16.05.1960
Efri deild: 78. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2484 í B-deild Alþingistíðinda. (819)
131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.
Alfreð Gíslason læknir:
Herra forseti. Ég vil aðeins taka undir það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að hv. dm. yrði gefinn kostur á að athuga lítillega um þessa till., sem hér kemur nú fram við 3. umr. Ég legg dálítið mikið upp úr því, að við fáum allir tækifæri til þess að íhuga þetta a.m.k. til morguns, bæði athuga um afstöðu okkar til till. svo og hvort til mála kæmi, að við vildum gera þar einhverja breytingu við.
Þessu máli hefur í þessari hv. d. ekki verið flýtt meir en svo, að ég geri ráð fyrir því, að það verði auðsótt, þegar þau eindregnu tilmæli koma frá þdm., að fresta umr. í dag og veita þannig þdm. og þá þeim mönnum, sem með málið hafa sérstaklega að gera, tækifæri til þess að taka afstöðu til þess.