27.05.1960
Efri deild: 85. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (866)
154. mál, alþjóðasiglingamálastofnun (IMCO)
Frsm. (Eggert G.,Þorsteinsson):
Herra forseti. Á stundum heyrast raddir um það, að Íslendingar eyði um of miklu fé og tíma í aðild að ýmiss konar alþjóðasamtökum. Á hinn bóginn eru allir sammála um, að seint verði of miklu fórnað til þess að fylgjast með, svo sem bezt má verða, í sambandi við að gera samgöngurnar á sjó svo fullkomnar sem kostur er, enda er þjóðin í ríkum mæli háð siglingum og hefur verið frá öndverðu.
Frv. þetta fjallar um að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um Alþjóðasiglingamálastofnun, IMCO, eins og heiti hennar er skammstafað. Samþykkt þessi var gerð á ráðstefnu, er haldin var fyrir atbeina Sameinuðu þjóðanna og undirrituð í Genf 6. marz 1948.
Til frekari rökstuðnings um framgang þessa máls leyfi ég mér að vísa til fskj. II, sem er bréf skipaskoðunarstjóra, dags. 27. apríl 1959, og prentað er með frv., og jafnframt til framsöguræðu hæstv. sjútvmrh. fyrir málinu hér í hv. þd. á dögunum.
Sjútvn. hefur rætt málið og mælir einróma með samþykkt þess óbreytts, eins og fram er tekið á þskj. 521.