20.05.1960
Efri deild: 81. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2507 í B-deild Alþingistíðinda. (850)

131. mál, innflutnings- og gjaldeyrismál o.fl.

Frsm. 1. minni hl. (Björn Jónsson):

Herra forseti. Það má vera, að hæstv. viðskmrh. telji það algerlega fyrir utan sinn verkahring og hæstv. ríkisstj., hvort unnt er að standa við milliríkjaviðskiptasamninga eða ekki, en slík ummæli sem hann hefur um þetta, hafa ekki heyrzt áður af hendi ráðh.

En viðvíkjandi bifreiðunum verð ég að vísu að segja, að það er vel, að ríkisstj. hyggst auka þetta ofur lítið eða upp í það hámark, sem nú er í lögum. En jafnframt lýsti ráðh. yfir, að mér skildist, að ríkisstj. mundi ekki afla sér neinnar frekari heimildar til eftirgjafar en þessum 40 þús. kr. næmi. Þessi hámarksákvæði um upphæð eftirgjafarinnar munu hafa verið sett í lög árið 1958, fyrir efnahagsaðgerðirnar þá. En þá munu bifreiðar elns og þær, sem nú mun meiningin að úthluta, hafa kostað milli 60 og 70 þús. kr., þ.e.a.s. að heimild hefði verið fyrir því að fella niður meira en helming af kaupverði bifreiðanna. Nú nemur þetta ekki 1/3 hluta. Mér virðist því, að það væri full ástæða til þess, ef ríkisstj. vill veita öryrkjunum svipaða fyrirgreiðslu og áður, að breyta þessum hámarksákvæðum, og ef ríkisstj. hefði haft hug á því, ætti hún áreiðanlega auðvelt með að afla sér heimildar til þess hér á hv. Alþ. Ég hygg, að engir þm. eða hvorug þd. mundi láta hjá líða að veita slíkri heimild fljóta afgreiðslu í gegnum báðar deildirnar. Það væri mjög auðvelt að gera það, þó að áliðið sé orðið þings. Ég er sem sagt að lýsa því sem minni skoðun, að ég tel þessa eftirgjöf, jafnvel þó að hún sé hækkuð um 10 þús. kr. frá því, sem hefur verið, vera algerlega ófullnægjandi og er naumast meiri en þær hækkanir, sem orðið hafa nú á þessum vetri.