06.05.1960
Neðri deild: 77. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2386 í B-deild Alþingistíðinda. (790)
131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.
Frsm. 1. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Nú eru í gildi lög nr. 88 frá 1953, um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála, en ráð er fyrir því gert, að þau falli úr gildi, ef þetta frv., sem hér liggur fyrir, verður samþ. Í þessum lögum frá 1953 er ákvæði um það, að tveir bankar hér á landi, Landsbanki Íslands og Útvegsbanki Íslands, hafi einkarétt til að verzla með erlendan gjaldeyri, og í þeim lögum er einnig ákveðin skipting á keyptum gjaldeyri milli þessara tveggja banka, þannig að Landsbankinn á að fá 2/3 gjaldeyrisins, en Útvegsbankinn 1/3. Þó segir í lögunum, að þessu hlutfalli geti ríkisstj. breytt, ef báðir bankarnir samþykkja.
Þannig eru ákvæðin, sem nú gilda um gjaldeyrisverzlunina og hafa verið framkvæmd að undanförnu. Í þessu frv. er hins vegar ekki ákvæði um, hvaða bankar það séu, sem eigi að annast gjaldeyrisverzlunina framvegis. Í 4. gr. segir, að allur erlendur gjaldeyrir, sem hérlendir aðilar eiga eða eignast fyrir vörur, þjónustu eða á annan hátt, skuli seldur Landsbanka Íslands, seðlabankanum eða öðrum bönkum, sem hafa heimild til að verzla með erlendan gjaldeyri. Í annarri gr. er einnig svo að orði komizt, að úthlutun gjaldeyris- og innflutningsleyfa skuli þeir viðskiptabankar annast, sem hafa með höndum kaup og sölu á erlendum gjaldeyri. Þar eru ekki heldur nafngreindir þessir bankar.
Í lögunum um Landsbanka Íslands, sem sett voru árið 1957, segir, að Seðlabankinn skuli hafa með höndum kaup á erlendum gjaldeyri eða aðrir bankar í umboði hans, enn fremur sölu gjaldeyris til viðskiptabanka, sem stjórn Seðlabankans ákveður, svo og til ríkissjóðs.
Nú vil ég í tilefni af þessari breyt., sem hér er um að ræða og ég hef minnzt á, sem er í því fólgin, að gjaldeyrisbankarnir eru ekki nafngreindir í frv., leyfa mér að spyrja hæstv. viðskmrh., hvort honum sé kunnugt um, að nokkur breyting sé fyrirhuguð viðkomandi gjaldeyrisverzluninni. Mér skilst, að eftir lögunum frá 1957 um Landsbanka Íslands geti Seðlabankinn falið öðrum bönkum að annast þessa gjaldeyrisverzlun, þ.e. kaup og sölu á erlendum gjaldeyri í umboði hans. Ekki geri ég þó ráð fyrir, að stjórn Seðlabankans gæti tekið þann rétt af Útvegsbankanum, sem hann nú hefur til að verzla með erlendan gjaldeyri, því að í útvegsbankalögunum, sem einnig voru sett árið 1957, er skýrt fram tekið, að sá banki hafi heimild til að verzla með erlendan gjaldeyri. En mér skilst, að Seðlabankinn gæti veitt fleiri bönkum þennan rétt. Ég vil því spyrja hæstv. ráðh., hvort það muni vera fyrirhuguð breyting á þessu, hvort ætlunin sé t.d. að veita Búnaðarbankanum eða Iðnaðarbankanum, öðrum eða báðum, heimild til gjaldeyrisverzlunar, eða þá ef til vill nýjum banka eða nýjum bönkum, sem stofnaðir kynnu að verða. Þó að þetta virðist ekki samkvæmt lögunum vera háð beinlínis ákvörðun ríkisstj., þá þykir mér líklegt, að hæstv. ráðh., sá er fer með bankamál, geti svarað þessari fsp. Ég geri ráð fyrir, að honum sé um það kunnugt, ef fyrirhugaðar eru einhverjar breytingar að þessu leyti.