03.12.1959
Neðri deild: 9. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í B-deild Alþingistíðinda. (82)

16. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði 1960

Frsm. meiri hl. ( Sigurður Ingimundarson):

Herra forseti. Fjhn. hv. d. hefur haft frv. það, er hér liggur fyrir um bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði í ársbyrjun 1960, til athugunar. N. hefur ekki orðið á eitt sátt, en meiri hlutinn, þeir hv. þm., sem um getur í prentuðu nái. meiri hl., sem hér hefur verið útbýtt, leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.

Því hefur verið lýst yfir af hæstv. fjmrh., að ekki verði unnt að afgreiða fjárlagafrv. fyrir árið 1960 fyrir áramót af ástæðum, sem hann hefur þegar rakið við 1. umr. málsins, og hefur það raunar verið viðurkennt af sumum þeirra hv. þm., sem andæft hafa í málinu, að það hafi varla verið við því að búast, að það yrði hægt, eins og á stóð.

Fresturinn, sem farið er fram á um afgreiðslu fjárlaga, er ekki lengri en eðlilegt má telja og iðulega hefur áður tíðkazt. Á það verða varla bornar brigður, að nauðsyn beri til að staðfesta þá heimild, sem farið er fram á í frv., heimild til bráðabirgðafjárgreiðslna úr ríkissjóði, meðan fjárlög hafa enn ekki verið afgreidd. Það, hvort þingi verður frestað nokkrum dögum fyrr eða síðar í þessum mánuði, haggar ekki þeirri nauðsyn, og er því annarlegt sjónarmíð, sem meiri hluti n. telur að eigi ekki að hafa áhrif á afgreiðslu málsins. Frestun þingsins er þingmál út af fyrir sig, sem þm. gefst kostur á að ræða, þegar það kemur til umræðu. — Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþykkt óbreytt.