06.05.1960
Neðri deild: 77. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2383 í B-deild Alþingistíðinda. (788)

131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í þær almennu umr., sem hafa farið fram við þessa umr. um frv. Ég hef gert það áður og sé ekki ástæðu til þess að rekja það neitt nánar, sem ég hef áður um þetta sagt.

En það, sem ég vildi minnast á að þessu sinni, eru tvær brtt., sem ég hef lagt fram við þessa umr. Fyrri brtt. er í raun og veru ekki nema formsatriði, sem fjallar um það að fella ákvæði til bráðabirgða niður úr frv. Ég legg ekki neitt sérstakt kapp á það, að sú till. komi til atkv., heldur vildi aðeins með flutningi till. láta þá skoðun í ljós, að ég teldi, að það væri óþarft að láta þetta bráðabirgðaákvæði fylgja lögunum, vegna þess að það er vitanlega sjálfsagt, að þau leyfi, sem gefin eru út skv. gildandi lögum, haldi gildi sínu, þó að lögunum verði breytt, alveg eins og dómar, sem kveðnir eru upp skv. gildandi lögum, halda gildi sinu, þó að lögunum verði svo breytt síðar, eftir að þeir eru felldir. Af þessum ástæðum tel ég þetta bráðabirgðaákvæði vera óþarft og hef lagt þessa till. fram. En það er ekki vegna þess, að ég sé því mótfallinn í sjálfu sér. Og ef það virðist ríkjandi skoðun manna hér, að það sé öryggi fyrir leyfishafana, að slíkt bráðabirgðaákvæði sé í frv., þá mun ég ekki leggja neina sérstaka áherzlu á, að þessi till. komi til atkv., og mun því á síðara stigi draga hana til baka. Þarf svo ekki frekari orðum um það að fara.

Ég ætla þá að víkja að þeirri till., sem ég tel miklu meira máli skipta. Hún er um það að fella niður 10. gr., sem ákveður leyfisgjaldið. Ég álít eftir nánari athugun þessara mála, að það sé alveg óhætt og vel fært að fella þetta gjald niður, og skal færa nokkur rök að því.

Nú er þessu þannig háttað, að bankarnir leggja á sérstaka þóknun vegna yfirfærslu á gjaldeyri, og ég held, að það sé 1/2% á gjaldeyri, sem fer til vöruskiptalandanna, 3/8% á gjaldeyri, sem fer til sterlingspundasvæðisins, og 5/8% á gjaldeyri, sem fer til dollarasvæðisins. Nú er það að athuga, að þessi þóknun hefur verið miðuð við gömlu gengisskráninguna, en verður hér eftir miðuð við hina nýju gengisskráningu. Þetta þýðir það, að sá grundvöllur, sem þessi þóknun er miðuð við, eða sú velta, sem hún er miðuð við, hækkar raunverulega um 130% og bankarnir fá þarna þess vegna mjög verulega auknar tekjur og það svo mikið auknar tekjur, að þær ættu að geta nægt á móti þeim kostnaði, sem verður við þá starfrækslu, sem þeir taka að sér og innflutningsskrifstofan hefur áður haft með höndum. Hins vegar er óþarft í þessum lögum að vera að afla sérstakra tekna vegna verðlagseftirlitsins, vegna þess að síðar skilst mér, að verði lagt fram frv. um fyrirkomulag þess, og það er eðlilegt, að tekjuöflun vegna þess verði í því frv., en ekki þessu.

Hins vegar er það svo með þetta leyfisgjald, sem er áætlað í frv., að það verður í raun og veru miklu hærra en það leyfisgjald, sem nú er í gildi. Á seinasta ári námu leyfisgjöldin í kringum 8 millj. kr. Ég hef fengið kunnuga menn til að athuga fyrir mig, hvað leyfisgjöldin mundu verða há samkv. þessu frv., þegar búið er að taka til greina þær breyt., sem verða á frílistum. Niðurstaða þeirra er sú, að heildarupphæð leyfisgjalda, ef ákvæði þessa frv. yrðu notuð til fulls, verði ekki undir 16 millj. kr. Þessi hækkun liggur í því, að bæði í fyrra og eins núna er miðað við gengisskráninguna, en gengið hefur við gengisbreyt. hækkað um 130%, eða m.ö.o. sá grundvöllur, sem leyfisgjaldið er miðað við, hefur hækkað um 130%. Þess vegna má segja þetta m.ö.o. þannig, að leyfisgjald, sem nemur 1% á leyfi í ár, svarar til 2% á s.l. ári. Þess vegna gefur þetta 1% , sem er áætlað núna, í kringum 16 millj. kr. tekjur, í staðinn fyrir það, að það gaf ekki nema 8 millj. kr. í fyrra.

Nú mun mega reikna með því, ef maður miðar við þann kostnað, sem hefur orðið hjá innflutningsskrifstofunni, að sú starfræksla, sem bankarnir taka að sér og innflutningsskrifstofan hefur áður haft með höndum, muni kosta um 2 millj. kr. Samkv. þessu frv. er gert ráð fyrir því, að bankarnir fái helminginn af þeim tekjum, sem koma inn fyrir leyfisgjaldið, eða 8 millj. kr., ef heimildin, sem felst í frv., er notuð til fulls. Þetta þýðir það, að bankarnir eiga að fá fyrir þessa þjónustu um fjórfalda þá upphæð, sem innflutningsskrifstofan notaði til hennar á siðasta ári. Það sjá allir, að slíkt nær ekki nokkurri átt, og það hrekur það náttúrlega fullkomlega, sem hér hefur verið haldið fram af stjórnarliðum, að það muni hljótast sérstakur sparnaður af þessu fyrirkomulagi, þar sem gert er ráð fyrir því, að bankarnir fái nú fjórfalda þá upphæð til að annast þessa starfsemi, sem innflutningsskrifstofan þurfti á að halda áður. En það mun láta nærri, að sá kostnaður, sem innflutningsskrifstofan hafði af þeim verkefnum, sem bönkunum er nú ætlað að taka að sér, hafi verið eitthvað rúmlega 2 millj. kr. En eftir frv. geta bankarnir fengið 8 millj. kr. til þess að mæta þessum kostnaði.

Þetta, sem ég hef nú nefnt, sýnir, að það er ekki aðeins óþarft að hækka þetta gjald eins mikið og raunverulega er stefnt að í þessu frv., heldur á að vera hægt að losna við það, því að þær auknu tekjur, sem bankarnir fá af sínu yfirfærslugjaldi nú vegna gengisbreytingarinnar eða vegna þess, að grundvöllur þess hækkar um 130%, ættu alveg að nægja til þess að standa undir þeim aukna kostnaði, sem þeir kunna að hafa af því að taka umrædda þjónustu að sér.

Af því, sem ég hef nú rakið, hef ég lagt það til, að 10. gr. verði alveg felld niður, leyfisgjaldið verði alveg fellt niður og almenningi sparaðar með því 16 millj. kr., sem á að vera fullkomlega auðvelt, eins og ég hef bent hér á.