla erlends gjaldeyris, að vera skylt að selja hann bönkunum fyrir lögákveðið verð. Það er engin breyt. í frv. að þessu leyti. Það er heldur engin breyt. í frv. viðkomandi innflutningnum. Verði það samþ., hefur ríkisstj. sömu heimild og hún hefur nú í lögum til þess að ákveða, hvort eða hve mikið af innflutningnum verði á svokölluðum frílista og fyrir hvaða vörum þurfi innflutningsleyfi. Stjórnin þarf því ekki að fá þetta frv. samþ. til þess að geta farið sínu fram í viðskiptamálum, þetta frv. segir allt það sama og núgildandi lög.
En hitt er annað mál, að það eru ýmsar aðrar ráðstafanir, sem ríkisstj. hefur gert og er að gera til breytinga frá því, sem verið hefur, en það er ekki byggt á þessu frv. Í þessu frv. eru þó nokkrar breytingar að öðru leyti, eins og t.d. sú, að nú eiga þeir, sem ráða yfir peningum, að fá að framkvæma það, sem þeim sýnist. Áður þurfti til þess leyfi. Þetta snertir ekki verzlun með innfluttar eða útfluttar vörur eða gjaldeyrisverzlunina. Þeir eiga að fá að framkvæma það, sem þeim sýnist, en eins og ég áður hef bent á, er ekki víst, að sé einmitt það, sem gagnlegast er og nauðsynlegt fyrir þjóðfélagið á hverjum tíma. Þá er sú breyt. ráðgerð samkv. þessu frv. að fela öðrum mönnum framkvæmd haftanna en verið hefur. Þeir, sem eiga að gera þetta eftirleiðis, eru tveir bankar, og það er ríkisstj. sjálf og það eru sérstakir trúnaðarmenn hennar, sem hafa ekki fengizt upplýsingar um, hvað verði margir. Kannske er ekki ákveðið heldur enn, hve margir þeir kunna að verða. Það er því algerlega rangt, sem hæstv. ráðh. hélt fram, að það, sem ég sagði um þetta, væri úr lausu lofti gripið. Það er auðvelt fyrir hvern mann að sjá, að það, sem ég sagði um þessa hluti, er rétt. Það þarf ekki annað en bera saman ákvæði frv. um verzlunina við núgildandi lög til að sannfærast um það.
Hæstv. ráðh. kann því illa, að minnzt sé á það, að með verðhækkununum miklu, sem orðið hafa og eru enn að verða, með vaxtahækkuninni, með lánasamdrættinum, sé verið að leggja höft á almenning. Hann segir, að þetta sé hugtakaruglingur. Ég fæ ekki betur séð en þetta séu höft, mikil höft, þegar vegna ráðstafana stjórnarvaldanna eru kallaðar fram það miklar verðhækkanir á ýmsum nauðsynjavörum, að menn hafa ekki möguleika til að kaupa þær. Vitanlega eru þetta höft í vissu formi. En það virðist svo, að hæstv. stjórn vilji telja fólki trú um það, að ef hún kaupi vörur, ýmiss konar vörur, eða geri ráðstafanir til þess að kaupsýslumenn geti flutt inn vörur fyrir yfirdráttarlánið, sem hún hefur tryggt sér, þá sé öllu borgið, þá þurfi menn ekkert að kvarta. Það kom fyrir hér fyrr á öldum, þegar harðindi og ýmiss konar óáran gekk hér yfir okkar land, að fólk féll úr hungri og harðrétti. Sagan segir, að einu sinni, þegar slíkar fréttir bárust til annarra landa héðan frá Íslandi, hafi drottning nokkur sagt: „Ósköp eru að heyra þetta. Hvers vegna borðar fólkið ekki brauð og smjör heldur en deyja úr sulti?“ Mér finnst þetta vera dálítið svipað með núverandi hæstv. ríkisstj. eins og þessa drottningu. Ef einhver leyfir sér að kvarta yfir ýmsum ráðstöfunum ríkisstj., þessari miklu dýrtíð, sem nú fer sívaxandi, vaxtaokrinu og ýmsu slíku, þá segir stjórnin: „Verið þið bara róleg, það verður nóg til af vörum. Þið getið fengið allt, sem hugurinn girnist. Við ætlum að sjá um það. Hér á að vera frjáls verzlun, og það er einmitt það, sem fólkið þarf að fá.“ Hvers vegna borðar fólkið ekki brauð og smjör? sagði drottningin. Hvers vegna kaupir fólkið ekki þessar vörur, sem nóg er til af? segir hæstv. ríkisstj.
Hæstv. viðskmrh, talaði einnig í fyrri ræðu sinni um kostnaðinn við framkvæmd haftanna. Ég hafði bent á, að það væri ekki gert ráð fyrir því, að sá kostnaður væri minni en áður, því að samkv. frv. ætti að innheimta jafnhátt gjald af veittum gjaldeyrisleyfum og nú er gert. Ráðh. sagði, að það væri ætlazt til þess, að allur kostnaður við verðlagseftirlitið yrði greiddur af þessu gjaldi. En þetta er ekkert nýtt. Það hefur verið svo undanfarið. Samkv. ríkisreikningnum fyrir 1957, sem nýlega var afhentur þingmönnum, var kostnaðurinn við verðlagseftirlitið á því ári ásamt kostnaði við innflutningsskrifstofuna greiddur af þessu 1% gjaldi, og þá varð afgangur æði mikill, eitthvað á 3. millj. kr. af gjaldinu, sem greitt var inn í ríkissjóð.
Hæstv. viðskmrh. hefur nú nýlega lokið við að flytja langa ræðu, og kom hann þar víða við. Hann talaði um kaupmátt og kaupgetu, um peningamagn í umferð og höft og ekki höft og fjöldamargt fleira. Ég tók eftir því, að hann sagði í ræðu sinni m.a.: Kaupmáttur minnkar ekki, þótt peningamagnið dragist saman. — E.t.v. er það ætlun hæstv. ráðh. og stjórnarinnar að halda því fram, að þeir séu aðeins að draga úr peningamagninu í umferð, en kaupmátturinn haldi sér. En því fer auðvitað víðs fjarri. Kaupmáttur þeirra tekna, sem menn hafa, er stórum minni nú en hann hefur áður verið og fer minnkandi vegna þeirra aðgerða í efnahagsmálum, sem samþykktar hafa verið á þessu þingi og nú er verið að framkvæma. Ég gat þess fyrr, að ég hefði spurnir af því úr fleiri en einu landbúnaðarhéraði, að 9 af hverjum 10 bændum, sem ætluðu að fá sér dráttarvélar, hefðu orðið að afturkalla pantanir sínar, og það er fyrir það, að kaupmáttur þeirra tekna, sem þeir hafa fyrir sínar framleiðsluvörur, er miklu minni en hann áður var, þegar miðað er við innfluttar vörur. Hæstv. ráðh. sagði líka í þessari seinni ræðu sinni, að vaxandi kaupgeta gerði unnt að draga úr gjaldeyrishöftunum. En mér sýnist ljóst af ráðstöfunum ríkisstj., að hún hafi komið auga á það, að minnkandi kaupgeta gerði líka mögulegt að draga úr gjaldeyrishöftunum, því að það er það, sem hæstv. ríkisstj. er að framkvæma. Hún er að slá niður kaupgetuna til þess m.a. að geta dregið úr gjaldeyrishöftunum, sem hún segist ætla að gera. Þetta telur hæstv. ríkisstj. vera spor í rétta átt. En aðrir halda því fram, að svo sé ekki, og ég tel, að hér hefðu allt aðrar ráðstafanir átt að koma til.
Með þessum ráðstöfunum, — ekki endilega þessu frv., sem hér liggur fyrir, því að það út af fyrir sig, eins og ég benti á, felur ekki í sér miklar breytingar, — en með öðrum ráðstöfunum, sem hæstv. ríkisstj. er að gera, er verið að ýta þjóðinni aftur á bak. Það er verið að draga úr möguleikum landsmanna til þess að halda áfram uppbyggingu og eflingu atvinnuveganna. Það verður ekki annað séð en þessar ráðstafanir ýmsar verði til þess að draga úr framleiðslunni, minnka framleiðsluna og þá að sjálfsögðu minnka um leið tekjur þjóðarinnar og lífskjörin versna. Þetta er það hættulega við það, sem nú er verið að gera. Þess vegna er það, að ég tel, að það, sem nú þurfi einmitt sérstaklega að taka til athugunar, sé, hvaða ráðstafanir sé hægt að gera til þess, að ekki verið samdráttur í framleiðslunni, og til þess, að nauðsynleg og gagnleg uppbygging á öllum sviðum geti haldið áfram. Ég hef einmitt í nál. mínu. um þetta frv. lagt fram till. um það. Í þeirri till. til rökst. dagskrár, sem ég flyt þar, er gert ráð fyrir því, að nefnd manna frá öllum þingflokkum taki sérstaklega til athugunar fyrir næsta þing, hvaða ráðstafanir þarf að gera og hvaða ráðstafanir er mögulegt að gera til þess að halda uppbyggingunni áfram og eflingu atvinnuveganna. Þetta er aðkallandi að gera, en hins vegar engin þörf að samþykkja þetta frv., sem hér liggur fyrir. Þó að ríkisstj. vilji eitthvað auka frílistann, sem svo er kallaður, þá getur hún það eftir þeim lögum, sem nú gilda.