19.05.1960
Neðri deild: 84. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2485 í B-deild Alþingistíðinda. (827)
131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Hv. Ed. samþykkti við 3. umr. málsins þar í d. eina smávægilega breyt. á þessu frv. Hún felst í seinni málsl. ákvæðis til brb., en þar er fjmrn. heimilað, þar til endurskoðun tollskrár sé lokið, að lækka aðflutningsgjöld af efnivörum til skógerðar, ef viðtakandi vörunnar rekur skógerð og staðfestir í aðflutningsskýrslu, að efnivaran verði einungis notuð til framleiðslunnar.
Ég hef áður gert þessari hv. d. grein fyrir því, hvaða vörur gert væri ráð fyrir að bættust við á hinn nýja frílista, sem væntanlega verður gefinn út, um leið og lög þessi taka gildi, ef þau hljóta samþykki Alþingis. Að því er snertir sumar af þeim vörum, sem nú mundu bætast á hinn nýja frílista, er það að segja, að æskilegt er og eðlilegt að gefa íslenzkum iðnaði nokkurt ráðrúm, nokkurt svigrúm til þess að búa sig undir þá erlenda samkeppni, sem hann kemur til með að mæta við það, að frílistinn er aukinn. Ég hafði þegar gert hv. d. grein fyrir því, að þetta ætti fyrst og fremst við um íslenzka skógerð, en gert er ráð fyrir því, að leðurskór allir verði á hinum væntanlega frílista. Þess vegna hafði verið gert ráð fyrir því, að nokkur hluti frílistans tæki ekki gildi fyrr en sex mánuðum eftir að hinn almenni frílisti gengi í gildi. Við höfðum talið, að þessir sex mánuðir dygðu til þess að skapa íslenzkum iðngreinum, t.d. skógerðunum, skilyrði til þess að mæta erlendu samkeppninni, bæði með því að bæta rekstraraðstöðu sína og auk þess væri síðan hægt á þeim tíma að endurskoða þá tolla, sem þessar iðngreinar ættu við að búa, ef það reyndist nauðsynlegt, en endurskoðun tollskrárinnar er þegar hafin.
Við nánari athugun málsins hefur þó komið í ljós, að ekki er líklegt, að endurskoðun tollskrárinnar geti orðið lokið á þessu sex mánaða tímabili, og athugun hefur einnig leitt í ljós, að það er sérstök ástæða til þess að rétta íslenzkri skógerð hjálparhönd í því formi að lækka tolla á efnivöru til skógerðarinnar, til þess að henni verði kleift að standast samkeppni við erlenda leðurskógerð. Þess vegna var það, að ég flutti við 3. umr. málsins í Ed. till. um viðbótarákvæði við bráðabirgðaákvæðið, þar sem fjmrn. er heimilað að lækka aðflutningsgjöld af efnivörum til skógerðar, þangað til endurskoðun tollskrárinnar er lokið. Þessi till. var samþ. í hv. Ed. án nokkurs mótatkvæðis, og ég vildi mega láta í ljós þá ósk, að þessi hv. d. sýni þessu máli sama skilning og þessi breyting verði ekki til þess að tefja framgang málsins hér í þessari hv. deild.
Þá vildi ég með fáeinum orðum víkja að öðru máli. Svo sem hv. dm. er eflaust kunnugt, hefur nú um nokkurt árabil verið heimild í tollskrárlögum til þess að lækka aðflutningsgjöld af bifreiðum, sem fluttar eru til landsins handa sjúklingum, sem haldnir eru fötlun eða lömun eða öðrum skyldum sjúkdómum, en heimildin til að lækka aðflutningsgjöldin hefur verið miðuð við 50 bila í hæsta lagi á ári. Nú hefur viðsk.- og fjmrn. borizt erindi um það frá þeirri sérfræðinganefnd, sem fjallar um umsóknir frá þessum sjúklingum, að þessi tala verði aukin mjög verulega. Umsóknir liggja fyrir um niðurfellingu aðflutningsgjalda hjá þessari sérfræðinganefnd, svo að hundruðum skiptir, og hún telur sér algerlega ókleift að taka þessar mörg hundruð umsóknir til úrlausnar og mega ekki mæla með eða hafa ekki til ráðstöfunar nema 50 innflutningsleyfi, sem þessara hlunninda ættu að geta notið. Hún hefur því farið fram á það við ríkisstj., að þessi heimild verði aukin mjög verulega, og ríkisstj. hefur fyrir sitt leyti á sjónarmið sérfræðinganna fallizt og telur eðlilegt, að þessi heimild verði þrefölduð, þ.e. að hámarkstalan 50 verði aukin upp í 150. Hins vegar verði 40 þús. kr. hámarkið á eftirgjöf tollanna ekki aukið frá því, sem það hefur verið, þótt verð bifreiðanna hafi hækkað nokkuð, og er sérfræðinganefndin sammála þessari afstöðu, að það sé miklu eðlilegra og skynsamlegra að auka mjög verulega tölu bifreiðanna, sem eftirgjafarinnar geti notíð, heldur en að halda tölunni niðri og auka upphæð sjálfrar eftirgjafarinnar.
Í framhaldi af þessu, sem ég nú hef sagt, vil ég leyfa mér, herra forseti, að leggja fram skriflega brtt. við bráðabirgðaákvæði frv., sem hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Við bráðabirgðaákvæði frv. bætist eftirfarandi málsliður:
Á árunum 1960 og 1961 skal hámarkstala þeirra bifreiða, sem lækka má aðflutningsgjald af samkvæmt v-lið 3. gr. laga nr. 90 25. nóv. 1954, um tollskrá o. fl., vera 150 hvort árið (sbr. 2. gr. laga nr. 27 29, maí 1957).“
Ég tel eðlilegast, eins og málum er háttað og vegna þess að málið er mjög aðkallandi, að skjóta þessu ákvæði inn í þetta frv. frekar en að flutt verði sérstakt frv. um breyt. á tollskránni, sem þá mundi þurfa að fara í gegnum þrjár umræður í hvorri deild fyrir sig. Sérfræðinganefndin er orðin mjög á eftir tímanum með úthlutun bifreiðanna, beinlínis af því, að hún hefur ekki treyst sér til þess að framkvæma úthlutunina vegna þess, hve henni var þröngur stakkur skorinn.
Ég vona, að hv. dm. fallist á, að hér sé um sanngjarnt mál að ræða, og að þessi brtt. verði samþykkt og málinu geti orðið hraðað gegnum þessa hv. deild, og Ed., sem það þarf þá að sjálfsögðu að fara til aftur, ef þessi till. nær fram að ganga.