09.05.1960
Efri deild: 73. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2402 í B-deild Alþingistíðinda. (802)
131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir og farið hefur gegnum 3 umr. í hv. Nd., fjallar um mjög verulegar breytingar á skipan gjaldeyris- og innflutningsmála hér á landi. Sumpart eru þessar breytingar formlegs eðlis, þ.e. lúta að stjórn þessara mála, sumpart eru þær efnislegar og þó einkum og sér í lagi á þann veg, að verulegar breytingar munu verða á framkvæmd þessara mála í framhaldi af því, ef þetta frv. verður að lögum. Það er gert ráð fyrir, að á gildandi reglugerðum og þeim frílistum, sem heimilt er samkv. gildandi lögum og verður áfram heimilt að gefa út, muni verða gerðar mjög verulegar breytingar.
Ég skal nú gera nokkra grein fyrir helztu efnisbreytingum á skipan gjaldeyris- og innflutningsmála, sem gerðar munu verða, ef þetta frv. nær samþykki hér á hinu háa Alþingi.
Svo sem kunnugt er, hafa nú um nokkurra ára skeið verið í gildi hér á landi tveir frílistar. Annar hefur veitt heimild til þess að flytja inn vörur án leyfis, hvaðan sem er, hinn hefur veitt heimild til þess að flytja inn vörur frá ákveðnum löndum, frá vöruskiptalöndum. En þó að þessir frílistar hafi verið í gildi og átt að veita innflytjendum rétt til hömlulauss innflutnings, hafa þeir ekki verið raunverulegir, sérstaklega ekki sá frílisti, sem veita skyldi rétt til leyfislauss innflutnings frá öllum löndum, því að gjaldeyrisbankarnir, sem þurft hafa að selja gjaldeyri til kaupa á þessum vörum, hafa skammtað þann gjaldeyri mjög verulega. Hins vegar hefur innflutningur verið raunverulega frjálsari frá þeim löndum, sem við höfum haft vöruskiptasamninga við. Sá gjaldeyrir hefur legið lausar fyrir og því í ýmsum tilfellum verið auðveldara, þegar á heildina er litíð, að fá gjaldeyri til innflutnings frá vöruskiptalöndum en frá þeim löndum, sem selja hingað vörur gegn frjálsum gjaldeyri, ef allt er skoðað. Það hefur ekki aðeins verið þannig, að frílistarnir hafi ekki verið raunverulegir og þannig í raun og veru um höft á þeim innflutningi að ræða, sem að forminu til var talinn frjáls og skyldi vera frjáls, heldur hafa einnig þau leyfi, sem hin þar til skipaða nefnd, innflutningsskrifstofan, hefur gefið út og áttu að vera ávísun á gjaldeyri til kaupa á ákveðnum vörum, sem innflutningur er takmarkaður á, þessi leyfi hafa ekki heldur reynzt þau plögg, sem efni þeirra gaf til kynna að þau skyldu vera. Þótt innflytjandi hafi fengið gjaldeyrisleyfi eða innflutningsleyfi í sínar hendur, átti hann eftir að fá gjaldeyri til kaupa á vörunni samkv. innflutningsheimildinni, og það gat oft tekið langan tíma. Það var m.ö.o. einnig skömmtun á gjaldeyri af bankanna hálfu til kaupa á vörum samkvæmt innflutningsleyfum. Ég veit ekki, hvort ég á að segja að hafi verið óheppilegra, að engir frílistar skuli hafa verið í raun og veru, eða hitt, að gjaldeyris- og innflutningsleyfi skuli ekki hafa verið raunveruleg leyfi til innflutnings eða til ráðstöfunar á gjaldeyri, en hvort tveggja þetta hefur að sjálfsögðu verið alls kostar óhafandi ástand.
Það er höfuðtilgangur þessa frv. að ráða bót á þessu ástandi. Það er höfuðmarkmið þess, að þeir frílistar, sem gefnir verða út, verði raunverulegir, þ.e. innflytjendur eigi kost á að kaupa gjaldeyri tafarlaust til innflutnings á öllum þeim vörum, sem á frílistunum verða. Það er hins vegar aðaltilgangur frv., að leyfisveitingarnar verði skipulagðar þannig, að tryggt sé, að vörur fáist fluttar inn eins og leyfin segja til um. Gert er ráð fyrir því, að um það bil 60% af vöruinnflutningnum, eins og hann var á árinu 1958, verði á almennum frílista, sem veiti heimild til innflutnings á þeim vörum hvaðan sem er. Það er kunnugt, að undanfarið höfum við flutt allt frá 20 og upp í 35% af þeim vörum, sem við höfum flutt til landsins, frá jafnvirðiskaupalöndum. Það er gert ráð fyrir því, að vörur, sem við höfum að mjög verulegu leyti flutt þaðan, verði á sérstökum frílista og ekki heimilað að flytja þær vörur frá öðrum löndum en jafnvirðiskaupalöndunum, og tekur þessi vörulisti til u.þ.b. 25% af innflutningnum, eins og hann var, miðað við árið 1958. En innflutningur á þessum vörum verður ekki takmarkaður að magni til. Þó að hann verði bundinn við vöruskiptalöndin, er innflutningsmagn hans ekki takmarkað, þannig að segja má með sanni, að engar magnhömlur, engin höft í bókstaflegri merkingu orðsins verði á sem svarar 85% af innflutningnum, eins og hann var árið 1.958. Hins vegar er talið, að óhjákvæmilegt sé að binda leyfum innflutning á vörum sem svarar til um það bil 15% af innflutningsmagninu, eins og það var 1958. En nái þetta frv. fram að ganga, verður mjög breytt um tilhögun á veitingu gjaldeyris- og innflutningsleyfa fyrir þessu vörumagni, sem háð verður leyfum, þessum 15% af innflutningnum. Tilætlunin er að taka upp það fyrirkomulag á veitingu leyfanna, sem á erlendum málum er kennt við glóbalkvóta og mjög tíðkast hjá þeim þjóðum öðrum í Vestur-Evrópu, sem hafa hjá sér hliðstæðar innflutningstakmarkanir og þær, sem gert er ráð fyrir að við komum til með að halda að því er snertir 15% af innflutningnum. En í sem stytztu máli er þetta fyrirkomulag fólgið í því, að fyrir byrjun hvers árs ákveður ríkisstj., hversu mikið magn skuli heimilt að flytja inn á næsta ári af hverri einstakri vörutegund, sem þessi höft taka til, og ákveða það annaðhvort í magni eða verðmæti eða hvoru tveggja. Síðan er þeim aðila, sem með leyfaúthlutunina fer, falið að skipta úthlutun heildarársmagnsins á ákveðin tímabil, t.d. falið að úthluta 5 millj. kr. innflutningi á ákveðinni vefnaðarvöru í tveim, þremur eða fjórum hlutum og ákveðið, á hvaða dögum ársins þessi úthlutun skuli fara fram, og jafnframt eru úthlutunaraðilunum settar ákveðnar reglur um það, hvernig skiptingin skuli fram fara milli innflytjenda, og er þá algengast, að miðað sé við fyrri innflutning á einhverju ákveðnu árabili. Slíkar reglur, sem mikil og góð reynsla hefur fengizt af í nágrannalöndunum, t.d. á Norðurlöndunum hinum, er meiningin að taka upp hér, og ætti með því móti að vera hægt að komast hjá ýmsu handahófi, sem því miður hefur um of einkennt leyfaúthlutun hér á undanförnum árum, auk þess sem innflytjendum er þá gert kleift að vita fyrir fram, hvað heildarinnflutningurinn af hverri glóbalkvótavörutegund verður mikill, og vita fyrir fram nákvæmlega, hvenær því magni, sem í heild verður úthlutað, verður úthlutað, hvernig það skiptist á árið. Ef reglurnar, sem skiptingin milli innflytjenda fer fram eftir, eru líka opinberlega kunnar, eins og meiningin er að láta þær vera hér, þá getur hver innflytjandi vitað fyrir fram, þegar áður en árið byrjar, í öllum aðalatriðum, með hversu miklum innflutningi hann má reikna á árinu. Og ef ekki þurfa að verða snöggar breytingar, ef ekki verða þeir atburðir í viðskiptaheiminum eða á aðstöðu landsins út á við, sem gefa tilefni til snöggra breytinga, má gera ráð fyrir, að hér verði um að ræða fyrirkomulag, sem haldist í öllum aðalatriðum óbreytt frá ári til árs, þannig að öryggi innflytjendanna verður miklu meira en það hefur því miður verið um langan aldur undanfarið.
Að því er snertir gjaldeyrisgreiðslur fyrir öðru en innflutningi, er gert ráð fyrir, að þær verði háðar leyfum, t.d. gjaldeyrisgreiðslur fyrir námskostnaði, ferðakostnaði, eignayfirfærslu, skipaleigum og því líku, en reynt mun verða að setja sem almennastar reglur um þessi efni, þannig að leyfaúthlutunin beri sem minnstan keim af handahófi. Ég skal t.d. geta þess, að tilætlunin er að auka mjög verulega þá gjaldeyrisupphæð, sem menn geta fengið, ef menn hyggjast sigla til útlanda, hvort sem er í verzlunarerindum eða í sumarleyfi. Nú hafa menn fengið sem svarar 40 £ í slíku skyni. Gert er ráð fyrir, að það verði aukið upp í a.m.k. 70£ og jafnframt verði flugfélögum og skipafélögum heimilað að selja hér á landi farmiða til hvaða lands í heiminum sem er, þannig að hér þurfi ekki að sækja um gjaldeyrisleyfi til greiðslu á ferðakostnaði erlendis, heldur geri flugfélögin eða skipafélögin það í einu lagi gagnvart gjaldeyrisyfirvöldunum. Með því móti á almenn regla um gjaldeyri til þeirra, sem fara til útlanda, að koma miklu sanngjarnar niður. Um greiðslu námskostnaðar og sjúkrakostnaðar verða að sjálfsögðu settar almennar reglur, þannig að sem minnst handahóf komist þar að.
Ég skal þá, eftir að hafa gefið þessa stuttorðu og almennu lýsingu á því kerfi, sem gert er ráð fyrir að taka upp, leyfa mér að skýra hv. þd. frá því í aðalatriðum, hvaða vöruflokkar munu verða háðir leyfum, en það eru fyrst og fremst þessir:
Kartöflur, mjölvörur og sykur. Þungavara alls konar, svo sem kol, olía, járn, stál og timbur. Krossviður og hvers konar veggplötur. Vefnaðarvörur úr baðmull verða einnig yfirleitt háðar leyfum, enda er þar um að ræða einn þýðingarmesta þáttinn í viðskiptunum við jafnkeypislöndin, sokkar úr gerviþráðum og gólfábreiður. Enn fremur er gert ráð fyrir, að gúmmískófatnaður og hjólbarðar verði háðir leyfum. Sömuleiðis búsáhöld úr leir og gleri og rúðugler. Enn fremur járn- og trésmíðavélar, sem fluttar hafa verið inn frá jafnkeypislöndunum með góðum árangri. Þá ritvélar, rafmagnsmótorar, rafmagnsgeymar og spennar og jarðstrengur. Að síðustu verða bifreiðar háðar leyfum, að undanteknum vörubifreiðum, langferðabifreiðum og strætisvögnum.
Þá þykir mér rétt að skýra hv. d. frá því, hvaða vörur það eru helztar, sem áður hafa verið háðar leyfum eða verið á frílista frá jafnkeypislöndum, en verða nú á hinum almenna frílista, þ.e. verða nú frjálsar frá öllum löndum, þ.e. hvaða vörur það verða, sem innflutningur hefur hingað til verið háður höftum á, en verður nú frjáls frá öllum löndum. Ég tel það upp í sömu röð og það kemur fyrir í tollskránni:
Málning, handsápa og raksápa, björgunarbátar, ýmiss konar smíðaviður, síma- og raflagnastaurar, smíðatól og handverkfæri, dagblaðapappír og ýmiss konar annar pappír, þó ekki skrifpappír, pappírspokar, vefnaðarvörur úr ull, laufaborðar og leggingar, ýmiss konar tilbúinn karlmannafatnaður, skófatnaður úr leðri, reiknivélar, saumavélar, hvers konar vélar til iðnaðar og framleiðslu, að undanteknum járn- og trésmíðavélum, raflagningaefni, ljósaperur, vörubifreiðar, langferðabifreiðar og strætisvagnar, sjúkrabifreiðar, slökkvibifreiðar og kranabifreiðar, skip og bátar, flugvélar og hlutar til þeirra, hljóðfæri, ljósmyndavélar og hlutar til þeirra.
Svo sem á þessari upptalningu sést, er hér um að ræða mjög verulega aukningu á hinum almenna frílista. Hins vegar hefur frá upphafi verið ljóst, að gefa verður þeim íslenzka iðnaði, sem á mest í húfi vegna aukinnar samkeppni, er af þessum breytingum í viðskiptamálunum mun hljótast, nokkurt svigrúm til þess að búa sig undir þá samkeppni. Þess vegna hafa í samráði við iðnmrn. og samtök iðnrekenda verið valdar nokkrar vörur af þessum almenna frílista, og munu þær verða á sérstökum frílista, sem mun ekki taka gildi fyrr en 6 mánuðum síðar en hinn almenni frílisti, og er þá ætlazt til, að iðnfyrirtæki geti notað þann tíma til að búa sig undir þá vaxandi samkeppni erlendis frá, sem gera má ráð fyrir. Frá þessum lista hefur ekki endanlega verið gengið enn þá, en á honum munu ekki verða margar vörutegundir, að innflutningsverðmæti varla meira en um 20 millj. kr., en ein helzta vörutegundin á þessum lista er leðurskófatnaður. Það hefur komið í ljós, að ef innflutningur á leðurskófatnaði yrði gefinn frjáls nú þegar með hinum almenna frílista, mundi íslenzkur skóiðnaður eiga í vök að verjast, en honum mundi hins vegar nægja hálfs árs tími til þess að framkvæma vissar endurbætur og skipulagsbreytingar til þess að geta staðizt erlenda samkeppni, einkum og sér í lagi ef til kæmu einnig nokkrar breyt. á tollskrá, nokkrar leiðréttingar á tollskrá hinum íslenzka skóiðnaði í vil, og eru þær breytingar í athugun hjá sérstakri sérfræðinganefnd, sem um endurskoðun tollskrárinnar fjallar.
Þó að ljóst sé af þessum vörutegundum, sem ég nefndi að muni bætast við hinn almenna frílista, að mjög mun rýmka um höft í innflutningsverzlun landsmanna, er þó aðalbreytingin ekki fólgin í þessari stækkun frílistans, sem ég nefndi, heldur verður aðalbreytingin fólgin í hinu, að frílistinn verður raunverulega frjáls. Nú er eðlilegt, að menn spyrji: Hvernig má það takast allt í einu að gera hvort tveggja í senn, bæði stækka frílistann og lofa því, að hann verði raunverulega frjáls, þegar slíkt hefur ekki tekizt þrátt fyrir ýmsar tilraunir, sem til þess hafa verið gerðar hér á landi öðru hverju s.l. 30-40 ár? Sérstaklega mun þá ef til vill í fersku minni reynslan 1951, þegar einnig var gefinn út frílisti, sem reyndist ekki raunverulegur, þegar fram í sótti. Skýringin á þessu er tvenns konar. Hin fyrri er sú, að jafnframt þessum ráðstöfunum, eða réttara sagt áður en þær koma til framkvæmda, hefur verið gripið til mjög gagngerðra ráðstafana í fjármálum landsmanna innanlands. Það hafa verið gerðar mjög róttækar ráðstafanir að því er snertir útlánastefnu bankanna og þeirra útlánsvexti, þannig að tryggt á að vera, ef sú stefna fær að haldast árið út og framvegis, að ekki verður um óeðlilegar verðbólgumyndanir í útlánaaukningu af hálfu bankakerfisins að ræða á þessu ári. Enn fremur hafa fjárlög verið afgreidd mjög varlega og örugglega hallalaus, þannig að úr þeirri átt á ekki heldur að þurfa að óttast verðbólgupressu á verðlagið innanlands og innflutninginn. En það er einmitt þetta tvennt, sem hefur gert það að verkum, sumpart samtímis, sumpart á víxl undanfarna áratugi, að þær tilraunir, sem hafa verið gerðar til þess að losa um höft á innflutningnum, hafa mistekizt.
Eftir heimsstyrjöldina fyrri var höfuðorsökin til þess haftatímabils, sem þjóðin bjó við frá 1920 til 1923–24, röng verðbólgumyndandi útlánastefna af hálfu Íslandsbanka. Hið sama má segja að hafi verið meginskýringin á þeirri haftastefnu, sem haldið var uppi áratuginn frá 1930 til 1939. Frumorsök haftanna þá var að vísu hið mikla verðfall, sem á skall í heimskreppunni miklu 1930 og 1931, það var frumorsök þess, að höftin voru tekin upp, og missir Spánarmarkaðsins átti síðan verulegan þátt í því, að höftunum var haldið lengur en bein áhrif sjálfrar kreppunnar gerðu nauðsynlegt. En ef litið er á seinni hluta áratugsins 1930–40, var höfuðástæða þess, að höftum var þá enn haldið og var nauðsynlegt að halda þeim að öllu öðru óbreyttu, að af hálfu íslenzkra banka var haldið uppi útlánapólitík, sem var í engu samræmi við þá stefnu í innflutningsmálum, sem haldið var uppi, og gerði hana í raun og veru illframkvæmanlega, a.m.k. gerði henni ókleift að ná því marki, sem henni var ætlað að ná að halda uppi gengi krónunnar, enda lauk áratugnum með því, að gengi krónunnar var fellt vorið 1939. Í annan tíma hefur hins vegar röng fjármálastefna ríkissjóðs verið ein af höfuðorsökum þess, að hér hefur orðið að halda uppi höftum. Þetta á fyrst og fremst við tímabilið 1947–49 eða 1950, þegar gífurlegur halli var á ríkisbúskapnum. Reynt var að sigrast á erfiðleikunum með höftum, þó að það tækist hins vegar ekki, enda gripið til mikillar gengisbreytingar enn vorið 1950. Um siðasta áratug, sem nú er nýliðinn, er það að segja, að bæði þessi atriði hafa átt nokkra sök á því, — ég segi sök á því, — að óhjákvæmilegt hefur reynzt að halda útflutningsatvinnuvegunum gangandi með aðstoð nokkurra hafta, en þó hefur það miklu frekar verið sök óeðlilegrar útlánastefnu af hálfu bankanna en rangrar fjármálastefnu af hálfu ríkissjóðs. Auk þess hefur síðan stefnan í kaupgjaldsmálum og það vísitölufyrirkomulag, sem við höfum búið hér við allar götur síðan 1939, átt sinn þátt í að auka á þann skrúfugang verðlags og kaupgjalds, sem einkennt hefur þróunina svo að segja allar götur síðan 1939 og gert það ásamt öðru girnilegt a.m.k. að reyna að sigrast á erfiðleikunum með aðstoð hafta.
Með allar þessar staðreyndir í huga hefur ríkisstj., sem nú situr, ákveðið að ráðast fyrst og fremst að rótum meinsins. Hún gerir sér ljóst, að höft er því aðeins hægt að afnema, að skilyrði séu sköpuð innanlands fyrir því, að hægt sé að komast af án haftabúskapar, og þau skilyrði eru fyrst og fremst heilbrigð útlánastefna af hálfu bankanna, þ.e. að þess sé vel gætt, að engin verðbólgumyndandi áhrif komi frá útlánum bankanna, og svo hins vegar heilbrigð fjármálastefna ríkisins, þ.e. ríkissjóður sé örugglega rekinn með tekjuafgangi eða a.m.k. ekki með halla. Þessar ráðstafanir eru grundvöllur stefnu ríkisstjórnarinnar. Af því að hún telur sig hafa gert þær ráðstafanir á þessum sviðum, sem geri henni kleift að afnema innflutningshöft, að því leyti sem hún hyggst afnema þau, hefur hún boðað þá stefnu og vill fá með þessu frv. aðstöðu til að framfylgja henni. Hitt atriðið, við hlið heilbrigðrar stefnu eða jafnvægis í fjármálum innanlands, sem nauðsynlegt er að hafa í huga, ef skapa á aðstöðu til þess að afnema höft að verulegu eða mestu leyti, er, að um sé að ræða, að landið hafi yfir að ráða nokkrum erlendum gjaldeyrisvarasjóði. Eins og gjaldeyrismálum okkar hefur verið háttað á þessum áratug, er öllum kunnugt, að landið hefur ekki yfir að ráða neinum slíkum sjóði, heldur hefur þvert á móti skuldað erlendis. Þess vegna taldi ríkisstj. alveg nauðsynlegt, áður en hún gerði till. til Alþ. um þær efnahagsráðstafanir, sem hún er nú að beita sér fyrir, að tryggja sér yfirráð yfir allverulegum gjaldeyrisvarasjóði erlendis, á þann hátt að afla sér heimildar til yfirdráttar í þeim alþjóðastofnunum, sem hún er aðili að og hafa það hlutverk að veita löndum, sem líkt stendur á um og Ísland nú, yfirráð yfir gjaldeyrisvarasjóði í yfirdráttarheimildarformi. Þess vegna var þess farið á leit í desember við Efnahagssamvinnustofnun Evrópu í París og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í Washington, að þessar stofnanir veittu Íslandi yfirdráttarheimild, sem nemur samtals um 20 millj. dollara, og tókst að ná slíkum samningum við þessar stofnanir og mega þeir teljast vera mjög hagstæðir. Íslandi eru þar að vísu ekki veitt nein sérréttindi umfram það, sem öll aðildarríki þessara stofnana eiga kost á hjá þeim. Samningar þeir, sem um þessa yfirdráttarheimild hafa verið gerðir, eru að öllu leyti hliðstæðir þeim yfirdráttarsamningum, sem þessar stofnanir hafa gert við fjölmörg önnur aðildarríki sín. En engu að síður telst mjög mikil fyrirgreiðsla í þessum yfirdráttarheimildarsamningum. Í þeim felst mjög mikil aðstoð af hálfu þessara alþjóðastofnana við Ísland, meðan það er að tryggja framgang þessara viðreisnartilrauna í efnahagslífi landsmanna. Árin 1950 og 1951 átti Ísland því miður ekki aðgang að neinum slíkum yfirdráttarheimildum erlendis eða neinum slíkum erlendum gjaldeyrisvarasjóðum, og það átti án efa mjög verulegan þátt í því, að þær fyrirætlanir, sem þá voru uppi um afnám hafta, tókust því miður ekki betur en raun bar vitni um.
Þá vildi ég fara nokkrum orðum um viðskipti Íslands við jafnvirðiskaupalöndin og þau áhrif, sem sú nýskipan mála, sem gert er ráð fyrir að tekin verði upp, muni hafa á þau. Á hinum sérstaka frílista, sem á munu verða vörur, sem fluttar hafa verið aðallega frá jafnvirðiskaupalöndunum, munu verða vörur, sem nema um það bil 87% af innflutningnum frá þessum löndum eins og hann var 1958, þ.e. eftir sem áður mun verða óheimilt að flytja frá öðrum löndum en jafnkeypislöndunum 87% af þeim vörum, sem fluttar voru frá þessum löndum árið 1958, þannig að segja má, að innflutningur frá þessum löndum sé beinlínis verndaður að því er nemur 87% innflutningsmagnsins frá 1958.
Einhverjir kunna nú að spyrja, hvers vegna þetta sé nauðsynlegt og hvort þessi viðskipti séu ekki Íslendingum óhagkvæm, fyrst nauðsynlegt er að bægja samkeppnisvörum frá íslenzka markaðnum til þess að tryggja innflutning hingað á 87% af innflutningnum frá jafnkeypislöndunum. En þessu er ekki svo varið, að þetta sé neitt tákn þess, að þessi viðskipti séu landinu óhagkvæm. Langstærsti viðskiptaaðilinn af jafnkeypislöndunum eru Sovétríkin, og um það bil 97% af þeim vörum, sem við höfum flutt frá Sovétríkjunum, munu verða á hinum bundna frílista. Það mun því ekki verða hleypt til landsins svo að segja neinum vörum til þess að keppa við þær vörur, sem við flytjum inn frá Sovétríkjunum. En þetta er engan veginn tákn þess, að innflutningur okkar á þeim vörum, sem við flytjum inn frá Sovétríkjunum, sé landinu eða þjóðarbúskapnum í heild óhagkvæmur. Hér er aðallega um að ræða olíur og benzín, járn og stál, timbur og aðrar slíkar stórar massavörur, sem á er alþjóðlegt gæðamat, tegundamat, ef svo mætti segja, og fluttar eru hingað inn á heimsmarkaðsverði. Ástæðan til þess, að þessar vörur þurfa að vera á hinum bundna frílista, þannig að samkeppnisinnflutningur sé útilokaður, er fyrst og fremst sú, að nauðsynlegt er að gera stóra heildarsamninga um innflutning á þessum vörum, og engin önnur sjónarmið en þau, að við getum fengið þær jafngóðar frá Sovétríkjunum og annars staðar frá á sambærilegu verði, mega ráða því, að við kaupum vörurnar þar.
Þetta sama sjónarmið gildir að vísu ekki í jafnríkum mæli um næststærsta viðskiptalandið, sem er Tékkóslóvakía, vegna þess að þaðan kaupum við miklu fjölbreyttara vörumagn en frá Sovétríkjunum. Það er þess vegna, að hlutfall þeirrar vöru, sem er á bundna listanum, er lægra en af þeim vörum, sem við höfum keypt frá Sovétríkjunum. Engu að síður getur verið nauðsynlegt að binda innflutninginn við þessi lönd, til þess að vörur verði keyptar þaðan, þó að gæði og verð séu í sjálfu sér sambærileg, einungis af því, að gerð vörutegundanna getur a.m.k. í bráð virzt þannig, að ef menn væru algerlega frjálsir að sínu vali, mundu þeir heldur kjósa vörur frá öðrum löndum, sem krefjast frjáls gjaldeyris fyrir útflutning sinn hingað. Þetta á við í mjög mörgum tilfellum og er í sjálfu sér ekki óeðlilegt með hliðsjón af því, að hér er um tiltölulega ný viðskiptalönd að ræða, sem nokkurn tíma getur tekið að vinna sig inn á markað eins og íslenzka markaðinn.
Þetta, sem ég hef nú sagt, hef ég sagt til þess að reyna að réttlæta nauðsyn þess að hafa um það bil 87% af innflutningnum frá jafnvirðislöndunum beinlínis sem bundinn lista, þ.e. beinlínis verja þennan innflutning samkeppni frá frjálsgjaldeyrislöndunum. Ég segi aftur og enn, að þessa vernd má ekki túlka þannig, að hún sé í sjálfu sér vottur um litla samkeppnishæfni þessara landa á markaðnum hér. Hitt er svo annað mál, að eðlilegt er, að viðskiptasambönd, sem þó eru orðin jafngömul og þau, sem hér er um að ræða við jafnkeypislöndin, séu ekki vernduð algerlega, að þau fái einnig aðhald nokkurrar samkeppni frá öðrum löndum, frá hinum svokölluðu frjálsgjaldeyrislöndum. Það er þess vegna, sem sú stefna hefur verið tekin að því er snertir 13% innflutningsins frá 1958, að sá hluti hans verði að mæta nokkurri samkeppni frá frjálsgjaldeyrislöndunum. Þær vörur hafa verið til þess valdar fyrst og fremst, þar sem mest reynir á smekk neytandans og mest reynir á fjölbreytni í vöruvali.
Ýmsir hafa látið í ljós ugg um, að þessi staðreynd, að um það bil 13% innflutningsins frá 1958 muni nú verða að sæta samkeppni frá frjálsgjaldeyrislöndum, muni valda því, að innflutningur frá þessum löndum muni minnka um þessi 13% a.m.k. og þar með útflutningsmöguleikar okkar til þessara landa að nákvæmlega sama skapi. Þetta held ég, að sé á algerum misskilningi byggt. Ég held, að þessi viðskiptasambönd séu þegar orðin svo gömul og gróin, að tekizt hafi að koma hér upp markaði á Íslandi fyrir vörur frá þessum löndum, sem fullkomlega standist samkeppni frá frjálsgjaldeyrislöndunum, og þess vegna þurfi ekki að óttast samdrátt á viðskiptunum sem þessu svarar. Það þýðir að sjálfsögðu harðari samkeppni en verið hefur, en ég vona það og ég treysti því, að útflutningsfyrirtæki í jafnkeypislöndunum séu reiðubúin til þess að taka þá samkeppni upp og að þau reynist hæf um að standast þá samkeppni. Ef þau reynast það ekki, ber það vott um, að viðskiptin hafi ekki verið eins hagkvæm og æskilegt hafi verið.
Þeir, sem láta í ljós ótta um, að þessi staðreynd, að nú verði um að ræða nokkurt samkeppnisaðhald gagnvart nokkrum hluta af innflutningnum frá jafnkeypislöndunum, þeir, sem halda, að sú staðreynd hljóti að þýða minnkandi viðskipti við þessi lönd, hafa minni trú á samkeppnishæfni útflutningsfyrirtækja þessara landa en ég hef.
Ég er því mjög eindregið þeirrar skoðunar og vildi undirstrika hana hér alveg sérstaklega, að ég tel ekkert í þeirri nýju skipan gjaldeyris- og innflutningsmálanna, sem væntanlega verður tekin upp, nái frv. fram að ganga, muni geta leitt til þess, að viðskipti við jafnkeypislöndin hljóti að dragast saman og þar af leiðandi útflutningsmarkaðir okkar þar að minnka. Ég tel þvert á móti, að afleiðingin af hinni nýju skipan muni verða sú, að þessi viðskipti muni haldast í öllum aðalatriðum óbreytt, en að samkeppnin muni vaxa í nokkrum hluta þeirra og það leiða til hagkvæmari verzlunarkjara fyrir almenning hér í lækkandi vöruverði og auknu og fjölbreyttara vöruframboði, sem þá jafnframt mun treysta okkar útflutningsmarkaði í þessum löndum, því að það eru sannarlega ekki tryggir útflutningsmarkaðir, sem byggjast á því einu, að fluttar séu inn vörur til landsins á óeðlilega háu verði eða með óhagstæðum hætti, vegna þess að innflutningur þeirra er beinlínis verndaður með innflutningshöftum. Hitt er heilbrigðara, að við flytjum inn í vaxandi mæli frá þessum löndum vörur, sem standast samkeppnina frá frjáls gjaldeyrislöndunum, þó að ég telji, að sú þróun eigi að koma hægt, og þegar innflutningur hingað frá þessum löndum er þannig og þess konar, að hann stenzt heilbrigða samkeppni við fyrirtæki frá frjálskeypislöndunum, þá fyrst er markaður okkar í þessum löndum orðinn fullkomlega tryggður, og að því ber að sjálfsögðu að keppa.
Þá skal ég fara fáeinum orðum um þá skipulagsbreytingu á stjórn gjaldeyris- og innflutningsmálanna, sem verða mun, ef þetta frv. nær fram að ganga. Ég lýsti áðan því kerfi, sem mun verða á leyfisúthlutunum, og það er augljóst mál, að öll framkvæmd þess verður miklu einfaldari en þess kerfis, sem verið hefur í gildi um langt skeið undanfarið. Það verður svo miklu auðveldara að framkvæma þær minnkuðu leyfisveitingar, sem gert er ráð fyrir, að ríkisstj. hefur talið vera fært að leggja algerlega niður þá stofnun, sem undanfarið, eða raunar með nokkrum nafnbreytingum um nokkra áratugi, hefur annazt úthlutun gjaldeyris- og innflutningsleyfa. Þess vegna er gert ráð fyrir því í frv., að innflutningsskrifstofan verði lögð niður og úthlutun gjaldeyris- og innflutningsleyfa verði falin þeim viðskiptabönkum, sem verzla með erlendan gjaldeyri, þ.e. Landsbankanum og Útvegsbankanum. En auk þess er gert ráð fyrir, að fulltrúi úr viðskmrn. starfi að þessari gjaldeyrisúthlutun með fulltrúum gjaldeyrisbankanna, Landsbankans og Útvegsbankans, sem þetta verkefni fá í hendur, til þess að tryggja daglegt samstarf gjaldeyrisbankanna og viðskmrn. Af þessu mun hljótast mjög verulegur sparnaður í mannahaldi og húsnæði, og þetta mun gera kleift að lækka mjög verulega þau gjöld, sem undanfarið hafa verið heimt af innflutningi til þess að standa undir leyfisúthlutunarkostnaðinum.
Samkvæmt gildandi lögum ber að innheimta 1% af öllum leyfum, sem gefin eru út. Skv. þessu frv. er ríkisstj. heimilað að leggja allt að 1% gjald á þau leyfi, sem gefin verða út. Útreikningar hafa sýnt, — og það er raunar í nánari athugun einmitt þessa dagana, að líkur benda til, að ekki muni þurfa að innheimta nema sem svarar 1/2% af þeim leyfum, sem gefin verða út, auk þess sem gert er ráð fyrir, að ekkert leyfisgjald verði innheimt af leyfum til vöruinnflutnings frá jafnkeypislöndunum, enda væri það að heimta leyfisgjald af innflutningi þaðan, en taka ekkert leyfisgjald af innflutningi frá frjálsgjaldeyrislöndunum, í raun og veru að mismuna innflytjendum eða innflutningi frá þessum tveimur meginviðskiptasvæðum, og það má að sjálfsögðu ekki gera.
Af þessu, sem ég nú hef sagt, er augljóst mál, að þær upphæðir, sem teknar verða af innflutningnum til að standa undir kostnaði við leyfisúthlutunina, munu stórlega minnka frá því, sem verið hefur. Það væri raunar hægt að fara enn lægra, í raun og veru að afnema öll leyfisgjöld af innflutningi, ef ekki vantaði tekjustofn til að standa undir kostnaðinum við verðlagseftirlitið, en um mörg undanfarin ár hefur kostnaðurinn við verðlagseftirlitið einmitt verið greiddur af þessu leyfisgjaldi. Meginhluti af leyfisgjaldinu mun fara til greiðslu kostnaðar við verðlagseftirlitið. Ef annar tekjustofn yrði fundinn til að greiða þann kostnað, mætti fella leyfisgjald algerlega niður, því að kostnaður bankanna mun verða svo smávægilegur, að ég tel víst, að þeir mundu vera reiðubúnir til þess að taka hann á sig án nokkurs sérstaks endurgjalds, og veit raunar, að svo er.
Þá skal ég að síðustu fara fáeinum orðum um annað atriði frv. en sjálf innflutningsog gjaldeyrismálin. Það er III. kafli þess, þar sem ákveðið er, að þeim höftum, sem um 13 ára skeið hafa verið á fjárfestingarframkvæmdum, skuli nú létt af. Ákveðið hefur verið, að í stað þess fjárfestingareftirlits eða fjárfestingarhafta, sem tekin voru upp með lögum frá 1947 og ekki hafa reynzt árangursrík, hvorki hvað það snertir að takmarka heildarfjárfestinguna né heldur að beina henni inn á þær brautir, sem æskilegastar kynnu að vera taldar frá þjóðhagslegu sjónarmiði séð, komi víðtæk skýrslusöfnun um fjárfestinguna, sem einnig verði látin taka til fyrirætlana um fjárfestingu, þannig að ríkisstj. hafi aðstöðu til þess, ef henni þykir fjárfestingarfyrirætlanir beinast inn á óheppilega braut í heild eða í einstökum atriðum, að grípa í taumana eða beita sér fyrir því, að bankar grípi í taumana.
Í sambandi við þetta stendur svo það, að ákveðið er í 7. gr., að hvorki opinberir aðilar né einkaaðilar megi semja um lán erlendis til lengri tíma en eins árs nema með samþykki ríkisstj. Hér mundi að sjálfsögðu ekki geta verið um að ræða fjárfestingu í neinum stórum stíl, neina stórvægilega fjárfestingu, nema til komi erlent lánsfé eða þá að til komi stuðningur einhvers af ríkisbönkunum. Ef ríkisstj. getur með eftirliti með lántöku erlendis fylgzt með öllum stórvægilegum fyrirætlunum um fjárfestingu, auk þess sem náið samband er og á að vera milli ríkisbankanna og ríkisstj., þá hefur ríkisvaldið eftir sem áður aðstöðu til að fylgjast með fjárfestingunni í heild og einstökum atriðum, bæði með ódýrari hætti og með hagkvæmari hætti en tekizt hefur með því fjárfestingareftirliti, sem verið hefur hér s.l. 13 ár.
Að því er snertir ákvæði frv. um útflutninginn, er það að segja, að þau eru óbreytt frá gildandi lögum, nema að því leyti, að útflutningsnefndin er lögð niður, en störf hennar eru lögð undir það ráðuneyti, sem hafði þau með höndum, áður en útflutningsnefndin var stofnuð. Af störfum útflutningsnefndarinnar þykir ekki hafa orðið sú reynsla, að ástæða sé til að viðhalda henni. Hún hefur ekki fitjað upp á neinum þeim nýmælum, sem gera réttlætanlegt að halda henni. Þau verkefni, sem hún hefur unnið að, geta eins verið unnin og verða ódýrar unnin í því rn., sem áður hafði störfin með höndum.
Ég hygg, að ég hafi gert grein fyrir meginatriðum þessa frv. og meginrökunum, sem liggja til flutnings þess. Vildi ég að svo mæltu, herra forseti, leyfa mér að mælast til þess, að frv. verði vísað til 2. umr. og til hv. fjhn.