23.05.1960
Efri deild: 82. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2512 í B-deild Alþingistíðinda. (863)
154. mál, alþjóðasiglingamálastofnun (IMCO)
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, fjallar um fullgildingu á samþykkt um alþjóðasiglingamálastofnunina, Inter-Governmental Maritime Consultative Organization, sem samþykkt hefur verið af mörgum löndum og er gerð að undirlagi Sameinuðu þjóðanna. Eins og kunnugt er, hefur Ísland áður verið aðili að milliríkjasamþykktum um siglingamál, aðallega og kannske fyrst og fremst að svokallaðri Kaupmannahafnarsamþykkt, sem tekur til Norðurlandanna allra, Hollands og raunar nokkurra landa fleiri, um mál, sem sérstaklega snerta siglingar, öryggi sjómanna á hafinu, gerð skipa, björgunartækja og ýmislegt þess háttar.
Þegar Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar, kom það fljótlega í ljós, að heppilegt mundi vera, að þær beittu sér fyrir ýmiss konar alþjóðasamþykktum, ekki einasta þessari, sem hér er um að ræða, heldur á mörgum öðrum sviðum: á sviði uppeldismála, á sviði flóttamannavandamála, á sviði matvælaöflunar, og ýmislegt fleira mætti nefna, þar sem Sameinuðu þjóðirnar hafa beitt sér fyrir að gerðar væru alþjóðasamþykktir varðandi þessi vandamál, í staðinn fyrir að um minni samtök væri að ræða. Það var þess vegna mjög fljótlega, eftir að Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar, að gengizt var fyrir því, að haldin var ráðstefna í Genf 1948, þar sem þessi samþykkt, sem hér um ræðir, eiginlega varð til. Í þessari ráðstefnu tóku þátt yfir 30 lönd, en þó var uppkastið við lokaafgreiðsluna samþykkt af aðeins 21 landi, en 7 lönd, þ. á m. Norðurlöndin, sátu hjá við atkvgr. Það var út af því, að þó að þau væru að efni til samþykk meginhluta þessarar samþykktar, þá felst í henni, eins og hún var orðuð og eins og hún er enn orðuð, möguleiki til þess að láta hana ná til annarra hluta en beint tæknilegra hluta, þ.e.a.s. fjárhagsaðgerða ýmiss konar. Á móti þessu voru Norðurlöndin og undirrituðu þess vegna síðar samþykktina með fyrirvara um þetta.
Í þessu frv., sem hér liggur fyrir, er einnig gert ráð fyrir, samkv. 1. gr., að Ísland muni taka staðfestingu sína til athugunar á ný, ef síðar verður ákveðið, að siglingamálastofnunin skuli einnig fjalla um mál, sem eru algerlega fjármálalegs eða viðskiptalegs eðlis, þannig að við höfum um það atriði sama fyrirvara og Norðurlandaþjóðirnar.
Íslendingum er mjög nauðsynlegt að vera með í samtökum eins og þessum til þess að tryggja sér allar fáanlegar upplýsingar um tæknilegar úrlausnir sérstaks eðlis, sem snerta siglingar, og stuðla að sem fullkomnustum ákvæðum um öryggi á hafinu og nýtingu siglinganna. Það er sérstaklega í þessari veru, sem nauðsynlegt er fyrir okkur að taka þátt í samtökum eins og þessum, og þess vegna hefur ríkisstj. ákveðið að leggja til, að það verði gert. Samþykktin hefur verið fullgilt af um 30 löndum og hefur þegar tekið gildi fyrir tveimur mánuðum, og einmitt um þessar mundir er fyrsti fundur stofnunarinnar um það bil að hefjast.
Ég skal ekki fara út í að rekja efni samþykktarinnar. Það er, eins og venjulegt er í þessum alþjóðasamningum, ýtarlega gerð grein fyrir starfseminni, hvernig hún fari fram og hvernig skipting starfa sé þar höfð á, og um stjórnir, öryggisnefndir o.fl., sem nánar er tilgreint í samningnum og hv. alþm. geta gert sér fullkomna grein fyrir með því að lesa hann. Það er ekkert sérstakt, sem ástæða er til að taka fram í þessu sambandi, að ég ætla, nema þetta atriði, að um þátttöku í fjárhags- og viðskiptalegum aðgerðum er stjórnin sammála um, að við eigum að hafa fyrirvara, líkt og aðrar Norðurlandaþjóðirnar, en halda okkur eingöngu við þá tæknilegu hluti.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, en vildi leyfa mér að leggja til, að frv. yrði að þessari umr. lokinni vísað til hv. sjútvn., með tilmælum þó um, að afgreiðslu málsins verði hraðað, þar sem nú er komið nálægt þinglokum, en nokkur áherzla er á það lögð, að hægt verði að fullgilda samþykktina, áður en þing þessarar stofnunar kemur saman í London, eða a.m.k. um það bil sem það kemur þar saman, því að skipaskoðunarstjóri, sem verður okkar fulltrúi þar, telur sig þá hafa betri aðstöðu til þess að sjá sínum málum farborða.